Dagur - 15.04.1982, Page 6
r
Asgrímur Sigurbjörnsson Siglufirði:
Namia lcilsddllir var vlir-
hnrdasijjiirr cyari i s\if>i, stiir-
sv i<4i niji alpatMkcppni a I.ands-
iiiótinii.
Þrösfur Guðjónsson Akureyri:
„Við erum ánægðir með
útkomuna hjá okkur“
„Við Akureyringar erum
mjög ánægðir með útkomuna
hjá okkar fólki á Landsmót-
inu, en auðvitað hefðum við
verið enn ánægðari ef við
hefðum unnið flokkasvig
kvenna. Við höfðum 18 sek-
úndur í forskot fyrir síðustu
ferðina en sú sem fór síðast
fyrir okkur keyrði sig út úr
brautinni og sleppti hliði“,
sagði Þröstur Guðjónsson
formaður Skíðaráðs Akureyr-
ar í samtali við Dag eftir
Skíðalandsmótið.
„Annars erum við mjög hress-
ir með árangurinn. Björn Vík-
ingsson kom t.d. mjög á óvart í
þessu móti og sigraði örugglega í
sviginu,- Hann hefur ekki unnið í
svona stórmóti síðan hann var í
unglingaflokki. Hann átti bestan
brautartíma í báðum ferðum í
sviginu og bestan tíma í fyrri
ferðinni í stórsviginu. Hann
gerði hinsvegar ein mistök í
síðari ferðinni og það þýddi að
hann varð að láta sér 2. sætið
nægja. Þá kom Elías Bjarnason
vel út en hann er sennilega orð-
inn þreyttur eftir strangar æfing-
ar og keppni að undanförnu og
getur enn betur.
Þá komst Haukur Eiríksson á
verðlaunapall í 10 km og 15 km
göngu unglinga og einnig í tví-
keppninni, og það er mjög gott
hjá honum miðað við þá æfinga-
aðstöðu sem hann hefur haft í
vetur, en hún er ekki sambærileg
miðað við aðstöðuna sem hinir
hafa.
Guðrún Jóna Magnúsdóttir,
15 ára gömul kom einnig
skemmtilega frá þessu móti og
er geysilegt efni. Hún var með
annan besta brautartíma í stór-
sviginu og annan besta tímann í
fyrri ferðinni í sviginu. Það eru
margir ljósir punktar í þessu hjá
okkur og við getum ekki annað
en verið ánægðir með frammi-
stöðuna í þessu móti og framtíð-
in er björt“.
Úrslitin
Úrslit í hinum einstöku kcppnisgreinum á Skíðalandsmót-
inu sem fram fór um páskana urðu sem hér segir:
STÓRSVIG KVENNA:
1. Nanna Leifsdóllir A 132,90 sek
2. Þórdis Jónsdótlir í 135,85 sek
3. Hrefna Magnúsdóttir STÓRSVIG KARLA: A 138,31 sek
1. Árni Þór Ámason R 143,48 sek
2. Bjöm Víkingsson A 145,84 sck
3. Guöniundur Jóhannsson SVIG KVENNA: i 146,76 sek
í. Nanna Leifsdóttir A 102,40 sck
2. Tinna Traustadóttir A 103,88 sek
3. Guðrún J. Magnúsdóttir SVIG KARLA: A 104,23 sek
1. Bjöm Víkingsson A 99,08 sek
2. Guðmundur Jóhannsson í 99,58 sek
3. Elías Bjamason ALPATVÍKEPPNI KVENNA: A 99,92 sek
1. Nanna Leifsdóttir A 0,00 stig
2. Þórdís Jónsdóttir í 43,69 stig
3. Guðrún J. Magnúsdóttir ALPATVÍKEPPNI KARLA: A 48,48 stig
1. Björn Víkingsson A 1,93 stig
2. Guðmundur Jóhannsson Í 10,75 stig
3. Elias Bjarnason A 50,11 stig
GANGA 20 ÁRA OG ELDRI (15 KM):
1. Ingólfur Jónsson R 49,08,9 min
2. Ilaukur Sigurðsson Ó 49,44,0 min
3. Jón Konráðsson Ó 51,07,6 mín
30 KM GANGA 20 ára og cldri:
1. Magnús Eiriksson S 1,46,04 klst
2. Ingóifur Jóusson R 1,47,07 klst
3. Haukur Sigurðsson Ó 1,48,29 klsl
GÖNGUTVÍKEPPNI KARLA 20 ára og eidri:
1. Ingólfur Jónsson R 0,89 stig
2. Haukur Sigurðsson Ó 3,41 stig
3. Magnús Eiríksson S 8,14 stig
3x10 KM BOÐGANGA KARLA:
1. A svcit Ólafsfjarðar 1,41,47,3 klst
2. Rcykjavík 1,44,48,6 klst
3. ísafjörður 1,49,07,4 klst
GANGA KVENNA 19 ÁRA OG ELDRl (5 KM);
1. Guðrún Pálsdóttir S 22,08,4 mín
2. Guðbjörg haraldsdóttir R 22,37,1 mín
3. María Jóhannsdóttir S 24,09,7 mín
7,5 KM GANGA KVENNA 19 ára og eldri:
1. Guðrún Pálsdóttir S 33,02,5 mín
2. María Jóhannsdóttir S 34,58,3 mín
3. Guðbjörg Haraldsdóttir R 37,20,2 mín
STÖKK 20 ÁRA OG ELDRI:
1. Þorvaldur Jónsson Ó - 228,3 stig
2. Haukur Snorrason R - 217,7 stig
3. Asgrímur Konráðsson Ó - 211,5 stig
NORRÆN TVÍKEPPNI 20 ÁRA OG ELDRI:
1. Þorvaldur Jónsson Ó 446,0 stig
2. Bjöm Þór Ólafsson Ó 398,12 stig
3. Þorsteinn Þorvaldsson Ó 347,22 stig
FLOKKASVIG KVENNA:
1. Kcykjavik 317,58 sek
2. ísafjörður 342,14 sck
Sveit Akureyrar náði langbestum tíma, leik. FLOKKASVIG KARLA: en var dætnd úr
1. Kcykjavik 362,27 sek
2. ísafjörður Aðrar svcitir voru dæmdar úr Icik. 385,92 sek
10 KMGANGA 17-19 ára:
1. Einar Ólafsson i 33,19,4 mín
2. Haukur Eiríksson A 35,28,0 mín
3. Finnur V. Gunnarsson Ó 35,52,8 mín
15 KM GANGA17-19 ára:
1. F.inar Ólafsson í 52,09,7 mín
2. Finnur V. Gunnarsson Ó 53,46,6 mín
3. Haukur Eiríksson GÖNGUTVÍKEPPNI17-19 ára: A 56,43,3 min
1. Einar Ólafsson Í 00,00 stig
2. Finnur V. Gunnarsson Ó 10,76 stig
3. Haukur Eiríksson A 15,17 stig
STÖKK 19 ÁRA OG YNGRI:
1. Haukur Hilmarsson Ó 227,6 stig
2. Árni Stefánsson S 216,4 stig
3. Ilelgi Hannesson S 215,2 stig
NORRÆN TVÍKEPPNI19 ÁRA OG YNGRI:
1. Sigurður Sigurgeirsson Ó 401,30 stig
2. Ámi Stefánsson S 400,28 stig
5 KM GANGA STÚLKNA 16-18 ára:
1. Stclla Hjaltadóttir I 22,15,1 mín
2. Sigurlaug Guðjónsdóttir S 23,05,1 mín
3. Svanfríður Jóhannsdóttir S 23,15,3 mín
GANGA STÚLKNA 16-18 ára (3,5 km):
1. Stella Hjaltadóttir í 16,04,9 mín
2. Rannveig Helgadóttir R 17,27,3 niín
3. Sigurlaug Guðjónsdóttir S 18,03,2 mín
FIMM NATTA VORFERÐ TIL
Beint þotuflug frá Akureyri (með viðkomu í fríhöfninni)
Brottför: 27. apríl kl. 09.00 - Heimkoma: 2. maí kl. 24.00
Gisting: Clifton Ford Hotel, afbragðsstaðsetning, öll herbergi með
baði og litasjónvarpi - Fararstjóri: Pétur Jósefsson. Verð kr. 4.950.
Möguleikar á skoðunarferðum, knattspyrnuleikjum, söngleikjum, leikhúsmiðum o.s.frv.
FA-kjör: - Eftirstöðvar á 3 mánuðum
FA-Sími 25000
Guðrún Pálsdóttir frá Sigluflrði var óstöðvandi í göngukeppni kvenna og hélt heimleiðis með tvenn gullverð-
laun.
„Erum mjög hressir
hér á Siglufirði“
„Við erum mjög hressir hér á
Siglufírði með árangur okkar
á Landsmótinu. Það má þó
segja að við höfðum vonast
eftir fleiri gullverðlaunum, en
það er ekki alltaf hægt að fá
allt sem maður óskar sér“,
sagði Ásgrímur Sigurbjörns-
son formaður Skíðaráðs
Siglufjarðar er við ræddum
við hann eftir Landsmótið.
„Við gerðum okkur vonir um
að Magnús Eiríksson myndi
vinna sigur í 15 km göngunni.
Hann er hinsvegar búinn að æfa
í vetur með Heimsmeistara-
keppnina sem fram fór á dögun-
um sem aðalmarkmið og var því
ekki í sínu besta formi á Lands-
mótinu. Guðrún Pálsdóttir,
kona hans stóð hinsvegar fyrir
sínu og vel það og hirti tvenn
gullverðlaun".
„Það er mjög mikill áhugi á
skíðaíþróttinni hér á Siglufirði.
Það sést best á því að um pásk-
ana voru um 100 manns í keppni
á Siglufirði á sama tíma og
Landsmótið var fyrir sunnan“.
- Leggið þið aðaláhersluna á
norrænu greinarnar?
„Nei, alpagreinarnar eru
mjög vinsælar líka, en við erum
ekki komnir eins langt þar, erum
að byggja upp fyrir framtíðina.
Við vorum með 15 keppendur í
alpagreinum á Unglingameist-
aramótinu í vetur en áttum eng-
an keppanda á Landsmótinu
núna í þeim greinum. En krakk-
arnir sýna alpagreinunum
mikinn áhuga og ég reikna með
að við förum með um 40 krakka
á Andrésar-Andar leikana á Ak-
ureyri".
„Yngri aldurshópurinn í nor-
rænu greinunum er mjög góður
hjá okkur. Ég get nefnt Baldvin
Kárason, Ólaf Valsson, Stein-
grím Óla Hákonarson og Sævar
Guðjónsson í 15-16 ára flokki og
Árna Stefánsson og Helga
Hannesson sem náðu í silfur og
bronsverðlaun á Landsmótinu
núna þótt þeir væru að keppa við
sér eldri menn“.
- Er aðstaðan til æfinga góð á
Siglufirði?
„Já, hún er það og á eftir að
batna. Við eigum von á einni
lyftu til viðbótar og þá batnar
hún enn. En þetta er allt í fram-
för hjá okkur, við vorum með
þjálfara í bæði alpagreinum og
norrænum greinum í vetur og
stefnum á að fá norskan þjálfara
fyrir norrænu greinarnar næsta
vetur“.
Verðlaunin
í sflröingar hirtu flest gullverðlaun á Skíðalandsmótinu sem haldið var í
Bláfjöllum við Rcykjavík um páskana. Annars var keppnin um verð-
launapeningana geysihörð og skemmtileg, eins óg verðlaunataflan sem
fylgir hér með ber nteð sér: gull silfur brons
ísafjörður 5 6 2
Reykjavík 5 5 1
Ólafsfjörður 5 5 ' 5
Akureyri 5 3 7
Siglufjörður 3 4 5
Ólafsflrðingurinn Þorvaldur Jónsson sigraði bæði í stökkkeppni 20 ára og eldri og í norrænni tvíkeppni.
Björn Þór Ólafsson Ólafsfirði:
„Ekki himinlifandi
með árangurínn“
„Ekki get ég sagt að við Ólafs-
fírðingar séum fyllilega
ánægðir með útkomuna á
þessu Landsmóti, við teljum
að við höfum verið óheppnir í
göngukeppninni“, sagði
Björn Þór Ólafsson skíða-
kappi og þjálfari á Ólafsfírði
er við ræddum við hann eftir
að Skíðalandsmótinu um
páskana lauk.
„Við gerðum þó marga góða
hluti, en í heildina var þetta ekki
nógu gott að okkar mati. Það var
mjög misjafnt færi á mönnum í
15 km göngunni svo ég nefni
dæmi og við fórum mjög illa út
úr því. Innst í brautinni var þurr
snjór en rennandi blautt niður
við markið og þetta vissum við
ekkert um. Það fraus því hjá
okkur áburður og við komumst
lítið áfram. Við vorum óheppnir
þar.
Veðrið var þannig að sá sem
lagði síðastur af stað hafði lang-
mesta möguleika á að sigra og
það gerðist í öllum göngunum
að sá sem fór síðastur af stað
sigraði. Þá var Haukur mjög
óheppinn í 15 km göngunni,
missti af sér skíði strax í upphafi
göngunnar og tapaði þá 20-30
sekundum til síns helsta keppi-
nauts sem var ræstur á eftir
honum".
- Eru Ólafsfirðingar ekki
lengur það stórveldi sem þeir
hafa verið í göngunni, eru hinir
staðirnir að sækja á ykkur?
„Já, þeir hafa verið að því á
undanförnum árum, og við feng-
um ekki marga titla í fyrra í göng
unni. Við erum hins vegar með
jafnsterkasta liðið og höfum til
skamms tíma verið með mesta
fjöldann. Það sýndi sig vel í boð-
göngunni þar sem allir fengu
gott færi og við fengum 3 bestu
tímana að breiddin er mest hjá
okkur. Finnur V. Gunnarsson
bestan tíma, Haukur Sigurðsson
næstbesta og Jón Konráðsson
þriðja besta tímann.“
„Við erum því ekkert himin-
lifandi með árangurinn í heild-
ina þótt við séum ekkert mjög
óánægðir heldur. Við erum með
5 gullverðiaun, en hefðum viljað
hafa þau fleiri. Það kom illa við
okkur sem höfum æft á mjög
hörðum snjó undanfarin mánuð
hvað færið þarna var öðruvísi og
göngurnar mun hægari á jafn-
sléttu“.
- En hvað segir þú um alpa-
greinarnar hjá ykkur, eruð þið
að eignast lið þar?
„Við áttum einungis einn
keppanda á þessu móti, það var
Eggert Bragason sem var í 5 sæti
í sviginu og 9. í alpatví-
keppninni. Eggert er unglingur
ennþá og við erum mjög ánægðir
með frammistöðu hans. Áhug-
inn á alpagreinum er mjög mikill
hérna, meiri en í göngunni, en
við búum við það að þegar
krakkarnir eru 15-16 ára fara
þau í burtu í skóla og eftir það
fellur þeirra skíðaiðkun niður.
Við höfum ávallt gott lið í barna-
og unglingaflokkum en síðan
tínist þetta. En ég er bjartsýnn á
framtíðina, við eigum stóran
flokk af efnilegu fólki og þurfum
engu að kvíða“, sagði Björn Þór
Ólafsson að lokum.
landsmótið — Skíðalandsmótið — Skíðalandsmótið — Skíðalands
6 - DAGUR -15. apríl 1982
15. apríl 1982-DAGUR-7