Dagur - 10.12.1981, Side 8
Cesar hefur heldur betur fært út kvíarnar. I síðustu viku var opnuð ný deild f nýju
húsnæði, Brekkugötu 3. Þar verða seld hljómflutningstæki og hljómplötur. Vmis
þekkt merki úr hljómtækjaheiminum eru til sölu i Cesar og nægir að nefna Luxor,
Sharp, Pioneer og Ortofon. I framtfðinni verður öll starfscmi Cesars f Brekku-
götu 3. Á myndinni má sjá eigendur og starfsmenn f Ijómandi skapi, enda ekki á
hverjum degi sem opnuð er jafn ágæt verslun. Mynd:H.Sv.
Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennari hélt á dögunum sýnikennslu f meðferð
TOSHIBA örbylgjuofna hjá RAF á Akureyri sem hefur umboð fyrir þessa ofna á
Akureyri. Sýndar voru þær tegundir örbylgjuofnanna sem á boðstólum eru, og
meðferð þcirra. Dörfn lagði á það áherslu f samtali við Dag að ofnarnir væru ekki
einungis ætlaðir til þess að hita upp áður matrciddan mat eins og svo margir
virðast halda, heldur væri notagildi þeirra fjölbreytilcgt. I ofnunum má þfða frosin
mat, matreiða flestar tegundir kjöt og fiskrétta, baka ýmsar gerðir af kökum og
endurhita áður matreiddan mat. — RAF veitir allar nánari upplýsingar um
Toshiba örbylgjuofninn sem framleiddur hefur verið f yfir 10 milljónum eintaka
og er f notkun um allan heim. Ljósm. KGA.
Sfðastliðinn sunnudag var skemmtun fyrir alla fjölskylduna f veitingasal Hótels
KEA. Kalt borð var fyrir þá sem það vildu og þar var þessi mynd tekin af nokkrum
þeirra sem stóðu fyrir skemmtuninni. F.v. Davfð Jóhannsson, Gunnar Karlsson,
Rafn Sveinsson og Snorri Guðvarðsson. Já, það er ekta svfnshaus fremst á
myndinni. Mynd: á.þ.
Bjarney Sigvalaadóttir (t.h.) hefur opnað nýja hárgreiðslustofu f Kaupangi og
heitir stofan Hárgreiðslustofa Diddu. Áður var Bjarney með aðstöðu f rakara-
stofu Sigvalda, sem einnig er f Kaupangi. Stofan er opin frá ki. 09 til 18 alla daga
og á miðvikudagskvöldum er opið fram til kl. 22. Á laugardögum er opið frá kl. 09
til 12. Auk Bjarneyjar vinna á stofunni þær Kristfn Sigvaldadóttir (t.v.) og Erna
Arnarsdóttir. Sfminn er 21898.
Sonja Kristinsdóttir t.h. og Ásdfs Jónsdóttir afgreiðslustúlka. Mynd: á.þ.
TISKUVERSLUNIN SIF
Fyrir skömmu opnaði tísku-
verslun í Kaupangi, Tísku-
verslunin Sif. Sonja Kristins-
son, eigandi og versiunarstjóri
sagði að Sif myndi leggja
áherslu á, eins og nafnið gef-
ur til kynna, tískuvörur fyrir
kvenfólk, svo og snyrtivörur
frá finnska fyrirtækinu Lum-
ene.
Sonja sagði einnig að verslunin
væri með á boðstólum fatnað í
sérstærðum. Vörur fyrirtækisins
velur Sonja á sýningum erlendis
og sagði hún að lögð væri áhersla
á vandaðar vörur frá viður-
kenndum fyrirtækjum. Það kom
fram í samtalinu við Sonju að þau
sambönd sem verslunin hefði náð
erlendis, gerðu henni kleift að
bjóða upp á ýmsar nýjungar og að
í Sif ættu allar konur, ungar sem
gamlar, að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi.
Kolbeinn (t.h.) afhendir Albert farseðilinn og Ingólfur horfir á. Mynd:áþ.
ÚTSÝN OPNAR
Á AKUREYRI
Ferðaskrifstofan Útsýn hefur
opnað nýja skrifstofu á Akur-
eyri. Hún er við Skipagötu,
norðan við verslunina Bókval.
Nánar tiitekið við hlið Aðal-
steini Jósepssyni bóksala, sem
hefur verið umboðsmaður Út-
sýnar f 15 ár. Kolbeinn Sigur-
björnsson mun veita skrifstof-
unni forstöðu, en hún er í eigu
þeirra tveggja og Ingólfs Guð-
brandssonar, forstjóra Útsýn-
ar. Fyrsti viðskiptavinur skrif-
stofunnar var Albert Hanndk-
son. Albert datt heldur betur i
lukkupottinn því Kolbeinn
færði honum farmiða til
London með tilheyrandi gist-
ingum.
Ingólfur Guðbrandsson sagði í
tilefni opnunarinnar að það hefði
verið ánægjulegt að skipta við
Akureyringa undanfarin ár, en
þessi nýja skrifstofa markaði
tímamót í sögu Útsýnar. „Nú er
Útsýn fær um að veita Akureyr-
ingum og nágrönnum bæjarins
alhliða þjónustu um allt sem við-
kemur ferðalögum og ég fagna
því að hafa fengið til samstarfs
Kolbein Sigurbjörnsson, sem er
einn færasti starfsmaðurinn á
sínu sviði hér á landi.“
Ingólfur sagði að í mannlegum
samskiptum væri traust svo
sannarlega mikils virði. Ferða-
þjónusta er vandasöm, sagði
Ingólfur, og hann þakkaði það
traust sem Útsýn hefði verið sýnt
á Akureyri á umliðnum árum.
„Ég vona að bæjarbúar og Norð-
lendingar megi njóta góðs af því
trausti sem Útsýn hefur áunnið
sér hér og erlendis," og Ingólfur
gat þess að fyrirtækið hefði náð
umtalsverðum afsláttum í far-
miðaverði og hótelgistingum og
að sjálfsögðu kæmi það sér vel
fyrir viðskiptavinina.
Eins og fyrr sagði mun Kol-
beinn veita Akureyrardeild Út-
sýnar forstöðu. í ávarpi sem Kol-
beinn flutti við opnunina kom
m.s. fram að hann mun vera í
sambandi við tölvudeild Útsýnar
og e.t.v. mun Akureyrarskrifstof-
an verða tölvuvædd innan tíðar.
8 - DAGUR - 10. desember 1981