Dagur - 25.02.1982, Side 1

Dagur - 25.02.1982, Side 1
TRÚLOFUNAR. HRINGAR AFGREIODIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 65. árgangur Akureyri, fímmtudagur 25. febrúar 1982 22. tölublað Fær Systrasel ekkert úr framkvæmdasjóði aldraðra? — Vantar 1.5 milljónir til að Ijúka við hjúkrunarheimilið —íbúar Akureyrariæknishéraðs verða búniraðgreiða 2.1 milljón í sjóðinn í lok þessa árs „Ég vil ekki trúa því að við fáum ekkert úr Framkvæmda- sjóði aldraðra tii uppbyggingar hjúkrunarheimilisins í Systra- Se**' Umsókn okkar barst að vísu nokkuð seint, en það var einfaldlega vegna þess að menn töldu víst að við fengjum fram- lög úr sjóðnum, enda áttu menn að vita að við erum að byggja upp hjúkrunaraðstöðu fyrir aldraða hér á Akureyri,“ sagði Halldór Halldórsson læknir, í viðtali við Dag, en hann átti sæti í nefnd sem ann- ast málefni Systrasels. Systraselssöfnunin hefur ekki gengið eins fljótt og vel fyrir sig og menn gerðu sér vonir um og ennþá vantar um 1,5 milljónir til að fullgera hjúkrunarheimilið sem reiknað er með að kosti 3 milljónir. Upphaflega var áætlað að skila húsinu fullbúnu um miðj- an apríl, en nú eru horfur á að svo geti ekki orðið fyrr en í haust eða jafnvel í vetur, sökum fjárskorts. Sem kunnugt er var Fram- kvæmdasjóður aldraðra stofn- aður á síðasta ári og skyldi hver skattgreiðandi leggja til hans 100 krónur. Það framlag hefur nú verið hækkað upp í 200 krónur á hvern gjaldenda. í Akureyrar- læknishéraði eru um 7 þúsund gjaldendur, samkvæmt upplýs- ingum skattstofunnar. í lok þessa árs verða skattgreiðendur á svæð- inu búnir að greiða samtals 2,1 milljón króna í Framkvæmdasjóð aldraðra. Eins líklegt er að allt það fjármagn og raunar stór hluti sjóðsins fari í uppbyggingu B- álmu Borgarspítalans í Reykja- vík, sem á að vera fyrir langlegu- sjúklinga. Á sama tíma vantar 1,5 milljón til að ljúka við hjúkrunar- aðstöðu fyrir aldraða í Akureyr- arlæknishéraði. „Okkar mál komu til athugunar á fundi sjóðsins 12. febrúar. Ég er ekki úrkula vonar um að við fáum úr þessum sameiginlega sjóði, en hins vegar er maður að verða tor- trygginn á fjárveitingavaldið í Reykjavík, ekki hvað síst þegar höfð er í huga byggingarsaga ný- byggingar Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri," sagði Halldór Halldórsson læknir, í viðtali við Dag. Ákveðið að endur- byggja „Sjallann“ „Það er ákveðið að Sjálfstæðis- húsið verður byggt upp aftur,“ sagði Gunnar Ragnars, sem sæti á í stjórn Sjálfstæðishúss- ins í samtali við Dag. Eins og komið hefur áður fram í Degi mun Teiknistofan Arko í Reykjavík annast teikningar af innréttingum hússins. Gunnar sagði að sú vinna væri að hefjast, er ljóst að húsið yrði gjörbreytt að innan þegar það opnaði á nýjan leik. „Við ætlum að opna sem fyrst, en það þýðir væntanlega að við ætlum að ná ferðafólki í sumar,“ sagði Gunnar að lokum. Slæmt at- vinnuástand Slæmt atvinnuástand hfur verið á Þórshöfn undanfarið, en bátar sem þaðan eru gerðir út eru svo litlir, að þeir eru mjög háðir tíðarfarinu og það hefur verið slæmt undanfarið. Þetta hefur haft þær afleiðingar að lítill sem enginn fískur hefur borist í frystihúsið og þar hefur fólk ekki haft handtak að gera heilu vikurnar. Að sögn Jóns Jóhannssonar á Þórshöfn var það t.d. svo í síðustu viku, að aðeins var unnið í hálfan dag í frystihúsinu. Tveir bátar eru byrjaðir á netum og hafa aflað þokkalega, en aflinn hefur verið saltaður því ekki hefur tekið því að vinna hann í frystingu, auk þess em oft hefur verið um tveggja og þriggja nátta fisk að ræða. Afli ætti að verða nægur í mars og apríl ef vel viðrar og vel fiskast. Vonir standa til að þetta tíma- bundna atvinnuleysi á Þórshöfn verði úr sögunni þegar nýi togar- innar kemur, en hann á að af- hendast í lok apríl og gæti orðið tilbúinn á veiðar um miðjan maí. Mikið var um dýrðir í miðbænum á Akureyri í gær, á öskudaginn. Fríðar fylk- ingar bama gengu milli fyrirtækja og sungu af hjartans lyst - misjafnlega vel æfð lögð, að visu - en engu að síður sjálfum sér og öðram til skemmtunar. Síð- an var ”kötturínn“ sleginn úr tunnunni á Ráðhústorginu viðmikinn fögnuð. Mynd: KGA Ákveðið að halda fund um riðu í Svarfaðardal: Verður sett reglugerð um riðuvarnir í Eyjafirði? Innan skamms mun Sigurður Sigurðarson, dýralæknir á Keldum halda almennan fund um riðu með bændum í Svarf- aðardal, og þeim sem stunda sauðfjárbúskap á Dalvík og næsta nágrenni. Einnig hefur komið til tals að bændur á Ár- skógsströnd komi á fundinn. Sigurður sagði í samtaii við Dag að hann myndi ræða við bænd- urna um reynslu þeirra af riðu i fé, en einnig mun hann kynna þeim varnir gegn riðu og ræða hvort sé orðið tímabært að setja sérstaka reglugerð um varnir gegn riðu fyrir Eyjafj- arðarsvæðið, en búið er að gera það fyrir Austurland og á dagskrá að setja svipaða reglu- gerð fyrir Skagafjörð og Húna vatnssýslur. Sigurður sagði að enn væri ekki búið að tímasetja fundinn, sem væntanlega verður haldinn á Dalvík. „Svarfdælingar hafa lengi búið við riðuna og hafa því öðlast mikla reynslu. Sumir hverjir a.m.k. hafa á því ákveðnar skoð- anir hvernig þeir geti haldið tjóni niðri og munum við ræða þau mál nánar á fundinum.” hefur verið farið af stað með bæt- ur fyrir það fé sem veikist, en þá eru teknar úr kindur um leið og grunur vaknar að þær séu með riðu. Nákvæm skýrslugerð um féð er forsenda þess að menn fái bætur, sem þó ná ekki að greiða féð til fuils. Einnig verður að vera starfandi „riðunefnd" sem hefur það verkefni að sjá um að reglur séu í heiðri hafðar. Ég mun ein- dregið leggja til á fundinum að slík nefnd starfi í Svarfaðardal,“ sagði Sigurður að lokum. Það kom fram hjá Sigurði að enn væri ekki búið að finna neitt öruggt ráð gegn riðu, og að menn tækju e.t.v. minna mark á ráð- leggingum sérfræðinga þegar þeir gætu ekki stutt mál sitt nógu hald- bærum rökum. „Við vitum þó að riðan berst með fé og því þykir okkur slæmt að reglum um fjár- flutning sé ekki framfvlgt út í ystu æsar. En þegar menn búa við veikina höfum við m.a. lagt áherslu á að þeir skrásetji féð, að þeir viti nákvæmlega um ættir fjárins, ástundi mikið hreinlæti og fari vel með það. í tilraunaskini

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.