Dagur - 13.07.1982, Blaðsíða 9

Dagur - 13.07.1982, Blaðsíða 9
t Slór- sigur Þórsí Borgar- nesi Þórsarar náðu í tvö dýrmæt stig í 2. deUd íslandsmótsins í knattspyrnu um helgina, er þeir léku gegn Skallagrími í Borgarnesi. Leikið var á lélegum malar- velli, og í fyrri hálfleik var leik- urinn jafn. Mikið þóf var lengst af í þessum hálfleik, en staðan að honum loknum var 2:0 Þór í vil. í síðari hálfleiknum kom vel í ljós, hvort liðið var sterkara, Þórsarar tóku þá öli völd í sínar hendur og komust í 4:0. Loka- tölurnar urðu 5:1 Þór í vil, en mörk Þórs skoruðu Óskar Gunnarsson 2, Örn Guðmunds- son, Bjarni Sveinbjörnsson og Hafþór Helgason eitt hver. Tveir aðrir leikir fóru fram um helgina, Reynir frá Sandgerði sigraði Þrótt 1:0 á Neskaups- stað, og í Njarðvík unnu heima- menn sigur2:l gegn Einherjafrá Vopnafirði. Jón Þór Gunnarsson. Saab — Toyota golfmótið: Jón Þór hafði mikla yfirburði Akureyrarmeistarinn í golfi, Jón Þór Gunnarsson, fékk litla keppni í SAAB-TOY- OTA golfkeppninni sem fram fór á Jaðarsvellinum á Akur- eyri um helgina. Þetta var opið mót og leiknar 36 holur á laugardag og sunnudag en þátttaka kylfinga úr öðrum golfklúbbum en Golfklúbbi Akureyrar var fremur slæm. Jón Þór lék 36 holurnar á 154 höggum. í öðru sæti varð Sverrir Þorvaldsson GA á 167 högggum og Þórhallur Pálsson GA varð í þriðja sæti á 172 höggum. Þá voru veitt verðlaun fyrir þann sem var næstur holu í einu höggi. Fyrri daginn var Sigurður H. Ringsted næstur holu á 4. braut, 2.09 m og síðari daginn varð Jónas Kristjánsson GR næstur holu á 6. braut, 5.47 metra. Nú tekur hvert stórmótið við af öðru hjá Golfklúbbi Akureyr- ar. Á miðvikudaginn hefst Ak- ureyrarmótið, en það er 72 holu flokkakeppni, sem lýkur á laug- ardag. Reyndar hefst á miðviku- daginn meistarakeppni Golf- klúbbanna hjá öllum golfklúbb- um landsins og verður því mikið um að vera. Þá styttist í stærsta mótið hjá Golfklúbbi Akureyrar, en það er hin árlega Jaðarskeppni sem nú fer fram um verslunarmanna- helgina. Jaðarskeppnin er nú eitt af fjórum stigamótum sem gefa 10 efstu mönnum stig til landsliðsins og er öruggt að allir bestu kylfingar landsins munu þá heimsækja Jaðarsvöllinn og berjast um landsliðsstigin. Framkvæmdir á svæði KA „Það er ekki hægt að segja annað en það sé mikill hugur í okkur KA-mönnum og við höfum mikinn áhuga á því að vinna vel á svæði félagsins í sumar,“ sagði Stefán Gunn- laugsson er við ræddum við hann á dögunum, en Stefán er formaður Vallarnefndar fé- lagsins. Eins og flestir vita var í fyrra lokið við að tyrfa völl félagsins í Lundarhverfi. Við spurðum Stefán hvernig til hefði tekist með það. „Ég held, að sé óhætt að segja að það hafi tekist ágæt- lega. Þó kom völlurinn nokkuð skemmdur undan vetri en við höfum sáð í hann í sumar og hann verður orðinn ágætur áður en langt um líður. Hinsvegareru aðalframkvæmdir okkar á vall- arsvæðinu um þessar mundir við að girða svæðið af. Við urðum fyrir talsverðum átroðningi fólks inn á svæðið, sérstaklega að vestanverðu og erum nú að loka þar með girðingu. Þá er fyrir- hugað að girða einnig að norðanverðu og sunnanverðu í sumar. Við treystum svo á það að fólk taki tillit til þess að við erum með svæði sem er á við- kvæmu stigi, og sýni okkur þá tillitssemi að fara ekki þar út á.“ - Hvað um aðrar fram- kvæmdir á svæðinu í sumar? „Við munum hefja undirbún- ingsvinnu við annan grasvöll sem kemur fýrir austan malar- völlinn og eins grassvæði austan við grasvöllinn. Þá erum við að ganga frá upphækkuðum kanti á milli grasvallarins og malarvall- arins og tökum síðan kantinn fyrir norðan grasvöllinn með- fram Þingvallarsvæðinu á sama hátt. M.a. ætlum við að setja þar niður trjáplöntur.“ - Er þetta allt unnið í sjálf- boðavinnu? „Nei ekki er það nú. Við verð- um í sumar með nokkra fasta starfsmenn á svæðinu, tveir verða á launum hjá KA, einn fullorðinn mann leggur bærinn til og síðan tvo pilta úr Vinnu- skóla bæjarins. Fyrst við erum farnir að minnast á framlag bæjarins vil ég geta þess að sam- starfið við bæinn hefur verið mjög gott og bærinn hefur lagt okkur til efni og verið hjálplegur á ýmsan annan hátt. Þá hefur aðalstjórn KA einnig stutt mjög vel við bakið á okkur.“ - En hvernig gengur að fá KA-félaga til að mæta í sjálf- boðavinnu? „Það gekk mjög vel í fyrra. Við munum einnig í sumar leita til okkar félaga og ég vonast til að undirtektir verði jafn góðar og þá og menn leggist á eitt um að koma því í framkvæmd á svæðinu sem fyrirhugað er.“ - Hvernig verða mannvirki á svæðinu þegar það verður full- búið? “Þá verðum við með tvo gras- velli, einn malarvöll og einnig minna grassvæði þar sem hægt verður að leika handknattleik t.d. Þá er svæðið utanmeð gras- vellinum sem kominn er, undir- byggt með það í huga að byggja þar upp hlaupabrautir. Búnings- aðstöðu höfum við svo í Lundar- skóla og þar höfum við einnig ágætis félagsaðstöðu til funda o.þ.h." - Hvernig fjármagnið þið all- ar þessar framkvæmdir? „ Við fáum styrki frá ríki og bæ sem er visst hlutfall af kostnaði. Ef við reiknum með að vinna í sumar fyrir 400 þúsund þá nema þessir styrkir 230 þúsundum. Afganginn fjármögnum við síð- an með samskotum, sjálf- boðavinnu og lánum.“ Svæði KA ■ Lundarhverfí. t3ijúlí1982 ~ ÐAGUR-9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.