Dagur - 05.02.1982, Side 4

Dagur - 05.02.1982, Side 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT H.F. Samstarf misstórra sveitarfélaga í Fram-Eyjafirði eru þrjú sveitarfélög með um eitt þúsund íbúa samanlagt. Þetta eru Hrafna- gilshreppur, Öngulsstaðahreppur og Saur- bæjarhreppur. Eyjafjarðará hefur um aldir ver- ið mikil hindrun öllum samskiptum íbúa þess- ara hreppa, en þó hafa þeir sameinast um ýmis verkefni, s.s. skólahald að Hrafnagili. Nýlega átti tímaritið Sveitastjórnarmál viðtal við oddvita þessara þriggja hreppa, þar sem meðal annars kom fram sú skoðun, að með til- komu brúar yfir Eyjafjarðará verði Fram- Eyjafjörður eitt byggðarlag, en bygging slíkr- ar brúar hefur verið á óskalista hjá hreppunum um langt árabil. „Með byggingu brúarinnar og vegar að henni, fellur niður sá þröskuldur, sem Eyjafjarðará hefur verið milli íbúanna . . . Til- koma hennar veldur því straumhvörfum í félagsmálum þessara byggða," segir Eiríkur Björnsson oddviti Saurbæjarhrepps, í við- talinu. Brúin sem um er rætt, er nú í smíðum og er hún staðsett hjá Hrafnagili, miðsvæðis í byggðarlaginu. Ofangreind ummæli lýsa því vel, hversu gífurlegt hagsmunamál samgöng- urnar eru hinum dreifðu byggðum. Þá eru einnig athyglisverðar skoðanir oddvitanna í Fram-Eyjafirði á sameiningu hreppanna og samstarfinu við Akureyri. Hörður Garðarsson oddviti Öngulsstaðahrepps, segir meðal ann- ars á þessa leið: „Öngulsstaðahreppur er fjölmennastur þessara þriggja hreppa og þar er rekinn þrótt- mikill og blómlegur búskapur, einn sá blóm- legasti á landinu. Þar að auki nýtur hreppur- inn nálægðar Akureyrar, og við finnum það vel í vaxandi mæli nú, að menn vilja gjarnan eiga heima hjá okkur, en sækja vinnu til Akureyr- ar.“ Aðspurður um sambúðina við Akureyri segir Hörður: „Sambúðin er góð og þar nýtur hver annars. Sveitirnar styrkja kaupstaðinn og gagnkvæmt. Þangað sækjum við alla okkar þjónustu og þar er unnið úr afurðum bænd- anna. Heilbrigðisþjónusta er einnig sameigin- leg og sótt til Akureyrar og við greiðum til hér- aðssjúkrasamlags, sem stendur undir kostn- aði við heilbrigðisþjónustuna." Sveitirnar styrkja kaupstaðinn og gagnkvæmt, segir oddvitinn í viðtalinu. Þetta er mergurinn málsins og betur væri ef allir sveitarstjórnarmenn hefðu þennan skilning á samstarfi misstórra sveitarfélaga. Það er t.d. ekkert vafamál, að nágrannasveitarfélög Reykjavíkur njóta góðs af stærð og þjónustu- möguleikum höfuðborgarinnar, enda hefur langmest fjölgun orðið í nágrannabyggðum borgarinnar á síðustu árum. Reykjavík og sú starfsemi sem þar fer fram, nýtur einnig góðs af nágrönnum sínum og skipta nokkrir tugir kílómetra ekki máli ef samgöngur eru góðar. Stóraukið þjónustuhlutverk Akureyrar myndi þannig styrkja nágrannabyggðirnar og jafnvel landshlutann allan, og landbúnaðar- svæðin myndu við það fá stærri heimamarkað og styrkjast að sama skapi. Magnús Olafsson: mmmmmmnmmmmmmmmmmmmmmmmmmam HUNVETNSK BLANDA Margbreytilegur mannfagnaður Margbreytilegur mannfagn- aður er framundan hjá okkur húnvetningum. Fyrst skal þar telja þorrablótin, og ef að líkum lætur má búast við að þorrablót verði einhvers staðar í héraðinu um hverja helgi út þorra og stund- um mörg um hverja helgi. . . Hallbjörn söng Kántrýlög með viðeigandi hreyfingum. Húnvetnsk blanda er ekki verra en hvað annað nafn á sundurlausa þætti héðan úr Húnaþingi, svo mikið hefur verið rætt, ritað og rifist um hina einu sönnu Blöndu undan- farnar vikur, mánuði og jafnvel ár. Og þar með er ég kominn af stað með efndir á margsviknum loforðum við ritstjórn Dags um að senda pistil til birtingar í þessu ágæta norðlenska blaði. I byrjun óska ég ráðamönnum Dags til hamingju með vaxandi útgáfustarf og læt í Ijós þá von að Dagur megi vel dafna um ókomin ár og ætíð vera traustur málsvari hinna dreifðu byggða. Umdeilda brúin Ekki verður hér mikið ritað um hina einu sönnu Blöndu. Aðeins er látin í ljós sú von að farsæl lausn fáist á því máli og framkvæmdir við virkjun hefjist á þessu ári. Hins vegar vil ég víkja að gam- alli sögu eftir eitt góðskáldið, enda minnti góðkunningi minn mig á hana nýlega. Þar segir frá því að mikill hugur var í mörgum að byggja brú yfir ána í dalnum. Andstaða var þó gegn því, enda er það svo að fáum framfaramálum er hreyft án þess að einhver and- staða komi fram og hún oftast meiri eftir því sem málið er merk- ara. í þessu tilfelli var andstaðan hörðust hjá stórbónda einum, sem sagði að menn hefðu hingað til komist yfir ána óbrúaða flesta daga, en væri hún ófær ættu menn bara að sitja heima en vera ekki á neinu bæjarflandri. Varð því ekki af brúarsmíði að sinni. Tímar liðu og svo kom að því að dóttir bónda veiktist alvarlega og þurfti nauðsynlega að komast til læknis. En þá var áin kolófær og enguni fær. Eftir þetta breyttist viðhorfið og aðalhvatamaður brúarsmíðarinnar var fyrrnefndur bóndi. Þetta er glöggt dæmi um hve snöggt viðhorfin geta breyst, en er ekki betra að vera búinn að byggja brúna áður en þarf yfir ána. Með öðrum orðum, væri ekki betra að vera búin að reisa virkjun í Blöndu, ef svo illa færi að byggðalínan bilaði alvarlega, eða þeir hörmulegu atburðir gerðust að landskjálftar eða aðrar náttúruhamfarir trufluðu rekstur raforkuveranna syðra um lengri eða skemmri tíma. Oft sameinast íbúar tveggja sveita um hvert blót og eru þetta fjölmennar samkomur. Víða hag- ar svo til að samkomuhús eru ekki innan sveitar, til þess að rýma slíkt margmenni. Þá er brugðið á það ráð að fara til Blönduóss og blóta þorra í rúmgóðum salar- kynnum félagsheimilisins. Síðan taka við árshátíðir hinna ýmsu félaga og klúbba, en hátindi nær samkvæmislífið að jafnaði síðari hluta aprílmánaðar, þá blásið er til hinnar árlegu Húna- vöku. Húnavaka hefur verið fast- ur liður í félags- og menningarlíf- inu rúmlega þrjátíu ár og verður vonandi um ókomna framtíð. Það er Ungmennasamband Austur- Húnvetninga sem hefur forgöngu um að Húnavaka er haldin, en ár- lega koma ýmis félög og félags- samtök til liðs við sambandið til þess að gera vökuna sem fjöl- breyttasta. Stórveislur með tilheyrandi Þó að þannig sé til margs að hlakka í framtíðinni, er langt frá því að hér hafi verið einhver logn- molla í samkvæmislífinu að undanförnu. Jól og áramót liðu að venju með margháttuðu sam- komuhaldi og nokkru fyrr stóð Sölufélag Autur-Húnvetninga, sem nú hefur tekið að sér rekstur Hótels Blönduóss, fyrir Kántrý- kvöldi á Hótelinu. Þar var boðið upp á veglegar veitingar og Hall- björn Hjartarson þúsundþjala- smiður af Skagaströnd söng kán- trýlög með viðeigandi hreyfing- um. Þá spiluðu harmonikkusnill- ingar og dansinn dunaði fram á nótt. Fjölmenni mikið var á þessari samkomu og komust færri að en vildu. Þó var þar fátt um fólk úr Þingi og Vatnsdal. Sú var ástæðan að einmitt þetta sama kvöld var veisla í Flóðvangi, veiðimanna- húsinu við Vatnsdalsá. Leigutak- ar Vatnsdalsár, þeir Lýður Björnsson og Sverrir Sigfússon buðu öllum eigendum árinnar og þeirra heimafólki til mikillar veislu og skemmti fólk sér þar fram á nótt. Áður hafa þeir boðið til slíkrar gleði og hið sama gera þeir jafnan við Víðidalsá, en þar eru þeir einnig leigutakar. Þessi samkvæmi skapa mikla kynningu milli landeigenda og leigutaka, en hvort leigutakar við aðrar ár sýna viðlíka rausn er mér ókunnugt um. Margt fleira mætti telja þá sagt er frá gleðisamkomum samfélags- ins hér um slóðir en nú er mál að fara að setja punkt. Síðust en ekki síst verður þó nefnd mikil veisla sem haldin var rétt upp úr nýári. Þar bauð Erlendur bóndi á Stóru- Giljá til veislu, enda fimmtugur. Slík tímamót eru ekki látin um garð ganga án stórveislu með til- heyrandi í þeim hrepp Torfalækj- arhrepp. Sveinsstöðum, 21. jan. 1982, Magnús Ólafsson. 4 - DAGUR - SL,febrýai\1S82

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.