Dagur - 13.08.1982, Side 11
Okkar á milli
í hita og
þunga dagsins
— Frumsýnd á morgun í Reykja
vík, á Húsavík og Akureyri
Á morgun, laugardag, frum-
sýnir Hrafn Gunnlaugsson
kvikmynd sína, Okkar á milli í
hita og þunga dagsins. Frum-
sýningar verða á fjórum
stöðum, í Reykjavík í Laugar-
ásbíói og Háskólabíói, á
Húsavík og í Borgarbíói á Ak-
ureyri.
Þessi mynd hefur verið lengi í
framleiðslu miðað við íslenskan
mælikvarða, eða um tvö ár. Og
Hrafn hefur verið iðinn við að
valda íslendingum hugarangri,
því vart hefur hann sýnt þeim
kvikmyndir sínar, er þeir rísa
margir hneykslaðir upp á aftur-
fæturna og eiga ekki orð (en
tekst þó að fylla lesendadálk-
ana). Skemst er að minnast geld-
ingaratriðis í Óðali feðranna, og
Blóðrautt sólarlag kannast
sennilega allir íslendingar við.
Mönnum sýndist sitt hverjum
um þá mynd; margir lofuðu
hana upp í hástert, en aðrir voru
svo hneykslaðir að þeir læddust
með veggjum. Við Akureyring-
ar fengum Hrafn og fleira fólk í
heimsókn fyrir nokkru og úr
þeirri heimsókn var farið með
Vandarhögg, eftir Jökul Jakobs-
son. Og enn urðu nokkrir ís-
lendingar hneykslaðir, meðan
aðrir voru yfir sig hrifnir.
Hrafn hefur sagt um Okkar á
milli, að það sé sú mynd sem
hann hefur best gert, og allar að-
rar séu bara aukaatriði. Aðal-
persóna myndarinnar er verk-
Haraldur
sýnirí
kaffistofu
Kristjánsbakarís
Laugardaginn 14. ágúst kl. 14
opnar Haraldur Ingi Haralds-
son myndlistarsýningu í kaffi-
stofu Kristjánsbakarís Hrísa-
lundi 3 (gengið inn að vestan).
Þetta er 4. einkasýning Har-
aldar Inga sem allar hafa verið á
Akureyri. Á sýningu þessari
sýnir Haraldur 21 mynd sem
unnar eru með blandaðri tækni
en flestar eiga það þó sameigin-
legt að vera ljósmyndir, teikn-
ingar og málverk allt í senn, þar
sem teikningar eru færðar yfir á
ljósmyndapappír og málaðar
með olíulitum. Verð myndanna
er á bilinu 2-3000 kr.
Haraldur Ingi Haraldsson er
Akureyringur, sonur hjónanna
Haraldar M. Sigurðssonar og
Sigríðar Matthíasdóttur. Har-
aldur útskrifaðist úr Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1981 og
er á förum til Hollands þar sem
hann ætlar að stunda framhalds-
nám við listaakademíuna í Enc-
hede. Sýningin verður opin frá
14. til 24. ágúst, laugardaga og
sunnudaga frá 14-20 og virka
daga frá kl. 9 árdegis til 20.
Úr myndinni.
fræðingur, sem Benedikt Arna-
son leikur. Sá er staddur á tíma-
mótum í lífi sínu, hann fer að
verða þess var að hann er
kannski ekki alveg ómissandi í
starfinu og krakkarnir hans eru
að fara að heiman. „Þetta er
uppgjör þegar menn allt í einu
þurfa að staðsetja sig,“ sagði
Hrafn Gunnlaugsson í spjalli við
Dag fyrir skömmu.
Auk Benedikts Árnasonar
leika stór hlutverk í myndinni
Andrea Oddsteinsdóttir, Sirrý
Geirs, Valgarður Guðjónsson
(söngvari Fræbbblanna) og
fleiri. Hrafn samdi sjálfur hand-
ritið, kvikmyndun annaðist Karl
Óskarsson. Myndin er tekin
mjög víða, margar senur úr
þyrlu og margar gerast við virkj-
anir. Frægt varð Geysismálið
þegar Hrafn stóð fyrir því að fá
fram gos í hvernum.
Linda Daniels
í Sjallanum
Enska söngkonan Linda Dan-
iels mun skemmta gestum
Sjallans á Akureyri um helg-
ina. Hún kemur fram þar í
kvöld, annað kvöld og á
sunnudagskvöldið, og syngur
við undirleik Ingimars Eydal.
Linda Daniels er ensk sem
fyrr sagði. Hún hefur sungið
víða í Evrópu við góðar undir-
tektir, og að undanförnu hefur
hún skemmt gestum veitinga-
húsa í Reykjavík.
Hljómsveit Steingríms Stef-
ánssonar verður hljómsveit
Sjallans í kvöld og annað kvöld
og leikur til kl. 03. Á sunnudags-
kvöld er diskótek, en sem fyrr
sagði skemmtir Linda Daniels
öll kvöldin.
Nýja
bíó
Nú standa yfír sýningar á
bandarísku myndinni „For-
setaránið“ í Nýja bíó á Ak-
ureyri. Myndin fjallar um
rán á forseta Bandaríkjanna.
Með aðalhlutverk fara Will-
iam Shatner, Hal Holbrook
og Van Johndon.
Kl. 15 ásunnudag sýnirNýja
bíó Walt Disney myndina
„Fljúgandi furðuhlutur“,
bandaríska mynd í litum fyrir
alla fjölskylduna.
Og loks má geta um næstu
mynd sem sýnd verður í Nýja
bíó, en það er „Geðveiki
morðinginn", æsispennandi
ensk mynd í litum sem fjallar
um mann sem haldinn er geð-
veilu. Með aðalhlutverk í
þeirri mynd fara Deborah
Coulls, Chard Hayward og Lo-
uise Howitt.
Hólahátíðin 1982,
hátíð, verður haldin nk.
sunnudag og hefst með
klukknahringingu og skrúð-
göngu presta til Dómkirkju
kl. 13.45.
Kl. 14 hefst hátíðarguðþjón-
usta og þjóna þeir sr. Birgir Snæ-
björnsson, sr. Vigfús Þ. Árna-
son, sr. Sighvatur B. Emilsson
og sr. Sigurður Guðmundsson
vígslubiskup fyrir altari. Prédik-
un flytur sr. Stefán Snævarr
prófastur, kirkjukór Svarfdæla
syngur undir stjórn Ólafs
Tryggvasonar.
Barnasamkoma hefst í skóla-
húsinu kl. 16 og verður í umsjá
Stínu Gísladóttur. Kl. 16 hefst
einnig í dómkirkjunni hátíðar-
samkoma. Sr. Árni Sigurðsson ræðu, kirkjukór Svarfdæla syng-
formaður Hólafélagsins flytur ur og sr. Sigurður Guðmunds-
ávarp, Anna Þórhallsdóttir son vígslubiskup flytur ritning-
syngur og leikur á langspil, dr. arorð og bæn. Að lokum verður
Broddi Jóhannesson flytur almennur söngur.
13.ágúst 1982 - DAGUR-11