Dagur - 13.07.1982, Síða 7
Glæsilegustu kynbóta-
hross landsins sýnd
Níunda landsmót Landssam-
bands hestamannafélaga og
Búnaðarfélags íslands var
haldið á Vindheimamelum í
Skagafirði 7.-11. júlí. Talið er
að aldrei hafi annað eins gæð-
ingaúrval verið samankomið á
einum stað og á þessu móti og
kom í Ijós að árangur af þrot-
lausu ræktunarstarfi hefur skil-
að sér í betri og fallegri
hrossum.
Stóðhestar 6 vetra og eldri
f flokki stóðhesta 6 vetra og eldri
voru sýndir 14 hestar og hlutu þeir
allir 1. verðlaun. Efstur varð Leistur
960 frá Álftagerði í Skagafirði eign
Hrossaræktarsambands Skagfirð-
inga. Leistur hlaut einkunnina 8.31
og er undan Eldingu 3820 frá Kýr-
holti og Fák 807 frá Akureyri. f öðru
sæti varð Hervar 963 frá Sauðárkróki
um með einkunnina 8.05 og í þriðja
sæti varð Eiðfaxi 958 frá Stykkis-
hólmi með einkunnina 8.04.
Stóðhestar 4ra vetra
í þeim flokki voru aðeins þrír hestar.
Efstur varð Höður 954 frá Hvoli í
Ölfusi. Höður hlaut einkunnina 8.06
og er undan Púmu 4255 frá Arabæ og
Náttfara 776 frá Ytra-Dalsgerði í
Eyjafirði og fannst mörgum sem þeir
Hryssur 4ra vetra
í þessum flokki kom fram hæst verð-
launaða hryssa mótsins en það var
Þrá 5478 frá Hólum í Hjaltadal. Þrá
er jörp, undan Þætti 722 frá Kirkju-
bæ og Þernu 4394 frá Kolkuósi. Eig-
andi Þráar er Kynbótabúið að
Hólum. Þrá hlaut einkunnina 8.48. í
öðru sæti varð einnig hryssa undan
Þætti 722, Djörfung 5483 frá Keldu-
Tveir hestar kepptu að því marki
að vinna til heiðursverðlauna fyrir
afkvæmi og náðu báðir þeim áfanga.
Þetta voru þeir Hrafn 802 frá Holts-
múla og Þáttur 722 frá Kirkjubæ. f
dómsorði um Hrafn segir m.a.:
„Reiðhestskostir eru ótvíræðir, vilj-
inn ákveðinn og mikill en lundin
heldur þung, en traust og hrekklaus.
Heillandi og glæsileg framganga með
reisn og lyftingu í öllu fasi einkenna
afkvæmi Hrafns 802 fram yfir flest
annað sem hér þekkist. Hrafn er
gæðingafaðir og hlýtur 1. heiðurs-
verðlaun, meðaleinkunn 8.19 stig.“
Penni 702 fékk 1. verðlaun fyrir afkvæmi og er hér með þau. Magni Kjartansson situr Penna, lengst til hægri.
Um Þátt 722 segir: „Lundin er líf-
leg og auðsveip, alveg hrekklaus,
viljinn sækinn, þjáll en misjafnlega
snarpur. Gangurinn er fremur fjöl-
hæfur, hreinn, rúmur og fallegur.
Þáttur 722 gefur falleg og góð reið-
hross og hlýtur 1. heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi, 8.17 stig.“ Dómur til
heiðursverðlauna byggist á 12 af-
kvæmum. Aðeins einn hestur, Sörli
653, hafði áður hlotið heiðursverð-
laun.
Stóðhestar með afkvæmum
Tíu hestar voru dæmdir með af-
kvæmum og hlutu þeir allir 1. verð-
laun. Efstur var Ófeigur 818 frá
Hvanneyri með einkunnina 8.12. í
öðru sæti varð Penni 702 frá Árgerði
með einkunnina 8.09. Eigandi
Penna er Magni Kjartansson bóndi í
Árgerði í Eyjafirði en þar hefur
Penni verið notaður nær eingöngu og
því ekki fengið eins mörg tækifæri og
aðrir stóðhestar sem hafa verið not-
aðir vítt og breitt um landið. Árang-
ur Penna er því mun glæsilegri en
ella. í þriðja sæti varð Kolbakur 730
frá Gufunesi með einkunnina 8.04
og jafn honum varð Fákur 807 frá
Akureyri, eign Hrossaræktarfélags
Skagfirðinga.
með einkunnina 8.27 en hann er eign
Sveins Guðmundssonar á Sauðár-
króki. Hervar er undan Blossa 800
frá Sauðárkróki og Hervör 4647 frá
Sauðárkróki. f þriðjasæti varðFreyr
931 frá Akureyri með einkunnina
8.23, eigandi Þorsteinn Jónsson Ak-
ureyri. Freyr er undan Svip 385 og
Báru 4418 frá Ákureyri.
Stóðhestar 5 vetra
í þessum flokki komu fimm hestar til
dóms. Efsturvarð rauðblesótturfoli,
Mergur 961 frá Syðra Skörðugili í
Skagafirði, eigandi Einar E. Gísla-
son bóndi þar. Mergur hlaut eink-
unnina 8.10, en vegna smæðar fær
hann ekki fyrstu verðlaun viður-
kennd. Mergur er ekki nema 1.39 m
á hæð á herðakamb en þarf að vera
minnst 1.40 m. í 2. sæti varð Feykir
962 gráblesóttur frá Hafsteinsstöð-
sæju nýjan Náttfara áferðinni. Hinir
hestarnir voru Vinur 953 frá Kot-
laugum og Hólmi 959 frá Stykkis-
hólmi.
Hryssur með afkvæmum
Níu hryssur mættu til dóms með af-
kvæmi og hlutu þær allar 1. verð-
laun. Efst þeirra varð Hrafnhetta
3791 frá Sauðárkróki, brúnskjótt.
Eigandi er Guðmundur Sveinsson.
Hrafnhetta hlaut einkunnina 8.06.
Hún er undan Eyfirðingi 654 og Síðu
2794. í öðru sæti varð Árna-Skjóna
4436 frá Jódísarstöðum í Eyjafirði,
eigandi er Árni Sigurðsson Hösk-
uldsstöðum. f þriðja sæti varð Fluga
3103 frá Sauðárkróki, brún, eigandi
Sveinn Guðmundsson.
Hryssur 6 vetra og eldri
Alls mættu 37 hryssur til dóms í þess-
um flokki, sem var hinn stærsti í kyn-
bótasýningunni og hlutu þær allar 1.
verðlaun. Efst í þessum flokki varð
Perla 4889 frá Kaðalstöðum í Borg-
arfirði og hlaut hún einkunnina 8.30.
Eigandi Perlu er Bragi Andrésson en
faðir hennar er Ófeigur 818 frá
Hvanneyri og móðir Skjóna 4077 frá
Kaðalstöðum. Þess má geta að Perla
hlaut 10 fyrir vilja og hefur aðeins ein
hryssa áður hlotið þá einkunn. f öðru
sæti varð Sera 5017 frá Eyjólfsstöð-
um á Völlum. Sera hlaut einkunnina
8.28. í þriðja sæti varð Svala 4633 frá
Glæsibæ í Skagafirði 8.26. í fjórða
sæti varð Elding 5225 frá Hólum í
Hjaltadal með einkunnina 8.25 og í
fimmta sæti varð Elding 4595 frá
Höskuldsstöðum í Eyjafirði með
einkunnina 8.19.
dal í Skagafirði, jarpblesótt. Eigandi
er Leifur Þórarinsson bóndi Keldu-
dal. Djörfunghlaut einkunnina 8.08.
f þriðja sæti varð Litla-Kolla 5413 frá
Jaðri 2 S.-Múlasýslu. Hún hlaut
einkunnina 8.07.
Auk hinnar venjulegu sýningar á
stóðhestum og hryssum sem öllum
bar saman um að hefði verið óvenju
glæsileg, komu fram sýningarhross
sem kynning frá 6 hrossaræktarbú-
um á landinu. Þessi bú voru: Fjalla-
blesafélagið, Kynbótabúið Hólum,
frá Laugvetningum, Skeifufélagið,
Skuggafélagið og frá Sveini Guð-
mundssyni og fjölskyldu á Sauðár-
króki. Þarna var aðeins um sýningu
að ræða en engir dómar voru felldir
nema að áhorfendur dæmdu sjálfir
og mynduðu sér sínar skoðanir.
A-flokkur gæðinga
77 gæðingar frá hinum ýmsu hesta-
mannafélögum á landinu voru mætt-
ir til leiks í A-flokki og í forkeppni
sem fram fór á fimmtudag voru 10
efstu hestarnir valdir úr og kepptu
þeir til úrslita á sunnudaginn, þar
sem dómnefnd raðaði þeim í sæti frá
1-10. Á fimmtudeginum fór einnig
fram viljaprófun þar sem einn og
sami maður kom á bak öllum hestun-
um og er vægt til orða tekið að störf
hans hafi verið umdeilanleg.
Hlutskarpastur í flokki alhliða
gæðinga varð Eldjárn, rauður frá
Hvassafelli í Eyjafirði, faðir Náttfari
776, móðir Rós frá Hvassafelli en
faðir hennar var Penni 702 frá Ár-
gerði. Eigandi Eldjárns er Ásbjörn
Valgeirsson Akureyri en knapi Al-
bert Jónsson Garðshomi.
Sigurður Snæbjörnsson heldur í hryssuna Árna-Skjónu, en hún fékk 1. verð-
laun fyrír afkvæmi.
Hryssur 5 vetra
í þessum flokki mættu 11 hryssur til
dóms. Efst varð Hátíð 5218 frá
Vatnsleysu í Skagafirði, eigandi
Vatnsleysubúið og hlaut hún eink-
unnina 8.25. Hátíð er undan Sleipni
785 frá Ásgeirsbrekku og Veru 4235
frá sama stað. f öðru sæti varð Ösp
5454 frá Sauðárkróki með einkunn-
ina 8.19. í þriðja sæti varð Hylling
5089 frá Kirkjubæ með einkunnina
8.16.
f öðru sæti varð Fjölnir, brúnn frá
Kvíabekk í Ólafsfirði. Eigandi og
knapi Tómas Ragnarsson Reykja-
vík. f þriðja sæti varð Sókron, brúnn
frá Sunnuhvoli í Skagafirði, knapi og
eigandi Ingimar Ingimarsson, Hól-
um Hjaltadal. Þess má einnig geta að
Ingimar hlaut knapaverðlaun
mótsins.
B-flokkur gæðinga
f flokki klárhesta með tölti varð sig-
urvegari Hrímnir frá Hrafnagili í
Eyjafirði. Hrímnir er grár, faðir
Mósi frá Hrafnagili og móðir Steinka
3848. Eigandi og knapi Björn
Sveinsson Varmalæk í Skagafirði. í
örðu sæti varð Vængur, rauðskjóttur
frá Kirkjubæ, eigandi og knapi Jó-
hann Friðriksson Reykjavík. í þriðja
sæti varð Goði, jarpur frá Ey V.-
Landeyjum. Eigandi og knapi Jó-
hannes Elíasson.
Kappreiðar
Kappreiðarnar em alltaf sá hluti
hestamannamótanna sem draga að
sér flesta áhorfendur og á Vind-
heimamelum voru margir af fræg-
ustu kappreiðahestum landsins
mættir til leiks.
í 150 metra skeiði sigraði Torfi frá
Hjarðarhaga í Skagafirði á 14.7 sek.
Eigandi Torfa er Hörður G. Alberts-
son en knapi Sigurbjörn Bárðarson.
f öðru sæti varð Fjölnir frá Kvíabekk
Ólafsfirði, knapi og eigandi Tómas
Ragnarsson.
í 250 metra skeiði sigraði Villingur
á 22.5 sek. Eigandi Hörður G. Al-
bertsson, knapi Aðalsteinn Aðal-
steinsson. Annar varð Börkur frá
Kvíabekk í Ólafsfirði á23.2. Eigandi
Ragnar Tómasson, knapi Tómas
Ragnarsson. f þriðja sæti varð Sproti
frá Torfastöðum á 23.7 sek. Eigandi
Hallgrímur Hallgrímsson Akranesi,
knapi Reynir Aðalsteinsson.
í 300 metra brokki, sem er ný
keppnisgrein hér á Norðurlandi,
sigraði Fengur frá Ysta-Hvammi í
Aðaldal á 31.0 sek. Eigandi Hörður
G. Albertsson en knapi Sigurbjörn
Bárðarson. Númer tvö varð Svarri
frá Vífilsdal, eigandi María Eyþórs-
dóttir, knapi Marteinn Valdimars-
son. Svarri fékk tímann 34.0 sek. í
þriðja sæti varð Burst frá Bursta-
brekku í Ólafsfirði, eigandi Andrés
Kristinsson Kvíabekk en knapi
Rögnvaldur Sigurðsson Kvíabekk,
tíminn var 34.7 sek.
í 250 m unghrossahlaupi sigraði
Hylling frá Nýjabæ í Borgarfirði á
17.7 sek, sem er aðeins einu sek-
úndubroti frá gildandi íslandsmeti.
Eigandi er Jóhannes Þ. Jónsson og
knapi Jón Ó. Jóhannesson. í öðru
sæti varð Örn frá Uxahrygg á 17.9
sek, eigandi er Hörður G. Alberts-
son og knapi María D. Þórarinsdótt-
ir. í þriðja sæti á sama tíma varð
Loftur frá Álftagerði, eigandi Jón
Ingimarsson Flugumýri og knapi
Jósafat Jónsson.
í 350 metra stökki sigraði Spóla úr
Dalasýslu á 24.2 sek, eigandi Hörður
Þ. Harðarson, knapi María D. Þór-
arinsdóttir. í öðru sæti varð Örvar
frá Hjaltastöðum í Skagafirði á 24.5
sek. Eigendur eru Róbert Jónsson
og Halldór Guðmundsson Reykja-
vík en knapi Anna D. Markúsdóttir
Borgarnesi. í þriðja sæti varð Sindri
frá Ármóti Landeyjum á 24.8 sek,
eigandi Jóhannes Þ. Jónsson, knapi
Jón Ó. Jóhannesson.
Að lokum eru það úrslitin í 800
metra stökki. Þar varð hlutskarpast-
ur Cesar frá Björgum í Eyjafirði á
58.1 sek. Eigandi er Herbert Ólason
Króksstöðum en knapi var Baldvin
Guðlaugsson. í öðru sæti varð Leó
frá Nýjabæ á 58.4. Eigandi er Baldur
Baldursson en knapi Jón Ó. Jóhann-
esson. í þriðja sæti varð svo Þróttur
frá Miklabæ í Skagafirði á 59.5 sek.
Eigandi Þróttar er Sigurbjörn Bárð-
arson, knapi María D. Þórarinsdótt-
ir.
Ennfremur var á þessu Landsmóti
unglingakeppni og tilrauna Evrópu-
keppni en 9 þjóðir áttu þar keppend-
ur og kepptu tveir frá hverri þjóð.
Báðar þessar keppnir virtust vera
hornreka á þessu móti enda dagskrá
mótsins umfangsmikil fyrir.
6 - DAGUR -13. júlí 1982
Fylgst með dagskránni á laugardaginn.
Fimmti stærsti kaup-
staður landsins
reis upp úr engu
Yfir 10.000 manns voru staddir
á Vindheimamelum um helgina
og má því með réttu segja áð
þar hafi risið fimmti stærsti
kaupstaður landsins upp úr
engu og horfið jafnskjótt aftur.
Það má nærri geta að mannlífið
var með fjölbreyttasta móti,
enda ægði þar öllu saman,
harðsvíruðum hestamönnum
og óhörðnuðum unglingum,
túrhestum og reiðhestum,
dreifbýlingum og þéttbýling-
um, konum og börnum en allir
áttu það þó sameiginlegt að
vera þar komin til þess að
skoða fallega hesta og fjöl-
breytt mannlíf og skemmta sér.
Og enginn var svikinn um það.
Til leiks voru mættir allir glæsi-
legustu gæðingar og slyngustu
hestamenn landsins og segja
fróðir menn að aldrei hafi annað
eins gæðingaval verið saman
komið á einum stað á íslandi.
Ekki er ólíklegt að margir hafi
fyllst þjóðlegu stolti við að sjá
goðumlíka ævintýrahesta þjóta á
fljúgandi tölti eftir Vindheima-
velli. Og ekki voru þeir sviknir um
fjölskrúðugt og fjörugt mannlíf
sem eftir því sóttust. Endalaus
röð tjalda af öllum hugsanlegum
stærðum og gerðum stóð á slétt-
um bökkum Svartár og bílar af
öllum landshornum snigluðust
um mótsvæðið í löngum lestum. í
hestagirðingunum biðu nokkur
þúsund hestar eigenda sinna á
meðan aðrir höfðu eigendaskipti í
þar til gerðri rétt. Á daginn undi
fólk sér við að fylgjast með því
sem fram fór á vellinum, liggjandi
í notalegri brekkunni en þegar
kvöldaði var tekið til við að
skemmta sér á hinn margvísleg-
asta hátt og linntu sumir ekki lát-
um fyrr en undir morgun/ Sumir
undu sér á kvöldvökum á föstu-
dags- og laugardagskvöld en aðrir
skelltu sér á böll sem nóg var af í
nágrenninu og var þar oftast
þröng á þingi. Aðrir sátu heima í
tjaldbúðum og glöddust þar með
vinum yfir glasi. Og stemmningin
var ósvikin. Alls staðar glumdi
söngurinn. Heilir kórar kyrjuðu
sums staðar ættjarðarlögin gömlu
svo undurblítt að hjörtu manna
fylltust angurværum hátíðleik,
enn annars staðar var gutlað á
gítar, Guttavísur og bítlalögin.
Einn dansaði um svæðið með
gríðarstórt segulbandstæki um
hálsinn og stjórnaði almennum
dansi af röggsemi en annar gekk
um í fráhnepptri skyrtunni og
bauðst til að rota menn fyrir
brennivín. Ástin blómstraði í
skagfirsku sumarnóttinni og yljaði
mörgum unglingnum í annars
hráslagalegu veðri. Skagfirskar
heimasætur sáust hverfa út í nótt-
ina með hrossakaupmönnum úr
Reykjavík eða bændasonum af
Suðurlandsundirlendinu en á öðr-
um stað voru spengilegar kyn-
bótahryssur leiddar undir lands-
fræga stóðhesta. Hvar sem litið
var réð algleymið ríkjum og þó
svo ungir og vaskir menn reyndu
með sér endrum og sinnum og
hlytu glóðarauga eða fingurbrot
gat það ekki talist annað en sjálf-
sagt og í samræmi við allt annað.
Þegar morgnaði aftur tók að
færast ró yfir hetjur næturinnar en
Á sunnudagskvöldið, í þann
mund sem flestir voru að taka
saman hafurtaskið og hverfa
hver til síns heima, hitti blaða-
maður Dags Björn Sigurðsson
lögregluþjón, sem starfaði sem
yfirmaður lögreglunnar á mót-
inu og spurði hann hvernig
löggæslan hefði gengið.
„Ég held mér sé óhætt að segja
að þetta hafi allt gengið stórslysa-
laust og reyndar mun betur en við
höfðum nokkurn tíma búist við.
Hér hefur risið einn af stærstu
bæjum landsins á þessum tíma og
ég get varla sagt að hér hafi skap-
ast meiri vandræði sem lögreglan
þarf að hafa afskipti af heldur en
gerist í bæjum með svipaða íbúa-
tölu um helgar. Þessi bær hefur
náttúrlega þá sérstöðu að hingað
kemur fólk að stórum hluta til að
skemmta sér og það hafa komið
upp vandamál sem ævinlega
fylgja áfengisdrykkju, ryskingar
o.þ.h., en mun minna en við gerð-
um ráð fyrir.“
- Nú hafið þið verið með ridd-
aralögreglu. Hvernig hefur það
gefist?
„Já, við ákváðum fyrir þetta
mót að gera tilraun með að endur-
hinir sem stilltu gleði sinni í hóf
skriðu fram úr tjöldum sínum,
fengu sér árbít og héldu á vit vall-
arins til að fylgjast með dag-
skránni.
vekja þann sið að hafa lögreglu-
mann á hestbaki. Lögreglan í
Reykjavík var, eftir gömlum
myndum að dæma, oft ríðandi.
Niðurstaða okkar er sú að hestur-
inn sé afskaplega heppilegt sam-
göngutæki fyrir lögreglumenn á
svona samkomum. Riddaralög-
reglan hefur verið afar fljót í för-
um og hefur það komið sér vel í
þessari hægu bílaumferð. Þeir
björguðu manni upp úr ánni
hérna og hafa á ýmsan annan hátt
sannað ágæti sitt, auk þess sem
fólki hefur þótt þetta skemmtileg
nýbreytni.
- Var ölvun meiri en þið áttuð
von á?
„Nei, hún var það ekki og menn
hafa verið afskaplega rólegir með
áfenginu. Það hefur mikið verið
sungið og yfirleitt hafa menn ein-
beitt sér að því að skemmta sér.
Þegar blaðamaður Dags yfirgaf
svæðið voru margir lagðir af stað
heim, kappreiðunum var að ljúka
og áhorfendum fækkaði óðfluga.
Á einstaka stað mátti enn heyra í
söngmönnum og mátti þar greina
að brestur var kominn í raddir
margra eftir allan sönginn. Veðr-
ið var eins og það gerist fegurst og
Skagafjörður brosti.
Riddaralög-
reglan fljót
í förum
13. júlí 1982- DAGUR -7