Dagur - 16.07.1982, Blaðsíða 6
„Við étum
óheyrilega
mikið miðað við
„venjulega44
menn“
langt árabil stundað íþróttir og
náð langt. Enn stundar hann
golf af kappi og er í hópi þeirra
bestu á Akureyri. Nú, ekki má
gleyma bræðrum þeirra.
Hjörtur, sem er þeirra elstur, er
margreyndur landsliðsmaður í
lyftingum og frjálsum íþróttum,
Alfreð fastamaður í íslenska
handknattleikslandsliðinu og
Gunnar státar af því að vera
kominn í landslið okkar bæði í
handknattleik og knattspyrnu.
Tvíburarnir eru yngstir af
bræðrunum í fjölskyldunni, en
eiga eina yngri systur.
Og þeir voru 12 ára, þegar
þeir fóru fyrst á æfingu, þar sem
menn voru að takast á við lóð.
Hjörtur bróðir þeirra veitti
þeim fyrstu tilsögnina.
„Við vorum mest í því til að
byrja með að horfa á og fylgjast
með, en auðvitað vildum við
líka fá að lyfta. Þess vegna feng-
um við lóð, sem við máttum
spreyta okkur á, en Hjörtur
gætti þess vel, að það væru ekki
nema svona 25 kg, sem við lyft-
um í einu. Ég man eftir því, að
hann þurfti einu sinni að bregða
sér frá, og þá setti ég 5 kg í við-
bót á lóðin. Ég fékk heldur betur
reiðilesturinn, þegar hann kom
rtil baka,“ segir Garðar.
„Kastað út“
- Og fyrsta mótið var sögulegt,
var það ekki?
„Jú, ogekki síst áðurenmótið
sjálft hófst. Þetta var unghnga-
meistaramót íslands í kraftlyft-
ingum í Reykjavík og eins og
venja er, voru keppendur vigt-
aðir fyrir keppnina. Það var búið
að vigta Gylfa, og síðan var kall-
að á Garðar Gíslason til vigtun-
ar. Ég kom þarna sakleysið upp-
málað og ætlaði að stíga á vigt-
ina, en þá var mér sagt, að það
væri búið að vigta mig og mér
var hreinlega hent út. Ég gafst
ekki upp og fór inn aftur, og
áður en þeir gátu hent mér út,
tókst mér að stynja upp, að ég
væri tvíburi, og þeir væru bara
búnir að vigta hinn tvíburann,
sem væri alveg eins.“
Borða ekki hvað sem er
- Hafið þið góða matarlyst?
„Við brennum geysilega
miklu á æfingum og léttumstiá
venjulegri æfingu um 2-3- kg.
Það er því alveg augljóst, að við
þurfum að borða mikið, en við
Ég býð þeim sæti, og að því
loknu verð ég að spyrja þá,
hvor sé hvor. Þeir eru nefni-
lega tvíburar, Garðar og Gylfi
Gíslasynir, og það er ekki
fyrir hvern sem er að þekkja
þá í sundur. Þeir segja til sín
og brosa varla, eru greinilega
vanir því, að fólk þekki þá
ekki í sundur.
Tvíburarnir Garðar og Gylfi
eru 19 ára að aldri, og eru þegar
komnir í fremstu röð lyftinga-
manna á ísiandi og í allra
fremstu röð unglinga á Norður-
Iöndum. Báðir eru þeir um 1,75
m á hæð og vega um 90 kg. Þeir
hafa þó ekki alltaf verið mjög
miklir um sig, þegar þeir komu í
heiminn tveimur mánuðum fyrir
tímann, voru þeir ekki nema 8,5
merkur samtals. En ég spyr þá
fyrst, hvort það hafi ekki margt
skemmtilegt gerst sökum þess,
hversu líkir þeir eru, og það er
Garðar, sem svarar.
„Plötuðum ömmu“
„Þeir sem umgangast okkur
mikið þekkja okkur allir í
sundur, en við höfum platað
ýmsa samt sem áður. Þegar við
vorum smápollar, átti amma
okkar heima í næsta húsi, og
henni gekk erfiðlega að þekkja
hvor var hvor. Ég fór einu sinni
til hennar, og hún gaf mér epli
og appelsínu, og bað mig að taka
annan skammt fyrir Gylfa. Ég át
þetta auðvitað allt sjálfur, og fór
síðan aftur til ömmu og sagði
henni, að Gylfi hefði fengið
einni appelsínu meira en ég.
Hún gaf mér eina í viðbót, sem
ég át, en ég held, að henni hafi
ekkert litist á blikuna, þegar
Gylfi kom til hennar og sagðist
vilja fá eitthvað, því að Garðar
væri búinn að fá 5 appelsínur og
epli. “
- Platið þið stelpurnar með
þessu?
„Það hefur komið fyrir, en
eigum við nokkuð að vera að
ræða það? En það kemur oft
fyrir, að ef Gylfi hefur farið á
ball og hitt fólk, að það fer að
ræða við mig um hluti, sem ég
kannast ekkert við, og ég kann-
ast þá jafnvel ekkert við fólkið.
Þá er um að gera að segja bara
já og já við öllu og passa sig
að láta ekki sjá, að maður er að
plata. Það getur verið nokkuð
gaman að þessu."
„Alltaf einhver ónot“
- En hvernig er það með svona
stæðilega menn eins og þið eruð,
verðið þið ekki fyrir ónæði, þeg-
ar þið farið að skemmta ykkur
t.d.?
Nú er það Gylfi, sem svarar:
„Það er nú svo, að ef vel ætti að
vera, þyrfti maður að lemja frá
sér á hverju balli, sem maður fer
á. Það eru alltaf einhverjir að
hreyta einhverjum ónotum í
mann og jafnvel að reyna að fá
mann til að slást. En það er ekki
nema eitt, sem þýðir að gera við
þessu, það er að láta sem maður
heyri ekki og sjái ekki.“
Og Garðar tekur við: „Þetta
eru ekki bara unglingar. Stund-
um koma gamlir karlar og fara
að grobba sig af því, hvað þeir
hafi verið sterkir hér áður fyrr,
þeir hafi getað lyft þetta og þetta
þungum síldartunnum og fleira í
þeim dúr. Og sumir segja okkur
í trúnaði, að heima fyrir eigi þeir
son, sem sé alveg svakalega
sterkur, alveg örugglega mikið
sterkari en við. Við því erekkert
að segja annað en að óska við-
komandi til hamingju. Og svo
eru það þessir, sem vilja ólmir
komast í sjómann við okkur,
þeir skipta tugum á hverju balli,
en fá fæstir að spreyta sig. Við
förum nefnilega hvorki á ball til
þess að slást eða fara í sjómann,
og ég segi það alveg hreint út, að
ég myndi aldrei slá mann að
fyrra bragði.“
í þróttafj ölsky Ida
Þeir Garðar og Gylfi koma úr
mikilli íþróttafjölskyldu. For-
eldrar þeirra eru Aðalheiður Al-
freðsdóttir og Gísli Bragi Hjart-
arson, en Gísli Bragi hefur um
MYND: K.G.A.
Freyr Aðalsteinsson er vanari því að lyfta sjálfur en að láta lyfta sér. Hér hafa tvíburarnir hinsvegar náð taki á honum og lyft honum
upp. Það hefur, ef að líkum lætur, ekki verið erfitt fyrir þá.
pössum okkur á því að borða
ekki hvað sem er. En miðað við
„venjulegan“ mann borðum við
óheyrilega mikið. Hjörtur
bróðir okkar hefur ráðlagt okk-
ur mikið varðandi ýmislegt sér-
fæði, sem við borðum mikið af.
Það er mötuneyti í Vélsmiðj-
unni Odda, þar sem við vinnum,
og við fáum okkur yfirleitt tvo
skammta af því, sem þar er á
borðum. Gulrætur eru í miklu
uppáhaldi hjá okkur og í vetur
vöktum við athygli fyrir það í
skólanum, þegar við komum
með stóran poka af þeim í skól-
ann og átum allt úr honum, og
bættum svo öðru eins á okkur,
þegar við komum heim.
Við reynum að láta pylsur og
hamborgara og svoleiðis mat
vera, höllum okkur frekar að
rúgbrauðinu og öðru í þeim dúr.
Það skiptir okkur heilmiklu
máli, hvað það er sem við
étum.“
Útrás
- Hvað fáið þið út úr þessu öllu
saman, æfingunum og öllu, sem
er í kringum þetta?
„Við höfum bara gaman af
þessu, fáum útrás. Við höfum
það ekki eins og margir j af naldr-
ar okkar, sem ekki eru í íþrótt-
um að fá útrás með slagsmálum
niðri í bæ. Þeir sem þar slást eru
nær undantekningarlaust þeir,
sem ekki stunda íþróttir og fá út-
rás í þeim. Við fáum okkar útrás
í lyftingunum og í því, sem þeim
tilheyrir og það er okkur nóg.“
- Nú eru þeir margir, sem
vilja meina, að lyftingarnar séu
alls ekki nein íþrótt, þetta sé
bara „bolagangur“ svokallaðra
„kraftidíóta“.
„Fólk hefur enga hugmynd
um það, hvað lyftingarnar eru
og hvað liggur að baki, ef árang-
ur á að nást. Æfingarnar hjá
okkur fara í leikfimi, teygjuæf-
ingar, nudd og lyftingar, og þeg-
ar við lyftum, þá gerum við það
eftir sérstöku kerfi. Þetta er allt
saman þrautskipulagt og verður
að vera það, ef árangur á að
nást. Það hefur jafnvel komið
fyrir, að fólk, sem hefur komið
inn á æfingar til okkar, hefur
sagt að þetta væri bara rugl og
vitleysa. Okkur er svo sem
sama, en ég leyfði einum, sem
var að trufla okkur á æfingu með
svona athugasemd, að prófa.
Lét hann hafa örfá kg á stöng-
ina, sagði honum að lyfta því yfir
höfuðið og beygja sig síðan með
það, eins og við gerum, þegar
við erum að æfa og keppa. Þetta
voru ekki það mörg kg, að hann
gat lyft því yfir höfuðið á sér, en
þegar hann þurfti að beygja sig
niður með lóðin, gerðist það,
sem ég vissi, að myndi gerast,
hann kútveltist í gólfinu og var
heppinn að slasa sig ekki á lóð-
unum. Þarna skildi nefnilega á
milli hans og okkar, að því leyti
að við kunnum þá tækni, sem til
þarf til að geta lyft,“ segir
Garðar.
„Fólk sem heldur því fram, að
við séum einhverjir bolar, sem
getum ekkert nema lyft af
kröftum, veit ekkert hvað það er
að segja. Það er t.d. sagt, að
snörun, sem er önnur keppnis-
greinin í olympiskum lyftingum,
sé mesta tæknigrein allra íþrótta
og við leggjum geysilega mikið á
okkur við alhliða þjálfun auk
þess sem við liggjum yfir erlend-
um ritum og reynum á þann hátt
að'auka þekkingu okkar á tækn-
inni, sem verður að vera fyrir
hendi, ef árangur á að nást,“
segir Gylfi.
Lyfta samtals 40-80
tonnum á æfíngu
- Hvernig æfið þið?
„Við æfum fjórum sinnum í
viku, um 3 klukkutíma í senn.
Talsverður hluti æfinganna er
leikfimi, teygjur, nudd og alls
kyns uppbyggjandi æfingar og
við förum aldrei að lyfta, fyrr en
við erum búnir að undirbúa
líkamann fyrir þau átök, sem í
vændum eru. Það er dálítið
misjafnt, hvernig lyftingaæfing-
arnar eru, fer eftir því, hvort
langt er í mót eða stutt. Það má
segja, að við lyftum aldrei mestu
þyngdum, sem við getum, fyrr
en rétt áður en við förum í mót.
Við erum því oftast með mun
minna á stöngunum, en við gæt-
um ráðið við, en við lyftum eftir
ákveðnum reglum. Byrjum
hugsanlega með 50 kg og lyftum
því á ákveðinn hátt þrívegis, för-
um síðan í 60 kg og gerum eins,
og alltaf erum við að reyna á
ákveðna vöðva. Það er ekki gott
að lýsa þessu í blaðaviðtali, en á
hverri æfingu lyftir hvor okkar á
bilinu 100-140 lyftum og
þyngdin, sem hvor okkar lyftir,
er á bilinu 20-40 tonn.“
Þá höfum við það, og senni-
lega yrði ekki mikið úr svoköll-
uðum hraustum karlmanni eftir
slík átök. En þetta þarf að leggja
á sig, ef árangur á að nást, og
þeir bræður hafa þegar 19 ára
skipað sér á bekk með bestu lyft-
ingamönnum Norðurlanda.
Gylfi á samtals 320 kg í
olympiskri tvíþraut (snörun og
jafnhöttun) og Garðar 319. ís-
landsmeistaratitlar þeirra eru
orðnir margir og Garðar státar
einnig af titli Norðurlandameist-
ara unglinga. En hver eru tak-
mörk þeirra, hvað ætla þeir að
lyfta þungu?
Gylfi: „Ég á mér eitt takmark
eins og er, og það er að jafnhatta
200 kg, áður en ég verð 21 árs,
en þá verð ég ekki lengur gjald-
gengur í unglingaflokki.“
Garðar: „Draumurinn hjá
mér er að lyfta 160 kg í snörun
og 200 kg í jafnhöttun.“
„Auðvitað kvenfólk“
Þeir Gylfi og Garðar stunda
báðir nám í járnsmíði hjá Vél-
smiðjunni Odda og ljúka námi
næsta ár. Nær állur þeirra frítími
fer í æfingar og annað, er tengist
þessu áhugamáli þeirra. En um
hvað talið þið í vinnunni, lyft-
ingar?
„Stundum tölum við um lyft-
ingar og það eru fleiri lyftinga-
menn, sem vinna hjá Odda, en
við t.d. Jóhannes Hjálmarsson
og Freyr Aðalsteinsson. En
blessaður vertu, við tölum um
allt mögulegt, það kemst fleira
að en lyftingar hjá okkur."
- Hvaða önnur áhugamál
hafið þið?
Báðir í kór: „Það er auðvitað
kvenfólk, og íþróttir yfirleitt.
Við komum úr íþróttafjöl-
skyldu, þar sem alltaf var talað
um íþróttir, og við erum miklir
íþróttaáhugamenn, þótt lyfting-
arnar beri að sjálfsögðu hæst.“
Búa enn heima
- Þið nefnduð kvenfólk, gengur
ykkur betur að eiga við stelpurn-
ar af því að þið eruð svona
vöðvabúnt og eruð þekktir?
„Við höfum ekki yfir neinu að
kvarta, en annars erum við engir
sérstakir kvennamenn. Við hitt-
um líka oft stelpur, sem eru á
móti okkur af því að við erum í
lyftingum, þótt þær þekki okkur
ekki neitt. Og alltaf heyrum við
einhverjar sögur um okkur. Ein,
sem við höfðum mjög gaman af,
var t.d. þannig, að við ætum svo
mikið, að pabbi og mamma
hefðu sagt, að nú væri komið
nóg og sagt okkur að fara að
heiman. Og auðvitað var botn-
inn á sögunni þannig, að við vær-
um farnir að búa saman úti í bæ.
En við búum hjá foreldrum okk-
ar í góðu yfirlæti eins og hingað
til og það fer vel um okkur.“
Nú ventum við okkar kvæði í
kross og fórum að tala um lyft-
ingar. Sá sem þetta skrifar var að
sjálfsögðu í hlutverki hlustanda.
Það var rætt um „tog“ - „púss“
og margt, margt fleira og greini-
legt að þarna voru þeir tvíbura-
bræður í essinu sínu. Ég slökkti
hins vegar á segulbandinu og
hlustaði af athygli. gk-.
4 rúsínur í sö imu pylsunni
Stórkostlegt r/ ferðatilboð
KAUPMANN AHAFN ARFERÐIR: Glæsiferð 2-7. september: 5 daga ferð til borgarinnar við sundin. Gefur möguleika til skoðunarferða, skemmtana og verslunar þegar útsölurnar standa sem hæst hjá dönskum. Verð kr. 6.800. Innifalið: Beint flug Akureyri - Keflavík - Kaupmannahöfn - Akureyri. Hótelgisting með morgunverði. Amsterdamferðir: Hér kemur laukurinn: Vikulegar ferðir. Einstakt tækifæri til að heimsækja þessa sérstæðu, hollensku borg. Brottför alla föstudaga. Verðkr. 6.173. Innifalið: Flug Akureyri - Reykjavík - Amsterdam - Reykjavík - Akureyri. ’ Tvær skoðunarferðir um borgina og nágrenni og hótelgisting með morgunverði.
Tívolí-ferðir um allar helgar frá föstudegi til mánudags: 3ja daga fjölskylduferð. Gefur möguleika á að fara í Tívolí, á Bakkann, í Dýragarðinn o.fl. Verð kr. 4.770 fyrir fullorðna og kr. 1.250 fyrir börn. Innifalið: Flugferðir Akureyri - Reykjavík - Kaupmannahöfn - Reykjavík - Akureyri. Hótelgisting með morgu^verði. Og svo kemur loks rúsínan í pylsuendanum: Mallorca 13. september til 29. september: Farið verður um Kaupmannahöfn. Verðkr. 8.900. Innifalið: Flug Akureyri - Keflavik - Kaupmannahöfn - Palma - Kaupmannahöfn - Akureyri. Hótelgisting með morgunverði á Hótel Playa Cala Mayor í tvær vikur.
Komið, hríngið og Ferðaskrifstofa Akureyrar leitiðupplýsinga. sWLV simi2500°-
6 - DAGUR - 16. júlí 1982
16. júlí 1982- DAGUR — 7