Dagur - 27.07.1982, Blaðsíða 12
HÖGGDEYFAR
í FLESTA BÍLA
Veiði
glæðist
íLaxá
í gær var svokallaður „skipti-
dagur“ í Laxá í Aðaldal, en þá
voru að fara þaðan 24 veiði-
menn og aðrir að koma í þeirra
stað.
„Hollið" sem yfirgaf Laxá í gær
fór ekki með öngulinn í rassinum
heim. Veiðimennirnir höfðu með
sér frá ánni 72 laxa. Alls voru þá
komnir 535 laxar á land, en
veiðin hefur glæðst þó nokkuð að
undanförnu eftir mjög slaka
byrjun.
„Óþarfa
viðkvæmni"
Dagur birti í síðustu viku frétt
um óvenjumikinn fjölda um-
boðsauglýsinga frá Bæjarstjór-
anum á Akureyri og Dalvík og
sýslumanninum í Eyjafjarðar-
sýslu, sem birtust í Lögbirtinga-
blaðinu 14. júlí. Eftir að þessi
frétt birtist hafa nokkrir haft
sambandi við blaðið, allt menn
sem nauðungaruppboð var
auglýst hjá í umræddu blaði, en
allir höfðu þeir gert upp þær
skuldir sem að baki nauðungar-
uppboðsauglýsingunni lá,
löngu áður en hún birtist.
Dagur hafði samband við Eygló
Halldórsdóttir ritstjóra og
ábyrgðamann Lögbirtingablaðs-
ins og spurði hana hvort algengt
væri að slík mál kæmu upp.
„Það er talsvert um þetta, og ég
hef haft þann háttinn á að leyfa að
auglýsingum sé kippt út alveg
fram að því að búið er að setja
auglýsingar í prentsmiðjunni“
sagði Eygló. Ég get hinsvegar
ekki svarað fyrir það hvaða reglur
hin ýmsu embætti um allt land
sem senda auglýsingar til mín
setja sér í þessum málum. En ég
get ekki tekið auglýsingar út
nema til komi beiðni frá viðkom-
andi embætti.
Það er svo annað mál að það er
ekki nema örlítið brot af þeim
eignum sem auglýstar eru í blað-
inu sem lenda á uppboði, um 5%
reikna ég með. Mér finnst þetta
því alveg óþarfa viðkvæmni hjá
fólki og þeirsem lesa Lögbirtinga-
blaðið með því hugarfari að geta
síðan „smjattað" á óförum ann-
arra hafa ekki erindi sem erfiði.
Nýja viðbygging símstöðvar-
innar á Akureyri á samkvæmt
áætlun að verða fullbúin um
miðjan september næstkom-
andi, og verður þá unnt að
leysa úr þeim geysilega núm-
eraskorti sem hrjáir símstöð-
ina.
„Það komu þarna verkföll, og
þau og annað valda eflaust ein-
hverri seinkun,“ sagði Gísli Ey-
land stöðvarstjóri. „En við treyst-
um því að nýja stöðin komi fyrir
áramótin."
Gísli sagði að biðlistinn væri
orðinn langur, alls væru á honum
um 250 aðilar, og bættist á hann á
hverjum degi. „Þetta er orðið
geysilegt vandamál," sagði Gísli.
„Meiningin er að stækka úm 1000
númer, og það átti reyndar að ger-
ast á síðasta ári, en því var frestað
og við byrjuðum ekki á þessu fyrr
en í vor. Þannig að í raun erum
við einu ári á eftir.“
Ekki er hægt að lofa númerum
fyrr en í apríl á næsta ári, að sögn
Gísla. „Það er ekki nema einhver
flytji úr bænum, að losnar númer.
En það er eins og enginn sé að
flytja burtu - frekar að fleiri komi
hingað. Og þeir sem hafa númer
annarsstaðar á landinu, og flytja
hingað, eiga í rauninni að sitja
fyrir með að fá númer, en við höf-
um alls engin númer laus. Við
erum algjörlega vængbrotnir eins
og er.“
Viðbyggingin við símstöðina er að koma í Ijós, þegar slegið er frá.
Ljósmynd:-KGA.
Númerum
fjölgar
um 1000
Húsavík:
Næg atvinna
„Hér er næg atvinna. Togar-
arnir hafa aflað þokkalega og
eins togbáturinn sem hér hefur
verið á togveiðum. Einn grá-
lúðubátur seldi í Bretlandi fyrir
skömmu og 4 bátar eru á djúp-
rækju. Afli smábáta hefur ver-
ið mjög lélegur og muna menn
vart annað eins.“
Þetta sagði Bjarni Aðalgeirs-
son bæjarstjóri á Húsavík í sam-
tali við Dag fyrir skemmstu. Enn-
fremur sagði hann: „Nú er verið
að leggja síðustu hönd á smíði
dráttarbrautarinnar og kemst hún
væntanlega í gagnið í byrjun
ágúst. Verið er að byrja á allmikl-
um malbikunarframkvæmdum í
íbúðahverfum og eins er unnið að
tengingu malbiks aðalgötunnar í
gegn um bæinn við slitlag þjóð-
vegarins. Verið er að ljúka tvö-
földun stofnæðar hitaveitunnar
frá Hveravöllum og verður að
þeim framkvæmdum loknum
heita vatnið á Hveravöllum
fullnýtt.“
Bjarni sagði líka að fram-
kvæmdir væru hafnar við fyrsta
áfanga íþróttahússins, sökkul og
grunn, og væri meiningin að byrja
á öðrum áfanga í haust. Úr ná-
grannasveitunum sagði hann það
helst frétta að sláttur væri nú haf-
inn víðast og hefði sprettan ekki
verið með besta móti. „Hér í bæn-
um rekum við vinnuskóla fyrir
ungliftga allt að 15 ára aldri og
höfum tekið upp þá nýbreytni í
sumar að bjóða fólki aðstoð við
garðvinnu fyrir hæfilega þóknun.
Hefur þetta gefist vel fyrir hjá
fólki.“
Margir
Ijúka
heyskap
í vikunni
„Heyskapurínn gæti tæplega
gengið betur. Einstaka maður
er búinn að heyja. Aðrir eru
langt komnir og klára í þessari
viku ef tíðin helst óbreytt“
sagði Birgir Þórðarson bóndi á
Öngulstöðum í samtali við Dag
í gær. „Þetta er náttúrulega
misjafnt eftir því hvernig menn
eru iiðaðir og vel búnir til hey-
skapar en yfírieitt held ég að
menn séu búnir að slá og langt
komnir að þurrka.“
Að sögn Birgis gætu heyin varla
verið betri enda ekki mikið ýkt þó
'sagt væri að grasið þornaði á
ljánum. Yfirleitt væru túnin hirt
daginn eftir slátt. Hinsvegar væri
sprettan misjöfn og hey yfirleitt
minni en t.d. í fyrra. Kal væri
einnig töluvert víða og drægi það
úr heyfeng manna. „Þá hefur
hvassviðrið verið heldur til trafala
við heyskapinn“ sagði Birgir að
lokum.
# Sunnanátt-
illu heilli
Þrátt fyrir nokkra rigningu til
að byrja með, varð flugdagur-
inn vel heppnaður í alla staði,
og áhorfendur blotnuðu ekki
svo að skaði hlytist af. En svo
var mál petta vaxið, að 4 mán-
uðir eru síðan ákveðið var að
halda flugdag, og um 2 mán-
uðir síðan ákveðinn var laug-
ardagurinn 24. júlí. Hinsvegar
var flugdagsnefndarmönnum
alveg hætt að lítast á blikuna,
þegar sunnanáttin virtist hafa
sest að hjá okkur til frambúð-
ar, sökum þess að í sunnanátt
hefðu sýningaratriðin flest
farið fyrir ofan garð og neðan
hjá áhorfendum því þau
hefðu farið fram á nyrðri
brautarendanum. Sem hefði
verið lítið gaman.
# Norðanátt
samkvæmt
pöntun
Það gerðist hinsvegar fimm-
tán mínútum áðuren dagskrá
flugdagsins hófst, að vindur
snérist snögglega í norðan -
að vísu með þeim afleiðing-
um að flugvélar skemmdust -
en þar með gat dagskráín
gengið samkvæmt áætlun og
öll atriðin fóru fram og allir
voru hamingjusamir. En á
sunnudag snérist vinduraftur
og nú blæs sunnanáttin eins
og vitlaus sé. Þannig hefur
Fram til dala hafa verið skúra-
leiðingar öðru hvoru sem eitthvað
hafa tafið heyskap en þó er óhætt
að fullyrða að heyskapur hafi
gengið vel víðast hvar við Eyja-
fjörðinn burtséð frá lélegri
sprettu. í Hörgárdal og Svarfað-
ardal eru flestir vel á veg komnir
en á Árskógsströnd hefur spretta
verið með alminnsta móti og þar
eru menn skemmra komnir.
Að sögn Marons Péturssonar
hjá Búnaðarsambandi Skagfirð-
inga. Hefur heyskapartíð þar ver-
ið leiðinleg að undanförnu en
sprettan væri víðast hvar í Skaga-
firði með sæmilegasta móti. Slátt-
ur væri nær alls staðar hafinn og
sumir vel á veg komnir. Útlitið
væri því víðast bjart í heyskap-
armálum.
Austur í Þingeyjasýsu er sprett-
an víðast hvar mun minni en
venja er til en þar er heyskapur
nær alls staðar kominn á fulla
ferð.
hún látið undanfarið, nema
hvað flugdagsnefndin fékk
sfna pöntuðu norðanátt.
# Nýjabíö-
draumur
Því miður. Við höfum fregnað
að þrátt fyrir allar okkar stóru
hugmyndir um endurreisn
Nýja bíós, munu eigendur
þess hreint ekki hafa í huga
að endurnýja þar eitt eða
neitt. Þeir komu hreinlega af
fjöllum þegar þeir voru inntir
eftir framkvæmdum. Þetta
voru einungis draumórar
blaðamanns. Því miður.
# Stopp-eða
ekki?
Vegfarandi kom að máli við
tíðindamann S&S, og sagðist
ekki hafa ákveðið mái á
hreinu. Þannig hefði verið, að
sett hefði verið upp stöðvun-
arskilti við Krókeyrarstöð og
við Ferðanesti, þar sem götur
frá þessum stöðum liggja út á
Drottningarbrautina. Síðan
hafi þessi stöðvunarmerki
verið tekin niður, og sagði
vegfarandinn að sannarlega
hefði verið þörf fyrir þessi
merki. Að vísu voru þeir til
sem ekki virtu þau, en ekki
skánaði umferðin við að
merkin hyrfu. Væri fróðlegt að
fá að vita ástæðuna fyrir því
að merkin voru fjarlægð.