Dagur - 27.08.1981, Blaðsíða 6

Dagur - 27.08.1981, Blaðsíða 6
Akureyrarkirkja. Messað kl. 11 á sunnudaginn. Ólafur Jóhanns son stud. theol. prédikar. Sálm- ar: 23, 164, 189, 317, 355. - P.S. Möðruvallaklaustursprestakall. Guðsþjónusta í Glæsibæjar- kirkju n.k. sunnudag 30. ágúst kl. 2 e.h. Ólafur Jóhannsson stud. theol. predikar. - Sóknar- prestur. Frá Sjálfsbjörg Akureyri og nágrenni. Sjálfsbjargarfélagar frá Norðurlandi og Norðaustur- landi, Blönduósi til Norðfjarð- ar, ætla að koma saman að Bjargi (nýbyggingu félagsins) dagana 4.-6. sept. Dagskrá laugardaginn 5. sept. fundur kl. 15. Kvöldvaka kl. 20. Nánari upplýsingar í síma 21557. Mæt- um sem flest. - Stjórnin. Hjálpræðisherinn. N.k. sunnu- dag kl, 16, útisamkoma á torg- inu (ef veður leyfir) og kl. 20 30, almenn samkoma. Kapteinn Daníel Óskarsson stjórnar og talar. Allir velkomnir. „Opið hús“ fyrir börn á fimmtudögum kl. 17 í Strandgötu 21. Öll börn velkomin. Áheit og gjafir. Áheit á Saur- bæjarkirkju, nafnlaust, kr. 1.000,00. Áheitá Munkaþverár- klausturskirkju frá T.K. kr. 50,00, frá G.J. kr, 100,00. Gjöf frá Ingu Kristjánsdóttur til minmngar um foreldra og dótt- ur kr. 1.000. Gjöf frá Þuríði og Baldri til minningar um dóttur þeirra Sigurbjörgu kr. 2.500,00. Innilegar þakkir. - Bjartmar Kristjánsson. Ágóði af hlutaveltu er Elísabet Stefánsdóttir, Berglind Elvars- dóttir, íris Ragna Stefánsdóttir og Sigríður Elva Einarsdóttir héldu til styrktar Sjálfsbjörg, kr. 224,00, var afhentur á afgreiðslu DAGS. Ágóðinn hefur verið af- hentur réttum eigendum. Hlutavelta er Hulda Björk Jó- hannsdóttir, Gunnþóra ingva- dóttir og Halla Sif Ævarsdóttir héldu til ágóða fyrir Sjálfsbjörg kr. 200 hefur nú verið afhent réttum aðilum. Hlutavelta er Andri Már Þor- valdsson, Ellert Jón Þorvalds- son og Borgar Þór Magnússon héldu til ágóða fyrir Rauða kross íslands. alls kr. 170,00, hefur nú verið afhent réttum aðila. Þar sem ég hætti störfum hjá Kaupfélagi Verkamanna um næstu mánaöamót vil ég nota tækifærið og pakka öllum mínum viðskiptavinum góð samskipti á liðnum árum. Haraldur Helgason. Borgarbíó er nú að ljúka sýningum á myndinni Táningur í einkatíma og fer því hver að verða síðastur að sjá þá mynd. Næstu myndir verða Fantabrögð með Nick Nolte í aðal- hlutverki. Myndin fjallar um knatt- spyrnuhetju í amerísku knattspyrn- unni og hvað tekur við er atvinnu- mannsferlinum lýkur. Einnig er bíóið að hefja sýningar á myndinni í kröppum leik með JamesColburn og Omar Sharif í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um Nick Casey, sem er mjög fær billiardleikari, og Billy Joe sem ferðast um saman og keppa í billiard. Nýja bíó hefur sýningarí kvöld kl. 9 á myndinni Vitnið með William Hurt. Sigourney Weaver, Christop- her Plummer og James Woods í aðalhlutverkum. Mynd þessi er mjög spennandi og mjög í Hitch- cockstíl. Daryll Deever er húsvörð- ur í stórri skrifstofubyggingu og þarf því oft að vinna frameftir. Hann er mikill aðdáandi Tony Sokolow, sem er sjónvarpsfrétta- maður. Dag nokkurn kemur Daryll að manni myrtum. Böndin berast fljótt að kunningja hans, en ekki er allt sem sýnist. Myndin er bönnuð börnum inn 16 ára aldurs. Nýkominn reyktur lundi Kjörmarkaður KEA Hrísalundi Kjörbúð KEA Kaupangi Akureyrarmótið í knattspyrnu: Áhuginn í lágmarki Það var ekki merkjleg knatt- spyrna sem 550 áhorfendur fengu að sjá á mánudagskvöld- ið, þegar KA og Þór léku fyrri leik' sinn í Akureyrarmótinu. Leikmenn beggja liða virtust hafa takmarkaðan áhuga á leiknum, sérstaklega þó leik- menn KA og baráttan var í lágmarki. Þegar yfir lauk höfðu Þórsarar skorað tvö mörk án svars frá KA, eftir að staðan hafði verið eitt mark gegn engu í leikhléi. Þegar 5 mín. voru til loka fyrri hálfleiks tóku Þórsarar forystu með marki Guðjóns Guðmunds- sonar sem slapp í gegn um vörn KA og skoraði auðveldlega. Strax á 2. mín. síðari hálfleiks mistókst vörn KA að hreinsa frá marki og Guðmundur Skarphéðinsson bætti við öðru marki Þórs, með skoti úr mikilli þvögu leikmanna á markteig. Fleiri urðu mörkin ekki í leiknum. Lið Þórs átti eng- an stjörnuleik að þessu sinni, enda þurfti þess ekki með. Sigur liðsins var verðskuldaður og sú litla bar- átta sem í leiknum var kom frá þeim. Kristinn markvörður átti góðan leik ásamt þeim Árna og Guðjóni. KA-liðið var hörmulega lélegt í leiknum. Nokkrir leikmenn voru hvíldir og fengu því varamenn liðsins að spreyta sig í leiknum. Áhuginn var í lágmarki og virtust leikmenn vera að ljúka af leiðinlegu skildu- verki. Hins vegar verða þeir að gera sér ljóst að áhorfendur hafa borgað sig inn á völlinn ogeiga því heimtingu á að þeir leggi sig fram. Hafi KÁ-menn vanmetið Þórsara fyrir leikinn þá er erfitt að skilja hvers vegna, því ekki hefur K A átt miklu gengi að fagna í leikjum sínum gegn Þór að undanförnu. Metnaður er einnig mikill meðal fylgismanna KA og Þórs og þeirra vegna ættu leikmenn að sjá sóma sinn í að gera sitt besta. Erlingur og Ormar voru bestir KA-manna í leiknum. Dómgæsla Geirs Guð- steinssonar var í sama gæðaflokki og knattspyrnan. Mönnum datt oft í hug, að hann væri að kynna nýjar reglur í leiknum. Er nú ekki tímabært að breyta reglum í þessu móti og láta aðeins leika einn leik?, í stað tveggja og jafnvel fleiri því ef liðin vinna sinn hvorn leikinn þurfa þau að leika í þriðja sinn. Einn leikur nægir, og ætti það að skapa meiri stemmn- ingu en nú er. HVER VERÐUR Umsjon: Þorleifur Ananíasson Kristján Arngrímsson Bauta- mót fyrir konur Bautamótiö í kvennaknatt- spyrnu verður haldið á Akur- eyri um næstu helgi, dagana 29. og 30. ágúst. Alls hafa ell- efu lið tilkynnt þátttöku þar á meðal lið Breiðabliks, íslands- meistarar og Bikarmeistarar 1981. Stefnt er að því að Bautamótið verði árlegur knattspyrnuvið- burður í bænum. Eins og nafnið gefur til kynna hefur Bautinn h.f. gefið vegleg verðlaun til keppninnar auk þess að bjóða sigurvegurum til veg- legrar matarveislu að því loknu. Keppt verður um farandbikar sem það lið hlýtur til eignar er vinnur mót þetta þrjú ár í röð eða fimm sinnum alls. K.R.A. er framkvæmdaaðili mótsins í samvinnu við K.S.Í. og hvetjum við alla sem áhuga hafa á knattspyrnu að sjá öll bestu lið landsins í ört vaxandi kvenna- knattspyrnu. Knattspyrnuráð Akureyrar. - MEIST- ARI? ... nei, Kári minn, þú ferð ekki framhjá mér svo auðveldelga... - Þorsteinn Frið- þjófsson gamli varnarmaðurinn úr Val ætlar svo sannarlega að stöðva Kára Árnason, en myndirnar eru úr leik ÍBA liðsins gamla og „Stjörnuliðs“ Hemma Gunn s.l. föstudag. Á morgun, föstudag, kl. 18.30 fer fram síðari leikurinn milli KA og Þórs í Akureyrarmót- inu í knattspyrnu. Þórsarar sigruðu í fyrri leiknum og nægir því jafntefli í þessum leik til að tryggja sér sigur í mót- inu. Takist KA hins vegar að sigra verður að fara fram þriðji leikurinn til að fá úrslit. Hér með heitum við á liðin að sýna góða knattspyrnu og í þeirri von, að svo verði hvetjum við fólk til að fjölmenna á völlinn og hvetja sína menn. Kári ætlar hinsvegar ekki að láta sig átakalaust, en Þorsteinn lumar á hnéhnykk og skellir Kára. Ljósmyndir KGA 6 - DAGUR - 27. ágúst 1981

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.