Dagur - 27.07.1982, Blaðsíða 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA-
SKRÍNUM
GULLSMIOIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 27. júlí 1982
80. tölublað
Hroða-
legt
ástand
- segir Bjami Jóhannes-
son um erfiðleika
togaraútgerðarinnar
íHrísey
„Ástandið er vægast sagt
hroðalegt og ég veit satt að
segja ekki hvernig þetta drusl-
ast svona lengi,“ sagði Bjarni
Jóhannesson, útgerðarstjóri
hjá KEA í viðtali við Dag um
rekstur Hríseyjartogarans
Snæfells, sem eins og önnur
togaraútgerð í landinu á nú við
mjög mikla örðugleika að etja.
Snæfell er í eigu Hríseyjar-
hrepps og Kaupfélags Eyfirð-
inga.
„Utgerðin væri löngu stopp ef
við hefðum ekki þann bakhjarl
sem KEA er. Við höfum ekki
fengið neina fyrirgreiðslu frá t.d.
byggðasjóði, þó margoft hafi ver-
ið farið fram á slíkt. Við vitum
hins vegar að aðrir utgerðaraðilar
hafa fengið þar mikla fyrir-
greiðslu. Það virðist vera erfiðara
fyrir fyrirtæki að leita til opin-
berra aðila ef samvinnuhreyfingin
á einhvern hlut að máli, heldur en
ef þau eru í annarra eigu,“ sagði
Bjarni Jóhannesson.
Rmm
nýbið-
skýli
Strætisvagnar Akureyrar áforma
nú byggingu 5 nýrra biðskýla. Að
sögn Jóhannesar Sigvaldasonar
formanns stjórnar SVA verða 3
þeirra staðsett í Glerárhverfi, 1 á
Eyrinni og 1 við Kaupangsstræti.
Einnig er væntanleg á næstunni ný
leiðabók strætisvagnanna í tengsl-
um við nýja leiðakerfið sem tekur
gildi í byrjun september. Fyrir-
hugað er að fjölga strætisvögnum
um 1 á næstunni.
Sólbaki lagt
um mánaðamótin
„Við höfum heimild til að nota
Sólbak út þennan mánuð, eftir
það verður honum lagt og lík-
lega er skipið til einskis nýtt
nema niðurrifs,“ sagði Gísli
Konráðsson, framkvæmda-
stjóri hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa í samtali við Dag. Nú er
verið að kanna möguleikana á
endurnýjun Sólbaks, þ.e.
kaupum á öðru skipi, en ekki
búið að taka neina ákvörðun
ennþá.
Sólbakur var smíðaður í Pól-
landi og ef að líkum lætur verður
hann fyrsti skuttogari - lands-
manna sem fer í brotajárn.
Endurnýjunarþörfin í togskipa-
flotanum er nú orðin brýn, því
margir fyrstu togaranna eru frá
svipuðum tíma og Sólbakur 1969.
Sléttbakur er t.d. smíðaður 1968 í
Noregi og Svalbakur 1969. Bæði
þessi skip eiga þó möguleika á
lengri lífdögum en Sólbakur. í>á
má geta þess að Snæfell frá Hrísey
er byggt 1969 og þörf talin á að
endurnýja það skip innan fárra
ára. Einnig hefur heyrst að Hús-
víkingar vilji fá nýtt skip í stað
Júlíusar Havstenn.
„Við höfum ekki verið að leita
að heppilegu skipi í stað Sólbaks,
en ekki gengið,“ sagði Gísli Kon-
ráðsson. „Smíði nýs skips tekur
1-2 ár og ljóst virðist að við verð-
um að fá skip í millitíðinni ef af
smíðum verður. Hins vegarsjáum
við ekki í dag grundvöll fyrir að
láta smíða nýtt skip, sem kostar
70-80 milljónir. Kostnaður við út-
gerð slíks skips er Ííklega um tvö-
föld tekjuhliðin. Eins og málin
standa í dag virðist því vænlegra
að reyna að kaupa notað skip á
skikkanlegu verði.“
„Væri ekki æskilegt ef ÚA gæti
keypt skip af Slippstöðinni og
þannig skapað atvinnu í
bænum?“
„Ef við förum út í nýsmíði vild-
um við ekkert frekar en láta
smíða skipið hér á Akureyri. Það
myndi kannski leysa einhvern
vanda á Slippstöðini en með því
væri aðeins verið að færa vandann
frá einum til annars. Fjárhags-
grundvöllur en ekki fyrir nýsmíði
ídag.“
Gísli sagði ennfremur, að það
horfði ekki beinlínis illa þó togur-
um UA fækkaði úr fimm í fjóra
um næstu mánaðamót og gæti það
gengið í 1-2 mánuði. Ha’nn sagði
að þeir vildu hins vegar ekki vera
til lengdar með færri skip en verið
hefðu. Því virtist nauðsynlegt að
leysa þetta mál fljótlega til bráða-
birgða a.m.k.
Húnn Snædalá TF-KEA, fíugvélsem hann smíðaði
sjálfur heima í stofu, sýndi lipurð á fíugdegi ásamt
mörgum fíeirum. Sjá miðopnu. Ljósmynd:-KGA.
Er þjófnaðurinn í
Hljómver að upplýsast?
Hörmulegt
banaslys
Sá hörmulegi atburður átti sér
stað s.l. sunnudag að 8 ára stúlka
hrapaði í gljúfrinu fyrir ofan
gömlu brúna yfir Glerá og mun
hún hafa drukknað í ánni.
Stúlkan hét Hrefna Björg Júl-
íusdóttir frá Kópavogi, og var
vistmaður á Sólborg. Frá því að
hún sást síðast við Sólborg og þar
til lík hennar fannst rétt ofan við
gömlu brúna yfir Glerá mun hafa
liðið innan við ein klukkustund.
„Það situr maður í gæsluvarð-
haldi vegna þessa máls, en mál-
ið er ekki að fullu upplýst.
Meira er ekki hægt að hafa eftir
okkur á þessu stigi,“ sögðu
rannsóknarlögreglumenn á
Akureyri er Dagur hafði sam-
band við þá í gær. Ungur piltur
hefur nú verið hnepptur í
gæsluvarðhald vegna þjófnað-
arins í verslunina Hljómver á
dögunum, en þaðan var þá stol-
ið hljómflutningstækjum.
Einnig var bifreið verslunar-
innar tekin traustataki og henni
ekið í sjóinn.
Samkvæmt þeim fregnum sem
Dagur hefur aflað sér og telja má
öruggar kom ungur piltur í versl-
unina Hljómver í síðustu viku.
Tjáði hann forráðamönnum
verslunarinnar að sér hafi verið
boðin hljómflutningstæki til
kaups, og voru það tæki sömu teg-
undar og stolið hafði verið úr
versiuninni.
í beinu framhaldi af því hand-
tók lögreglan pilt þann er situr í
gæsluvarðhaldinu. Hann mun
hinsvegar eftir því sem best er vit-
að neita aðild að þjófnaðinum, en
segist hafa fundið hljómtæki þau
er hér um ræðir.