Dagur - 06.08.1981, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMtÐIR
> SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
64. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 6. ágúst 1981
59. tölublað
Nýi vagninn
í Tollvöru-
geymslunni
- Þjónustan eykst hjá
SVA er hann kemst
í notkun
í vor komu tveir nýir Benz
strætisvagnar til Akureyrar en
aðeins annar hefur verið tekinn í
notkun. Hinn bíður enn í toll-
vörugeymslu þvi bæjarsjóður
hafði ekki efni á að ieysa báða
vagnana út. Vagn eins og sá sem
um er rætt kostar rúma eina
milljón króna.
Stefán Baldursson, forstöðu-
maður SVA sagði að síðustu fréttir
hermdu að vagninn yrði leystur út í
ágústmánuði. Hann er tilbúinn að
öllu leyti svo hægt verður að taka
hann í notkun svo til strax. Mikil
þörf er á að fá vagninn á götuna,
sagði Stefán, en með tilkomu hans
verður hægt að auka þjónustu SVA
við bæjarbúa. Það eru aðallega
íbúar í Síðuhverfi sem munu njóta
góðs af nýja vagninum, en skömmu
eftir að hann kemur munu strætis-
vagnarnir fara að aka eftir Austur-
síðu, Bugðusíðu og Teigarsiðu.
„Það færist sífellt í aukana að
fólk notfæri sér þjónustu SVA. Að
vísu hef ég ekki tölur um aukning-
una, en mér virðist hún vera um
30% sé miðað við síðustu sjö mán-
uði“, sagði Stefán Ekki hefur verið
gerð nákvæm könnun á farþegum
— þ.e. hverjir þeir eru, hvaðan þeir
koma og hvernig þeir vilja að SVA
hagi rekstri. Ætlunin var að fá
nemendur í MA til að framkvæma
slíka könnun sl. vor, en Stefán sagði
að hugmyndin hefði komið of seint
fram svo hægt hefði verið að fram-
kvæma hana. Hann kvaðst ekki
vita hvort slík könnun yrði gerð í
vetur en tók fram að það væri
fyrirtækinu mikil nauðsyn að hafa
góða hugmynd um hverjir það
væru sem ækju með strætisvögn-
unum.
PÓSTUR OG SlMI TÖLVUVÆÐIST:
HÆTTA AÐ VEITA UPPUÝSINGAR
UM VEÐURFAR OG KÖKUGERD
Síðar á árinu geta símnotend-
ur á Norðurlandi notfært sér
tölvubanka Pósts og síma í
Reykjavík. Hér er um að ræða
þá notendur sem vilja fá upp-
lýsingar um símanúmer og þ.h.
í gegnum 03, en sú þjónusta
stofnunarinnar er nú veitt á
fjölmörgum stöðum á landinu.
Þegar tölvubankinn kemst í
notkun verða allar slíkar upp-
lýsingar veittar á einum stað: í
Reykjavík.
Ársæll Magnússon. umdæmis-
stjóri Pósts og síma sagði að það
tæki nokkuð langan tíma að skrá
nauðsynlegar upplýsingar í
tölvubankann, en þegar þær eru
komnar þangað tekur það mun
skemmri tíma fyrir starfsfólk
stofnunarinnar að finna umbeðin
númer. Nú þarf það að fletta
símskrám og gefur það auga leið
að slík vinnubrögð eru tímafrek. I
tölvubankanum birtast númerin
á þar til gerðum skjám.
Þegar þessi breyting er um garð
gengin fellur til hliðar sú per-
sónulega þjónusta sem starfsfólk
Pósts og síma á einstökum stöð-
um hefur getað veitt viðskipta-
vinum. Ársæll sagði að t.d. gæti
fólk ekki sagt eitthvað á þá leið að
það vantaði símanúmer ..í litla
gula húsinu á horninu á
NNgötu.“ Því síður gæti starfs-
fólkið í o3 í Reykjavík veitt upp-
lýsingar um kökuuppskriftir eða
veðurfar eins og komið hefur
fyrir að starfsfólkið í 03 á Akur-
eyri hefur verið beðið um að gefa.
En verður því fólki sem hefur
svarað í 03 á Akureyri ekki sagt
upp störfum þegar upplýsinga-
þjónustan flyst til Reykjavíkur?
Ársæll sagði svo ekki vera. Ætl-
unin væri að koma upp skipti-
borði fyrir stofnunina á Akureyri
og þar kæmi verkefni sem yrði að
sinna. Um mánaðamótin verður
stöðin í Saurbæ lögð niður og
verða símar í Saurbæjarhreppi
tengdir við stöðina á Akureyri svo
þar koma einnig aukin verkefni.
„Líkir eins og tveir vatnsdropar“ mætti segja um tvíburana, sem
Ijósm. Dags hitti uppá brekku á dögunum. Mynd: á.þ.
Manchester City í heimsókn til Þórs:
Heimsfrægir leikmenn
á Akureyrarvellinum
Knattspyrnuunnendur á Norð-
urlandi eig von á góðum gest-
um í heimsókn, því n.k. mið-
vikudajskvöld leikur hið
þekkta enska knattspyrnulið
Manchester City á Akureyrar-
velli gegn 1. deildarliði Þórs.
Ekki er að efa að fólk mun
flykkjast á völlinn til þess að sjá
þessa snillinga með eigin augum.
en lið Manchester City er nú eitt
hið allra sterkasta í ensku knatt-
spyrnunni. Til marks um það má
nefna að liðið lék í úrslitum ensku
bikarkeppninnar sl. vor. en mátti
sætta sig við ósigur eftir tvo úr-
slitaleiki gegn Tottenham.
Forráðamenn Manchester City
hafa tilkynnt nöfn þeirra leik-
manna sem hingað koma, og er
ljóst að allir þeirra sterkustu leik-
menn verða með í förinni.
Keppnistímabilið í Englandi
hefst í lok ágúst og er leikur
Manchester City gegn Þór einn
síðasti liður í undirbúningi liðsins
fyrir keppnistímabilið. Áhorf-
endur á Akureyrarvelli kl. 18,30 á
miðvikudag fá því að sjá kappa
eins og Joe Corrigan markvörð,
Kevin Reeves, Tommy Hutc-
inson og fleiri á fullri ferð gegn
Þór.
Verslunarmannahelgin:
RÓLEGHEIT A
NORÐURLANDI
Óhætt er að segja að verslunar-
mannahelgin hafi verið róleg hjá
lögreglumönnum á Norður-
landi. Á sumum stöðum mundu
þeir ekki eftir jafn rólegri versl-
unarmannahelgi.
Hjá lögreglunni á Blönduósi
fengust þær upplýsingar að ekkert
óhapp hefði átt sér stað í umferð-
inni. í umdæmi Blönduóslögregl-
unnar var engin skipulögð útisam-
koma. Dansleikir voru að vísu í
Húnaveri á kvöldin en lögreglan
þurfti lítil afskipti að hafa af fólki
þar.
Talsverður fjöldi fólks var saman
kominn í Varmahlíð í Skagafirði.
og áleit lögreglan á Sauðárkróki að
þar hefðu verið um 100 tjöld. Tals-
verð ölvun var og „góð nýting" á
fangaklefum að sögn lögreglunnar.
Hinsvegar var litið um umferðar-
óhöpp. en þó var ekið á tvö hross i
Vatnsskarði.
Hjá lögreglunni á Akureyri sagði
varðstjóri að helgin hefði verið
mjög róleg og stórslysalaus. Þó
urðu umferðaróhöpp við Evja-
fjarðará og i Vaðlaheiði. en slys
ekki teljandi.
Lögreglan á Húsavík tjáði DEGI
að helgin hefði verið tiltölulega ró-
leg fyrir utan þrjú umferðaróhöpp.
Bílvelta i Mývatnssveit var þeirra
alvarlegast en í bifreiðinni sem valt
voru fimm manns. Engan sakaði en
bifreiðin er talin ónýt. Að sögn
lögreglunnar á Húsavik gekk
Laugahátíð vel fyrir sig. nokkuð
var um ölvun. en minna en oftast
áður.
Kópasker:
HULDUFOLK AÐ ANGRA
HAFNARGERÐARMENN?
Undanfarnar vikur hefur verið
unnið við endurbætur á hafnar-
garðinum á Kópaskeri. Grjót er
fengið úr svonefndum Brekku-
hamri, sem er skanimt sunnan
Kópaskers. Bilanir á tækjum
hafnargerðarmanna eru tíðar og
að sögn fróðra manna er hér
ekki allt með felldu. Helst hafa
menn hallast að því að huldufólk
búi í Brekkuhamrinum og að
það sé ekki allskostar ánægt
með meðferðina á bústað þess.
Heimildir Dags herma að verk-
stjóri hafnargerðarinnar sé sann-
færður um að eitthvað dularfullt sé
á ferðinni, því bilanirnar geti vart
átt sér eðlilegar orsakir. Sem dæmi
um bilanir má nefna að eldur varð
laus í stórri gröfu, drifhjól brotnaði.
vökvatjakkur brotnaði í annarri
gröfu og borkróna spændist upp
n'iun hraðar en eðlilegt getur talist.
Einnig má nefna að starfsmaður á
vélaverkstæði á Kópaskeri. sem var
að gera við hluti sem tilhevrðu
hafnarframkvæmdunuip. missteig
sig með þeim afleiðingum að hann
gat ekki gengið. Heimildarmaður
Dags sagði að sjálfsagt hefðu nienn
ekki gætt þess að semja við huldu-
fólkið eins og gert var á Akurevri
og frægt varð.
Það er annars af hafnarfram-
kvæmdunum að frétta að menn
gera sér vonir um að þeim Ijúki
innan tíðar þrátt fvrir hugsanlega
afskiptasemi ósýnilegra vera. f
upphafi var garðurinn jafnaður og
síðan hefur grjóti verið ekið í hann.
..Miðað við það hvernig nú er að
verki staðið tel ég að garðurinn
muni endast betur en sá gamli"
sagði heimildarmaðurinn að lok-
um.
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180
K»4ak
FILMUhÚSIB AKUREVRf