Dagur - 18.03.1982, Blaðsíða 5

Dagur - 18.03.1982, Blaðsíða 5
ÚTGEFANDI: ÚTGAFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRIOG ABYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÓRNSSON BLAÐAMENN: ASKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJANSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT H.F. Byggingamál og atvinnuþróun Verulegur samdráttur hefur orðið í byggingu íbúðarhúsnæðis á Akureyri. Akureyri mun þó ekki vera neitt einsdæmi í þessu tilliti, heldur hefur samdráttur í íbúðabyggingum orðið um allt land. Skýringarnar á samdrættinum eru því ekki staðbundnar, heldur er þeirra fyrst og fremst að leita í því, að erfiðara er að nálgast lánsfé nú en áður og kemur það bæði niður á húsbyggjendum og byggingarfyrirtækjum. í viðtali við Dag ræðir Sigurður Jóhannesson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri, þessi mál og segir m.a.: „Stóraukinn fjár- magnskostnaður vegna breyttrar vaxtastefnu hlýtur að orsaka önnur viðhorf hjá þeim, sem standa í því að byggja yfir sjálfa sig og aðra. Fólk á núna erfiðara með að byrja að byggja með tvær hendur tómar og láta síðan dýrtíðina og neikvæða vexti hjálpa til að greiða niður skuldir og fjármagnskostnað . . . Samdráttur í byggingaframkvæmdum kemur fyrst og fremst fram í því, að hafin er bygging á snöggtum færri íbúðum en undanfarin ár . . . Þá má einnig nefna að sú óvenju mikla spenna sem var á vinnumarkaðinum hér undanfarin ár, og orsakaði m.a. þenslu í byggingu íbúðar- húsa, hefur minnkað.1' Sigurður Jóhannesson rekur síðan þær leiðir sem bæjarfélagið getur farið til að sporna við þessum samdrætti: „ Aðgerðir af hálfu bæjar- yfirvalda til að varna því að neyðarástand myndist í byggingariðnaðinum, verða þó oft- ast óbeinar, því vafasamt má telja að bæjar- sjóður eigi að leggja fé beint til aukningar byggingarframkvæmda í bænum. Þó má segja að t.d. framlag bæjarins til Byggingasjóðs verkamanna, 2,5 milljónir, stuðli að félagsleg- um byggingaframkvæmdum fyrir 25-30 millj- ónum króna hér í bænum. Reynt er að hafa nægjanlega margar lóðir éMÉj: allar þær íbúðategundir, sem óskað er að byggja, og verður að telja að það hafi gengið nokkuð vel. Byggingagjöld hafa ætíð verið lægri hér en t.d. á Reykjavíkursvæðinu.“ Meðal annarra óbeinna aðgerða til að stuðla að auknum byggingaframkvæmdum nefndi Sigurður Jóhannesson það, að bærinn hafi upp á að bjóða sambærilegar eða betri aðstæður en aðrir staðir við uppeldi og menntun barna, iðkun tómstundaáhugamála t.d. útilíf, íþróttir og skemmtanalíf. Auk þess nefndi hann góðar samgöngur og heilbrigðisþjónustu. „Þá er ótalinn einn aðalmöguleikinn til að hleypa lífi í byggingariðnaðinn. Hann er ein- faldlega í því fólginn að búa betur að þeim atvinnurekstri sem fyrir er, og sköpun nýrra atvinnutækifæra. Hvað hið síðarnefnda varðar þá bind ég vissar vonir við stofnun Iðnþróun- arfélags Eyjafjarðarbyggða, sem nú er á döf- inni. Hugmyndir og aðgerðir í þá átt skjóta fleiri rótum undir atvinnulífið hér í bæ og ná- grenni er að vísu engin kraftaverkavinna, heldur verður þar að vera um þróun að ræða, þar sem við getum sjálf ráðið ferðinni," sagði Sigurður Jóhannesson í þessu viðtali við Dag. „Við gerum ökkur engar vonir um að sigra í þessum mótum“ — segja Nanna Leifsdóttir og Elías Ðjarnason, sem taka þátt í Norðurlandamótinu í alpagreinum skíðaíþrótta sem fram fer í Noregi og Svíþjóð. Tveir ungir Akureyringar, Nanna Leifsdóttir og Elías Bjarnason héldu fyrir nokkrum dögum til Noregs og Svíþjóðar, en þar munu þau ásamt nokkrum öðrum ís- lendingum taka þátt í Norður- landamótinu í alpagreinum skíðaíþrótta. Þau Nanna og Elías eru bæði mjög ung að árum, en þegar komin í hóp allra fremstu skíðamanna landsins, og Nanna hefur ver- ið nánast ósigrandi í þeim mótum sem hún hefur tekið þátt í í vetur. Elías keppir fyrst á tveimur mótum í Noregi, síðan heldur hann til Svíþjóðar og keppir þar og síðan liggur leiðin aftur til Noregs. Alls keppir Elías á átta mótum. Nanna keppir fyrst í Noregi á tveimur mótum, en síðan á sex mótum í Svíþjóð. En áður en þessi miklu mót hefjast, munu þau bæði vera við æfingar í eina viku í Geiló í Noregi þar sem æfingaaðstaða er með því besta sem gerist í heiminum. Engar vonir um sigur „Við gerum okkur engar von- ir um að sigra í þessum mótum,“ sögðu þau Nanna og Elías er við ræddum stuttlega við þau. „Hin- ar norðurlandaþjóðirnar senda allt sitt besta fólk á þessi mót, nema allra bestu Norðmennina og kappa eins og Stenmark. Þessi mót skipta þessa menn engu máli, þetta eru meira mót fyrir yngra fólkið sem er að koma upp, og má segja að þetta sé hálfgert grunnmót fyrir fólk sem hyggst síðar fara að keppa í mótum eins og Heimsbikar- keppninni. Austurríkismönnum hefur oft verið boðið að senda b- liðið sitt í þessi mót og það má segja að þetta séu sterk mót þótt e.t.v. vanti einhverja toppmenn." Nanna hefur dálítið gert að því að keppa erlendis og ávallt staðið sig mjög vel. Elías er hins vegar að stíga sín fyrstu skref þarna úti í keppni erlendis og við spurðum hann hvernig það legð- ist í hann. „Ég stefni að því fyrst og fremst að reyna að standa niður brekkurnar og ná í eitthvað af punktum. Ég er algjörlega punktalaus í alþjóðlegum mótum. Ef tekst að ná í ein- hverja punkta verður það til þess að ég færist framar í rásröð ef ég færi aftur á mót erlendis, en það hefur gífurlega mikið að segja.“ - Hefur veturinn í vetur ekki verið mjög hagstæður fyrir skíðafólk hér norðanlands til þess að stunda æfingar? „Jú, það er óhætt að segja það, að minnsta kosti er þetta besti veturinn hjá mér við æfing- ar,“ sagði Elías. Við spurðum þau þvínæst hvort Akureyri væri að eignast „gullaldarlið" í alpagreinum eins og var hér fyrr á árum þegar akureyrskir skíða- menn voru nánast ósigrandi á skíðamótum hérlendis. „Þeir hafa alltaf verið á toppnum," var Nanna fljót að segja. „Það kom að vísu nokkur lægð í þetta, en fólk hefur gert þau mistök að horfa alltaf ein- ungis á efsta sætið í hverri keppni, það hefur ekki litið á breiddina sem Akureyri hefur haft þótt við höfum ekki átt sig- urvegarann. Akureyri er með langyngsta liðið í dag, og það má búast við toppárangri hjá skíða- mönnum héðan eftir eitt til tvö ár.“ Nauðsynlegt að komast utan til æfínga - Þau Nanna og Elías voru sammála um það að nauðsynlegt væri fyrir skíðamenn héðan að komast utan til æfinga einu sinni til tvisvar á hverjum vetri. „Ef við tökum Geiló í Noregi sem dæmi, þá eru þarna bestu þjálf- arar sem hægt er að fá og þá get- ur maður betur fylgst með því nýjasta sem er að gerast hverju sinni. Þá hefur ástandið hérna heima oftast verið þannig að það hefur ekki verið hægt að byrja æfingar fyrr en í janúar þótt þetta hafi verið miklu betra í vetur. En það er fleira sem spilar inn í, hér er oft ekki hægt að æfa vegna veðurs, en erlendis er veðrið miklu betra auk þess sem færið er betra. Þetta er því vandamál þótt hér á Akureyri sé besta aðstaða á landinu til þess að stunda æfingar." - Þau Nanna og Elías eru væntanleg heim aftur í byrjun apríl, og geta því hvílt sig örlítið fyrir landsmótið sem fer fram um páskana annaðhvort í Reykjavík eða á Akureyri. Þar verða þau væntanlega í fremstu röð, og engum þyrfti að koma á óvart þótt skíðafólk frá Akur- eyri eigi eftir að hampa mörgum verðlaunum á verðlaunapall- inum á því móti. Hér er harð- snúinn hópur ungs fólks á ferð- inni sem hefur sett markið hátt og þetta unga fólk á örugglega eftir að halda merki Akureyrar uppi næstu árin. Nanna og Elías á Akureyrarflugvelli við brottförina til Noregs og Svíþjóðar. Vörður Traustason handleikur byssuna. Löggumót í skotfimi Akureyrarmót í kraftlyfingum: Metaregn! Akureyrarmótið í kraftlyft- ingum var haldið sl. laugardag í íþróttasal Lundarskóla. Agætur árangur náðist á mót- inu og voru þar sett alls 10 Akureyrarmet og 1 íslands- met. í 56 kg. flokki bætti Kristján Bjarnason eigin Ak. met í hné- beygju og í samanlögðu lyfti alls 270 kg. Kári Elíasson setti íslandsmet í bekkpressu er hann lyfti 143 kg. og bætti hann eigið met um 0.5 kg. Freyr Aðalsteinsson keppti í fl. 82.5 kg. og þríbætti Ak. met- ið í réttstöðulyftu en hann lyfti þar 262.5 kg. í sama klokki keppti Jóhann- es M. Jóhannesson og setti Ak. met í hnébeygju og samanlögðu. Lyfti hann 202.5 kg. í hnébeygju og 565 kg. í samanlögðu. í 100 kf. flokki voru tveir keppendur. Sigmar Knútsson tvíbætti Ak. metið í hnébeygju en þar lyfti hann 235 kg. Hann setti einnig Ak. met í saman- lögðum árangri lyfti alls 612.5 kg. í þessum flokki keppti einnig hinn eldhressi Jóhannes Hjálm- arsson sem verður 52 ára í ár. Hann féll úr keppni á byrjunar- þyngd sinni í bekkpressu. Hann gerði sér hins vegar li'tið fyrir að lokinni kepni og lyfti léttilega 262.5 og 280 kg. í réttstöðulyftu sem er 12.5 kg. betri árangur en heimsmet hans í flokki öldunga 50 ára og eldri. Fyrir skömmu kepptu lög- reglumenn á Akureyri í skot- fimi með skambyssum. Keppt er um veglegan farandbikar sem gefin er af Gísla Ólafssyni f.v. yfirlögregluþjóni. Keppt er með sjálfvirkri 22 cal. skambyssu, með 6 tommu hlaupi, og er skotið í mark af 13 metra færi. Sigurvegari að þessu sinni var Daníel Snorrason rannsóknarlögreglumaður, en hann sigrar nú í annað sinn. Annar var Broddi Björnsson og jafnir í þriðja til fjórða sæti urðu Felix Jósafatsson og Björn Snorrason. Keppnisstjórar voru Gísli Ólafsson og Kjartan Sig- urðsson. íslandsmót í körfuknattleik: Þór á tvö lið í úrslitunum Úrslitin í yngri flokkunum í ís- an leik. 3. flokks lið Þórs tap- landsmótinu í körfuknattleik aði hinsvegar fyrir Tindastóli í fara fram um helgina sunnan fyrri umferðinni, en náði síð- heiða, og á Þór frá Akureyri an að snúa blaðinu við og sigra tvo fulltrúa í þeirri úrslita- í síðari umferðinni og einnig í keppni. úrslitaleik sem fram fór í 4. flokkur félagsins sigraði fyrrakvöld, með 62 stigum með yfirburðum I sínum riðli gegn 49. og sýndi á köflum prýðisgóð- Lítil skemmtun í Skemmunni Meistaraflokkur Þórs og KA markverðir liðanna, Gautihjá léku einn leik í handbolta á KA og Örn hjá Þórsæmilegir. þriðjudagskvöldið. Ekki bauð í hálfleik hafði KA eins marks þessi leikur upp á mikla forustu, 9 gegn 8. Leiknum skemmtun fyrir áhorfendur, lauk síðan með sigri KA, 23 en fyrri hálfleikur var vægast mörkum gegn 21. sagt leiðinlegur. Þó voru íslands- mót í júdó Akureyríngar eignuðust einn sigraði örugglega í sínum íslandsmeistara í Judó um síð- flokki, en hann keppir í einum ustu helgi. Það var kornungur af léttustu flokkunum. piltur Arni Ingólfsson sem Stórviðburður í golfinu á Jaðarsvelli í sumar Nú styttist óðum í þann tíma er golfleikarar fara að hand- leika kylfurnar sínar á nýjan leik eftir veturinn. Byrjað er að huga að mótum sumaríns hjá klúbbunum víðsvegar um landið, og hjá Golfklúbbi Ak- ureyrar er langt komið að raða niður mótum sumarsins. Þau verða að venju fjölmörg og yrði of langt mál að fara að telja þau öll upp hér. Þó má nefna Meistarmót klúbbsins, sem er að venju 72 holu keppni, og ástæða er til þess að geta nokkurra annarra móta. Unglingameistaramót íslands verður haldið á Jaðarsvelli fyrstu helgina í júlí og mæta þar væntanlega margir af bestu kylf- ingum landsins. Jaðarskeppnin verður nú að nýju háð um verslunarmanna- helgina, sem verður væntanlega til þess að þátttaka verður mun meiri en í fyrra í þessu móti. J að- arsmótið er 36 holu keppni sem verður leikin á laugardegi og sunnudegi. Sveitakeppni Golfsambands íslands er nú orðin ein af allra mestu keppnum landsins. Til þessa hafa aðeins verið leiknar 18 holur í þeirri keppni og ár- angur 5 bestu frá hverjum klúbb hefur talið. Nú mega klúbbarnir senda fjögurra manna sveitir og árangur þriggja bestu teldur. Leiknar verða 72 holur í þeirri keppni, 36 þær fyrri um leið og Jaðarsmótið fer fram, en 36 til viðbótar á mánudeginum um verslunarmannahelgina. Þá má að lokum nefna minn- ingarmótið um Ingimund Árna- son, en það mót er orðið eitt af allra stærstu mótum Golfklúbbs Akureyrar, og ávallt vel sótt af kylfingum víðsvegar að af land- inu sem heiðra minningu Ingi- mundar heitins hvert ár með þátttöku í því móti. Golfvöllurinn að Jaðri verður vettvangur stóratburða í sumar. 4 - DAGUR -18. mars 1982 18. mars 1982 - DAGUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.