Dagur - 13.08.1981, Blaðsíða 8

Dagur - 13.08.1981, Blaðsíða 8
MQNROE i MONRO-MATIC ® SHOCK ABSORBER HÖGGDEYFAR í FLESTA BÍLA mEH mmmmmmmmmmmmmmmmmmi 3700 farþegar með í júlí - íbúar í Hrísey um 300 að tölu í síðasta mánuði flutti Hrís- eyjarferjan 3.700 farþega. Sé það haft í huga að íbúar hér eru aðeins um 300 má af því ráða að ferðamenn leggja leið sína hingað í miklum mæli. Þetta eru bæði ein- staklingar og hópar sem hingað koma. Þjónusta fyrir þetta fólk er ekki mikií. í ferjunni geta þeir keypt gos og þ.h. og að sjálfsögðu í verslun kaupfélagsins ef þeir koma hingað. á verslunartíma. Á kvöldin og um helgar er hér opin sjoppa, sem er í eigu Guðlaugs Jóhannessonar. Þetta er fyrsta sumarið sem sú verslun er starfrækt. Það eru farnir að heyrast um það raddir að það þyrfti að fara að koma á fót tjald- stæði, svo fólk eigi hægara með að gista hér yfir nótt. Það sem af er árinu er kominn mikill afli á land. Þetta er mun meira en í fyrra sem þó var metár. Mikill hluti aflans hefur verið unnin í skreið og hefur verkun afl- ans tekist vel. - Fréttaritari. Hitaveitulögnin milli Botns og Syðra-Laugalands Barð h.f. tekur verkið að sér Fyrir skömmu voru opnuð tilboð í hitaveitulögn milli Botns og Syðra-Laugalands. Tvö tilboð bárust — frá Norðurverki og Gunnari Birgissyni annarsvegar og hinsvegar frá Barði h.f. Á fundi stjórnar H.A. var ákveðið að ganga að tilboði Barðs h.f. Kostnaðaráætlun hönnuða hljóðaði upp á 790.475, en Barð var tilbúið að vinna verkið fyrir 647.425 og Norðurverk og Gunnar Birgisson fyrir 875.770. Vegagerð ríkisins sér um lagn- ingu vegar og brúarstæði, en Barð 1 h.f. á að hafa lokið tengingunni þann 1. október. Von var á starfs- mönnum Barðs h.f. norður í dag, en þeirra bíður í upphafi mikil gröfu- vinna. f síðustu viku lagði Ijósmyndari Dags leið sfna út í Ólafsfjörð og hitti þá á förnum vegi þetta glaðlega fólk. „Það er fínt að búa hér,“ sagði annar pilt- anna á bryggjunni, en hópurinn sem situr á girðingunni fékkst ekki til að segja orð. Ljósm. á.þ. Fá Siglfirðingar „1000 tunna síldarbrennu“? „Náttúruvemdarráð bannar að við gröfum tunnurnar, a.m.k. í landi Siglufjarðar og Siglingamálastofnun bannar að við sökkvum þeim í sæ nema dýpi sé meira en 2000 metrar,“ sagði Pálmi Vilhjálmsson, for- stjóri Siglósíldar er DAGUR ræddi við hann. Síðastliðinn sunnudag skrifuðu Hríseyingar undir verksamning við Stuðlafell h.f. á Akureyri um byggingu átta verkamannabú- staða. Stuðlafell h.f. framleiðir einingahús úr steinsteypu. Hafist verður handa við gerð húsanna í sumar og þau afhent næsta sumar. Mikil eftirspurn er Tilefnið var að sjálfsögðu að forvitnast um afdrif þeirra 1000 síldartunna sem við skýrðum frá á sínum tíma að Siglfirðingarnir vildu losna við, en þær eru fullar af dósum sem I er ónýt síld. „Það er spurning hvað verður gert við þetta. Ég er þeirrar skoð- unar að það sé best að grafa þetta. Það kemur jafnvel til greina að eftir húsnæði í Hrísey og fá færri íbúð í eynni en vilja. Mikil atvinna er í Hrísey og fyrirsjáanlegur skortur á vinnuafli þegar skólafólk hverfur á braut í haust. Reynt verður að bæta úr skortinum með því að ráða að- komufólk en þá mun aftur skorta húsnæði handa því. - Fréttaritari. gera veglegan bálköst, hella væn- um skammti af olíu á, því þá myndi þetta loga allt upp. Síldin er I þurrum tunnum og í dósum, og logar glatt held ég.“ — Hvernig væri að geyma þetta þar til á gamlárskvöld? „Já. Það gæti orðið niðurstað- ÞJÓNUSTU- MIÐSTÖÐ Á GRENIVÍK Grcnivík 11. ágúst Hafnar eru framkvæmdir við þjónustumiðstöð á Grenivík á vegum kaupfélagsins. Jarðvegs- skiptum er lokið og ákveðið er að gera húsið fokhelt í ár. Þetta er tæplega 500 fermetra bygging á einni hæð. í henni verður m.a. vísir að veitingaaðstöðu, bensínsala og að sjálfsögðu verslun með matvöru og fleira. Hér hefur ekki verið áður veitingasala og þessi nýja þjónustumiðstöð mun koma sér vel fyrir íbúa á Grenivík og nágrenni. Nú eru hér 5 til 6 íbúðarhús í byggingu og verið er að ganga frá lóð umhverfis nýja skólann. Kennsla hefst i honum í haust. Á vegum frystihússins er verið að byggja verbúð. Einnig er unnið við frágang á þilinu sem rekið var niður í fyrra. - P.A. % Til blaðburð- arbarna Dagur mlnnir á að keppnin er í fullum gangi. Það skiptlr miklu máli að allir standi sig. Innheimta áskriftargjalda er hafin og sum blaðburðar- börnfn hafa þegar lokið að rukka. Þau sem eru eftir eru hvött til að hraða sér og áskrifendur Dags eru beðnir um að taka börnunum vei þegar þau koma til að rukka. % Samband manns og hests Umfjöllun um hestamót og hestamennsku almennt er oft á tíðum ákaflega skemmtlegt lestrarefni, enda skrifað af hressu og skemmtilegu fólki sem hefur brennandi áhuga á viðfangsefninu. En grein blaðamanns Dagblaðsins á dögunum þar sem fjallað er um heimsókn til hestamanna í Víðidal við Reykjavík er þó með sérkennilegustu lesn- ingum sem maður hefur náð í um hesta og hestamenn í langan tíma. Greinin, sem er eftir unga konu, hefst þannig: „Hvaða tilfinning er betri en að hafa hann milli fóta sér og finna fjörtök stinn? Hlýr andvari streymir milli okkar og traustið er gagnkvæmt. Við tölum ekki sama mál, en samt skiljum við hvort annað. Við þurfum ekki að setja til- finningar í orð. í þögninni lesum við hugsanir hvor annars. Ég elska þig besti vinur minn, hugsuninni skýt- ur fram. Hann finnur það og strýkur fallega höfðinu sínu við mig, hnusar og nartar ofurvarlega í fótleggi mína. Svo leggjum við af stað og hann er tilbúinn að bera mig yfir fjöll og firnindi.... 0 Keðjubréf f morgun þegar unnið var við uppsetningu á Degi sagði einn starfsmanna P.O.B. að honum hefðu borist þrjú keðjubréf. Hann sagði að þetta hefðu veri leiðinlegar sendingar og hvatti fólk til að henda öllum slíkum bréfum. Síðast en ekki síst að senda aidrei keðjubréf. % Duglegir fjósamenn Þau tíðindi bárust Degi úr Hrísey að starfsmenn einan- grunarstöðvarinnar hefðu hafið slátt fyrir nokkru og voru víst með þeim fyrstu í Eyjafirði. Þeir hafa á umliðn- um árum tekið gömul tún til ræktunar, rifið gamlar girð- ingar og sameinað túnin. Heimildarm. Dags sagði að nú væri kominn skemmtileg- ur svipur umhverfis þorpið — iðagræn tún blasa við ferða- mönnum sem koma til eyj- unnar með ferjunni. Stuðlafell byggir átta einingahús

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.