Dagur - 16.07.1982, Síða 8

Dagur - 16.07.1982, Síða 8
Þorvaldur Þorsteinsson Erindið sem Hreggviður Njálsson flutti aldrei Gott kvöld hlustendur góðir. Þjóðfélagið er að fara í hund- ana. Verðbólga, atvinnuleysi, kjararýrnun og skuldasöfnun er einkenni nútímans og dragbítur á framkvæmdir framtíðarinnar. Höfuðorsök þessa og jafnframt stærsta mein íslensks efnahags- lífs er aðgerðarleysi, úrræða- leysi, framtaksleysi og heilaleysi núverandi þingmanna og ráð- herra. Þessir menn hafa ekki til að bera þann ungmennafélags- anda sem heilbrigðu íslensku al- þýðufólki er í blóð borinn. Þeir eiga hvorki til kjark víkinganna né festu Jóns Sigurðssonar. Þeir bíta aldrei í skjaldarendur, mót- mæla aldrei allir og eru víðs fjarri því að vera sannir íslend- ingar. Þeir eru verðbólguhvetj- andi. Ég hef lengi verið í stjórn Ungmennafélagsins Friðjóns sterki, m.a. gjaldkeri í sjö ár. Allir félagsmenn geta borið um það að blómlegri tíð hefur ekki þekkst hjá ungmennafélaginu en einmitt þau hin sömu ár. Svo dæmi sé tekið festi félagið fyrir nokkru kaup á notuðum fjölrit- ara og þrem tylftum af stenslum. Með elju og kappi hefur mér einnig tekist að rífa félagið upp úr þeirri skuldasúpu sem forveri minn kom því í. Hann er nú út- gerðarmaður á Suðurnesjum. Það er mál manna að ég sé út- sjónasamasti, traustasti og gáf- aðasti gjaldkeri sem hreppurinn hefur alið. Það er því engin til- viljun að ég hef nú verið kvadd- ur til leiks í þáttinn „Um daginn og veginn" og beðinn að gera grein fyrir áliti mínu á efnahags- vanda þjóðarinnar. Áhugi minn og reynsla í fjármálum hefur kennt mér að nálgast vandann með réttu hugarfari, skoða hann raunsæjum augum og setja loks fram þá kenningu sem réttust er til lausnar. Ég hef auk þess lagt eyrun við, skynjað vilja fólksins og hjartslátt þjóðarinnar. Kenn- ing mín er því ekki einungis til fyrir yfirvaldið, hún er fyrir alla, til bjargar öllu. Þegar efnahagsvandi þjóðar- innar er rannsakaður er ekki nægilegt að gára yfirborðið og busla við bakkann. Það þarf að sigla út á hann miðjan, kafa þar til botns og finna uppsprettuna sjálfa, hina sírennandi lind sem enginn hefur haft rænu á að ráð- ast á fyrr. Ég hef því unnið brautryðj- endastarf sem marka mun tíma- mót í efnahagsþróun landsins. Lausn mín á efnahagsvanda þjóðarinnar er í stuttu máli þessi: Ríkið þarf að rétta við sjávar- útveginn, landbúnaðinn og iðn- aðinn með ríflegum styrkjum og aukafjárveitingum. Þessar undirstöðuatvinnugreinar þjóð- arinnar eru forsenda þess að atvinnuleysi haldist í lágmarki og almenn hagsæld sé tryggð til sjávar og sveita. Stórbæta þarf félagslega þjón- ustu, heilbrigðis- og menntak- erfi. Tryggingakerfi þarf að bæta og stórauka verður styrki til íþróttamála. Bæta verður dagskrá útvarps og sjónvarps. Hlúa verður að verslun í land- inu og greiða verður upp allar erlendar skuldir sem stöðugt virðast vera að aukast. Stytta verður vinnutíma og jafnframt þarf að hækka öll laun ríflega. Ríkisafskipti verður að skera niður, stórlækka þarf skatta og gjöld. Fjármagn í einkaeigu má ekki skerða, né heldur það lausafé sem fólk hefur hugsanlega milli handa. Kaupmátt verður að auka. Leggja þarf niður verðbólgu. Hreggviður Njálsson, gjaldkeri Ungmennafélagsins Friðjón sterki. DAGDVELJA Bragi V. Bergmann Myndaþraut Brandarar Sex þessara bfla eiga eitthvert eitt atriði sameiginlegt, sem gerir það að verkum, að setja mætti þá saman í einn flokk. Sjöundi bfllinn sker sig úr. Hvaða bfll er það og hvers vegna? Lausn bls. 10. Hver einasta skáldsaga, sagði kennarinn, skal innihalda trúleika, eilítinn kærleik og einhvern leyndar- dóm. Nokkrum mínútum síðar var ein af stúlkunum tilbúin með sína skáld- sögu. Kennarinn las hana fyrir bekkinn: - Góði Guð, ég er ófrísk, hver er faðirinn? ☆ ☆ ☆ Anna litla kom þjótandi heim úr skólanum. - Mamma, mamma, ég lærði svo- lítið nýtt í skólanum i dag. Þú átt að taka nýjan eldspýtnastokk, kveikja á einni eldspýtu, slökkva á henni og leggja hanasíðan í eldspýtnastokk- inn aftur. Mamman gerði eins og Anna litla sagði. Síðan sagði Anna: - Haltu núna eldspýtnastokknum upp að eyranu, og þá heyrist eins og sé verið að leika fótbolta! Mamman sagði nú bara, að hún heyrði alls ekki neitt. - Nú? Þá hlýtur að vera hálfleik- ur. .. ☆ ýV ☆ Kennarinn: Hvernig getur þú sannað, að jörðin sé hnöttur? Stína: Ég hef aldrei sagt, að hún væri það ... Kennarinn var að fræða börnin um fæðingar og sagði meðal annars, að það væri ekki óvenjulegt, að börnin fæddust nokkrum dögum of snemma eða of seint. Þá rétti Palli litli upp höndina og sagði: - Tja, ég var svei mér heppinn að fæðast akkúrat á afmælisdaginn minn... ☆ ☆☆ „Hvað er gufa, Kalli?" „Vatn, sem svitnar." Rökþraut A B C D E F G H I J K L M N O A C E L N I J M K F D B Myndin hér að ofan er ófull- gerð. Bókstöfunum er þó augljóslega raðað upp eftir stafrófsröð, svo að það er p, sem á að koma í auða reit- inn. Seinni myndin sýnir stafi, sem settir hafa verið inn eftir ákveðinni reglu. Reyndu að finna út, hver reglan er. Með öðrum orðum, hvaða stafir eiga að koma í auðu reitina? Lausn bls. 10. 8 - PAQUR - I6.júlí1982

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.