Dagur - 23.06.1981, Blaðsíða 1

Dagur - 23.06.1981, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR , SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREYRI 64. árgangur Akureyri, þriðjudagur 23. júní 1981 ■■■■ 47. tölublað Krossanesverksmiðjan: Nýju tækin koma í haust BYGGÐA- ÞRÓUNAR- ÁÆTLUN FYRIR EYJA- FJARÐAR- SVÆÐIÐ Nú hefur verið ákveðið að gera byggðaþróunaráætlun fyrir Eyjafjarðarsvæðið og sam- kvæmt samþykktri starfsáætlun er Byggðadeild Framkvæmda- stofnunar ríkisins heimilt að hefja undirbúning á þessu ári með úttekt á mannafla og at- vinnuhorfum. Byggðaþróunaráætlunin verður unnin í samstarfi við Fjórðungs- samband Norðlendinga og sveitar- stjórnir við Eyjafjörð. Stefnt er að því að næsta haust komi út sérstök skýrsla um þetta efni, en umsjón með verkinu hefur Sigurður Guðmundsson. I byggðaþróunar- áætlun sem þessari er tekið mið af þróun og stöðu í mannafla- og at- vinnumálum og landkostir og fleiri atriði tekin með í myndina. Nú er unnið að byggðaþróunar- áætlun fyrir Siglufjörð og áætlun- argerð fyrir Húsavíkursvæðið er komin á undirbúningsstig. Þá er í athugun að endurskoða byggða- þróunaráætlun fyrir N.-Þingeyjar- sýslu. TRABANT RÉÐST TIL ATLÖGU! Trabant fólksbifreið réðst í gær til atlögu við aðra blikkbelju á aðal- götunni á Svalbarðseyri. Ekki valdi hann sér ómerkilegri andstæðing en stóra Volvo flutningabifreið, enda fóru leikar þannig, að Trabantinn lá óvígur eftir, lítt ferðafær. Trabantinn mun hafa brotnað talsvert og er ekki líklegur til mik- illa afreka næstu daga. Volvo flutningabifreiðin lét hins vegar lítið á sjá og ætti að geta þjónað húsbændum sínum sem ekkert hafi í skorist. - Sv. Lax. „Við vonumst til að geta prófað nýju tækin í endaðan september. Nú erum við að rífa niður annan gamla þurrkarann og því sem honum tilheyrir, svo við getum „Nú er verið að athuga mögu- leika á að ná sáttum um að húsin verði rifin svo að málaferli um bætur tefji ekki framkvæmdir. Þetta yrði þá gert með því að láta fara fram mat á húsunum, sem síðan yrði lagt til grund- vallar í bótamálinu,“ sagði Hreinn Pálsson, bæjarlögmaður á Akureyri, í viðtali við Dag um málshöfðun bæjarins gegn eig- endum Skipagötu 21. Deilur eru um það hvort bætur eigi að komið nýju tækjunum fyrir, án þess að þurfa að stöðva vinnsl- una,“ sagði Pétur Antonsson, framkvæmdastjóri Krossanes- verksmiðjunnar, í viðtali við koma fyrir húsið, en það þarf að fjarlægja vegna skipulags, sem gerir ráð fyrir vegi og bílastæð- um á svæðinu milli Torfunefs- bryggju og Skipagötunnar. Hreinn Pálsson sagði, að enn hefði ekki verið fallist á þessa lausn á málinu, en búast má við að framkvæmdir tefjist i ein tvö ár a.m.k., ef ekki verður á þetta fallist. Þá hefur það gerst, að eigendur Skipagötu 13, þar sem afgreiðsla Drangs er meðal annars, hafa mót- mælt því að það hús eigi að fara Dag um ný tæki i verksmiðjuna, en þau koma til landsins í næsta mánuði og verður strax hafist handa við að koma þeim upp. bótalaust. Bæjaryfirvöld telja hins vegar ekki um neinn vafa að ræða í því sambandi, þar sem húsið var byggt með bráðabirgðaleyfi og takmörkuðum lóðarleiguréttind- unt. Ekki er ósennilegt að til mála- ferla geti einnig komið út af því húsi. Engum mótmælum hefur verið hreyft vegna brottnáms gamla kornvöruhúss kaupfélagsins, en réttur hefur verið áskilinn til bóta ef niðurstaða dómsmálsins vegna Skipagötu 21 fer á þá leið, enda um sambærileg leyfi að ræða til bygg- að koma öllum nýju tækjunum fyrir þegar loðnuvertið hæfist, sem nú er ræít um að verði 10. ágúst, þá væri hugsanlegt að afköst verk- smiðjunnar yrðu orðin þau sömu og þau eru nú. þar senr þá verður væntanlega búið að koma fyrir sogkjarnatæki og forsjóara. Nýtt rafkerfi verður sett í alla verk- smiðjuna um leið og skipt verður um tæki og hafa verktakar á Akur- eyri sameinast um verkefnin. Með tilkomu þessara nýju tækja á mengun að vera því sem næst úr sögunni frá Krossanesverk- smiðjunni. Afgangsorka frá sog- kjarnatækinu verður nýtt aftur í forsjóðaranum. Hringrás verður á loftinu og reyknum, sem til þessa hefur streymt út í loftið og valdið mikilli mengun. Með þessari end- urnýtingu orkunnar í reyknum minnkar olíunotkun um upp undir helming, að því er ætlað er. Þá má geta þess, að nú er verið að taka í notkun hráefnistanka fyrir bein og annan úrgang og þegar það verður komið í gagnið verður allt hráefni verksmiðjunnar í lokuðu kerfi. Tölva mun sjá uni eftirlit og stjórnun tækja í verksmiðjunni. sem verða við það mun auðveldari en áður. Er þetta fyrsta tölva sinnar tegundar hér á landi. ingar húsanna í upphafi. Ekki var gerður neinn venjulegur lóðar- leigusamningur. þegar þessar svo- kölluðu upplagslóðir á Torfunefi voru veittar nokkrum aðilum af hafnarnefnd árið 1927. Deilan snýst um orðalag á bókun vegna bygginganna. Þess má geta. að þarna voru áður fvrr fleiri mann- virki. sent rifin hafa verið án þess að til málareksturs hafi komið. Líklegt er að dómsmálið út af Skipagötu 21 verði þingfest i bæj- arþingi Akurevrar á fimmtudag. Pétur sagði, að þó ekki yrði búið Það ætti senn að heyra fortíðinni til, að reykinn frá Krossancsi leggi ineð þessuni hætti yfir húsin í þorpinu. Nýju tækin eiga að gera verksmiðjuna svo gott sem mcngunarlausa. Mynd H. Sv. Bótamál vegna niðurrifs Skipagötu 21: TEFJAST FRAMKVÆMD- IR VEGNA MÁLAFERLA? REKSTURINN GEKK VEL „I heild má segja að starfsemin hafi gengið vel og nýting á stöð- inni verið með besta móti,“ segir meðal annars í ársskýrslu Slipp- stöðvarinnar h.f. á Akureyri fyr- ir árið 1980, en aðalfundur fé- lagsins var haldinn s.l. föstudag. í skýrslunni segir ennfremur, að verkefni hafi verið mikil á árinu og framleiðsluvinnustundir voru 474.994 borið saman við 484.391 stund árið 1979. Rekstur Slipp- stöðvarinnar var gerður upp með hagnaði sem nemur 13,1 milljón gkr. og afskriftir nárnu 181 milljón gkr. Fjárfestingar á árinu námu 388 milljónum gkr. í ársskýrslunni kemur fram, að eiginfjárstaða fyr- irtækisins sé sterk. Sérstakur kafli er í ársskýrslunni um framtíðarhorfur og segir þar að ljóst sé að stór hluti íslenska fiski- skipaflotans sé orðinn gamall og úr sér genginn. Þannig verði um helmingur flotans eða um 400 skip orðin 20 ára eða eldri eftir 2-3 ár og auk þess sé hluti af togara- flotanum farinn að eldast þannig að einhver endurnýjun muni þurfa að eiga sér stað á næstu árum, enda þótt það verði ekki í miklum mæli. Afkastageta innlendra skipasmíða- stöðva sé hins vegar ekki það mikil að þær ættu að geta haft næg verk- efni. Starfsemi Slippstöðvarinnar gekk vel á sfðasta ári og ekki virðist hörguli á viðgerðar- og viðhaldsverkcfnum, því skipin bíða í röðum. Mynd: H.Sv. Steindór heiðursdoktor Steindór Stcindórxson frá Hlöðum var sæntdur heið- ursdoktorsnafnbót við Há- skóla íslands á 17. júní, ásamt öðrum kunnum fræði- manni, Lúðvík Kristjánssyni. Steindór var sem kunnugt er um árabil kennari við Mennta- skólann á Akureyri og síðar skólameistari. Jafnframt þvi vann hann umtalsverð afrek á fræðasviði sinu. sem er grasa- fræði, og einnig hefur hann þýtt fjölda rita sagnfræðilegs efnis. AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.