Dagur


Dagur - 07.10.1982, Qupperneq 1

Dagur - 07.10.1982, Qupperneq 1
MIKIÐ ÚRVAL AF SKARTGRIPA- SKRÍNUM GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 65. úrgangur Akureyri, fímmtudagur 7. október 1982 110. tölublað Raufarhðfn: Fyrsta síldar- söltun ímörg ár „Við erum búnir að salta um 700 tunnur á hálfum mánuði, sem liðinn er síðan við byrjuð- um. Við höfum hins vegar ekki fengið neina sfld til söltunar síðan um helgi. Bátarnir hafa ekki orðið varir, en þeir hafa verið með reknetin í Þistilfirði. Nú eru þeir komnir suður fyrir nes í Vopnafjarðardýpi,“ sagði Hallsteinn Guðmundsson, einn eiganda Fiskavíkur hf. á Rauf- arhöfn. Það er í fyrsta skipti á þessu hausti sem sfld er söltuð á Raufarhöfn síðan árið 1968, en þá voru saltaðar nokkrar tunnur. Bátarnir sem veitt hafa síldina til löndunar hjá Fiskavík eru Kópur, 82 tonna bátur í eigu fyrir- tækisins, og Sænes, sem er af svip- aðri stærð og er frá Dalvík. Hall- steinn sagði að síldin sem borist hefði væri mjög góð, 16-17 og allt upp í 22-23% feit. Við síldarsölt- unina starfa sex fastir karlmenn og 15-20 konur annast söltunina. Hann sagði að ekki hefði verið neinum vandkvæðum bundið að fá fólk til þessara starfa við söltun- ina. Kvenfólkið hefði sýnt mikinn áhuga á að prófa þetta, bæði þær sem söltuðu síld á árum áður svo og þær sem misstu af síldarævin- týrinu á sínum tíma. Hjúkrunarfræðingar fást ekki til starfa „Ástandið er þannig að við erum ekki með nema um þriðj- ung af því hjúkrunarfólki sem við höfum heimild til að hafa. Þetta er orðið gríðarlega mikið vandamál,“ sagði Bjami Art- hursson forstöðumaður á Krist- neshæli í samtali við Dag. Bjarni sagði að þeir á Kristnes- hæli hefðu auglýst mjög mikið eftir hjúkrunarfólki í blöðum og útvarpi, en án árangurs. „Það hefur ekkert haft að segja þótt hjúkrunarfræðingar hafi fengið geigvænlegar hækkanir í síðustu sérkjarasamningum, fólk- ið hefur ekkert skilað sér frekar inn á vinnumarkaðinn þrátt fyrir það. Hjúkrunarfræðingar töldu sig þurfa mjög mikla hækkun til að fást í þessi störf, töldu hag- kvæmara að vinna við bensínsölu og fleira, en þær miklu hækkanir sem hjúkrunarfræðingarnir fengu hafa ekki breytt ástandinu neitt. Annars er þetta ekki einungis bundið við okkur á Kristneshæli, og það er fleira sem spilar inn í. ís- land er með alltof fámennt hjúkr- unarlið. Hér á landi er ekki nema 5,1 hjúkrunarfræðingur á hverja þúsund íbúa, á meðan Danir t.d. hafa 6,5 hjúkrunarfræðinga á hverja 1000 íbúa. Ef við lítum svo á sjúkrarúmin þá er Danmörk með 8,5 sjúkrarúm á hverja 1000 íbúa en við með 11,5 rúm. Ef við lítum svo á hvað hver hjúkrunar- fræðingur er með mörg sjúkrarúm þá er talan l,3hjáDönum en2,25 rúm hjá okkur.“ - Hvaða áhrif hefur þetta ástand haft á reksturinn hjá ykkur? „Það er ekki gott að segja til um það að svo stöddu, en við erum farin að velta því verulega fyrir okkur að reyna að losa hér hjúkr- unarrúm. Það tekur hinsvegar langan tíma og það er erfitt að koma því fólki fyrir sem hér er. Það er engin stofnun sem getur tekið við þessu fóiki og engin . heimili geta það, fyrir utan það að sumt af þessu fólki getur varla tal- ist eiga heimili." 9 Leikarar Leikfélags Akureyrar fóru í „herferð“ um miðbæ Akureyrar á dögunum og buðu vegfarendum óskriftarkort, Fyrsta fnim- sýning hjaLA Fyrsta frumsýning leikársins hjá Leikfélagi Akureyrar er í kvöld kl. 20,30, en þá frum- sýnir félagið „Atómstöðina“ eftir Halldór Laxness. Leikstjóri er Bríet Héðinsdótt- ir og hún hefur einnig gert handrit. Leikmynd er eftir Sigurj- ón Jóhannsson. Ingvar Björnsson sér um lýsingu og Viðar Garðars- son um leikhljóð. Guðbjörg Thoroddsen Ieikur Uglu, Árland- shjónin eru leikin af Theódór Júl- íussyni og Sunnu Borg og forsæt- isráðherrann leikur Þráinn Karlsson. S.l. mánudag fóru leikarar Leikfélags Akureyrar f ferð um miðbæ Akureyrar. Vakti ferð þeirra talsverða athygli vegfar- enda og talsvert mun hafa selst af áskriftarkortum á sýningar vetrarins. Önnur sýning á Atóm- stöðinni verður á laugardag og sú þriðja á sunnudag. Aðgöngu- miðasala er daglega kl. 17-19 og sýningardagana kl. 17-20,30. Brekkan 99 ræðst á“ Leikhúsið! „Brekkan hefur verið að skríða fram undanfarin ár, og ég hef nokkrum sinnum kvartað undan þessu við tæknideild bæjarins og beðið um úrbætur. Þetta er að skemma húsið og þarna rennur vatn inn. Búningsklefar sem eru vestan á húsinu eru að fara niður vegna þess að undir þeim er stoðvegg- ur sem brekkan er að spyma í burtu.“ Þetta sagði Ágúst Berg formað- ur leikhússnefndar á Akureyri og húsameistari bæjarins í samtali við Dag, en brekkan ofan við leik- 4-------------------------------- Stoðveggurinn undir viðbyggingunni hefur gefið eftir eins og sjá má ó myndinni. Mynd: áþ. húsið hefur skriðið fram að undanförnu og er nú farin að ógna leikhúsinu og viðbyggingu vestan við það verulega. „Það er vatnsuppspretta uppi í miðri brekkunni og hvammur, og sá hvammur hefur allur stækkað og sigið og brekkan bólgnað út neðst. Eftir hinn slæma sl. vetur hefur þetta aukist mikið. Það er því sýnt að þetta er orðið stórt vandamál, og á síðasta fundi leikhússnefndar var gerð bókun þess efnis að tæknideild bæjarins fyndi lausn á þessu máli og leiðir til úrbóta.“ Menn munu ekki á eitt sáttir um hvaða leiðir séu vænlegastar til úrbóta í þessu máli. „Það var ætlunin að nota 40 þúsund krónur til að gera við stoðvegginn en þar sem brekkan hefur færst svo mikið frarn í vor og sumar og þetta er orðið meira verk, upp- lýsti Norðurverk sem hugðist vinna verkið að það þyrfti að grafa meira frá húsinu en ætlað var og kostnaður gæti því allt að þrefaldast," sagði Ágúst. Samkvæmt heimildum Dags er hér alvarlegt mál á ferðinni, og enn alvarlegra verður það ef þau ummæli eins viðmælanda blaðsins að svipað ástand sé víðar á Brekkunni eru rétt. Það þarf því að finna lausn á því hvaða tök- um á að taka þetta mál, en það hefur til þessa gengið illa að fá tekið af skarið hvað það snertir, að sögn Ágústs Berg.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.