Dagur - 30.09.1982, Qupperneq 1

Dagur - 30.09.1982, Qupperneq 1
GULLKEÐJUR 8 K. OG 14 K. ALLAR LENGDIR VERÐ FRÁ KR. 234.00 GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 65. árgangur Akureyri, fímmtudagur 30. september 1982 107. tölublað Utvarpsnefnd einhuga um afnám einkaréttar Næstkomandi föstudag mun útvarpslaganefnd, sem Ingvar Gíslason menntamálaráð- herra skipaði tíl að endur- skoða útvarpslögin, skila áliti. Samkvæmt upplýsingum sem Dagur telur áreiðanlegar, er nefndin sammála um að það beri að leyfa frjálsan útvarps- rekstur á Islandi með ákveðn- um skilyrðum. Nefndarmenn- irnir, sem eru sjö að tölu, munu þó ekki vera einhuga um þau skilyrði sem ber að setja. Markús Einarsson, veður- fræðingur, sem sæti á í nefndinni varðist allra frétta er Dagur spurði hann um hvað iiði störf- um nefndarinnar, en sagði þó að nefndin myndi halda fund nk. föstudag og ganga endanlega frá áliti sínu, sem er í frumvarps- formi. „Mér finnst óviðkunnanlegt að kynna niðurstöðurnar áður en menntamálaráðherra fær þær í hendur,“ sagði Markús. „Ég vil ekkert segja annað en það sem öllum er 1 j óst, að í þessum tillög- um okkar felast verulegar breyt- ingar.“ - Er nefndin einhuga um þessar breytingar? „Nefndin hefur verið nær ein- huga um meginlínur, en sjö manna nefnd verður aldrei ein- huga um einstök framkvæmdar- atriði. f>að er alveg ljóst. Menn eru með sérálit," sagði Markús Einarsson að lokum. Er bjartara framundan hjá iðnaðar- mönnum? „Það var faríð af stað með þessa atvmnumálakönnun alveg nýlega, en hún er fram- kvæmd á vegum Landssam- bands iðnaðarmanna og Meist- arasambands byggingar- manna,“ sagði Marinó Jónsson á skrifstofu Meistarafélags byggingarmanna á Akureyri í samtali við Dag. „Þessi könnun er bundin við Norðurland og nær yfir svæðið frá Sauðárkróki og austur að Húsa- vík. Hún fer þannig fram að öllum félögum innan meistarafélaganna er sent eyðublað sem þeir fylla út og á að koma fram hvernig staða þeirra er, hvað sé framundan, hvað þeir eru með marga iðnað- armenn í vinnu, hvort þeir hafi þurft að segja upp mönnum eða þurfi að segja upp mönnum, hvað þeir sjái verkefni langt fram í tímann og fleira í þeim dúr. Þá hefur öllum byggingarfulltrúum á svæðinu verið sent eyðublað og þess farið á leit við þá að þeir gefi upp fjölda íbúða í byggingu og fjölda íbúða sem lokið hefur verið við á árinu og fleira.“ Eftir að gögn hafa borist Lands- sambandi iðnaðarmanna verður unnið úr þessum upplýsingum og fæst þá skýr mynd af ástandinu eins og það er í dag og eins hvað framundan er. Marinó sagði okkur að Meist- arasamband byggingarmanna á Akureyri hafi gert skyndikönnun í sumar á atvinnumálum. „Það var ekki annað að sjá samkvæmt þeirri könnun en að öll verkefni væru að klárast. Nú virðist hins- vegar hafa komið inn einhver verkefni, og ég fæ ekki betur séð en staðan sé að breytast dálítið mikið. Ég get ekki séð hvað það endist lengi, en það hefur verið beðið töluvert meira um verkefni há fyrirtækjunum í september en útlit var fyrir.“ Ær þykja vágestir í trjágróðrí, enda þykir þeim hann góður. Þessar kindur voru að spássera í trjáreit í Glerárhverfi í gærmorgun og var ekki annað hægt að sjá en þeim líkaði fæðan vel. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar verða þær sendar inn í eilífðina á mánudag. Mynd: áþ. Gamla kjötið búið — lítil sala á nyju kjoti „Málið er ofur einfalt. Það er ekki til neitt af gamla kjötinu, það er hreinlega uppselt. Eitt- hvað smávegis er til af öðrum flokki hjá afurðasölu Sam- bandsins í Reykjavík en úti á landi er allt gamla kjötið búið. Ég var búinn að fá vilyrði fyrir kjöti frá Kópaskeri en við nán- ari athugun kom í ljós að þeir vildu ekki láta það Iitla sem þeir áttu eftir,“ sagði Brjánn Guð- jónsson, deildarstjóri matvöru- deildar KEA í viðtali við Dag. Brjánn sagði að KEA hefði fengið kjöt austan úr Þingeyjar- sýslu, um 14 tonn, þannig að unnt hefði verið að hafa gamla kjötið á boðstólum alveg fram undir slát- urtíð. Ljóst væri að gífurlega mikið hefði selst af kjöti. Segði það nokkra sögu, að samkvæmt upplýsingum frá sláturhúsunum er sáralítil sala í nýja kjötinu. Svo virðist því sem fólk hefði birgt sig vel upp af gamla kjötinu. Ef ein- hverjar birgðir væru af gömlu kjöti þá lægju þær hjá neytendum sjálfum, sagði Brjánn Guðjóns- son. Næsta fyrirtæki í orkufrekum iðnaði rísi á Eyjafjarðarsvæðinu segir í samþykkt bæjarráðs Akureyrar Að undanförnu hefur bæjarráð Akureyrar fjallað um atvinnu- mál og á síðasta fundi ráðsins var endanlega gengið frá svör- um við spurningum sem fram komu á sameiginlegum fundi samstarfsnefndar um iðnþróun á Eyjafjarðarsvæðinu og bæjarráðs. Svör bæjarráðs verða lögð fyrir fund bæjar- stjórnar sem haldinn verður nk. þriðjudag. Ein spurninganna fjallaði um afstöðu bæjarstjórnar Akureyrar til orkufreks iðnaðar á Eyjafjarð- arsvæðinu. í svari bæjarstjórnar kemur fram að bæjarstjórn telur að nýta beri þau tækifæri til atvinnusköpunar sem landið og hafið umhverfis bjóði upp á, þ.e. þær auðlindir sem þjóðin hefur yfir að ráða. Síðan segir: „Vegna þeirrar umræðu sem nú fer fram um hvernig nýta beri raforku þá sem áformað er að framleiða með fallvötnum landsins vill bæjar- stjórn árétta að hún telur rök hníga að því að næsta fyrirtæki í orkufrekum iðnaði sem reist verður á landinu rísi á Eyjafjarð- arsvæðinu. Því beinir bæjarstjórn því til stjórnvalda að nauðsynleg- um rannsóknum á svæðinu verði hraðað og á grundvelli þeirra niðurstaða verði tekin ákvörðun um stofnun slíks iðnaðar í sam- ráði við íbúa svæðisins." Fulltrúi kvennaframboðsins, Valgerður Bjarnadóttir, vildi taka fram vegna framangreinds að við atvinnuuppbyggingu á Eyjafjarðarsvæðinu megi ekki einblína á álver eða sambærilega stóriðju. „Það fjármagn sem í stofnun og rekstur slíks fyrirtækis færi er æskilegra að nýta til upp- byggingar iðnaðar sem byggir á innlendum hráefnum og veldur hvorki félagslegri né náttúrufars- legri röskum," segir í athugasemd fulltrúa Kvennaframboðsins. í svari bæjarráðs kemur einnig fram að bæjarfulltrúar hafa mis- munandi afstöðu til þess hvert skuli stefna um rekstrarform og stærð fyrirtækja. Hins vegar sé tæplega ágreiningur nú um, að rekstrarform skuli vera sem fjöl- breytilegast og að atvinnufyrir- tæki í bænum stækki og eflist. Bæjarráð lagði éinnig til við bæjarstjórn að eftirfarandi tillaga verði samþykkt: Bæjarstjóm Ak- ureyrar samþykkir að fela bæjar- ráði að leita eftir viðræðum við iðnaðarráðuneytið (iðnaðarráð- herra) til þess: a) að afla upplýs- ingE um uppbyggingu orkufreks iðnaðar og hvaða tegundir iðnað- ar komi helst til greina á næstu árum. b) að skýra afstöðu bæjar- stjórnar til orkufreks iðnaðar á Eyjafjarðarsvæðinu og koma á skoðanaskiptum milli ríkisvalds og bæjarstjórnar um það efni. Bæjarstjórn hveturönnursveit- arfélög á Eyjafjarðarsvæðinu til að efna til sams konar viðræðna við ríkisvaldið og lýsir áhuga sín- um á samvinnu við þau um þess konar viðræður."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.