Dagur - 05.02.1982, Side 3
Ný viðhorf
Tveir norskir vísindamenn
kvöddu sér hljóðs um áfengis-
mál á árinu sem leið, á þann
hátt að eftir var tekið víða. Þeir
eru Per Sundby, prófessor í
félagslækningum í Osló, og
Hans Olav Fekjær aðstoðar-
borgarlæknir í sömu borg. Sá
síðarnefndi helgar sig nú ein-
göngu rannsóknum á áfengis-
málum. Hér á eftir fara nokkur
atriði semfram komu í erindum
þeirra.
1. Árið 1976 lagði sérfræðinga-
nefnd Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar til að í stað
hugtaksins drykkjusýki, sem
er afar óljósar merkingar
kæmu tvö hugtök, þ.e.
1) heilsutjón sem stafar af
áfengisdrykkju og 2) vana-
bundin áfengisneysla.
2. Rannsóknir, sem fram hafa
farið víða um heim, benda til
þess að hegðun fólks eftir að
það hefur drukkið áfengi fari
fram eftir því sem það heldur
að eigi að gerast eftir neysluna
en raunverulegum líkamlegum
orsökum. Ónákvæmni, deyfð
og sljóleiki eru þó undanskilin.
Ef sex menn eru fengnir til
að drekka úr jafnmörgum
glösum, þrem með áfengi en
þrem án þess efnis, og þeim
sagt öllum rangt til um inni-
haldið hegða þeir sem óáfengt
drukku sér eins og þeir telji að
sæmi ölvuðu fólki en hinir sem
áfengið drukku breyta í engu
atferli sínu.
Áfengisvarnaráð.
LLIDkLIIINO
í auglýsingu sem birtist í blöðum
um kosningar, sem fram eiga að
fara í Verkalýðsfélaginu Ein-
ingu 13. og 14. þessa mánaðar,
misritaðist nafn eins frambjóð-
andans, Líneyjar Jónasdóttur,
Ólafsdóttur. Hafði a fallið úr
föðurnafni hennar. Eru viðkom-
andi beðnir velvirðingar á þess-
ari villu.
Framsóknarfélag Akureyrar
Almennur
félagsfundur
um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjarfyrirárið 1982
verður haldinn sunnudaginn 7. febrúar n.k. kl.
16.00 að Hafnarstræti 90.
Allir velkomnir.
Félagar í
STAK og BSRB
Guðmundur Gunnarsson verður til viðtals um út-
fyllingu skattframtals á skrifstofu STAK, Strand-
götu 7, mánudaginn 8. febrúar kl. 20 til 22.
• •
FYRIRALLA
Bjóðum heimsþekkt merki í
skíðavörum.
FISCHERa
... svig og gönguskíði AA
SALOMOIM M
bindingar,
.... skíðaskór
CARRERA _
skíðagleraugu.
Margir verðflokkar -
fyrir byrjendur og vana.
mk
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SÍMI (96)21400
GLÆÐUR
Jón Gauti Jónsson
Loftslag á íslandi
í síðasta þætti var fjallað um
loftslag hér á landi til þess tíma,
er menn tóku sér hér fasta bú-
setu fyrir um 1100 árum. Eins og
þar kom fram færðist loftslag að
mestu í núverandi horf fyrir um
2500 árum eftir langt hlýinda-
skeið. Verður nú haldið áfram
þar sem frá var horfið. Heimildir
eru sem fyrr: „Veðurfar á ís-
landi“ eftir Markús Á. Einars-
son og bókin „Hafísinn", sem
Almenna bókafélagið gaf út.
Engar samtímaheimildir eru
til um árferði frá fyrstu öldum ís-
landsbyggðar, en ýmsar óbeinar
heimildir varpa þar nokkru ljósi
á. Annálaritun hófst á 13. öld og
hélst síðan, en þar koma m.a.
fram árferðislýsingar og sagnir
um hafískomur, en komið hefur
í ljós, að náið samhengi er milli
lengdar þess tíma, sem ís er hér
landfastur og hitafars. Þessar
árferðalýsingar eru mismunandi
greinagóðar en nægilegar til að
ráða nokkuð í veðurfarið.
Undantekning er þó þar á, því
afar litlar heimildireru tilum 15.
öldina. Á síðustu árum hefur
komið til markverð heimild um
hitafarsbreytingar, en hún er
byggð á því, að mæla hlutfall
súrefnissamsæta í ískjörnum úr
meginjökli Grænlands. Árið
1845 hófust reglubundnar hita-
mælingar i Stykkishólmi, er
staðið hafa óslitið síðan, og eru
því til afar góðar heimildir um
það tímabil.
Á fyrstu öldum byggðar í
landinu er talið að hitafar hafi
ekki verið ósvipað því sem það
var á hlýindaskeiðinu 1920-
1964. Byggð dreifðist mjög víða
og hefur að líkindum aldrei síðar
orðið útbreiddari. Jöklar voru
mun minni en í dag og afar lík-
legt að þeir tveir hveljöklar, sem
ekki bera jökulnafn, Gláma og
Ok, hafi þá ekki verið til að heit-
ið geti, en Gláma var um síðustu
aldamót hulin um 230 km stór-
um jökli. Eftir að landnáms-
menn höfðu komið sér fyrir,
mun það hafa orðið eitt þeirra
fyrsta verk að sá korni, einkum
byggi og fékkst góð uppskera í
fyrstu og allt fram undir alda-
mótin 1200. Um þessa korn-
yrkju vitna t.d. fjölmörg örefni
og má nefna Akureyri í því sam-
bandi. Ekki hefur þó þetta tíma-
bil verið ein heiðríkja, um það
vitna t.d. nöfnin „óaldavetr hinn
fyrri“ (975) og „óaldavetr hinn
seinni" (1056).
Um 1200 bendir flest til þess
að kornyrkja hafi víðast lagst
niður á landinu nema sunnan
heiða, og má ætla að kólnandi
veðurfar hafi átt þar drjúgan
þátt í. Það kuldaskeið, er þá
gekk í garð má segja, að ríkt hafi
allt fram á þcssa öld. Talsverðar
sveiflur munu þó hafa orðið,
eins og línuritið hér til hliðar ber
með sér. Lægst komst hitinn
kringum aldamótin 1300, en síð-
an tók að hlýna nokkuðá seinni
hluta 14. aldar. Þrátt fyrir léleg-
ar heimildir um 15. öldina virð-
ast flest rök hníga að því, að þá
hafi verið fremur milt. Eftir 1500
kólnaði á ný og eitt samfellt
kuldaskeið ríkti næstu fjórar
aldir. Hefur þetta tímabil stund-
um verið nefnt litla ísöld.
Þetta kuldaskeið leiddi til
þess, að jöklar fóru að stækka og
skríða fram. Má t.d. nefna, að á
fyrri hluta 18. aldar lögðu skrið-
jöklar í Drangajökli í auðn alls
fimm býli. Annað gott dæmi er
Breiðarmerkurjökull. Hann
gekk í byrjun 18. aldaryfir land-
námsjörðina, Fjall, og kirkju-
staðinn Breiðá, þar sem Kári
Sölmundarson á að hafa búið
samkvæmt Njálu. Má ætla að
Breiðamerkurjöjkul! hafi geng-
ið fram um 10-15 km. síðan
byggð hófst.
Um 1920 fór aftur að rofa til
eftir hið langa kuldaskeið. Þá
tókst aftur að rækta korn og
jöklar drógust saman. Á þessu
tímabili rýrnaði flatarmál Lang-
jökuls um 14% og flatarmál
Breiðamerkurjökuls minnk^ði
um 52 km. En ekki varð þessi
breyting varanleg, því um miðj-
an sjöunda áratuginn urðu enn á
ný greinileg þáttaskil, er kólna
tók á nýjan leik. Jöklar gengu
fram og „landsins forni fjandi"
minnti á tilveru sína. Síðustu ár
hafa hins vegar verið nokkuð
breytileg, og enn er ot snemmt
að spá nokkru um það hvert
stefnir.
En hitafarsbreytingar hafa
ekki aðeins áhrif á ræktun korns
og framskrið jökla. ísland liggur
tiltölulega nærri mörkum þess
að vera byggilegt landbúnaðar-
land og geta því litlar hitabreyt-
ingar verið afdrifaríkari hér en í
löndum, sem hafa meira upp á
að hlaupa um árferði. Sturla
Friðriksson hefur reiknað út, að
heyfengur af hektara minnki um
1 tonn (10 hesta) við einnar
gráðu lækkun á meðalárshita, og
Páll Bergþórsson hefur komist
að þeirri niðurstöðu að loftslag á
tímabilinu 1873-1922 hefði,mið-
að við árin 1930-1960, skert
nautgripaafurðir um 20% og
afurðir sauðfjár um 30%. Þá má
geta þess að lokum, að breyting-
ar sem þessar geta haft mikil
áhrif á vöxt og viðgang fisks í
hafinu sem og hrygningar- og
uppeldissvæði.
9. febrúar 1982 - DAGUR - 3