Dagur - 05.02.1982, Side 11
Tónlistarskólinn á Akureyri:
,,Dýrin“ sýnd aftur
Þar sem aðsókn að „Dýrun-
um í Hálsaskógi“ hefur verið
feyki mikil og sýnt er að færri
fengu miða en vildu, verður
leikritið tekið upp aftur seinni
hluta vetrar. Sýningar urðu 21
og var sætanýting ágæt og
hefði eflaust orðið ennþá betri
ef ófærð og illvirði hefðu ekki
komið til.
Nokkuð bar á því að utan-
bæjarfólk komst ekki á síðustu
stundu. Dugnaður og áræði
utanbæjarmanna hafa vakið
mikla aðdáun okkar. Börn og
fullorðnir hafa ekki látið sig
muna um að koma langan veg á
sýningu, tíðum í slæmum
veðrum. Er okkur bæði ljúft og
skylt að minnast þess.
Astæðan fyrir því að við verð-
um að hætta sýningum á „Dýr-
unum“ í bili er einfaldlega sú að
tæknilega getum við ekki haft
tvær sýningar í gangi í einu -
nema því aðeins að leiktjöld og
lýsing séu sára einföld. í leikhús-
inu er hvorki leiktjaldageymsla
né heldur nógu margir ljóskast-
arar til þess að lýsa tvær sýningar
sem ganga samtímis.
Frumsýning á leikritinu
„f>rjár systur“ eftir A. Tsékhov
verður 19. febr. og er það ekkert
launungarmál að við setjum
markið hátt hvað varðar listræn-
ar og tæknilegar kröfur.
Að lokum þökkum við öllum
þeim sem komið hafa í leikhúsið
í vetur hjartanlega fyrir komuna
og vonumst til að sj á þá sem fyrst
aftur.
Tveir af eigendum Smiðjunnar, þeir Hallgnmur Arason og Stefan Gunnlaugsson i hinm nýju glæsilegu setustofu.
Haukur Tryggvason framreiðslumaður í baksýn.
Nú hefur verið opnuð glæsi-
lega innréttuð setustofa fyrir
ofan matsal Smiðjunnar sem
ætluð er matargestum, bæði
þeim sem þurfa að hinkra eftir
að borð losni og svo þeim sem
vilja breyta um umhverfi að
lokinni máltíð. Þessi nýi salur
tekur 25 manns í sæti.
Að sögn eigenda Smiðjunnar
og Bautans er tilgangur þessarar
nýju þjónustu að gera Smiðjuna
enn skemmtilegri, en jafnframt
að auka nýtinguna, og gera þeir
sér vonir um að geta tvísett borð
Smiðjunnar og ráðstafað þeim
frá 18.30-19.30 og aftur frá
20.30-21.30.
Eins og áður sagði eru innrétt-
ingar allar hinar glæsilegustu,
hannaðar af Davíð Haraldssyni
og sérsmíðaðar úr harðviði af
starfsmönnum Trésmiðjunnar
Þórs, sem Halldór Rafnsson
rekur. Smíðar á staðnum önnuð-
ust Ólafur Svanlaugsson og hans
menn.
Mjög gott útsýni er úr setu-
stofunni, ólíkt því sem er úr
Smiðjunni og hafa eigendur far-
ið þess á leit að orðhagir menn
finni viðeigandi nafn á salinn,
með hliðsjón af útsýninu. Hug-
mynd hefur skotið upp kollinum
að kalla staðinn „Skífuna".
Bautinn og Smiðjan geta nú,
eftir þessa stækkun, þjónustað
samanlagt allt að 150 manns í
senn. Reynt verður að brydda
upp á tilbreytingum í rekstrin-
um, og helgina 12. og 13. febrú-
ar munu listamennirnir Graham
Smith fiðluleikari, og Jónas Þór-
ir hljómborðsleikari, skemmta
gestum Smiðjunnar.
Glæsileg setustota
opnuð í Smiðjunm
HRYLLINGSÞÆIIIR
Tónleikar
tíl styrktar
mlnnmgarsj óði
Þorgerðar S.
Kiríksdóttur
Árlegir tónleikar til styrktar
Minningarsjóði um Þorgerði
S. Eiríksdóttur, verða haldnir
í Borgarbíói á Akureyri, nk.
laugardag 6. febrúar kl. 17.
A tónleikunum leika og
syngja 19 kennarar og nemend-
ur við Tónlistarskólann á Akur-
eyri fjölbreytta efnisskrá:
ABlokkflautusveit flytur
enska madrigala, leikin verða á
píanó verk eftir Chopin og
Schubert, flutt tónverk fyrir
fiðlu og píanó eftir þá Elgar og
Suk, þverflautukvartett eftir
Tcherepnin og svíta fyrir þver-
flautu og píanó eftir Godard,
leikin verða 3 verk fyrir lágfiðlu
og pínó eftir Bloch, Ravel og
César Franck, sönglög eftir
Dvorak og Seremetev.
Markmið sjóðsins er að
styrkja efnilega nemendur við
Tónlistarskólann á Akureyri til
framhaldsnáms. Sjóðurinn er
stofnaður til minningar um
Þorgerði S. Eiríksdóttur, er lést
2. febrúar 1972, aðeins 18 ára
gömul. Þorgerður heitin hafði
þá lokið burtfararprófi í píanó-
leik og var rétt að hefja fram-
haldsnám íLondon. Húnvartví-
mælalaust einn efnilegasti pínó-
leikari er stundað hefur nám á
Akureyri.
Þegar hafa 9 nemendur hlotið
styrki úr Minningarsjóðnum, en
tekna til hans er aflað með sölu
minningarkorta og tónleika-
haldi.
Tekið verður við framlögum í
Borgarbíói á laguardaginn, en
tónleikarnir hefjast kl. 17.
Kjarnaskógur: Upplýst og
troðin braut alla daga. Leið-
beiningar um smurningu
skíða þriðjudags- og fímmtu-
dagskvöld kl. 20-21.30.
Bjarg: Upplýst og troðin
braut alla daga.
Skíðastaðir: Troðin braut um
helgar.
FÉmleikasýning
Árleg fjölskyldusýning Fim- 15. Sýnt verður á öllumáhöid-
leikaráðs Akureyrar verður í um og einnig verða gólfæfíng-
íþróttahúsi Glerárskóla laug- ar.
ardaginn 6. febrúar klukkan
Borgarbíó sýnir kl. 9 banda-
rísku myndina „Hryllings-
þættir“ (The horror show).
Framleiðendur myndarinnar
viðuðu að sér efni úr hryllings-
myndum - þeim bestu - sem
gerðar hafa verið á undanförn-
um 60 árum. Hér eru ekki tök á
því að nefna hverja mynd, en
meðal þeirra eru þrjár Dracúla-
myndir, og Frankenstein kemur
eitthvað við sögu.
Þegar á það er litið hvað langt
er síðan flestar myndirnar voru
sýndar hér er ljóst að hér er
ágætt tækifæri til þess að
skreppa í bíó, hrista af sér slenið
og rifja upp skemmtilegar bíó-
ferðir fyrr á árum.
THE SCARIEST MOMENTS FROM THE
GREATEST SHOCK FILMS OF ALL TIME
60 MAGICAL YEARS OF MOVIE MONSTERS
TW
HQRROR
SWW
From Unlversal Pictures
Internalional Sales
1979 Universal City Studios,
Inc. All Rights Reaerved
„Vlllta vestriðu
Nýja bíó sýnir í kvöld og ann-
að kvöld, og einnig á sunnu-
dag kl. 5 og 9 handarísku kvik-
myndina „Villta Vestrið“.
Hér er um myndasyrpu að
ræða, og leikararskarinn er ekki
af verri endanum. Nefna má
John Wayne, Clint Eastwood,
Charles Bronson, Roy Rogers,
Gregory Peck, Robert
Mitchum, Ritu Hayworth og
Henry Fonda. Ætti þessi hópur
að tryggja það að hér er um
áhugavert efni á ferðinni.
Næsta mynd í Nýja bíó verður
„Bannhelgi“, sem er hrollvekja,
bönnuð innan 16 ára.
Lausn:
a 7