Dagur - 22.09.1981, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
DAGUR
64. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 22. september 1981
72. tölublað
-VIÐ ÆTLUÐUM EKKERT AÐ
BJARGA HAG IÐUNNAR VIГ
- segir deildarstjóri í Dómsmálaráðuneytinu en ráðuneytið hefur pantað
500 pör af „sérhæfðumc< iögregluskóm frá Þýskalandi
Að undanförnu hefur farið fram
„fótamæiing“ allra starfandi
lögregluþjóna landsins, og mun
ástæðan vera sú að Dómsmála-
ráðuneytið ætlar að vera svo
rausnarlegt að gefa þeim eitt par
af skóm hverjum og einum. Um
það er sjálfsagt ekkert nema
gott eitt að segja, en óneitan-
lega hlýtur það að vekja athygli,
þegar eitt af ráðuneytunum sýn-
ir hug sinn til íslensks iðnaðar i
verki með því að panta þessa skó
erlendis frá á sama tíma og eina
skógerð landsins, Iðunn á Akur-
eyri, berst í bökkum og vantar
stuðning og verkefni.
Eins og fram kemur í viðtali við
Baldur Möller ráðuneytisstjóra í
Dómsmálaráðuneytinu hér á síð-
unni vissi hann ekkert um málið er
DAGUR hafði samband við hann,
en vísaði á deildarstjórann Hjalta
Zóphóníasson. Við slógum því á
þráðinn til hans.
Hjalti vitnaði fyrst í „fatareglu-
gerð“ sem hann sagði að ráðuneyt-
ið hefði sett, en viðurkenndi síðan
að þar væru engin ákvæði um að
ráðuneytið ætti að leggja lögreglu-
mönnum til skó. „Það kom í ljós
þegar við vorum búnir að ákveða
hvað mikið ætti að úthluta af fatn-
aði, að það hafði eitthvað minnkað
frá því sem áður var, svo við
ákváðum að bæta þeim þetta upp
og í tilraunaskini úthlutum við öll-
um lögreglumönnum nú einu pari
af skóm í ár.“
— Hvað eru þeir margir?
„Það eru rétt rúmlega fimm
hundruð pör. Við ætluðum ekkert
að bjarga hag Iðunnar við með því
að fara að semja við þá,“ sagði
deildarstjórinn að fyrra bragði án
þess að Iðunn hefði verið nefnd á
nafn.
— Hvers vegna ekki?
„Það voru ýmsar ástæður sem
ollu því að það var samið við til-
tekinn skókaupmann í Reykjavík.
Síðan er ætlunin, ef þetta verður að
fastri reglu að hafa útboð.“
— En hvers vegna segir þú að þið
hafið ekki séð ástœðu til að leita til
Iðunnar?
„Ég sagði það nú bara að gamni
mínu því það hefði nú sennilega
litlu bjargað fyrir Iðunn að fram-
leiða þessi 500 pör af skóm.“
— En þarna sýnir ráðuneytið
fordœmi. A sama tíma og erfiðleik 'ltr
eru i þessum iðnaði hér heima leitið
þið með þetta verkefni til útlanda,
ekki rétt?
„Það er nú auðvitað út af því að
þar hafa þeir smíðað sérstaka lög-
regluskó um langan aldur í ýmsum
löndum, þetta eru sérhœfðir skór. “
— Veist þú eitthvað um kostnað-
inn við þessa skósmiði?
„Ætli parið sé ekki á milli
300-400 krónur, ég gæti trúað því.“
Hjalti spurði blm. Dags hvort
hann hefði ekki áhuga á því að fá
fatareglugerðina umræddu, en við
tjáðum honum að áhugi okkar
varðandi þetta mál væri aðallega
tilkominn sökum þess að ráðu-
neytið hundsaði algjörlega skógerð
Iðunnar, en leitaði til Þýskalands til
að fá skóna smíðaða.
„Við héldum bara að Iðunn væri
að leggja upp laupana á sínum tíma
þegar þetta mál var í gangi í vor.
Það hefði bara getað tafið málið.
•En það kom til skoðunar, mikil
skelfing, því við viljum stuðla að
innlendum iðnaði.“
NÝ VERÐ-
KÖNNUN
N.A.N.
í verðkönnun sem N.A.N.,
Neytendasamtökin á Akureyri
og í nágrenni, gerðu 15. og 16.
september s.l. kemur fram, þeg-
ar borið er saman verð á algjör-
lega sambærilegum vörum í
stórmörkuðunum tveimur á Ak-
ureyri, þ.e. Hrísalundi og Hag-
kaupi, að samanlagt verð þess-
ara vara var röskiega 2,2% hærra
í Hagkaupi en í Hrísalundi.
Könnunin náði til 26 vöruflokka
og voru 16 algjörlega sambærilegir
hvað varðar tegund og stærð
pakkningar í vörumörkuðunum
báðum. Heildarverðið var 241,25
kr í Hrísalundi og 246,65 kr í
Hagkaupi.
Verðkönnunin er birt í opnu
blaðsins í dag, en þar er borið
saman verð í 6 verslunum á Akur-
eyri og einni á Svalbarðseyri. Þess-
ar verslanir eru Hrísalundur,
Kaupangur, Garðshorn, Hagkaup,
KEA í Glerárhverfi, Hafnarbúðin
og K.S.Þ. á Svalbarðseyri.
Þrír
teknir
ölvaðir
Um síðustu helgi voru þri'r öku-
menn stöðvaðir og fluttir í blóð-
rannsókn þar sem grunur lék á að
þeir væru ölvaðir. Um helgina
voru framin tvö innbrot á Akur-
eyri. Brotist var inn í Borgarsöl-
una við Hafnarstræti og í sjoppu í
gamla Þórshamri á Gleráreyrum.
Litlu varstolið.
Akureyrarkirkja var full út að dyrum, þegar séra Pétur Sigurgeirsson kvaddi söfnuð
sinn á sunnudaginn. Einnig kvaddi hann söfnuð sinn í Lögmannshlíðarsókn og að því
loknu var haldið fjölmennt kveðjuhóf i Sjálfstæðishúsinu fyrir séra Pétur og frú
Sólveigu Ásgeirsdóttur. Var það haldið á vegum þeirra sem starfa að málefnum
kirkjunnar í sóknunum báðum. Ljósm. H.Sv.
Baldur Möller, ráðuneytisstjóri:
„Óskóaður í málinu!“
„Ég ætti sennilega að gefa þér
samband við Hjalta, ég er alveg
óskóaður í þessu máli“ sagði
Baldur Möller ráðuneytisstjóri í
Dómsmálaráðuneytinu er Dagur
ræddi við hann um skókaup ráðu-
neytisins.
— Þú kannast þá ekkert við
málið?
„Nei en hann Hjalti Zóphóní-
asson myndi gera það ef að þetta
væru einhverjir skór en ekki alveg
sólalaust allt saman. Eru þetta
einhverjir cmbættisskór sem mál-
ið snýst um?“ sagði ráðunevtis-
stjórinn.
Richard Þórólfsson, framkvæmdastjóri:
„Ekki leitað tii okkar“
„Það hefur ekkert verið leitað til
okkar varðandi þetta svo mér sé
kunnugt, ég hlyti að hafa ein-
hverja vitneskju um það ef svo
hefði verið“ sagði Richard
Þórólfsson framkvæmdastjóri hjá
skógerð Iðunnar er við höfðum
samband við hann.
„Að sjálfsögðu hefði það komið
sér vel fyrir okkur að fá þetta
verkefni“ sagði Richard. „Við
hefðum eflaust viljað leggja fram
tilboð í að fá að vinna þetta verk.“
Mikill skortur
á fólki á Dalvík
Mikill skortur er nú á fólki til ým-
issa starfa á Dalvík. Fólk vantar í
fiskvinnslu, til verslunarstarfa og í
minkabú svo eitthvað sé nefnt. Rætt
hefur verið um að fá útlendinga í
fyrsta sinn I verulegum mæli til
Dalvlkur í fiskvinnu. Húsnæðis-
skortur er á Dalvík, en forráðamenn
í atvinnulífi á staðnum eru m.a. að
athuga hvort hægt sé að fá herbergi
fyrir fók I heimavist gagnfræða-
skólans. Þar er hægur vandi að
koma fyrir 20 manns í 10 herbergj-
um sem öll eru við einn og sama
ganginn. Jafn mörg herbergi eru við
annan gang, en þar búa
skólanemendur.
Aðalsteinn Gottskálksson,
fréttaritari Dags á Dalvík, sagði að
innan fárra daga yrði Ijóst hvort
herbergin fengjust. „Mennelkan er
mikil og á flestum sviðum atvinnu-
lífsins. Ástæðan er fyrst og fermst
sú að uppbygging atvinnufyrir-
tækja hefur verið mjög ör og á þetta
fyrst og fremst við um fisk-
vinnsluna. Hér hafa t.d. bæst við
söltunarstöðvar. Um þessar mundir
er sláturhúsið að taka til starfa. Að
vísu er þessi árstími alltaf slæmur
hvað þetta varðar, en skorturinn
hefur aldrei verið neitt svipaður
þessum. Hvað frystihúsið varðar þá
hefur verið rætt um að fá erlendan
vinnukraft til starfa — ef úr rætist
með húsnæði.“
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180