Dagur - 04.03.1982, Blaðsíða 5

Dagur - 04.03.1982, Blaðsíða 5
nnlaugsson - Hverjir eru atvinnumögu- leikar nemenda aö loknu námi? - Töluvert er um að atvinnu- rekendur leiti til okkar eftir starfs- kröftum. Og kröfurnar hafa auk- ist og alltaf vantar fólk með sér- menntun. - Er nauðsynlegt aö hafa sér- stakan verslunarskóla á Akur- eyri? - Það gefur auga leið að í versl- unarbæ eins og Akureyri hlýtur að vera mikil þörf fyrir fólk með sérmenntun sem þessa og svo virðist að ungt fólk hafi áttað sig á þeim möguleikum sem opnast með þessu námi. - Aðlokum? - Það skortir meiri samvinnu við atvinnurekendur sem taka við nemendum héðan, og jafnvel meiri verkkennslu. Til dæmis mætti hugsa sér að nemendur væru sendir út á vinnumarkaðinn í meira en eina viku og væru látnir kynna sér verslanir og rekstur fyrirtækja. Við þökkum Guðmundi og Ólafi kærlega fyrir spjallið. Hog H. knir tali Guðmundur. Eygló Arnardóttir Grenivík. - Hvernig líkar þér í skólan- um? - Ágætlega, nema félagslífið mætti vera fjölbreyttara. - Finnst þér að þú hafir haft gagn af þessu námi? - Já, mjög mikið, sérstaklega í vetur. - Hvað hefur þú hugsað þér í framtíðinni? - Óákveðin, sjá til þegar þessi vetur er búinn. - Mundir þú ráðleggja öðrum að fara í þetta nám? - Já, ef það hefur áhuga á verslunar- og skrifstofustörfum. Guðmundur Jökulsson Akureyri. - Hvernig líkar þér í skólan- um? - Ágætlega. - Finnst þér að þú hafir haft gagn af þessu námi? - Nei, en ég vonast til þess að hafa það þegar ég fer að vinna. - Hvað hefur þú hugsað þér í framtíðinni? - Halda áfram námi. - Mundir þú ráðleggja öðrum að fara í þetta nám? - Ég veit það ekki, hef ekki prófað annað. IVið viljum fá að koma nokkrum orðum á framfæri um Dag. Okkur finnst Dagur gott blað og lesum það yfírleitt, en samt er það nú svo að eitt og annað mætti fara öðruvísi. Til dæmis gætu lesendur sent meira af efni til blaðsins og það væri örugglega vel þegið að fá til dæmis i handavinnuuppskriftir eða annað sem lesendur gætu hugsað sér. Við viljum svo koma því á framfæri við Dag að það mætti vera meira af: fréttum af öðrum stöðum en Akureyri því það lesa fleiri Dag en Ak- ureyringar! Einnig vær æskilegt að íþróttafréttir helgarinnar væru j birtar í þriðjudagsblöðunum. Við viljum svo þakka starfsfólki Dags fyrir frábæra viku sem við höfum átt með því í starfskynningunni. Svo að lokum hvetjum við fólk til að skrifa blaðinu og láta Ijós sitt skína. II og II. Bikarmót í alpagreinum á ísafirði: Glæsilegur árangur Akureyrarliðsins Akureyrarstúlkurnar í sérflokki bæði í svigi og stórsvigi og Nanna Leifs dóttir sigraði tvöfallt Bikarmót fullorðinna í alpa- greinum skíðaíþrótta, var haldið á ísafírði um helgina. Af 26 skráðum þátttakendum voru 12 frá Akureyri, fímm í kvennaflokki og 7 í karla- flokki. Óhætt mun að segja að frammistaða liðsins í keppninni hafi verið frábær. í stórsvigi átti Akureyri 4 fyrstu í kvennaflokki með Nönnu Leifsdóttur í farar- broddi, og ekki var árangurinn síðri í sviginu, þar sem Akureyri átti fimm fyrstu og aftur var Nanna afgerandi best. Er greini- legt að kvennalið Akureyrar er orðið mjög sterkt og harðskeytt. í karlaflokki vantar herslumun- inn að Akureyringar skipuðu tvö efstu sætin, og gæti það vel orðið með ineiri hörku, en þeir Elías, Óli og Björn virðast til alls lfklegir og fast á hæla þeirra komu Bjarni og Valþór og einn- ig fleiri af yngri mönnunum. Má af þessu sjá að alpagreinalið SRÁ heldur sínu fyrra striki, að halda uppi merki Ákureyringa í skíðaíþróttinni. Þessa viku eftir Bikarmótið er samæfing hjá úrvalsliði Skíða- sambandsins og taka 6 Akureyr- ingar þátt í henni. Skíðaráðið fyrirhugar að halda A-námskeið fyrir leiðbeinendur vikuna 8.- 12. mars. Allar nánari upplýs- ingar fást hjá ráðinu. Og loks eru það nöfn efstu manna á mót- inu á ísafirði um síðustu helgi: SVIG KVENNA: 1. Nanna Leifsdóttir A 86.73 2. Tinna Traustadóttir A 88.69 3. Ásta Ásmundsdóttir A 89.23 4. Hrefna Magnúsdóttir A 91.08 5. Guðrún H. Kristjánsd. A 95.82 SVIG KARLA: 1. Sigurður H. Jónsson 1 91.23 2. Guðmundur Jóhannss. í 93.46 Nanna Leifsdóttir. 3. Ólafur Harðarson A 94.70 4. Daníel Hilmarsson D 95.31 5. Elías Bjarnason A 95.44 6. Bjarni Bjarnason A 96.84 7. Valþór Þorgeirsson A 97.19 STÓRSVIG KVENNA: 1. Nanna Leifsdóttir A 110.01 2. Guðrún H. Kristjánsd. A 112.61 3. TinnaTraustadóttir A 113.08 4. Hrefna Magnúsdóttir A 113.36 5. Ingigerður Júlíusdóttir D 113.53 STÓRSVIG KARLA: 1. Sigurður H. Jónsson 1 110.99 2. Guðmundur Jóhannsson í 111.46 3. Björn Víkingsson A 114.14 4. Einar Valur Kristjánsson í 114.76 5. Elías Bjarnason A 115.13 2. deild í körfubolta: Hvað gerir Þór í úrslitunum? Fjögur lið mæta í úrslita- keppni 2. dcildar íslands- mótsins í körfuknattleik sem fram fer á Akureyri um helg- ina, en það eru lið Þórs á Ak- ureyri, Menntaskólinn á Egilsstöðum, Breiðablik og Vestmannaeyjar. Leika öll Jón Héðinsson Þórsarí verður í eldlínunni um helgina. liðin innbyrðis og eru leiktím- ar þessir: Föstudagskvöld kl. 20 í Skemmunni: y Þór - Vestmannaeyjar ÍME - Breiðablik Laugardagur kl. 10 f.h. í Glerárskóla: Þór- ÍME Vestmannaeyjar - Breiðablik Laugardagur kl. 16 í Skemmunni: Vestmannaeyjar - ÍME Þór - Breiðablik Fyrirfram er álitið að um j afna keppni geti orðið að ræða, en tvö af þessum liðum mæta með bandarískan leikmann, lið Þórs og Vestmannaeyja. Um styrk- leik þessara liða er ekki margt hægt að segja, Þór og Vest- mannaeyjaliðið léku í Bikar- keppni fyrir áramót og tapaði þá Þór í Eyjum með einu stigi eftir framlengdan leik. En síðan þá hefur Þór bæst góður liðsauki sem er Roger Behrends og styrkir hann liðið verulega. Lítið hefur verið að marka leiki Þórs í riðlakeppninni gegn ísafirði og Tindastól. Þór vann þá leiki með um 30 stigum að meðaltali án þess að um nokkra keppni væri að ræða, og liðið hefur því alls ekki fengið að spreyta sig í erfiðum leikjum í vetur. Það má því segja að Þórs- liðið í dag sé eitt stórt spurn- ingamerki þegar út í harða keppni er komið. Full ástæða er til þess að hvetja áhorfendur til þess að styðja við bakið á Þórsurum í þessum leikjum, það getur ráðið úrslitum og aðeins eitt lið kemst áfram upp í 1. deild. Jóhann valinn í landsliðshópinn Þrír piltar úr 3. flokksliöi Þórs í körfuknattleik voru á dögun- um við æfíngar með drengja- landsliðinu en þá kom stór hópur pilta víðsvegar af land- inu saman til æfínga í Reykja- vík. Piltarnir heita Guðmundur Björnsson, Konráð Óskarsson og Jóhann Sigurðsson, en þeir leika allir með meistaraflokki Þórs þótt ungir séu að árum. Eftir æfingarnar fyrir sunnan var valinn 16 manna hópur til áframhaldandi æfinga. Þeir pilt- ar voru flestir frá félögunum í Reykjavík, en einn Þórs-piltur- inn, Jóhann Sigurðsson, var valinn í þann hóp. 4. mars 1982 - DAGUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.