Dagur - 08.10.1981, Side 4
Utgefandi: UTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Hafnarstræti 90, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm,): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamenn: Áskell Þórisson,
Gylfi Kristjánsson
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Samfélagsleg
úrræði
Veturinn er genginn í garð, óvenju
snemma að þessu sinni. Á norðan
og austanverðu landinu hófust
vetrarhörkurnar um síðustu mán-
aðamót og þær komu í kjölfar lé-
legs sumars og skammvinns og
erfiðs hausts. Hverju úrkomu og
kuldametinu á fætur öðru hefur
verið hnekkt og af skiljanlegum
ástæðum hefur þetta afleita veð-
urfar komið niður á ýmiskonar
starfsemi, einkum þó landbúnað-
inum á norðanverðu landinu. Þar
var sumarið kartöfluræktendum
erfitt og uppskeran lítil og léleg,
svo sem við Eyjafjörð, þar sem
uppskeran er aðeins þriðjungur
þess sem hún var í fyrra eða með
öðrum orðum langt undir meðal-
lagi. Ekkí tók betra við þegar átti
að taka upp þessa slöku uppskeru
því óvenju mikil rigningatíð haml-
aði því verki svo vart var búið að
taka upp nema helming að jafnaði
þegar veturinn brast á með fann-
komu og kulda. Horfur eru því
á að flestir kartöflubændur á
þessu svæði verði svo gott sem
tekjulausir þetta árið. Nú er eng-
um blöðum um það að fletta að
kartöflurækt er þjóðþrifastarfsemi
þar sem innlend kunnátta er nýtt
svo og sú innlenda orka sem í
gróðurmoldinni felst. Á sama hátt
og aflabrestur má ekki verða til
þess að íslenskir sjómenn hætti
að stunda sjóinn, mega erflðleikar
kartöflubænda ekki verða til þess
að kartöfluræktin leggist niður.
Því verða samfélagsleg úrræði að
koma til, enda hagsmunir sam-
félagsins alls í húfi.
Þessi ótímabæra vetrarkoma
minnir einnig á það hversu gífur-
lega mikili aðstöðumunur er
milli íbúa höfuðborgarsvæðisins
annarsvegar og annarra lands-
manna hinsvegar. Vetrinum fylgja
stopular samgöngur í lofti og á
landi og þar með aukast erfiðleik-
ar fólks á landsbyggðinni að ná til
margvíslegrar þjónustu sem allir
landsmenn hafa staðið að, greitt
fyrir uppbyggingu á, en aðeins er
að finna í Reykjavík. Einnig á
þessum vettvangi verða sam-
félagsleg úrræði að koma til með
samgöngubótum og aukningu á
þjónustu út um land.
Svo virðist vera að veðráttan fari
sífellt kólnandi og er það mat
sumra veðurfræðinga að enn eigi
ástandið efftir að versna. Það
mætti því búast við að hafís sæist
oftar við strendur landsins næstu
ár og undir það verða landsmenn
að verða búnir.
„Þetta námskeið er haldið á
vegum Vinnumálasambands
Samvinnuféiaganna og Sam-
vinnuskólans að Bifröst, og er
tengt kjarasamningum sem
gengu í giidi fyrir ári síðan, en
þar er kveðið á um það að af-
greiðslufólk „a“, ,,b“ og „c“
eins og það er skiigreint í
kjarasamningum skuli eiga
rétt á námskeiði fyrir 28. okt-
óber 1981. Ef ekki hefði verið
boðið upp á þetta námskeið
fyrir þann tíma þá hefði þetta
fólk sem er búið að starfa við
afgreiðslustörf í 7 ár eða
lengur átt að fá launahækkun
sjálfkrafa.“
- Þetta sögðu þeir Þórir Páll
Guðjónsson og Sigurður Sigfús-
son, kennarar á Bifröst, en þeir
héldu um síðustu helgi námskeið
í verslunarfræðum á Akureyri
ásamt Jóhönnu Margréti Guð-
jónsdóttur.
„Samvinnuskólanum var falið
að halda þessi námskeið og sjá
um framkvæmd þeirra fyrir hönd
Vinnumálasambandsins og það
var ákveðið að þetta yrði 45
klukkustunda námskeið og eftir
Hópurinn sem sótti námskciðið ásamt leiðbeinendunum. Á myndina vantar einn leiðbeinandann, Jóhönnu Margréti Guðj
VERSLUNARFOLK
Á SKÓLABEKK
hefja afgreiðslustörf, og hefðu
slík námskeið t.d. verið haldin ár-
lega á Akureyri undanfarin ár.
Þau námskeið væru t.d. fyrir fólk
sem ynni við afleysingarstörf í
verslunum ásumrin.
að þeim lyki fengi það fólk launa-
hækkun sem þau sækti. Það færi
upp í 16. launaflokk, íþað launa-
þrep í þeim flokki sem gefur því
hækkun launa frá því sem það
hafði áður.“
- Samvinnuskólinn hóf nám-
skeiðshald fyrir starfsfólk
hreyfingarinnar 1977 og þeir Þór-
ir og Sigurður hafa veitt þeim
forstöðu. Þau námskeið sem
lengst af hafa verið haldin, hafa
tekið eitt eða tvö kvöld á hverjum
stað.
, ,Það fólk sem sækir námskeið-
ið hér á Akureyri er starfandi
verslunarfólk hjá Kaupfélagi Ey-
firðinga, bæði á Akureyri og í úti-
búunum á Dalvík, Ólafsfirði og
Siglufirði. Einnig er hérna núna
verslunarfólk frá Kaupfélagi
Þingeyinga á Húsavík."
- Hvað er aðallega tekiðfyrir á
námskeiðisem þessu?
„Það eru ýmsir þættir sem
teknir eru fyrir. Það er ýmislegt í
sambandi við afgreiðslustörf í
versluninni, það er farið í gegn
um verslunarstörfin almennt,
halda námskeið af þessu tagi fyrir
fólk sem hefur ekki starfað eins
lengi viðverslun.“
- Þeir félagar tóku það fram
að undanfarin ár hefðu þeir hald-
ið námskeið fyrir fólk sem er að
Á námskeiðinu á Akureyri um
síðustu helgi voru 23 þátttakend-
ur, og áformað er námskeið á
Sauðárkróki 17.-21. október og
annað námskeið á Akureyri 24.-
28. okt.
„ALLTAF AÐ LÆRA
EITTHVAÐ NÝTT“
- SEGIR HRÖNN KÁRADÓTTIR FRÁ HUSAVIK
„Þetta er í 7. skipti sem ég fer
á námskeið sem Samvinnu-
það er farið í gegn um þjónustu-
hlutverkið, framkomu við við-
skiptavini, kennd er meðferð
reiknivéla, farið í verslunarreikn-
ing, prósentureikning til dæmis.
Þá er kennd íslenska, meðferð
búðarkassa, vörufræði, verslun-
arréttur og í lokin reiknum við
með að hafa umræður um sam-
vinnuhreyfinguna.“
- Þið sögðuð áðan að þetta
námskeið vœri fyrirfólk sem vœri
með 7 ára reynslu eða lengri í af-
greiðslustöfum. Vœri ekki allt
eins, eða frekar, þörf á því að
halda námskeið afþessu tagifyrir
fólk sem er að hefja verslunar-
störf?
„Þau námskeið sem við höfum
verið með eru mörg hver ætluð
byrjendum, og fólki á ýmsum
stigum. En það er ljóst að það er
ekki síður þörf á námskeiðum
fyrir byrjendurna. En námskeið
eins og það sem haldið er hérna á
Akureyri núna er haldið beinlínis
til þess að uppfylla ákveðið kjara-
samningaatriði og það er ekki
ólíklegt að framvegis verði tekið
til þess í kjarasamningum að
skólinn heldur og auðvitað er
maður alltaf að iæra eitthvað
nýtt“ sagði Hrönn Káradótt-
ir, en hún starfar hjá Kaupfé-
lagi Þingeyinga á Húsavík.
Þar hefur hún starfað í mat-
vörudeild í rúmlega 5 ár, en
vann áður í söluskála kaupfé-
lagsins í tvö og hálft ár.
„Mér finnst þetta mjög
fræðandi og skemmtilegt nám-
skeið. Þau námskeið sem ég hef
sótt áður hafa öll miðast við versl-
unina sem slíka, afgreiðslustörf
og slíkt i versluninni sjálfri og
framkomu við viðskiptavini og
fleira í þeim dúr. En á þessu
Hronn Káradóttir.
námskeiði koma inn í störf eins
og vinna við peningakassa og
reiknivélar. Þá höfum við einnig
lært prósentureikning og.þó það
sé ekki víst að við notum hann
svo mikið í okkar störfum þá er
afskaplega gaman að. kunna
þetta. Þegar maður hefur ekki
verið í skóla yfir 20 ár þá rifjar
þetta ýmislegt upp. ‘ ‘
- Ert þú mun fœrari um að
sinna þínum störfum eftir að hafa
sóttsvona námskeið. “
„Ég veit það ekki. Það var nú
verið að h,æja að því heima að ég
væri að fara að læra að afgreiða
eftir að hafa unnið svona lengi í
verslun. Mér finnst þetta hins-
vegar ekki óþarfi, og varla
vinnuveitendum okkar sem eru
að senda okkur á svona nám-
skeið.“
„Farið yfir efni sem
allir þurfa að kunnaÉt
— segir Arndís Antonsdóttir sem starfar hjá KEA í
Höfðahlíð 1
„Þetta leggst mjög vel í mig og
ég tel að ég hafí mikið gagn af
því að sækja þetta námskeið“
sagði Arndís Antonsdóttir, en
hún starfar í verslun KEA að
Höfðahlíð 1 á Akureyri, og
hefur unnið við verslunarstörf
írúmlega8ár.
„Þetta er mjög gott námskeið
á allan hátt, og mér finnst að það
ætti að halda svona námskeið
fyrir fólk sem er að hefja störf í
verslun. Hér er farið yfir efni sem
allir þurfa að kunna skil á og hafí
gagn af.“
4»
Arndís Antonsdóttir
- A hvaða hátt ertþúfœrari ac
sinna þínum störfúm í versluninm
eftirsvona námskeið?
„Hér lærum við hvernig á að
koma fram við viðskiptavinina,
við lærum reikning og blindskrifl
á reiknivélarnar sem flýtir mjög
fyrir afgreiðslunni. Margt fleira
kemur inn í þetta sem gerir manr
færari um að sinna sínum störf-
um.
4 • DAGUR - 8. október 1981