Dagur - 09.07.1981, Qupperneq 8
Snorri Finnlaugsson.
Ráðinn
erindreki
Snorri Finnlaugsson hefur
verið ráðinn erindreki Fram-
sóknarflokksins í Norður-
landskjördæmi eystra og mun
hann taka við því starfi i
haust.
Snorri mun annast rekstur
skrifstofu Framsóknarflokksins
og tengsl við framsóknarfélögin
í kjördæminu.
Snorri hefur nú hafið störf á
Degi, og mun starfa við blaðið
þar til hann tekur til starfa hjá
Framsóknarflokknum í haust.
Snorri er fæddur 1960. Flann
lauk stúdentsprófi frá Verslun-
arskóla íslands 1980 og hefur
síðan starfað að skrifstofustörf-
um. Hann hefur verið starfandi
innan sambands ungra fram-
sóknarmanna síðan 1978 og á
nú sæti í stjórn sambandsins.
ÁHERSLA VERÐILÖGÐ Á
HIN ,MJUKU VERÐMÆTI‘
Kom m.a. fram sem rökstuðningur fyrir gildi sérstaks kvennalista. Mótrökin voru m.a. þau að
kvennalisti væri skammtímalausn og stórt skref aftur á bak og „kynhreinn“-listi samræmdist
ekki jafnréttishugsjónum.
Eitthvað á annað hundrað
manns sóttu fund áhugafólks til
að ræða sérstakt kvennafram-
boð til næstu bæjarstjórnar-
kosninga á Akureyri, sem hald-
inn var í gærkvöldi. Konur voru í
miklum meirihluta á fundinum,
um eða yfir 70% og segja má að
megin niðurstaða fundarins hafi
verið sú, að stofna ætti til
kvennaframboðs þar sem ein-
göngu væru konur á framboðs-
lista. Sýnist allt benda til þess,
að af þessu framboði verði.
Ákveðið var að annar fundur um
kvennaframboð yrði 20. júli í
kjallara Möðruvalla.
Valgerður Magnúsdóttir talaði
fyrst og benti m.a. á það, að aðeins
ein kona ætti sæti í bæjarstjóm og
að í 20 nefndum bæjarins sæti eng-
in kona. Hún sagði að nauðsynlegt
Liðsmenn Sumargleðinnar.
Guðrún í
Rauða húsinu
Laugardaginn 11. júlí kl. 15.
verður opnuð sýning á verkum
eftir Guðrúnu Tryggvadóttur í
Rauða húsinu.
Sýningin saman stendur af ljós-
myndum og fótókópíum og er um
margt nýstárleg.
Guðrún stundar um þessar
mundir nám í listum í Þýskalandi,
nánar tiltekið í Múnchen, en hefur
einnig verið á skólum á Frakklandi
og íslandi.
Sýningin stendur til sunnudags-
ins 19. júlí og er opin daglega frá kl.
15-21.
Sumargleðin á Akureyri:
Finni Frík og
Prins Póló
Finni frík, Prins póló og fleiri
skrítnir fuglar verða á ferðinni í
Sjálfstæðishúsinu á Akureyri á
laugardagskvöldið á skemmtun
Sumargleðinnar.
Sumargleðin er á ferðinni rétt
eitt árið, en þann fríða hóp skipa
Ómar Ragnarsson, Bessi Bjarna-
son, Magnús Ólafsson (stórleikari),
Þörgeir Ástvaldsson og Ragnar
Bjarnason og hljómsveit hans.
Þeir félagar láta gamminn geysa
á tveggja tíma skemmtun sem hefst
kl. 21 með stanslausri skemmti-
dagskrá og á eftir verður dansað
fram á nótt.
Mörg stórkostleg skemmtiatriði
eru á boðstólum, en sennilega er á
engan hallað þótt þeir Finni frík og
Prins póló séu nefndir sérstaklega.
Finni er með þeim skuggalegri i
„pönkbransanum" en Prins er
sjómaður dáðadrengur sem lætur
sér ekki allt fyrir brjósti brenna.
Hringur sýnir á Akureyri
Fyrsta sýningin sem haldin
verður í Listsýningarsal Mynd-
listaskólans á Ákureyri verður
opnuð á laugardag, á verkum
Hrings Jóhannessonar. Sýning-
in verður opnuð kl. 15 á laugar-
Hríngur Jóhannesson.
dag og lýkur sunnudaginn 19.
júlí. Hún verður opin virka daga
frá kl. 18-22 og frá kl. 15-22 um
helgar.
Á þessari sýningu eru 55 myndir
gerðar með olíu, olíupastel og krít
og einnig teikningar. Verði mynd-
anna er mjög stillt í hóf og ef að
líkum lætur eru þær mjög aðgengi-
legar öllum almenningi og fallegar,
eða með svipuðu sniði og þær
myndir sem Hringur hefur gert
undanfarið. Sem kunnugt er vinnur
Hringur á fæðingarslóðum sínum í
Aðaldal í S.-Þingeyjarsýslu á
sumrin. Ýmislegt af því sem hann
málar og teiknar ætti því að koma
kunnuglega fyrir sjónir Norðlend-
inga.
Listsýningarsalur Myndlista-
skólans á Akureyri er að Glerár-
götu 34, þar sem áður var Gallerí
Háhóll.
væri að stórauka þátttöku kvenna í
stjórn bæjarins og sagðist enga trú
hafa á því að það gerðist nema með
sérstöku kvennaframboði.1.
Hólmfríður Jónsdóttir sagðist
eindregið styðja sérstakt kvenna-
framboð, en ekki væri nægilegt að
auka aðeins fjölda kvenna í bæjar-
stjórn, heldur ýrði að hafa ein-
hverja ákveðna stefnu.
Karólína Stefánsdóttir, formað-
ur Jafnréttishreyfingarinnar á Ak-
ureyri, taldi að konur ættu að taka
mun meiri þátt í opinberum störf-
um, en kvaðst hafa efasemdir um
réttmæti sérstaks kvennaframboðs.
Hún sagði að konur sem ættu ung
börn þyrftu fyrst og fremst að
hugsa um þarfir barna sinna, en þó
ekki með því að láta stjórnmál af-
skiptalaus.
Guðmundur Sigvaldason talaði
síðastur framsögumanna og lagði
áherslu á að hin „mjúku verðmæti“
þyrfti að hafa meira í heiðri við
stjórn bæjarfélagsins, en verið
hefði, eins og hann orðaði það.
Hagvöxtur og framleiðni væri ekki
eina mælistikan sem miða ætti við.
Konur væru líklegri en karlar til að
stjórna í ljósi samfélagslegra við-
horfa.
Viðhorfin sem fram komu úr
hópumræðunum voru ekki eins
eindregin með sérstöku kvenna-
framboði, en mikill meirihluti var
þó hlynntur slíku framboði, þar
sem aðeins væru konur á lista.
Helstu rökin gegn slíku framboði
voru þau að ekki væri rétt að konur
einangruðust í stjórnmálastarfi.
Margir töldu að hlutdeild kvenna í
stjórn bæjarins þyrfti að aukast, en
sumir að það ætti að gerast innan
hefðbundinna stjórnmálaflokka.
í umræðum að loknu hópstarfi
kom m.a. sú skoðun fram hjá Gfsla
Jónssyni, menntaskólakennara, að
það samræmdist ekki jafnréttis-
hugsjónum hans að bera fram
„kynhreinan“ lista. Hann sagði að
hvert sem framhaldið yrði myndi
þessi hreyfing og urriræða hafa
veruleg áhrif á viðhorf manna til
þessara mála fram að kosningum.
Kristín Sigfúsdóttir kvaðst vilja
hreinan kvennalista, en lagði á-
herslu á að jafnréttismál mættu ekki
bitna á börnunum, eins og gerst
íhefði á Norðurlöndum. Þóra
Hjaltadóttir sagðist vera sammála
Kristínu að mörgu leyti, nema hvað
hún væri andvíg sérstökum
kvennalista. Lítil þátttaka kvenna í
stjórnmálum væri þeirra eigin sök.
Konur gætu ekki haslað sér þar völl
með því einu að bíða eftir hring-
(Framhald á bls. 6).
ED/S
# Rykiðá
tjaldstæðunum
Einn af starfsmönnum við
nýju íþróttahöllina hafði
samband við blaðið. Sagði
hann að það væri voðalegt að
horfa upp á það, hvernig ryk-
inu væri þyrlað yfir tjald-
stæðið við sundlaugina, en
verið væri að vinna með stór-
virkum tækjum í moldar-
bingjum á lóð íþróttahallar-
innar., Sagði hann að ferða-
mennirnir væru gjarnan með
föt á snúrum til þerrls og að
hann gæti ekki ímyndað sér
annað en óþverrinn og rykið
væri óbærilegt. Ekki var hann
að mælast til þess að fram-
kvæmdum við lóð íþrótta-
hallarinnar yrði hætt yfir
ferðamannatímann, heldur
benti hann á það, að á efra
tjaldstæðinu væri ekkert tjald
og að þar væri snyrtlaðstaða
fyrir tjaldbúa, þó svo að hús
umsjónarmanna með tjald-
stæðunum væri á neðra
stæðinu. Benda ætti ferða-
fólkinu á að tjalda á efra
svæðinu, meðan raskið
stendur yfir.
# Kvenna-
framboð
Smá misskilningur virðist
hafa skapast vegna klausu í
þessum þætti í síðasta blaði,
þar sem fjallað var um
kvennaframboð og þeirra
spurninga m.a. spurt hvort
ekki væri um tímaskekkju að
ræða á tímum jafnréttishug-
sjóna og hvort ekki fælist
hugsanlega uppgjöf í hug-
myndum um sérframboð
kvenna. Sagt var frá hópi
áhugafólks sem boðað hafði
til fundar og væri vilji hópsins
að væntanlegur framboðs-
listi yrði skipaður konum
eingöngu eða að mestu leyti.
Hér var heldur sterkt til orða
tekið og þykir því rétt að birta
yflrskrift undirskriftarllstans
orðrétta, en listi þessi var
borinn í hús í bænum. Yfir-
skriftin hljóðaði svo: „Við
undirritaðir Akureyringar
boðum hér með til fundar í
Alþýðuhúsinu.... til að ræða
þá hugmynd að bjóða fram
vlð næstu bæjarstjórnar-
kosningar nýjan lista með ný
og breytt viðhorf til bæjar-
mála. Hugmyndin er elnnig
sú að listi þessi yrði ein-
göngu eða aðallega sklpaður
konum."
# Læðast
með veggjum
Fregnir hafa nú borist af því,
að laxveiði sé með eindæm-
um dræm. T.d. hafi fengist
aðeins 31 lax á 10 stengur í á
einni á sama tíma og í fyrra
hafi fengist 138 laxar á jafn-
margar stengur. Segja gár-
ungarnir að nú sjáist lax-
veiðimenn ekki lengur á
götuhornum með útrétta
arma til að leggja áherslu á
veiðiafrekin, heldur læðist
hinir sömu nú með veggjum
og vilji sem minnst um málið
ræða.