Dagur - 30.09.1982, Síða 8
RAFGEYMAR
í BÍLINN, bátinn, vinnuvéuna
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Mikil aukning á norð-
lensku útvarpsefni
Vetrardagskrá Ríkisútvarpsins
byrjar í október. Aldrei þessu
vant eiga Norðiendingar stóran
hlut i dagskránni, en í vetur verða
fjölmargir fastir dagskrárliðir í
umsjón Norðlendinga. Þar að
auki munu þeir annast ýmsa staka
þætti eins og á gamlárskvöld.
„Tími minn, síðan ég kom norður
hefur mikið farið í að leita að dag-
skrárgerðarfólki. Það er ekki tínt
upp úr lynginu frekar en bláber-
in,“ sagði Jónas Jónasson er Dag-
ur ræddi við hann.
Fyrsti þátturinn í umsjón Norð-
lendinga er spurningaþáttur, sem er
á dagskránni á sunnudagskvöldið.
Umsjónarmaður er Guðmundur
Heiðar Frímannsson, en hann ann-
aðist slíkan þátt fyrir tveimur árum á
móti Jónasi. í vetur verða dómarar
þáttarins víðsvegar að af Norður-
landi, en sá fyrsti er Jón Hjartarson,
skólameistari á Sauðárkróki. Að-
stoðarmaður Guðmundar verður
Þórey Aðalsteinsdóttir. Síðar um
kvöldið, nánar tiltekið kl. 23.00
verður tónlistarþáttur á dagskrá í
umsjá Helgu Alice Jóhanns. Viku
seinna kemur svo Hilda Torfadóttir
á Laugum í Reykjadal, og skiptast
þær svo á að leika þægilega tónlist
undir nóttina og kynna hana. Á
mánudag kl. 11.30 hefur nýr þáttur
göngu sfna. Umsjónarmaður hans er
Hermann Arason og nefnir hann
þáttinn Lystauka og fjallar Hermann
um menn og málefni og mun leita
fanga víða á Norðurlandi. Þriðju-
daginn 12. október verður Ólafur
Torfason með þátt kl. 17.20, sem
heitir Sjóndeildarhringurinn. Við-
fangsefni þáttarins er það sem er á
sjóndeildarhringnum hverju sinni.
Fimmtudaginn 7. október byrjar
tónlistarþáttur, sem hefst kl. 11.00.
Þeir Gestur E. Jónasson og Ingimar
Eydal skiptast á um að annast
þáttinn, sem er vikulega eins og ann-
að sem áður er getið. Hálfsmánaðar-
lega verður þáttur, sem hefur göngu
sína 9. október. Þetta er tónlistar-
þáttur sem er kl. 17 á dagskrá út-
varpsins og nefnist hann Hljómspeg-
ill. Umsjónarmaður er Stefán
Jónsson, bóndi á Grænumýri í
Skagafirði. Stefán kemur með eigin
plötur og leikur sígilda tónlist í
klukkustund. Haraldur Sigurðsson,
bankastarfsm. á Akureyri verður
einnig með þátt hálfsmánaðarlega á
móti Þorsteini Hannessyni. Harald-
ur kallar þáttinn Gamlar plötur og
góða tóna og kemur hann fyrst á
öldur ljósvakans 16. október kl.
21.30. Þá er þess að geta að þriðju-
daginn 5. október verður umræðu-
þáttur um stöðu myndlistar á Akur-
eyri í nútíð og fortíð. Umsjónar-
menn eru myndlistarmennimir Guð-
mundur Ármann og Örn Ingi. Þátt-
urinn hefst kl. 17.20, en það er sá
tími sem þætti Ólafs Torfasonar er
ætlaður í dagskránni í vetur. Óska-
lagaþáttur sjómanna verður einnig
fluttur frá Ákureyri hálfsmánaðar-
lega. Það verk annast Sigrún Sigurð-
ardóttir, sem hefur haft umsjón með
þættinum í Reykjavík, en hún flytur
nú norður. Sigrún hefur starfað hjá
dagskrárdeild Ríksiútvarpsins í
Reykjavík og mun taka að sér ýmsa
skrifstofu- og skipulagsvinnu hér á
Akureyri.
Aðspurður sagði Jónas Jónasson
að hann ætlaði að endurvekja þátt-
inn Kvöldgestir, sem var á dag-
skránni sl. vetur. Fyrstu kvöldgest-
irnir koma í heimsókn til Jónasar
föstudagskvöldið 5. nóvember.
í undirbúningi er hljóðritun á 4
leikritum héðan, Húsvíkingar eru að
semja klukkustundar þátt, sem verð-
ur væntanlega fluttur á gamlárskvöld
og á Siglufirði em menn að bræða
það með sér hvort þeir taki að sér
skemmtiþátt, sem fluttur yrði á
næsta ári. Einnig sagði Jónas að
hann hefði rætt við fólk í Önguls-
staðahreppi um að annast þátt eftir
áramót. Auk þessa verða barnatím-
ar héðan svo sem verið hafa og Einar
Kristjánsson frá Hermundarfelli
verður með sinn þátt í vetur. Frétta-
sendingar hafa aukist að undan-
förnu, en nýr fréttaritari á Akureyri
er séra Pálmi Matthíasson.
Það er mikið um að vera í hljóð-
húsinu við Norðurgötu, en nú standa
vonir til að eftir eitt ár verði flutt í
nýtt og glæsilegt húsnæði í Glerár-
hverfi.
Frá upptöku á spumingaþættinum. F.v. Jón Hjartarson, Guðmundur Heiðar Frímannsson, Þórey Aðalsteinsdóttir
og Jónas Jónasson. Mynd: KGA.
Grímsey:
Vegabætur 09 sex
ástralskar stulkur
Þegar slátrað hafði verið um 9
þúsund dilkum í sláturhúsi
Kaupfélags Eyfírðinga á Akur-
eyri í sl. viku var meðalfall-
þungi 14,75 kg að sögn Þórar-
ins Halldórssonar sláturhús-
stjóra.
Þórarinn tjáði Degi að þetta
væri mjög svipaður fallþungi og í
fyrra, og væri í góðu meðallagi.
Áætlað er að slátra á Akureyri
41.100 dilkum í haust.
Slátursala til almennings hefur
farið mjög vel af stað að sögn Þór-
arins, en hann tjáði okkur einnig
að kjötsalan hefði verið fremur
lítil til þessa. Vildi hann hvetja
fólk til að vera fremur fyrr á ferð-
inni í sláturtíðinni því venjan væri
sú að mikil örtröð væri síðustu
dagana.
Nýr gæslu-
völlur
A föstudag klukkan 13 verður
opnaður nýr gæsluvöllur við
Bugðusíðu.
Eftirtaldir gæsluvellir verða
opnir frá 1. október frá klukkan
13—16 á mánudögum og föstudög-
um: Borgarvöllur, Bugðuvöllur,
Byggðavöllur, Gerðavöllur,
Hlíðavöllur og Lundavöllur.
Framkvæmdir eru nú hafnar
við vegagerð í Grímsey. Eru
það nokkur tíðindi í eyjunni því
lítið hefur verið unnið að vega-
bótum þar á undanförnum
árum, enda óhægt um vik þar
sem góður jarðvegur til vega-
gerðar er ófáanlegur og verður
að flytja hann sjóleiðis frá
landi.
í sumar kom danskt dæluskip
með möl til vegagerðar í Gríms-
ey. Var efnið tekið í Bakkafjöru
skammt sunnan við Hjalteyri.
Tvö þúsund rúmmetrar voru flutt-
ir út í Grímsey og skiptist það til
helminga milli Grímseyjarhrepps
Innritun í Myndlistaskólann á
Akureyri lýkur á morgun,
föstudag. Boðið er upp á nám-
skeið í teiknun og málun fyrir
börn og unglinga, teiknun og
málun fyrir fullorðna, nám-
skeið í byggingalist, grafík,
letrun, listasögu, modelteikn-
un og textil, þ.e. myndvefnaði
og quilting.
Að sögn Helga Vilberg skóla-
stjóra Myndlistaskólans eru þessi
námskeið öll ætluð byrjendum og
ekki er ætlast til þess að fólk búi
yfir kunnáttu og t.d. kunni að
teikna eða hafi stundað eitthvað
af þeim greinum sem kenndar eru
áður en það kemur í skólann. Að-
sókn er mjög góð og á þriðjudag
höfðu innritast um 160 nemend-
og Flugmálastjórnar. Lagt verður
stæði fyrir flugvélar við flugvöll-
inn og megnið af götum Gríms-
eyjar verða lagfærðar.
í síðustu viku var hafist handa
við þetta verk og verður mikil bót
af, því vegimir eru að mestu lagð-
ir mold. Sjómenn vinna við vega-
gerðina þegar ekki gefur á sjó og
eru notaðar við verkið 3 dráttar-
vélar, grafa og valtari.
Skortur er nú á starfsfólki í fisk-
vinnslu í Grxmsey eftir að skóla-
fólk hætti þar störfum. Búið er að
leggja drög að því að fá sex ástr-
alskar stúlkur til fiskvinnu í eyj-
unni.
ur. Sagðist Helgi reikna með að
a.m.k. 220 manns sæktu nám-
skeið í skólanum í vetur.
Kennsla hefst í námskeiðunum
mánudaginn 4. október en
kennsla hófst í fornámsdeild og
málaradeild á þriðjudag. Sjö
nemendur eru í fornámsdeildinni
og sjö í málaradeild, en sem
kunnugt er er hér um að ræða full-
gilt listnám sem viðurkennt er af
Myndlista- og handíðaskóla
íslands. Nú geta nemendur í
fyrsta sinn lokið listnámi sínu hér
á Akureyri með tilkomu málara-
deildarinnar.
Fyrirhugað er að koma upp
deildum á fleiri sviðum myndlist-
ar, m.a. í hönnun, en slík deild er
ekki til í Reykjavík.
Mikil aðsókn í
Myndlistaskólann
• Pollará
gangstétt
íbúar syðst í Glerárgötu hafa í
hyggju að fá sér stígvél. Þetta
kom fram er einn þeirra leit
við á ritstjórn Dags fyrir
skömmu. Þeir voru jafnvel að
velta þvf fyrir sér að kaupa
mörg pör svo þeir fengju
magnafslátt. Ástæðan? Hún
er sú að gangstéttin vestan
götunnar er með gamla lag-
inu, þ.e. móðir jörð er þar alls-
nakin, engar hellur eru á
henni. Afleiðingin er sú að
íbúarnir verða annaðhvort að
vaða misdjúpa polla í vætutíð
eða fara út á götuna. íbúinn
beindi þeirri ósk til bæjaryf-
irvalda að ganga þannig frá
málum að hann og aðrir þeir
sem búa syðst og vestast við
götuna þurfi ekki að kaupa
stígvélin.
# Alþjóðlegur
blær í
Sjallanum
Nú er heldur betur að færast
alþjóðlegur blær á skemmt-
analífið hér á Akureyri. Ekki
ails fyrir löngu gátu Akureyr-
ingar kynnt sér grískan mat
og tónlist í Sjallanum og nú er
von á hinum heimsfrægu
bandarísku skemmtikröftum
The Platters með Herb Reed í
fararbroddi. Vafalaust ver þá
mikið um dýrðir í þessum
„glæsilegasta skemmtístað
norðan heiða“, eins og að-
standendur kalla hann
gjarnan. Annars telja þeir og
raunar fjölmargir aðrir Ifka að
Sjallinn sé með glæsilegri
skemmtistöðum á landinu.
Þannig komst t.a.m. grákur
tónlistarmaður sem hér var á
ferð fyrir skömmu að orði um
húsið, að það væri það glæsi-
legasta sem hann hefði séð
hér á landi og var hann þá bú-
inn að skemmta í þeim stóru í
höfuðborginni.
# Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Bæjarfulltrúar Akureyrar eru
nú til viðtals einu sinni í viku í
fundarsal bæjarráðs. Að sögn
heimildarmanns S&S nýtur
þetta fyrirkomulag töluverðra
vinsælda og koma menn til að
ræða um hin margbreytileg-
ustu málefni. Bæjarfulltrúarn-
ir eru ætíð tveir hverju sinni. í
fyrrakvöld t.a.m. var þar full-
trúi Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins, en
þessir viðtalstímar eru á mið-
vikudagskvöldum. Bæjarbú-
ar eru hvattir til að notfæra sér
þessa viðtalstíma. Stundum
hafa þeir kvartað undan þvf
að erfitt sé að ná til þeirra sem
stjórna bænum, en þarna
gefst gott tækifæri til þess
arna.