Dagur - 10.12.1981, Blaðsíða 11
Lóðir mun ekki
skorta næsta ár
Húsvíkingar hafa nú ákveðið
fjölda lóða, sem koma tii út-
hiutunar á næsta ári. Einnig
hafa þeir lagt línuna varðandi
lóðaúthlutanir árið 1983. Ljóst
er að nóg verður til af lóðum sé
miðað við svipaðar bygginga-
framkvæmdir á næsta ári og
verið hefur. Á undanförnum ár-
David Beaty:
Hans hágöfgi
Útgefandi Skjaldborg
Skjaldborg á Akureyri hefur gefið
út bókina Hans hágöfgi eftir David
Beaty. Sagan gerist í Afríku. Bylt-
ing er gerð í Afríkuríkinu Kajandi.
Nýi einvaldurinn er risi á vöxt,
ófyrirleitinn og hjátrúarfullur.
Minnir þessi sögupersóna um
margt á Idi nokkum Amin, sem
mikið var í fréttum fyrir örfáum
árum. Ættflokkaerjur blandast inn
í valdabaráttuna og verður vart
annað sagt en aðferðimar sem not-
aðar eru til að berja á andstæðing-
unum séu villimannlegar.
Höfuðpersóna sögunnar er
annars breskur flugmaður, en hann
lendir í eldlínu þeirra umbrota sem
eru í þessu afríkuríki. Til sögunnar
kemur einnig breski sendiherrann
og starfslið hans, en hann fer í sína
fyrstu heimsókn til nýja einvaldsins
til að biðja flugmanninum lífs, er
hann hafði verið fangelsaður.
Bókin er 229 blaðsíður.
um hafa u.þ.b. 20 íbúðir verið
teknar í notkun á Húsavík á
hverju ári. ,
Pálmi Þorsteinsson, bygginga-
fulltrúi á Húsavík, sagði að nú væri
búið að auglýsa 11 einbýlishúsa-
lóðir á næsta ári. í brekkunni fyrir
ofan Safnahúsið verða 3 slíkar lóð-
ir, við Urðar- og Steinagerði eru 2
einbýlishúsalóðir og við Baughól
eru einnig 2. Við götu sem heitir
Stórhóll verður hægt að byggja 4
einbýlishús og 6 raðhús, hvert með
4 íbúðum. I Reitnum hefur verið
gert deiliskipulag fyrir 2 fjölbýlis-
hús við Grundargarð. Áætlað er að
í hvoru húsi gætu verið 12 íbúðir.
„Einnig er farið að undirbúa árið
1983. I bænum er til svæði sem
heitir Langholt, en það er sunnan
og ofan við núverandi byggð. Nú er
þar malartaka. Þarna verður rúm
fyrir einbýlishús næstu 4 til 5 árin,
auk raðhúsa. Trúlega verða þama
alls 50 einbýlishús,“ sagði Pálmi.
Það kom fram hjá Pálma að
heldur hefur dregið úr bygginga-
hraða einstaklinga á Húsavík og
spenna á þeim markaði hefur
minnkað. Hins vegar er útlitið í
byggingariðnaðinum allgott miðað
við árstíma og mörg fyrirtæki hafa
sótt um lóðir undir starfsemi sína.
Má í því sambandi nefná að Véla-
verkstæðið Foss hefur sótt um lOö
fyrir viðbyggingu, sótt hefur verið
um lóð vegna húss yfir mjólkurbíla
K.Þ. og Fiskiðjuverið hefur sótt um
byggingarleyfi fyrir hús
Jólaösin hafin
„Ekki aðrir en rukkarar á ferð sl. þriðjudag(C
Verslanir á Akureyri verða al-
mennt opnar til klukkan 18 n.k.
laugardag. Þann 19. desember
verða þær opnar til klukkan 22
og 23. desember verður opið
fram til klukkan 23. Þetta er
samskonar opnunartími og hef-
ur tíðkast fyrir jól undanfarin ár
hjá Kaupfélagi Eyfirðinga og
félaga í Kaupmannafélagi
Akureyrar.
Bjöm Baldursson, verslunar-
fulltrúi hjá Kaupfélagi Eyfirðinga
sagði að jólaösin hefði í raun hafist
fyrir síðustu mánaðamót. Þá var
veður gott og færð sömuleiðis og
margt fólk úr nágrannabyggðunum
lagði leið sína til bæjarins.
Birkir Skarphéðinsson, í Amaro,
sagði að slæmt veður undanfarna
daga hefði valdið því að verslunin
hefði minnkað mjög mikið en „hún
var góð síðustu dagana í nóvember
og fyrstu dagana í desember.“ Þeg-
ar rætt var við Birki s.l. þriðjudag
var kófið slíkt að varla sást á milli
húsa „og nú eru ekki aðrir á ferð en
rukkarar,“ sagði Birkir, sem sagðist
vita til þess að fólk kæmi í verslun-
arleiðangra allt vestan úr Húna-
vatnssýslum ef væri einsýnt með
veður og færð góð. „Ég fæ ekki
betur séð en verslunin nú verði
ákaflega svipuð og fyrir jólin í
fyrra, en þá var hún frekar róleg,“
sagði Birkir.
MEÐ
JÓLASTEIKINNI:
lceberg salat
Rauðkál, nýtt og niðursoðlð
Hvítkál, nýtt
Aspargus
Sveppir
Remulade sósa
Mayonaise
Hollensk sósa
Tómat sósa
Gulrætur, nýjar og
niðursoðnar
Rauðrófur, nýjar
Rauðrófur, niðursoðnar
Agurkur í glösum
Picles, margar tegundir
Asíur í glösum
Blandað grænmeti, m. teg.
Grænar baunir
Tómatar
Paprika
Agúrkur
Steinselja
DILKAKJÖT: ALIKÁLFAKJÖT: SVÍNAKJÖT: Kótelettur
Heil lær Kraftsteik Hamborgarhryggur
Úrbeinuð lær Gullash Lærstelk
Úrbeinaður hryggur Buff, barið og óbarið Lærsteik, beinlaus
Heill hryggur Fíle — hakkað Bógsteik
Kótelettur Nautatunga Kambur, beinlaus, nýr
Lærsneiðar T.bone Kambur, beinlaus, léttreyktur
Súpukjöt Hamborgararhryggur Bæonskinka —Bacon
Hamborgarlær FUGLAR: Við viljum sérstaklega benda á okkar
Saltkjöt, úrvals gott Ijúffenga, léttreykta lambakjöt,
Svið, óverkuð og verkuð Alihænur LONDONLAMB
Nýru — Hjörtu Kjúklingar og
London lamb Kjúklingalæri HAMBORGARHRYGG,
Gæsir Kjúklingabrjóst beinl. og með beini.
HANGIKJÖT: Rjúpur ÚR DJÚPFRYSTI:
Lær Emmess ís: jarðarberja, súkkulaði,
Lær, beinskorin vanillu, nougat
Frampartar ALLS KONAR SMÁRÉTTIR: fstertur, með alls konar sósum
Frampartar, beinskornir Beinlausir fuglar Ennfremur frosið grænmeti, margar
Magáll Lambasnitcel og fl. tegundir
10. diesember 1981 - DAGUR -11