Dagur - 13.07.1982, Síða 8

Dagur - 13.07.1982, Síða 8
Aðalfundur Dagsprents hf. verður haldinn í Strandgötu 31, Akureyri miðviku daginn 28. júlí 1982 kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Óskað verður eftir heimild til aukningar á hlutafé. Stjórnin. Coop Niðursoðið grænmeti margar tegundir Grunnvöruverð Atvinna Fóstrur, kennara, þroskaþjálfa og fleira starfs- fólk vantar til starfa við dagvistir Akureyrar frá 1. sept. ’82. Umsóknarfrestur til 15. ágúst '82. Umsóknareyðublöð á Félagsmálastofnun Akur- eyrar, Strandgötu 19b, sími 25880. Ath. Fyrri umsóknir falla úr gildi, verði þær ekki endurnýjaðar fyrir þann tíma. Dagvistarfulltrúi. H l#l IDKS"t/DJI Bei JETCI AHlUKEiY Félagsstarf aldraðra Farið verður í dagsferð um Mývatnssveit þriðju- daginn 20. júlí nk. Vanir leiðsögumenn verða með. Veitingar verða í Reynihllið. Þátttökugjald kr. 80.-. Þátttaka tilkynnist í síma 25880, Félagsmálastofn- un, kl. 9-12fyrirmánudaginn 19. júlí. Félagsmálastofnun Akureyrar. AKUREYRARBÆR Félagsmálastofnun Akureyrar Umsóknir um dvöl barna á skóladagheimilið Brekkukot veturinn ’82-’83 þurfa að berast fyrir 15. ágúst 1982. Dagvistarfulltrúi. Starfsmenn endurhæfingastöðvarínnar, fv.: Vilhjálmur Ingi, María og Hösk- uldur. End u rhæf i ngarstöð i n hefur tekið til starfa Þann 2. júlí síðastliðinn tók formlega til starfa á Akureyri Endurhæfingarstöðin sf., sem er til húsa að Glerárgötu 20, 2. hæð. Þar starfa þau María Hrólfs- dóttir, Höskuldur Höskuldsson sjúkraþjálfari og Vilhjálmur Ingi Arnason sjúkranuddari. Trúnað- arlæknir stöðvarinnar er Halldór Halldórsson læknir. í Endurhæf- ingarstöðinni fer fram almenn sjúkraþjálfun og er tekið á móti sjúklingum samkvæmt tilvísun lækna. Sjúkrasamlög og Trygg- ingastofnun ríkisins taka þátt í meðhöndlunarkostnaði. Það eru nokkur nýmæli að rekstur af þessu tagi sé á vegum einkaaðila; fremur hefur verið um að ræða ýmis félagasamtök, t.d. Sjálfsbjörg og fleiri og í tengslum við opinbera heilbrigðisþjónustu. Mjög mikið hefur verið að gera í Endurhæfingarstöðinni sf. strax frá byrjun. Frá stofnfundi ferðafélagsins, á Jónsmessunótt ■ fyrra. Ferðafélagið Hörgur: Endurbyggja Baugasel Það var á Jónsmessunótt í fyrra, að stofnað var ferða- félagið Hörgur. Stofnfundur- inn fór fram á nokkuð óvenju- legum stað, af slíkum fundi að vera, nefnilega að Baugaseli í Barkárdal. Félagar í ferðafélaginu mættu aftur í Baugasel á Jónsmessumótt nú í ár, þar sem var góðra vina fundur á góðri stund. Skemmtu félagar sér við sögur, ljóð og söng, frá fornri tíð í Baugaseli. Og þar er yngri kynslóðin á marga full- trúa í félaginu var farið í hina ýmsu leiki. Að sjálfsögðu var drukkið kaffi og snætt með því - og á boðstólum var mysa handa þeim er hana vildu. Baugasel er gamalt eyðibýli sem má muna sinn fífil fegri, og í sumar hyggjast ferðafélagar gera endurbætur á bænum, og er það nokkuð mikið verk er bíður þeirra. Mun það að mestu verða unnið í sjálfboðavinnu, auk þess sem félagið hefur leitað til nokkurra aðila eftir fjárstyrk, og hefur verið brugðist vel við. í fyrri viku gekk Bjarni Guð- leifsson, formaður félagsins, við annan mann Hólamannaleið hina fornu. „Þessi leið hefur ekki verið gengin oft á undanförnum árum,“ sagði Bjarni ístuttu spjalli. „Leið- in liggur upp úr Barkárdal, upp á Barkárjökul, gegnum Hóla- mannaskarð og upp á Tungna- fellsjökul, þar sem við gistum í skála sem settur var upp í vetur, á vegum ferðafélags Svarfdæla. Síðan héldum við áfram niður að Hólum. En þar eð var dimm þoka þennan dag hugðumst við bíða uns létti, en af bví varð ekki þann- ig að við urðum of seinir á hátíða- höldin að Hólum. Þessi leið er í allt tíu tíma gangur - við vorum fimm tíma upp að skálanum á Tungnafellsjökli, og fimm tíma niður að Hólum.“ Gönguferðir voru margar farnar á vegum félagsins í fyrra, auk þess bílferðir. Pá hélt féíagið kvöldvöku sem var vel sótt. Síð- astliðinn vetur voru farnar nokkr- ar skíðaferðir, en ekki voru þær sérlega vel sóttar. í sumar mun starfið verða með svipuðu sniði, auk þess sem farið verður í reið- túra. Félagar í Ferðafélaginu Hörgur eru alls um 80 talsins, og auk Bjarna formanns eru í stjórn þeir Guðmundur Skúlason á Staðar- bakka, gjaldkeri, og ívar Ólafs- son í Gerði, er ritari 8 - ÐAGUR - YQ:júlít982

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.