Dagur - 25.08.1981, Blaðsíða 8

Dagur - 25.08.1981, Blaðsíða 8
 Neyðarskýli S.V.F.I.: Sumir setjast að í skýlunum „Umgengni í neyðarskýlum Slysavarnarfélagsins viðsvegar um landið er ákaflega misjöfn. Ég get nefnt sem dæmi að í Sesseljubúð á öxnadalsheiði er mjög mikið um að fólk gisti á ferðalagi sínu, og umgengni þar hefur verið sérstaklega góð. En því miður er þetta upp og ofan“ sagði Hannes Hafstein fram- kvæmdastjóri Slysavarnarfélags fslands er Dagur ræddi við hann um þessi mál. „Það hefur verið ákaflega mikið um það í sumar að fólk sem ferðast gangandi um landið hefur sest upp í okkar skýlum. Þau standa opin og fólk fer þarna inn og sumir setjast jafnvel að“. Dagur skýrði frá því fyrir helgina að á hverju ári yrði ganganmanna- kofi á Öxarfjarðarheiði fyrir árás skemmdarvarga sem rifu þar allt og tættu. Við spurðum Hannes hvort neyðarskýli Slysavarnarfélagsins fengju sömu útreið. „Nei, yfirleitt er það ekki og heyrir sem betur fer til undantekn- inga ef slíkt kemur fyrir. Það sem við finnum aðallega athugavert, er ef fólk gengur illa um þessi skýli. Við ömumst ekki beinlínis við því þótt fólk hafi þarna gistingu ef það gengur vel um, þótt auðvitað séu skýlin ekki ætluð til þess að hýsa ferðafólk nema það sé í nauðum". — Hannes tjáði DEGI að í mörgum sjúkraskýlanna væru neyðartalstöðvaEvÞær fengju að vera í friði en annar útbúnaður, s.s. matur, svefnpokar og teppi, væri fjarlægður á sumrin af eftirlits- mönnum skýlanna. „Hjalladeilan" er úr sögunni í bréfi sem Útgerðarfélag Akur- eyringa h.f. ritaði bæjarráði á dögunum, samþykkti félagið að taka til notkunar bráðabirgða- svæði fyrir skreiðarhjalla á klapparholtinu vestan Krossa- nesverksmiðjunnar, ef unnt sé að stækka það svæði vestur fyrir núverandi girðingu. Bæjarráð hefur samþykkt að Ú.A. verði leigt á bráðabirgðaleigu til 3ja ára, svæði undir skreiðar- hjalla eftir nánari útmælingu lóð- arskrárritara og bæjarverkfræð- ings, og þeim falið að gera samning þar um er verði lagður fyrir bæjar- ráð til staðfestingar. Upphaf þessa máls má rekja til þess að Ú.A. var með skreiðarhjalla rétt við íbúðarhús við Lyngholt, norðan Glerár. Hafa staðið yfir langvarandi deildur á milli íbúa húsanna sem heimtuðu hjallana burt og Ú.A. sem kvaðst ekki fara með hjallana fyrr en annar staður fyrir þá væri fenginn. Virðist nú sem mál þetta sé úr sögunni og er það vel. Nýr flugvöllur á Kópaskeri Að undanförnu hafa staðið yfir framkvæmdir við nýja flugbraut á Kópaskeri, og er áætlað að hún verði tekin í notkun að ein- hverju leiti næsta sumar. Sá hluti flugbrautarinnar sem nú er unnið að er 700 metra langur, en alis verður brautin sem liggur norður-suður um 1200 metra löng fullgerð. Þá er einnig ætlunin að gera _aðra braut sem mun liggja norðvestur-suðaustur. Þessar framkvæmdir munu auka mjög á öryggi Kópaskersbúa í samgöngumálum. Þar hefur að vtsu verið flugbraut áður, en hún var uppundir fjallshlíð og því varasöm og aðflug erfitt. ,Nýi flugvöllurinn er um 400-500 metra frá sjó, og þegar ýtumenn voru þar að störfum komu þeir niður á hvalbein. Þau molnuðu þó við snertingu, en þetta sýnir að þarna hafa einhverntíma verið mörk lands og sjávar. Gamli barnaskólinn. Glíiggt má sjá hvernig rúður hússins hafa verið mölbrotnar. Mynd: á.þ. iði barnaskólinn Omurlegt ástand Húsið opið og hætta talin á að kviknað getí í því Útlit gamla barnaskólans við Hafnarstræti er vægast sagt ömurlegt, en þar hafa skemmd- arvargar látið hendur standa fram úr ermum og nú er þar fátt heillegt að sjá innan dyra. Hins vegar er talið að ástand hússins sé ekki eins slæmt og útlitið gefur til kynna og er bæjarstjórn búin að ákveða að láta gera við húsið. Húsameistari Akureyrar, Ágúst Berg, vinnur nú að kostn- aðaráætlun sem síðar verður lögð fyrir bæjarstjórn. Sigurður Óli Brynjólfsson, bæjarráðsmaður, sagði að komið hefði til tals að í húsinu yrði ein- hverskonar félagsaðstaða og einnig hefur verið rætt um að þar yrði komið fyrir myndlistarskóla. Ákvarðanir um framtíðarnot af húsinu verða teknar í haust. Skemmdarvargar hafa brotið næstum því hverja einustu rúðu í húsinu og snyrtitæki eru flest í molum. Á veggi hefur verið skrifað með málningu úr úðunarbrúsum og eldavélum velt um koll. „Ég þori ekki lengur að ganga eftir gangstéttinni fyrir framan húsið“, sagði kona nokkur sem vegna vinnu sinnar fer gangandi eftir Hafnarstrætinu á hverjum degi. „Ég er hrædd um að glerbrot úr gluggunum falli niður á stétt, en það hefur komið fyrir“. Það er auðvelt fyrir hvern sem er að komast inn í húsið, því rúður í útihurðum hafa verið brotnar. Að sögn slökkviliðsmanns, sem rætt var við, ber brýna nauðsyn til að loka húsinu sem fyrst því hætta er á að leikur með eld í húsinu geti þýtt það að gamli barnaskólinn brenni til grunna. Naglabyssu- skotum stolið úm helgina var stolið 150 naglabyssuskotum úr verslunar- miðstöðinni sem er í byggingu við Sunnuhlíð. Trúlega hafa unglingar verið að verki. Þessi skot geta verið stórhættuleg í höndum þeirra sem ekki kunna með þau að fara. Ef unglingar berja á skotin er eins víst að flísar fari í augu og valdi stórskaða. Foreldrar eru hvattir til að kanna hvort börn þeirra viti um hvar skotin eru niðurkomin og láti þá lögregluna vita. Ef sá — eða þeir — sem tók skotin les þessar línur er hann beð- in um að skila þeim hið snarasta á sama stað. Sjóstangaveiði Sjóstangaveiðimót Akureyrar verður haldið laugardaginn 5. september. Þátttöku ber að lil- kynna til bifreiðaverkstæðisins Víkings, sími 21670 og á kvöldin í síma 23583 fyrir 31. ágúst. Á myndinni má sjá Sævar Sæmunds- son með þorsk sem hann fékk á stöng á sjóstangveiðimóti. Mynd: PAP. h # Míkiðafrusl- inu er búið að hreinsa Fyrir skömmu birti Smátt og stórt hluta af bókun náttúru- verndarnefndar, þar sem rætt var um rusl og sóðaskap víða um bæinn. Heilbrigðisfulltrúi kom að máli við Smátt og stórt og benti á að þegar bókunin birtist hafí starfsmenn hans verið búnir að hreinsa mörg af umræddum svæðum. Bókun nefndarfnnar var nefnilega orðin gömul þegar Smáu og stóru barst hún í hendur. Starfsmennirnir eru þvf beðnir afsökunar og þeim þökkuð góð störf, en það er t.d. þeim að þakka að búið er að hreinsa rusl hjá Grænhóli og á Krossanesklöppum. Það er líka þeirra verk að bílhræjum fækkar stöðugt í bæjarlandinu — og það eru líka þeir sem eiga sér „leyniport" þar sem númerslausir bílar eru geymd- ir. Það fæst ekki uppgeflð hvar portið er í bæjarlandinu. % Tvíverknaður? Eitt sinn átti bæjarbúi leið um miðbæinn og sá þar sér til ánægju að verið var að máta failega „zebrabraut" yfir eina götuna. „Ja, hér verða ekki siysin í framtíðinni. Ansi eru þeir duglegir þessir málara- meistarar bæjarins", sagðl þessi bæjarbúl við sjálfan sig og hugsaði hlýtt til málaranna. Daginn eftir átti þessl saml maður aftur leið um sömu götu. Þá voru þar komnir aðrir starfsmenn bæjarins og nú með stærri og viðameiri tæki en daginn áður. Hér voru á ferð malbikunarmeistarar og nú lögðu þeir nokkurra tommu þykkt malbik yfir götuna og að sjálfsögðu líka yfir „zebra- brautina". Það er víst betra að þær hverfi nýmálaðar undir malbikið — eða hvað? Það skal tekið fram að sagan er gömul, en hún rifjaðist upp þegar sást til starfsmanna raf- veitunnar grafa skurð ( Drottningarbrautina. £ Glæsileg mannvirki Um helgina var tekfnn form- lega í notkun nýr 18 holu golf- vöjlur á Akureyri. Þetta voru merk tímamót ( sögu G.A. Þessi völlur og annar til fyrir sunnan eru þefr einu sinnar tegundar á landinu. En það er líka fleira sem er að gerast í uppbyggingu íþróttamann- virkja á Akureyri. f byggingu er glæsilegasta íþróttahús lands- ins og hér á Akureyri má finna sundlaug, íþróttaleikvang, 2 velli ( eigu íþróttafélaganna, tennisvöil og svo mætti áfram telja. Sýnir þetta glögglega hve vel hefur verlð unnið að þess- um málum á undanförnum ár- um. En þó ber einn skugga á. Nú liggja niðrl framkvæmdir við nýju íþróttahöllina og væri meira en æskilegt að fá fjár- magn sem fyrst svo hægt sé að halda áfram.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.