Dagur - 23.06.1981, Blaðsíða 8
ÞJÓNUSTA
FYRIR
HÁÞRÝSTISLONGUR
OLfUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
1 1
AFKÖSTIN
VERÐA
FJÓR-
FÖLDUÐ
Túnsbergi 16. júní
Verksmiðja Kaupfélags
Svalbarðseyrar á Svalbarðs-
strönd sem framleiðir svo-
kallaðar „franskar kartöfl-
ur“ hefur starfað af fullum
krafti í nokkurn tíma, og
hefur gengið mjög vel að
selja framleiðsu verk-
smiðjunnar.
Þar hefur verið unnið á tví-
skiptum vöktum og hefur fram-
leiðslan verið um 2 tonn á 16
klukkustundum. Engin vand-
kvæði hafa verið á því að selja
framleiðsluna, heldur má segja
að færri hafi fengið en viljað
hafa.
Nú er ákveðin stækkun
verksmiðjunnar, og er reiknað
með að eftir að þeim fram-
kvæmdum lýkur hafi afköstin
fjórfaldast. Verður þá hægt að
vinna þar 7-8 tonn á 16 klukku-
stundum miðað við gott hrá-
efni. Þegar eru hafnar fram-
kvæmdir við stækkun verk-
smiðjunnar, og sum þeirra
tækja sem setja þarf upp til við-
hótar eru þegar komin á stað-
inn.
Sem dæmi um ásókn í fram-
leiðslu verksniiðjunnar má
nefna að í síðustu viku fóru 7
tonn til sölu í Reykjavík. og
voru þau seld hjá Grænmetis-
verslun Landbúnaðarins þar á
10 mínútum. Er því Ijóst að
mikill og góður grundvöllur er
fyrir aukinni framleiðslu.
Menn hafa að vonum af því
nokkrar áhyggjur hvernig fari
með kartöfluuppskeru í ár, en
verði hún léleg verður að kaupa
hráefni erlendis frá. „Frönsku
kartöflurnar" frá Svalbarðseyri
eru seldar í neytendaumbúðum.
og er vörunni pakkað í 800 g og
2ja kg pakkningar. S.L.
Brúargerð við Hrafnagil:
Reiknað með að vegurinn
sígi um rúma 3,5 metra
Framkvæmdir við brúargerðina
yfir Eyjafjarðará milli Hrafna-
gils og Laugalands eru nú hafn-
ar af fullum krafti og reiknað er
með að búið verði að steypa
stöplana og koma fyrir burðar-
bitum á milli þeirra í ágúst.
Vegagerð að brúnni er hins veg-
ar erfiðari en búist var við, vegna
þess hve aurbleytur eru miklar
og sem dæmi má nefna, að
reiknað er með að vegurinn sígi
ví*
Þar scm mjög djúpt er á fast, verður að reka niður steypta og jámbenta staura sem
undirstöðu brúarstólpanna. Mynd: H. Sv.
450-500 í
kirkjukór
Sönghátíð allra kirkjukóra á
Norðurlandi verður haldin
sunnudaginn 28. júní n.k. á Ak-
ureyri. Gera má ráð fyrir að
450-500 félagar í kirkjukórum
norðan lands taki þátt í hátíð-
inni.
Hátíðin hefst með guðsþjónustu í
Akureyrarkirkju kl. 11. Prófastar
Hólastiftis ásamt séra Birgi Snæ-
björnssyni annast guðsþjónustuna
og séra Pétur Sigurgeirsson, vígslu-
biskup predikar. Kórar Akureyrar-
og Lögmannshlíðarsókna leiða
sönginn.
Skcinnitiferðaskipið Estonia i Akureyrarhöfn.
Ljósm gk-
Stefán frá Heiði
heiðursborgari
Þann 17. júní s.l. gerði sveit-
arstjórnin í Mývatnssveit
Stefán Sigfússon frá Heiði
að heiðursborgara Mývatns-
sveitar.
Stefán varð áttræður þann 5.
júní s.l. og er enn vel ern. Hann
hefur um litríka ævi unnið mörg
heilladrjúg störf fyrir sveit sína.
Hæst bera þar þó störf hans við
húsbyggingar, og mun hann
ekki hafa byggt færri en 26 hús í
Mývatnssveit. Stefán er annar
heiðursborgari Mývatnssveitar.
Sá fyrsti var Jón Gauti Péturs-
son sem lengi var oddviti í Mý-
vatnssveit.
FYRSTA SKEMMTIFERÐASKIPIÐ
Fyrsta skcmmtiferðaskipið sem
kemur til Akureyrar á þessu
sumri kom til bæjarins s.l.
fimmtudagskvöld, en það var
sovéska skipið Estonia með um
200 v-þýska ferðamenn innan-
borðs.
Skipið hafði hér viðdvöl til
hádegis daginn eftir, en hélt þá til
Húsavíkur. Þar komu um borð um
kvöldið rúmlega 100 manns sem
höfðu farið í skoðunarferð til
Mývatns. Um 50 manns fóru hins-
vegar gangandi í skoðunarferð um
Akureyrarbæ.
Að sögn Gísla Jónssonar á
Ferðaskrifstofu Akureyrar sem
hafði með móttöku skipsins að gera
mun skipið koma hingað aftur í
næsta mánuði. Gísli sagði að alls
um rösklega þrjá og hálfan
metra, þar sem verst er, að sögn
Sigurðar Oddssonar, umdæmis-
tæknifræðings hjá Vegagerð-
inni.
Brúin verður byggð á sex stöpl-
um og þar sem mjög djúpt er á fast,
þarf að reka niður 15 metra langa
steypta staura, sem stöplarnir hvíla
síðan á. Eru 15 slíkir staurar undir
landstöplinum að vestanverðu, 9
undir millistöplunum fjórum og 11
undir landstöplinum að austan-
verðu. Brúin verður samtals rösk-
lega 137 metrar á lengd. í haust
verður hitaveitulögnin frá Botns-
■ laug síðan lögð eftir stöplunum yfir
að Laugalandi, en óvíst er hvenær
lokið verður við brúna til umferðar.
Yfirsmiður við brúargerðina er
Jakob Böðvarsson.
Efnistaka í veginn að brúnni er
við Munkaþverá, sem er 2,6 km frá
brúarstæðinu og þarf að leggja
vegarslóða á þessa leið með 40-50
cm þykku burðarlagi. Unnið er við
gerð þessa vegarslóða, en ekki
byrjað á sjálfri vegargerðinni að
brúnni.
ANDSTÆÐ SJÓNARMIÐ
Klukkan 16 hefst svo sönghátíð í
íþróttaskemmunni á Akureyri. Þar
mun Eyþór Stefánsson tónskáld
flytja ávarp og kirkjukórar hvers
prófastsdæmis munu syngja hver
um sig en einnig sameiginlega.
Mun sameiginlegi kórinn telja
450-500 manns. Strengjasveit
Tónlistarskólans á Akureyri leikur
undir.
Sönghátíð þessi er haldin í
tengslum við kristniboðsárið og er
aðgangur ókeypis, en tekið verður
við samskotum til styrktar kristni-
boðsárinu.
í fjölmiðlum undanfarna daga
hefur töluvert verið rætt um
framtið Kisiliðjunnar h.f. við
Mývatn. í Timanum miðviku-
daginn 17. júní ,er haft eftir
Arnþóri Garðarssyni for-
stöðumanni Líffræðistofnunar
Háskólans að nýtanlegt hráefni
Kísiliðjunnar h.f. yrði gengið tii
þurrðar eftir 10-15 ár.
Eftir því sem Dagur kemst næst
er hér um mjög takmarkað svæði
að ræða í Mývatni, sem líffræðing-
ar telja mjög varhugavert að fara út
fyrir. Hinsvegar hefurkomið fram í
máli forráðamanna Kísiliðjunnar
h.f. að nóg sé af kísilgúr í vatninu
og jafnvel á þessu afmarkaða
svæði. Það er hinsvegar augljóst að
það hráefni sem er innan hins af-
markaða svæðis endist ekki til
eilífðar og þarf því fyrr en síðar að
hefja hráefnatöku annars staðar í
vatninu. Hér rekast því á tvö sjón-
armið, annars vegar það, að friða
og vernda sem allra mest lífríki
Mývatns, og hinsvegar sjónarmið
þeirra sem vilja nýta sem best þá
auðlind sem er á botni Mývatns og
hefur fært íslendingum drjúgar
gjaldeyristekjur gegnum árin.
kæmu skemmtiferðaskip 9 eða 10
sinnum til Akureyrar í sumar, sum
reyndar oftar en einu sinni. Allt eru
þetta skip sem hafa haft hér viðdvöl
áður, en á næsta ári bætast ný skip í
þann flota skemmtiferðaskipa sem
hingað sækir með farþega sína,
m.a. hið nýja skip Evropa sem enn
er reyndar ekki komið á flot, en það
tekur tæplega 1000 farþega.
O
rp [X MT? trp T ■'Ö (P °fl
ö ii /ilu JLb s J_IU_
% Silfur
í Noregi
Þær ánægjulegu fréttir hafa
borist hingað til lands að
lúðrasveit barna úr Tónlistar-
skólanum á Akureyri sem
hefur að undanförnu verið á
ferðalagi í Noregi hafi unnið
þar tii silfurverðlauna í mikilli
keppni iúðrasveita.
í keppninni munu hafa tek-
ið þátt um 160 lúðrasveitir
víðsvegar að, en krakkarnir
frá Tónlistarskólanum á Ak-
ureyri létu engan bilbug á sér
finna og undir leiðsögn Roar
Kvam hrepptu þau annað
sætið. Sannarlega glæsileg-
ur og gleðilegur árangur því
það er ekki á hverjum degi
sem íslendingar vinna til silf-
urverðiauna í alþjóðlegri
keppni erlendis.
% „Kolmórauð-
ur sjórinn“
Mjög miklar leysingar hafa
átt sér stað í hlýjunni undan-
farna daga og ár vaxið mikið.
Gleráin streymir fram sem
stórfijót væri, kolmórauð og
leiðinleg ásýndum, og ekki
lætur Eyjafjarðará minna yfir
sér. ( hlíðum fjalla belja svo
fyrrverandl smálækjar-
sprænur fram og láta mikið.
Pollurinn hefur ekki farið
varhluta af þessu, og hefur
verið brúnn eins og kaffi.
Finnst mörgum þessi annars
mikla bæjarprýði vera fremur
Ijót ásýndum og einn þeirra
hefur sett saman vísu mikla
af þeim sökum. Þessi maður
vinnur í húsi við Hafnarstræti,
situr þar og teiknar auglýs-
ingar bakl brotnu alla daga.
Er hann drátthagur í meira
lagi en sýnir hér á sér nýja
hlið og hver veit nema hér sé
upphafið á glæsiferli hans
sem vísnasmiður. Maður
þessi ber þriggja stafa eftir-
nafn, en nóg um það því hér
kemur vísan:
Ekkl er fagur fjörðurinn
fer úr hlíðum snjórinn.
Á kænum dökknar kviðurinn.
Kolmórauður sjórinn.
% Ruslfyrir
ferðamenn
Einn af lesendum Dags á Ak-
ureyri hafði samband við
blaðið og var mikið niðri fyrir.
Var ástæðan sú að mannin-
um blöskraði sóðaskapurinn
sem er við sælgætissöluna
norðan Ráðhústorgs. Þar
leggja þefr ferðamenn upp
sem fara með áætlunarbif-
reiðum frá Akureyri og þar
koma þeir í áætlunarbifreið-
um tll bæjarins. Þessl sæl-
gætissala er opin langt fram
á nótt, og er oft ófagurt um að
litast á morgnana þegar
ferðamennirnir koma á stað-
inn. Að vísu er ástandið víða
þannig við sjoppur og sölu-
lúgur, en sennilega með al-
versta móti á þessum stað að
sögn viðmælanda okkar.