Dagur - 13.08.1981, Qupperneq 7
ömmu að gerast vistmaður á elli-
heimili. Þegar hún varð öryrki gaf
faðir okkar henni það loforð, að
hvað sem á dyndi skyldi hún hafa
hjá sér öruggt skjól. Hún treysti
tengdasyni sínum og fyrir henni
voru traust og trú æðstu boðorð.
Hvorutvéggjn vildi hún svo
gjarnan hafa á okkur bræðrum og
mátti helst engu misjöfnu upp á
okkur trúa. En auðvitað vorum við
eins og gengur næsta ódæl og
óþolandi ungmenni. Við ollum því
gömlu konunni oft á tíðum sárum
vonbrigðum og vorum síður en svo
tillitssamir við tilfinningar hennar
og skoðanir. Umhyggju hennar
tókum við oft sem afskiptasemi og
létum það óspart í ljós. Við rædd-
um við hana um trú og pólitík af
miskunnarleysi og grunnhyggni
æskunnar. Þær orðræður enduðu
oft á þann veg, að hún varaði okkur
við Rússum og bað Guð að blessa
okkur. Við hvern áfanga sem við
eða aðrir niðjar hennar náðum, eða
gleðistund sem okkur auðnaðist,
samgladdist hún okkur innilega,
enda hafði hún ómældan metnað
fyrir okkar allra hönd. Flestir óska
þess sennilega að þeir hefðu verið
skárri við hana ömmu sína meðan
enn var tími til. Nú er það of seint,
en við stöndum í þakkarskuld við
minningu hennar og hið stóra
hjarta sem allt fyrirgaf. Sú skuld er
okkur dýrmæt í dag.
Dauðastríð Kristínar ömmu stóð
í tæp þrjú ár, og að lokum var það
hið sterka hjarta sem gaf sig. Alveg
fram að því að heilablóðfall rændi
hana fullri meðvitund var hún sí-
starfandi fyrir niðja sína. Ein sæl-
asta minning, sem sá er þetta ritar á
um Kristínu ömmu, er þegar hún
um miðjan síðasta áratug eftir að ég
hafði sjálfur stofnað til fjölskyldu,
kom í tvígang suður til Reykjavíkur
að halda heimili fyrir okkur í mikl-
um önnum. Hún var sáttari við lífið
en oft áður, og það var yfir henni
sannur virðuleikablær og heiðríkja.
Eins og móðir hennar var hún
gædd miklu trúaröryggi, var sann-
færð um mátt bænarinnar og líf að
loknu þessu. Trú hennar var ein-
föld barnatrú, sem hataðist við
hræsni og kirkjulega mærð, en bil-
aði aldrei í sannfæringu þrátt fyrir
margvíslega mæðu. Fyrir okkur
vantrúuð var það reynsla að
kynnast svo trúheitri manneskju.
Blessuð sé minning hennar.
Sigurður Friðrik Haraldsson,
Einar Karl Haraldsson
(höfundur greinar),
Haraldur Ingi Haraldsson og
Jakob örn Haraldsson.
Góður afli
á Raufarhöfn
Handfærabátar fyrir austan
hafa aflað vel að undanförnu.
Aðallega er það þorskur sem
kemur inn fyrir borðstokkinn og
ufsi er ekki óalgeng sjón. Hnd-
anfarnar vikur hafa færabát-
arnir orðið varir við síld.
„Við höfum orðið var við síld
síðan í júlí. Það hefur komist upp í
það að fá 3 í einu á 6 króka slóða, “
sagði Björn Hólmsteinsson, Rauf-
arhöfn. „Þessi síld sem við höfum
verið að fá er yfirleitt mögur og er
væntanlega sú sem veidd er fyrir
austur- og suðausturlandi á haust-
in.“
Björn sagði að það mætti segja
að afii báta sem róa frá Raufarhöfn
og Þórshöfn hefði verið góður í allt
sumar og hið sama mætti raunar
segja um aflabrögð á vertíðinni s.l.
vetur.
Erfitt
hjá Þór
Þórsarar fá það erfiða verkefni á
sunnudag að leika gegn f.A. á
Akranesi. Ekki er að efa að Þórs-
arar muni berjast grimmilega í
þessum leik því hvert stig er nú
dýrmætt í hinni hörðu fallbaráttu.
Til sölu
Til sölu er Scout jeppi árgerð 1974. 6 cynlidra, 4
gíra beinskiptur. Uppl. í Véladeild KEA sími 21400
og 22997.
Sölumaður fasteigna
er til viðtals og upplýsinga frá kl. 16.30-19.00 alla
virka daga.
Til sölu eru allar stærðir og gerðir húseigna. Fleiri
óskast á söluskrá.
Ásmundur S. Jóhannsson hdl.,
Brekkugötu 1, Akureyri,
sími 21721.
Leyningshóladagur
Hinn árlegi Leyningshóladagur verður haldinn
sunnudaginn 16. ágúst n.k. kl. 14,00. Ýmislegt
verður til skemmtunar. Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar leikur fyrir dansi í Sólgarði um kvöldið
frá kl. 21 til 01.
UMF. VORBOÐINN.
ÁFRAM KA!
Sunnudag 16. ágúst
kl. 19
leika toppiiðin
KA og Víkingur
Dagskrá hefst kl. 18,30 með því að flugvél flýgur
yfir áhorfendasvæðið og dreifir sælgæti.
AKURVÍK HF. kynnir kappaksturshjól sem heita
,,5a“ Einnig dreifir Akurvík ókeypis happdrættis-
miðum og verður dregið í hálfleik um kappakst-
urshjól og það afhent á staðnum.
Kynnt verður SUZUKI bifreið, sem er vinningur í
bílahappdrætti KA og seldir miðar.
Nú mæta allir á völlinn og hvetja KA til sigurs.
KA!
Gjafir í Systra-
selssöfnunina
Áður birl kr. 61.850. N.N. kr. 1.000.
Dúkaverksmiðjan h.f. kr. 500. Þórs-
hamarhf. kr. I.000. Helga Stefánsdóttir
kr. 200. Valtýr Aðalsteinsson kr. 500.
Hrafnagilshreppur kr. I0.000. úr söfn-
unarbauk kr. 300. Andri. F.llert. Borgar
Þór kr. 170. Jóhanna Sigurðardóttir kr.
I.000. Lionsklúbburinn Huginn kr.
20.000. gömul mynt kr. 85. vistkona
Skjaldarvik kr. 300. Hjörtur Fjeldsted
kr. I.000. Laufey Tryggvadóttir kr. 500.
minningargjöf kr. 340. minningargjafir
HH. GM. KJ kr. I.255. börn Hólm-
fríðar Pálsdóltur kr. 3.000, S. og J. kr.
200. Magnús Júliusson kr. 500. Þóra og
Páll Einarsson kr. 2.000. L. R. kr. 200. A.
R. kr. 200. Álfheiður Vigfúsd. og Jó-
hann Kristjánsson kr. 200. Rannveig
Gísladóttir kr. 500. Jón Þórarinsson kr.
I00. Þ. Á. kr. 1.000. Þóra. Hanna og
Rósa. ágóði af hlutaveltu kr. 345.70.
Fryggvi Kristjánsson kr. 500. Anton Kr.
Jónsson kr. 100. Grýtubakkahreppur
kr. I0.000. Stina kr. 200. — Samtals
komið 119.045.70.
„Systrasel9söffnunin(<
Framlög ber-
ast f rá sveitar-
félögum
Þótt almenn söfnun vegna Hjúkrunar-
heimilis aldraðra í Systraseli sé ekki enn
hafin hefur þegar borist talsvert af
framlögum. Leitað hefur verið til
margra fyrirtækja og sveitarfélögum
verið sent erindi þar að lútandi. Nýverið
hafa fyrstu sveitarfélögin sinnt kallinu
og hafa Hrafnagilshreppur og Grýtu-
bakkahreppur þegar lagt af mörkum tíu
þúsund krónur hvor, og hafa framlög
alls nú náð tæpum 120 þúsund krónum,
eða um 6% af settu marki.
Undirbúningur er nú hafinn að al-
mennri fjársöfnun, og er nú mikil þörf á
að fá til starfa trúnaðarmenn innan
fyrirtækja: Eru þeir sem leggja vilja máli
þessu lið beðnir að hafa samband við
skrifstofu Akureyrardeildar Rauða
krossins að Skólastíg 5, í sima 24803.
Framlögum er þar cinnig veitt móttaka.
svo og á sjúkrahúsinu og í sjúkrasam-
lögunum.
ÁFRAM
Ritarastarf
Kvenmaður óskast til ritarastarfa hálfan daginn.
Vinnutími að vild.
ÁSMUNDUR S. JÓHANNSSON HDL.,
BREKKUGÖTU 1, AKUREYRI, SÍMI 21721.
Óskum eftir starfsfólki
í heils og hálfs dags vinnu, einnig fólki sem getur
unnið tvo daga í viku. Umsóknum skal skila á af-
greiðslu Dags fyrir 20. ágúst merkt 5919.
Trésmíðafélag Akureyrar
Auglýsir eftir starfsmanni til innheimtu- og
skrifstofustarfa í fullt starf. Vélritunar- og
bókhaldskunnátta nauðsynleg. Uppl. veittar á
skrifstofu T.F.A. Ráðhústorgi 3 kl. 14-16 virka daga.
Ekki í síma. Skriflegar umsóknir skulu berast
skrifstofu félagsins fyrir 25. ágúst.
Vistheimilið Sólborg
Vaktavinnufólk
Nokkrar heilstarfs og hálfstarfs stöður
vaktavinnufólks eru lausartil umsóknar. Stööurnar
veitast frá enduðum ágúst og byrjun september
n.k. Umsóknum sé komið á skrifstofu heirriilisins
fyrir 20. ágúst n.k. þar sem veittar eru nánari
upplýsingar.
Forstöðumaður.
Samkoma í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 16. ágúst kl. 17,00
Fjölbreytt dagskrá.
Mikill söngur, hugleiðingar og fleira.
Gestir: 50 manna unglingakór frá Noregi.
ÆSKULÝÐSSTARF KIRKJUNNAR.
Stór-útsala
hefst föstudaginn 14. ágúst
kl. 10 f.h.
50 til 70%
afsláttur
Það er eins gott að missa
ekki af þessu.
Ath. opið laugardag kl.
10-12.
tískuverslunin
venus
Strandgötu 11, gegnt B. S. O., sími 24396
13. ágúst 1981 - DAGUR - 7
I i • . . I i
il.ll