Dagur - 14.07.1981, Síða 8

Dagur - 14.07.1981, Síða 8
Akureyri, þriðjudagur 14. júlí 1981 EINANGRUNARBAND Hefja byggingu vélageymslu Framkvæmdir eru nú hafnar við byggin8u vélageymslu við skíðahótelið í Hlíðarfjalli. Búið er að grafa grunninn og byrjað að slá upp fyrir undirstöðum. Stefnt er að því að gera húsið fokhelt fyrir haustið, en óvíst hvort fjármagnið dugar en strax og húsið er fokhelt má hafa af því not, að sögn ívars Sig- mundssonar, framkvæmdastjóra Skíðastaða. í húsinu er ennfremur gert ráð fyrir spennistöð og snyrtiaðstöðu og hugsanlega lítilli veitingasölu og verslun. Auk þessara bygginga- framkvæmda er nú unnið að ýmiss konar viðhaldi á lyftum og öðrum mannvirkjum. Meðal annars hefur verið skipt um járn á nær öllu þaki hótelsins. Ekkert verður hins vegar unnið að nýbyggingum í tengslum við lyftur. en það síðasta sem gert var í þeim efnum var að steyptar voru undirstöður undir lyftu í Hjallabraut árið 1978. Fimm til sex manns vinna við þessar fram- kvæmdir í Hlíðarfjalli. 70-80 manns á eyðibýli: Stofnuðu ferða- félag á Jónsmessu Það var fagurt veður í Baugaseli í Barkárdal á Jónsmessunótt, logn, skafheiðríkt en kalt og næg dögg. Milli 70 og 80 manns komu á stofnfund ferðafélagsins og áttu þar saman ágæta stund, en stofnfélagar eru 64. í stjórn félagsins voru kjörnir Bjarni Guðleifsson, Möðruvöllum, Guðmundur Skúlason, Staðar- bakka og Ivar Ólafsson, Gerði. Félagar hyggjast leggja stund á ails konar ferðalög, gönguferðir, ökuferðir og reiðtúra. Fyrsta gönguferðin er fyrirhuguð nú 11. júlí á Flöguselshnjúk og 5. sept- ember verður gengið í Tryppaskál. Tveggja daga ökuferð verður um hálendið 29-30. ágúst rneð gistingu í Laugafelli. Auk þess að kynna sér náttúru landsins ntunu félagar í ferðafélaginu vera viðbúnir til björgunar- og leitarstarfa á Trölla- skaganum ef á þarf að halda. Enn fremur hefur félagið náttúruvernd og verndun sögulegra rnynja á stefnuskrá sinni. Er hugmyndin að hressa við vörður á ferðaleiðum á Trölla- skaganum. En megináherslan verður þó lögð á verndun og end- urbyggingu bæjarins að Baugaseli, en til þess hafa eigendur bæjarins veitt félaginu heimild. Bærinn fór í eyði 1965 og hefur eðlilega látið mikið á sjá síðan og er nú í það slæmu ástandi að þar er vart hægt að dveljast eða gista. Er því mikið starf framundan við lagfæringu hans, en slíkum bæjum fer nú óð- um fækkandi. Telja félagar nokkurs virði að varðveita og njóta þessara fallegu og dæmigerðu minja um brauðstrit forfeðra sinna. sinna. Hluti stofnfélaga Fcrðafélagsins Hörgs á Jónsmessunótt við Baugascl. Mynd: Jón Baldvinsson. Á Blönduósi. Nær allar götur lagðar slitlagi „Aðalframkvæmdin hjá okkur í sumar er að leggja slitlag á um 30 þúsund fermetra af götum, eða alls um 4 km sem er megnið af götunum hér á staðnum“ sagði Eyþór Elíasson sveitar- stjóri á Blönduósi er Dagur ræddi við hann í gær. „Við höfum verið að vinna við að undirbyggja göturnar fyrir þessa framkvæmd og er því verki að mestu lokið. { næstu viku koma síðan starfsmenn Miðfells og hefj- ast handa við frekari framkvæmdir, en reiknað er með að 10. september verði framkvæmdum lokið.“ Eyþór sagði að kostnaður við þessar framkvæmdir yrði um 4 milljónir króna, og þar af yrði um helmings aflað með gatnagerðar- gjöldum. „Jú þetta er geysilega stór framkvæmd fyrir bæjarfélagið. Það er dýrt að fá þessi tæki hingað og því hagkvæmt að taka sem mest fyrir í einum áfanga" sagði Eyþór. Undir- tektir eru dræmar við könnun á tíðni sykursýki „Það vantar enn talsvert upp á að við séum ánægðir með það hvernig fólk hefur brugðist við“ sagði Gunnlaugur P. Kristins- son formaður Samtaka sykur- sjúkra á Akureyri er Dagur ræddi við hann um könnun þá sem staðið hefur yfir á tíðni sykursýki, en könnun þessi beinist að svæðinu frá og með Hálshreppi í S.-Þing. vestur í Haganeshrepp í Fljótum. Rösklega 3.500 einstaklingum á þessu svæði voru send gögn, þannig að þeir gætu sjálfir athugað hvort þeir kynnu að hafa sykur í þvagi, en það getur verið vísbending um að viðkomandi sé sykursjúkur. Var ætlunin að frestur þessa fólks til að skila niðurstöðum rynni út um síð- ustu mánaðamót. „Við leggjum áherslu á það, að þótt það sé komið fram yfir þann tima, þá hvetjum við fólk til þess að skila niðurstöðum prófana sinna, á hvorn veginn sem útkoman hefur verið“ sagði Gunnlaugur. % Sláttumálið í Degi birtist 30. júní s.l. frétt, þar sem greint var frá því að búið væri að kæra til lögregl- unnar starfsemi fólks, sem tekur að sér að slá húsagarða. Töldu þeir sem þjónustuna keyptu að hún hafi verið allt of hátt verðlögð. Gamalt fólk pantaði garðslátt og tengda- dóttir þess hafði forgöngu um kæruna og sagði í fréttinni að slátturinn hafi tekið einn og hálfan til tvo tíma og kostað þúsund krónur. Lögreglan varðist frétta, en sagði rétt að búið væri að kæra. Blaða- manni Dags þótti ástæða til að greina frá málinu og hafði eftir ummæli tengdadótturinnar, þar sem hún varaði við þessum viðskiptum, en ekki var greint frá því hver ætti hlut að slætt- inum. sem kunnugt er þurfa blaða- menn stundum að fara út á meðal fólks til að afla frétta. Niðurstaða málsins varð sú á endanum, að hann fékk síma- númer þess sem skrifað hafði. Ekki er með nákvæmni vitað hvað næst gerðist í málinu, en líklegast hefur maðurinn í geðvonsku sinni stormað beint á ritstjórn blaðs sem gefið er út á Akureyri og heitir Islending- ur. Þar hefur honum líklega verið tekið með kostum og kynjum, enda ekki á hverjum degi sem slíkan hvalreka ber á land f „gúrkutíðinni". Blaðið sagði síðan ítarlega frá víð- skiptum mannsins við starfs- menn Dags og var þar ýmislégt úr lagi fært, svo frásögnin mætti teljast rétt. • „Gúrkutíðin" • Orðljótur Næst gerist það í málinu, að maður kemur á ritstjórn Dags, orðtjótur og dónalegur í melra lagi, og sagðist vera sá sem um var skrifað. Krafðist hann þess að fá að koma með at- hugasemd, þar sem að sér væri sneitt í umræddri frétt. Honum var bent á að hvergi væri minnst á hverjir seldu þessa umdeildu þjónustu, en engu að síður væri sjálfsagt að hann fengi að koma athuga- semdum sínum að. Hins vegar væri réttast að hafa enga milli- liði í málinu og því skyldi hann ræða við þann sem skrifaði fréttina. Sá var ekki við og ætlaði „sláttumaðurinn" því að koma síðar. Gerði hann svo og varð enn orðljótari þegar blaðamaðurinn var ekki við, en Það er oft talað um „gúrkutíð" í blaðamennskunni og þá átt við það, að erfitt sé um efnisöflun sökum þess að lítið sé að ger- ast. Sumir blaðamenn fara og finna fréttir, en hjá öðrum er alltaf „gúrkutíð" og er þá gjarnan sagt frá eigin högum og stórkostlegum ævintýrum, s.s. dekkja- og bílnúmera- skiptum. Er það jafnvel betra en röng og villandi frásögn reiðs manns af því sem gerist á kaffistofu Dags. Hafi menn hins vegar mikinn á huga á því sem gerist og rætt er á ritstjóm og kaffistofu Dags og þyki slíkt fréttnæmt, eru starfsmenn Dags jafnvel til- búnir að hjálpa til við efnisöfl- un. T.d. hafa nokkrir starfs- menn skipt um bíla nýlega og mun sterkari pera er komin í Ijósmyndastækkarann.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.