Dagur


Dagur - 16.07.1982, Qupperneq 2

Dagur - 16.07.1982, Qupperneq 2
LESENDAHORNIÐ Komið með radar í Norðurgötu Reiður lesandi hringdi: Ég vil krefjast þess að viðkom- andi yfirvöld gefi á því opinber- lega skýringu hvers vegna Gránufélagsgötunni hefur verið lokað við Norðurgötu. Pessi lokun kemur okkur sem búum þarna nærri og höfum að því hag að gatan sé opin mjög svo á óvart og þetta kemur sér reyndar mjög illa. Sú skýring sem látið hefur verið í skína að þarna sé hættuleg áreksturshorn fær ekki staðist, það eru mörg hættulégri umferðarhorn í bæn- um sem enn eru opin fyrir umferð. Ég held að viðkomandi yfir- völd ættu að sjá sóma sinn í því að fylgjast frekar með umferð- inni um nærliggjandi götur. Pað væri sennilega verðugt verkefni fyrir lögregluna að fara með rad- arinn sinn niður í Norðurgötu og mæla hraðann sem er á bílum sem þar aka, heldur en að hanga með radarinn öllum stundum í Glerárgötunni og sekta menn þar í stórum hópum. Þar er breið gata sem þolir hraðakstur en Norðurgatan er ein allsherjar slysagildra. Ég hef heyrt það á fjölda manns í nágrenni við mig að þeim finnst þessi lokun Gránu- félagsgötunnar hrein firra cg vitleysa en það er það minnsta sem við getum farið fram á að okkur verði gefnar á því alvöru skýringar hvers vegna þetta var gert, en ekki eitthvert yfirklór sem ekkert útskýrir. Fleiri en unglingar sem fremja afbrot Jóhann Jóhannsson hafði sam- band við blaðið: Dóttir mín sem er 19 ára gömul varð heldur en ekki óánægð er hún lasfrétt í Degi sl. þriðjudag. Þar er greint frá stuldi úr tjaldi tveggja Dana á tjaldstæðinu á Akureyri og í lok fréttarinnar er birt beiðni frá tjaldstæðisverðin- um þar sem segir svo: „Tjaldstæðisvörðurinn á Ak- ureyri bað Dag um að koma því á framfæri, og vildi sérstaklega biðja fólk um að veita upplýsing- ar ef það rækist á unglinga sem hefðu einhverja hluti í fórum sínum, sem hugsanlega gætu verið tengdir þessu máli.“ Dóttir mín og sonur voru mjög óánægð með þetta orða- lag, því hver veit um það áður en málið hefur verið upplýst hvort unglingur eða unglingar hafa verið þarna að verki? Það eru nefnilega ekki unglingar ein- göngu, sem fremja afbrot, full- orðið fólk gerir það nefnilega engu síður. En mönnum hættir til þess að skella öllu á ungling-. ana, sem aflaga fer án þess að kanna málin áður, og svo er tal- að um unglingavandamál. Ekki tími tíl að siirna fólki Langeygur skrifar: Mikið er ég orðinn langeygur eftir því að þjónustan á pósthús- inu á Akureyri fari að lagast. Á dögunum kom ég þar inn. Af fimm afgreiðslulúgum voru þrjár opnar og vart minna en þrjátíu manns sem beið eftir af- greiðslu. Fljótlega var einni lúg- unni lokað og aðens tveir af fimm voru við afgreiðslu, sem að vonum gekk ferlega hægt. Því miður virðist þetta oftast vera með þessum hætti hjá þessari stofnun, þ.e. svo mikið virðist vera að gera í skjalavafstri innan afgreiðsluborðsins að ekki gefst tími til að sinna fólki. Það er jafnvel eins og álagið innan borðs aukist stórlega um leið og afgreiðsluþörfin eykst. Þetta er kannski óianngjarnt, en starfs- menn og yfirmenn á pósthúsinu ættu að hugleiða það, hvort af- greiðslumálunum mætti ekki vera betur háttað. Þetta getur orðið dýr trassamennska Þórir hringdi og bað um að því yrði komið á framfæri við bygg- ingaraðila og aðra sem ynnu með hamar og nagla, að hafa hugfast tjónið sem af kann af hljótast ef ekki er gengið snyrti- lega um. Hann kvaðst hafa að morgni 18. júní tínt fullt af nögl- um upp af Ráðhústorgi. Þar hafði kvöldið áður verið 17. júní-skemmtun og þegar pall- arnir voru rifnir niður hafði greinilega ekki verið hugað að því að hreinsa til á eftir. Þá kvaðst hann nýlega hafa verið á gangi um Furuvelli. Þar skammt frá er verið að slá upp fyrir bygg- ingu og þar á götunni fann hann átta fírtommunagla. Það væri ekki að sökum að spyrja ef þess- ir gaurar lentu í hjólbörðum bíla. „Þetta getur orðið dýr trassamennska," sagði hann og er hér vakin athygli á þessu, því hreinlæti kostar oft lítið meira en sæmilega hreint hugarfar og tillitssemi við náungann. Mér þyklr þetta skrifað af fúllyndi SP hringdi, og var ekki sátt við grein þá er birtist í Degi fyrir skömmu undir fyrirsögninni: Hver er þessi bær, Akureyri? „Hver þykist þess umkominn að skrifa um starfsfólk frysti- hússins, eins og þar er gert? Mér þykj a þessi skrif bera vott um vankunnáttu og fáfræði.“ SP sagði að í greininni væri ráðist með óhróðri á það fólk sem vinnur þýðingarmestu störfin í landinu, störf sem blaðasnápar og annað fólk lifi góðu lífi á. „Það er ekki skemmtilegt innræti í svona skrifum. Mér þykir þetta skrifað af „fúllyndi", og í hæsta máta óskammfeilið."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.