Dagur - 01.10.1981, Blaðsíða 4

Dagur - 01.10.1981, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Hafnarstræti 90, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamenn: Askell Þórisson, Gylfi Kristjánsson Augl. og afgr.: JÖHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Framvinda efna- hagsmála Frá því að ríkisstjórnin tók við völdum hefur verðbólgan minnkað verulega, atvinna hefur haldist í landinu og þó að kaupmáttur kauptaxta hafi lækkað nokkuð, hefur kaupmáttur þeirra tekna, sem almenningur hefur til ráðstöðunar eftir að skattar hafa verið greiddir, haldist svipaður. Einstaklega vel hefur til tekist í peningamálum og sparnaður sjaldan eða aldrei verið meiri. Þannig hafa meginmarkmið stjórnarstefnunnar staðist og er það mikill ávinningur, sem að sjáifsögðu fer mjög fyrir brjóstið á stjórnarandstöðunni. Gengisþróunin hefur hins vegar komið misjafnlega niður á at- vinnuvegunum. Þannig hefur hún komið sjávarútvegsgreinum til góða, sem selja á Bandaríkja- markaði, en verið slæm fyrir sam- keppnisiðnað og útflutningsiðn- aðinn sem selur afurðir sínar á Evrópumarkaði. Það er dæmigert fyrir málfiutning stjórnarandstöð- unnar varðandi þessi mál, að hún þakkar Reagan-stjórninni betri af- komu sjávarútvegsins vegna hækkana á Bandaríkjamarkaði, en kennir ríkisstjórninni hins veg- ar um erfiðleika útfiutningsiðnað- arins vegna lækkunar á Evrópu- markaði, sem hvort tveggja má þó rekja til gengisþróunarinnar. Á undanförnum áratug hefur verið stöðug lækkun á gengi Bandaríkjadollars en hins vegar hefur gengi Evrópugjaldmiðla hækkað jafnt og þétt. Þessi geng- isbreyting, sem orðið hefur á löngum tíma og íslensk fyrirtæki hafa aðlagast, hefur á aðeins hálfu ári gengið snögglega til baka, og því engin furða þó fyrir- tækin iendi í erfiðleikum. Nú eru kjarasamningar fram- undan og hvernig til tekst í þeim efnum getur ráðið úrslitum um framvindu efnahagsmálanna og stjórnarstefnunnar. Það er viður- kennt að miklar kauphækkanir geta og hafa leitt af sér aukna verðbólgu, án þess að kaupmátt- araukning hafi fylgt í kjölfarið. Kauphækkanir á pappírnum og kjarabætur eru ekki það sama, eins og alþjóð veit. Þjóðartekjur setja almennum kauphækkunum skorður, en hins vegar vilja laun- þegar fá sinn skerf af aukningu þjóðartekna. Mesti vandinn snýst eins og endranær um tekjuskipt- inguna, innan þeirra marka sem aðstæður leyfa. Aðilar vinnumarkaðarins hafa það nú svo gott sem í hendi sér, hvort ríkisstjórninni og þjóðkjörn- um fulltrúum tekst að ná þeim markmiðum sem sett hafa verið. SLÁTURTÍÐIN í ALGLEYMINGI Það hefur senniiega ekki farið framhjá neinum að haustið er komið og þar með sláturtíðin. Áður fyrr tíðkaðist það að reka lömbin til siáturhúsanna víðs- vegar um iandið, en í dag eru aðrar og fijótvirkari aðferðir notaðar. Lömbunum er nú ek- ið síðasta spöl í lífi þeirra á vörubifreiðum. Ætii hann hefði ekki orðið feginn bónd- inn úr Flóanum sem rak iömb- in haust hvert til Reykjavíkur og ienti ávallt í hinu mesta basli með að koma þeim upp Kambana. „Þau ætla aldrei að læra að rata þetta lömbin og fara þó þessa leið á hverju einasta ári“ sagði bóndi ösku- reiður eitt sinn er illa gekk hjá honum reksturinn. „Við hófum slátrun 16. sept- ember og áætlum að slátra rúm- lega 39 þúsund fjár“ sagði Hörð- ur Frímannsson, verkstjóri hjá Sláturhúsi KEA á Akureyri er Dagsmenn litu þar við á dögun- um. „Við slátrum um 1500 lömb- um á dag eftir að við vorum komnir á fulla ferð, og slátrun lýkur því væntanlega um 22. okt- óber.“ „Það er mikið til fólk úr sveit- unum hér í kring sem starfar við slátrunina“ sagði Hörður. „Við leggjum á það áherslu að fá vant fólk í þetta, en við slátrunina og allt í kring um þetta starfa senni- lega á milli 120-130 manns. Hér á efri hæðinni, þar sem er sjálf slátrunin og frágangur skrokk- anna fer fram vinna um 50 manns.“ — Við fengum Hörð til þess að ganga með okkur um húsið og komum fyrst í réttina þar sem 1500 lömb bíða þess hverja nótt að verða aflífuð næsta dag en réttin er ávallt fyllt á kvöldin. Þarna inni var talsvert af lömbum og því lá beinast við að spyrja Hörð um vænleika þeirra í haust. „Ég fæ ekki betur séð en að lömbin séu alveg þokkaleg. Þau eru ekkert sérstök, en ekkert verri en almennt gerist" sagði hann. Næst lá leiðin á þann stað þar sem lömbin eru aflífuð. Þar hjálpast tvær til þrjár manneskjur við að koma lömbunum til þess sem aflífar þau, en það er gert með sérstakri loftbyssu. Og úr „dauðabúrinu" falla lömbin nið- ur í aðalvinnslusalinn. Þar inni er svo sannarlega handagangur í góðu meðallagi. í salnum starfa um '30 manns, og þar renna skrokkamir í gegn á færibandi. Hver maður vinnur sitt ákveðna starf og út úr þessum sal koma 4 skrokkar á mínútu, tilbúnir að fara í kæli og þaðan í fyrsti. Niður úr þessum sal ganga nokkur rör og op og niður um þau fara hausamir og allur innmatur- inn. „Dauðagangan“ er hafín. Lömbin ganga upp stiga inn f réttina f slátur- húsinu. Niðri er slátursalan og sagði Hörður að þar væri alltaf mest ösin rétt fyrir helgamar. „Ég veit ekki hvað þeir taka mörg slátur sem gera mest af því, en það er talsvert um það að fólk taki 10 slátur, og sennilega koma sumir oftar en einu sinni.“ sagði hann. Kjötsalan er einnig á neðri hæðinni. Þar getur fólk keypt ófryst kjöt í heilum skrokkum á mun hagstæðara verði en ann- arsstaðar gerist. Þar var Sveinn Kristjánsson eins og kóngur í ríki sínu að vigta og merkja kjöt og sagði hann að salan í ár væri síst minni en í fyrra, „en hún kemur dáiítið í gusum," sagði hann. Er full ástæða til að benda fólki á að þama er hægt að gera hin hag- stæðustu innkaup. f „Dauðabúrinu" eru lömbin afíffuð. KONURNAR KOMA UM HELGINA Kvenfélagskonur munu um helg- ina heimsækja Akureyringa, kveðja dyra á hverju heimili og gefa heimilisfólki kost á að leggja fram fjármuni til að koma upp hjúkrunardeild fyrir gamalt fólk, sem engin stofnun í bænum getur nú annast og heimili eiga í erfið- leikum með. Það er áhugafólk, sem vinnur við elliheimilin, Fjórðungssjúkrahúsið, Heilsugæslustöð, Félagsmálastofn- un o. fl. sem ætlar sér að koma upp hjúkrunardeildinni og treystir í því efni á frjáls framlög einstaklinga, stofnana, félaga og fyrirtækja á Norðurlandi. Framkvæmdanefnd þessa hóps skipa: Jón Kristinsson, forstöðumaður, Ásgeir Höskulds- son, framkvæmdastjóri, Halldór Halldórsson, læknir, Hulda Bald- ursdóttir, heimilishjúkrun, Ólafur H. Oddsson, héraðslæknir og Ólaf- ur Sigurðsson, yfirlæknir. Formað- ur nefndarinnar er Jón Kristinsson. Til þess að losa kvenfélagskonur við ræðuhöld á tröppunum og fækka spurningum, er nauðsynlegt að benda á eftirfarandi staðreynd- ir: Á síðasta ári var gerð á því könnun hjá héraðslæknisembætt- inu á Akureyri hve mörg sjúkrarúm vantar fyrir langlegusjúklinga, svo sem gamalt fólk, á því svæði, sem Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þjónar. Niðurstaðan varð sú, að það vantar 50 sjúkrarúm og er þessi vöntun mjög tilfinnanleg, þrátt fyrir yfir 30 sjúkrarúm á Kristnes- hæli og 17 í Fjórðungssjúkrahús- inu. Elliheimilin, Hlíð og Skjaldar- vík, eru ætluð rólfæru fólki en þau eru ekki búin til þess, hvorki að mannafla eða tækjum, að annast sjúklinga. Þar eru þó margir lang- legusjúklingar vegna þess að þeir fá ekki annars staðar inni. Þetta skapar vaxandi og óviðunandi að- stöðu og telja þeir sem best eiga að vita, að hér sé um neyðarástand að ræða. Áhugamannafólkið, sem fyrr var nefnt, fann strax hentugt húsnæði til að koma upp hjúkrunardeild fyrir á þriðja tug sjúklinga, sem bæta myndi úr sárustu þörf, en það ér Systrasel, er stendur á lóð Fjórðungssjúkrahússins og virðist hafa lokið hlutverki sínu að mestu eða öllu. Nokkrar breytingar þarf að gera á húsnæðinu, en síðan að kaupa í það viðeigandi búnað, sem er mjög dýr. Samtals er áætlaður kostnaður um tvær milljónir króna. Hér er því um allstórt verkefni að ræða og mikils fjár þarf að afla. Fjársöfn- unin á Ákureyri nú um helgina er einn liðurinn í undirbúningsstarf- inu og ekki veigalítill. Sjúkrahúsbyggingin nýja, átti að leysa vanda langlegusjúklinganna. Hún er í smíðum, er fjórum til fimm sinnum stærri en gamla Fjórðungssjúkrahúsið, á að rúma 200 sjúklinga auk þeirra 130, sem Fjórðungssjúkrahúsið rúmar og staðurinn átti að rúma alla þá gömlu menn, karla og konur, sem þörf væri á. En þessi mikla fram- kvæmd, sem er hvorki meira né minna en aðal varasjúkrahús landsins, fullkomið og deildarskipt, er orðin rúmlega einum áratug á eftir áætlun og það er þess vegna, sem nú verður að horfast í augu við mikinn vanda gamla fólksins. En heilbrigðisyfirvöld taka að sér rekstur hinnar nýju hjúkrunar- deildar í Systraseli, þegar hús og búnaður leyfir. Segja má, að það sé mikil bjart- Umsjón: Ólafur Ásgeirsson Kristján Arngrímsson „BERJUMSTI HVERJUM LEIK“ — segir Magnús Guðmundsson þjálfari Dalvfkinga í handknattleik Dalvfkingar leika nú enn á ný í þriðju deild í handbolta, en þeir hafa ’yfirleitt verið þar með undanfarin ár, að árinu í fyrra undanskyldu. Þjálfari þeirra er Magnús Guðmundsson sem í fyrra lék með KA til sigurs í annarri deild, og hann mun einnig leika með liðinu. f stuttu spjalli við íþróttasíðuna sagði Magnús að þeir hefðu fyrir skömmu hafið æfingar, og æfðu þrisvar í viku. Gallinn væri hins vegar sá að margir leikmanna liðsins væru sjómenn, eða á ann- an hátt tengdir þeim atvinnuvegi og þá vildu rekast á hagsmunir þeirra og íþróttarinnar. Þeir geta æft-í íþróttahúsinu á Dalvík en fá ekki að leika þar, þar er salurinn er allt of stuttur, og þess vegna verður íþróttaskemm- an á Akureyri þeirra heimavöllur. Magnús sagði að þeir hefðu fengið til liðs við sig einn Vest- manneying Gest Matthíasson og einnig væri væntanlegur Vignir Hallgrímsson, Dalvíkingur sem í fyrra hefði verið út.í Noregi og þar leikið með norsku liði. Gest- ur var markhæstur i þriðju deild- inni í hitteðfyrra þegar hann lék þar með Dalvíkingum. Magnús sagði að það væri á hreinu að þeir tækju þátt í hverj- um leik til þess að sigra, og ef það tækist þá myndu þeir vinna deildina. Þetta hugarfar þarf að vera hjá leikmönnum þegar þeir ganga til hvers leiks, því annað væri ekki íþróttinni sæmandi. Fyrsti leikur Dalvíkinga verður á laugardaginn kemur og þá leika þeir við Gróttu í íþrótta- skemmunni á Akureyri, en þang- að til hafa þeir aðeins leikið æf- ingarleiki við Þór og KA. Íþróttasíðan óskar Dalvíkingum velfamaðar í deildinni. „Þetta verður erfitt hjá okkur í vetur“ - segir Arnar Guðlaugsson þjálfari Þórs „Við erum búnir að vera að æfa i um mánuð, en það er þó varla nóg,“ sagði Arnar Guðlaugsson þjálfari 3. deildarliðs Þórs i hand- knattleik, er blaðamaður íþrótta- síðunnar átti við hann stutt spjall. „Það lið sem kemur til með að leika í vetur, er að miklu leyti al- veg nýtt lið — mikið af Ungum mönnum sem eru að koma upp. Nú, svo erum við með nokkra gamla jaxla í kjölfestuna.“ Arnar sagði þetta verða erfitt í vetur. „Það er alltaf erfiðara að vinna þriðju deildina en að hanga í annarri. Til þess þurfa liðin að vera sterk allan tímann. Ég er alls ekki viss um að við vinnum deildina — þótt það sé auðvitað alltaf stefnan. Það er miklu betra að vera tvo vetur í þriðju deild og byggja upp gott lið, heldur en að vera kannski að fara upp núna með einhverjum harmkvælum og eiga svo í stöðugu basli í annarri deild “ Júdómenn að byr ja Nú eru júdóæfingar byrjaðar að nýju eftir sumarfrí. Æft er í íþróttahúsi Glerárskólans á miðvikudögum kl. 7-8 og sunnudögum kl. 5-6.30. Þjálfari verður hollendingur- inn Cees Van De Ven. Verður þetta í fyrsta skiptið sem akur- eyrskir júdómenn hafa þjálfara heilan vetur og vonar því Júdóráð Akureyrar að sem flestir noti sér tækifærið og láti verða af því að byrja að æfa þessa skemmtilegu íþrótt. Fréttatilkynning. Jón Hjaltason rcynir „Harai Goshi' sýni af áhugamannafólki, að ætla að safna svo miklu fé að nægi til að útbúa hjúkrunardeildina. Þetta er stórt og þýðingarmikið verkefni, en á það ber að líta, að fólkið sem fyrir söfnun og framkvæmdum stendur, er öðru fólki kunnugia hvar skór- inn kreppir alvarlegast í málefnum hinna öldnu. Það hefur lengi horft á hina knýjandi nauðsyn að hefjast handa um úrbætur, og þess er ósk- andi að bjartsýni þess og dugnaður mæti bæði skilningi og þeim stuðningi, sem eftir er leitað og um munar. Hér á Akureyri eru fimm konur, hjúkrunarkona og sjúkra- liðar í hálfu starfi á vegum Heilsu- gæslustöðvarinnar, við hjúkrun gamals fólks í heimahúsum m.a. Hjá stöðinni eru 50-60 gamlir á skrá, þar af fólk, sem daglega þarf að sinna vegna sjúkleika. Af öllu þessu má ljóst vera, að alvara er á ferðum og verkefnið svo brýnt, að hvorki verður staðar numið né aftur snúið. Þegar heilir gangar á elliheimilunum eru fullir af rúmliggjandi gamalmennum og hvergi finnst staður fyrir þá, er ekki lengur sæmilegt að snúa sér undan vandanum og láta sem ekkert sé. Hefur mér orðið þetta enn ljósara en áður, eftir viðtöl við fram- kvæmdastjóra Fjórðungssjúkra- hússins og elliheimilanna, ennfremur við hjúkrunarkonur. Um leið og ég þakka upplýsingar þess fólks, hvet ég bæjarbúa til að taka vel á móti kvenfélagskonun- um um helgina, er þær koma til að safna fé fyrir nýja hjúkrunardeild handa gömlu fólki. Erlingar Daviðsson. 4 - DAGUR -1. október 1981 1. október 1981 - DAGUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.