Dagur - 25.02.1982, Blaðsíða 8

Dagur - 25.02.1982, Blaðsíða 8
Akureyri, fímmtudagur 25. febrúar 1982 VIFTUREIMAR í FLESTA BÍLA Nauðsynlegt að byggja upp 1 km á Mývatnsheiði Lffsnauðsynlegt fyrir okkur, segir Ingólfur Jónasson „Aldrei í hættu“ „Eg var aldrei í teljandi hættu, það var hægviðri en talsverð alda reyndar og báturinn brotnaði strax í spón í fjörunni,“ sagði Jón Stefánsson frá Þórshöfn, en sl. þriðjudag varð hann fyrir því óláni að bátur hans, KAP, fórst í fjörunni við Grænanes. Jón var á innleið, en talsverð undiralda var og skipti engum togum að báturinn var skyndilega kominn upp í fjöruna. Jón komst í land svo til þurr og var aldrei í neinni hættu, en tjón hans er mikið. „Þegar Kísilvegurinn var byggður á sínum tíma var okkur heitið því að tilkoma hans myndi ekki tefja aðra vegagerð í sveitinni. Sú hefur ekki orðið á raunin. Eftir er að byggja upp einn kílómetra af veginum yfir Mývatnsheiði, sem er alveg lífsnauðsynlegt fyrir okkur, en þessi fram- kvæmd er ekki inn á áætlun í ár“, sagði Ingólfur Jónasson, Helluvaði í Mývatnssveit. „Þessi kafli verður alltaf útund- an hjá Vegagerð ríkisins og verð- ur þess valdandi að Mývatnssveit einangrast mun meir en ella. En ef þessi kafli yrði byggður upp mætti heita að fært væri allan vet- urinn. Og það er rétt að leiðrétta þann misskilning að Kísilvegurinn sé fær alia tíð. Tilfellið er að það þarf bókstaflega ekkert til að hann verði ófær, þó hann sé mok- aður að morgni er algengt að hann lokist um miðjan dag. Það munar 70 kílómetrum fyrir okkur að aka eftir Kísilveginum í Laugar eða eftir Mývatnsheið- inni. Það eru börn héðan í Lauga- skóla og það sér hver maður hve mikið þægilegra það væri að aka með börnin eftir Mývatnsheiðinni í stað þess að fara Kísilveginn. Því má líka bæta við að það er hálf hastarlegt að það skuli vera lokaður vegurinn til Austurlands nær allan veturinn“, sagði Ingólf- ur að lokum. Stjorn Kaupfelags Þingeyinga á afmælisfundinum að Þverá í Laxárdal sl. laugardagsmorgun. Frá vinstri eru: Egill Gústafsson Rauðafelli, Skúli Jónsson Húsavík, Böðvar Jónsson Gautlöndum, Jóhann Hermannsson Húsavík, Hreiðar Karlsson kaupfélagsstjóri, Teitur Björnsson stjórnarformaður, Baldvin Baldursson Rangá, Jónas Egils- son Húsavík og Guðmundur Sigurðsson Fagranesi. Samvinnuferðir — Landsýn: Jafn ferðakostn- aður um allt land Samvinnuerðir - Landsýn hef- ur nú tekið upp þá nýbreytni, að bjóða öllum utanlandsfar- þegum sínum sömu kjör, burt- séð frá því hvar þeir búa á land- inu. Þannig verður það t.d. ekki dýrara fyrir fjölskyldu á Akureyri að ferðast til helstu ferðastaða ferðaskrifstofunn- ar, því innifalið í heildarverð- inu verður flugferð frá Akur- eyri til Reykjavíkur. Náðst hefur samkomulag við Arnarflug um ferðir til og frá áætl- unarstöðum þeirra úti á landi, en ekki náðust samningar við F!ug- leiðir og því gengst ferðaskrifstof- an fyrir leiguflugi tii Akureyrar, Egilsstaða, Hafnar í Hornafirði og Vestmannaeyja. Þessi kjör gilda í ferðir til Rimini á Ítalíu, Portoroz í Júgóslavíu, Grikklands og í sumarhúsadvöl í Danmörku. „Það er áberandi hve fólk á landsbyggðinni hefur ferðast miklu minna en höfuðborgarbú- ar. Þetta stafar vafalaust að hluta til af því, hversu ferðakostnaður frá heimabyggð til Reykjavtkur er hár. Við höfum oft rætt um að reyna að jafna þennan aðstöðu- mun og nú hefur það ræst að hluta,“ sagði Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri SL í viðtali við Dag, og kvaðst vona að áfram- hald yrði á þessari þróun. „Við reiknum með að þetta fyrirkomulag, auk annarra vildar- kjara sem við bjóðum, muni auka farþegafjölda okkar og stuðla þannig að hagkvæmni og lækkun ferðal^ostnaðar. Auk hagræðisins sem af þessu hlýst fyrir lands- byggðafólkið, bjóða Samvinnu- ferðir - Landsýn upp á aðildarfé- lagaafslátt, sem gildir fyrir fjöl- skyldur félaga í ASÍ, BSRB, BHM, Landssambandi ísl. sam- vinnumanna, Landssambandi ísl. bankamanna og Stéttarsambandi bænda, barnaafslátt, SL-kjör á greiðslum og svo SL-ferðaveltu, en með þvt kerfi leggur fólk fé til fararinnar smátt og smátt og greiðir svo með sama hætti að ferðalokum. Þegar allt er talið getur hagræðingin sparað fjöl- skyldunni á annan tug þúsunda króna,“ sagði Eysteinn ennfrem- ur. Leiguflugið til Akureyrar verð- ur þrisvar í viku og þessi jöfnun ferðakostnaðar byrjar 26. maí. Hlutdeild Samvinnuferða - Land- sýnar hefur aukist verulega í utan- landsferðum á undanförnum árum, eða u.þ.b. 50% milli ára. Gert er ráð fyrir að farþegar í ár verði 9 þúsund talsins. Afmælisfundur stjórnar Kaupfélags Þingeyinga: Ákveðið að hefja byggingu nýs verslunarhúss Stjórn Kaupfélags Þingeyinga kom saman til afmælisfundar sl. laugardagsmorgun, og var fundurinn haldinn að.Þverá í Laxárdal. Á fundinum var ákveðið að heiðra starfsmenn sem lengi hafa starfað fyrir kaupfélagið, ákveðið var að selja með 10% afslætti næstu fjórar vikurnar flestar vörur sem kaupfélagið hefur á boðstólum, og loks var ákveðið að hefja undirbúning að byggingu verslunarhúss á Húsavík. # Vandað fréttabréf Á dögunum gáfu Foreldra- samtökin a Akureyri út fyrsta tölublaö 1982 af fréttabréfi samtakanna. Að mati S&S er hér á ferðinni vandað bréf, þó svo umbúðirnar, þ.e. pappír- inn og frágangur mætti vera örlítið betri. í fréttabréfinu er ýtarlegt viðtal við Bryndísi Schram, sem landsmenn þekkja mætavel úr barnatíma sjónvarps. í viðtalinu segir Bryndís m.a. „Sem betur fer er ég algerlega einráð um efn- isval í „Stundina okkar“. Það eina sem yfirmenn mínir horfa í, er kostnaðurinn. Það má t.d. helst ekki nota atvinnufólk, sem gerir kröfur til að fá greitt að fullu fyrir störf sín. Það er líka óvinsælt að kalla til utanbæjarfólk, því að þá þarf að greiða stórfé fyrir flutninga milli staða. Þetta setur manni auðvitað viss takmörk við gerð þáttar- ins. Það er erfitt til lengdar að skila góðri vinnu án einhvers tilkostnaðar og þreytandi að þurfa að knékrjúpa í hvert sinn sem kostnaður er ekki al- gerlega í lágmarki." # Tilviljun ræður Bryndís ræðir einnig um val á efni og þar kemur athygl- isverður hlutur fram, en svar hennar við lokaspurningunni er svohljóðandi: „Sjónvarpið er mjög áhrifamikill miðill, ekki hvað síst gagnvart börn- um og unglingum. Það er því mikilvægt að vandað sé til barnaefnis. Við sjónvarpið þyrfti að vera sérstök defld, sem annaðist val á efni og dagskrárgerð fyrir þennan aldurshóp. Eins og er, er þetta á höndum margra aðilja, og tiiviljunum háð, hvað borið er á borð.“ Það leikur enginn vafi á, að það skíptir mlklu máli hvaða efni er borið á borð fyrir börn og unglinga. Þettaer svo mikilvægt að það má ekki henda að tilviljun ráði hvað sjónvarpið sýnir æsku landsins. # Nýirham- borgarastaðir Nú munu vera í uppsiglingu tveir nýir hamborgarastaðir á Akureyri og samkvæmt heim- ildum S&S, verða þeir í mið- bænum. Báðir munu þessir staðir vera af reykvískum uppruna. # Merkilegt framtak Samvinnuferðir - Landsýn hafa nú ákveðið að jafna ferðakostnað í utanlands- ferðir sínar, eins og fram kem- ur annars staðar á síðunni. Þetta er merkilegt mál og von- andi að fyrirtækinu takist vel upp, þannig aö fleiri ferða- skrifstofur sjái sér hag i því að taka upp byggðastefnu af þessu tagi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.