Dagur - 07.10.1982, Síða 7

Dagur - 07.10.1982, Síða 7
Gott mót á Mel gerðismelum Ragnar Ingólfsson og Þorri, efsti Þótt nokkuð sé um liðið síðan síðasta hestamót sumarsins í Eyjafirði var haldið, er ekki úr vegi að gera þvf móti örlítil skil í máli og myndum. Mótið var haldið á Melgerð- ismelum af hestamannafélögun- um Funa, Létti og Þráni. Þátt- taka var mjög góð og allur brag- ur á mótinu léttur og ferskur eins og sjálfsagt þykir er eyfirskir hestamenn leiða saman hesta sína. Þá voru veðurguðirnir í hátíðaskapi og léku við hvern sinn fingur í tilefni dagsins, og áhorfendur sem voru margir höfðu það prýðisgott. Allt hjálp- aðist því að við að gera þetta síð- asta mót hestamanna á árinu skemmtilegt, enda dagskráin þannig að ekki var ríghaidið í gamlar hefðir og venjur. Helstu úrslit á mótinu urðu þessi: hestur í A-flokki. Jón Höskuldsson greip nikkuna og stjórnaði fjöldasöng við varðeldinn. 150 m skeið: Sek. Þráður ................... 16,8 Eig. og knapi: Reynir Hjartarson. Logi .................... 17,1 Eig. og knapi: Höskuldur Jónsson. Drottning ................ 17,3 Eig. og knapi: Jón B. Arason. 300 m brokk: Sek. Kládíus .................. 41,4 Eig. og knapi: Herbert Ólason. Máni ..................... 42,2 Eig.: Ema Jóhannesdóttir. Knapi: Hákon Hákonarson. Háfeti ................... 43,8 Eig. og knapi: Sigurður Jóhannes- son. 250 m stökk: Sek. Cesar ..................... 18,4 Eig. og knapi: Herbert Ólason. Nökkvi .................... 18,5 Eig.: Sigþrúður Tobíasdóttir. Knapi: Atli Sigfússon. Hrímnir ................... 19,5 Eig.: Ásgeir og Óli Herbertssynir. Knapi: Höskuldur Jónsson. A-fl. gæðinga: Eink. 1 Þorri .................. 8,58 Eig.: Sigurður Snæbjömsson, Höskuldsstöðum. Knapi: Ragnar Ingólfsson. 2. Logi ................... 8,27 Eig. og knapi: Höskuldur Jónsson. 3. Sámur .................. 7,97 Eig. ogknapi: Reynir Hjartarson. B-fl. gæðinga: Eink. 1. Kristall .............. 8,50 Eig. og knapi: Gylfi Gunnarsson. 2. Barón .................. 8,17 Eig. og knapi: Baldvin Guðlaugs- son. Höskuldur Jónsson með afrakstur mótsins. 3. Glóð .................. 8,10 Eig.: Jakob Jónsson. Knapi: Höskuldur Jónsson. Unglingaflokkur: Eink. 1. Glói .................. 8,24 Eig. og knapi: Sigmar Bragason. 2. Fákur ............... 7,93 Eig. og knapi: Sonja Grant. 3. Hörður ................ 7,85 Eig. og knapi: Jóhann Ólsen. Að kappreiðum loknum var tendraður varðeldur, og voru verðlaun afhent á meðan snædd- ar voru pylsur af hinni bestu lyst. Að því loknu dró Jón Höskulds- son fram harmoniku sína og skemmtu viðstaddir sér stund- arkorn við söng og hljóðfæra- leik. Er óhætt að segja að þetta síðasta mót ársins hafi tekist vel, og var allt yfirbragð þess mun léttara en venja er til á slíkum mótum. Má því telja víst að verði endurtekið á næstu mótum félaganna að hafa skemmtun og gleði í fyrirrúmi. I Allar tryggingar! umboðið hf. Radhustorgi 1 (2. hæð), simi 21844, Akureyri. Dúnstakkar verð aðeins 1160 kr. Dúnvesti 798 kr. Vatteruö vesti 270 kr. Mittisjakkar frá 445 kr. Hjalteyrargötu 4, Cy IJUI U5 sími 25222, Akureyri Hrossasmölun í Hrafnagilshreppi er ákveöin laugardaginn 9. október. Öll ókunn hross eiga aö vera komin í Reykárrétt kl. 2 e.h. Fjallaskilastjóri. Starfsfólk Okkur vantar starfsfólk í eftirtalin störf: 1. Deildarstjóra í fatadeild, þarf að geta hafið störf fljótlega. 2. Starfsmann á lager, frá 1. desember. 3. Starfsmann í matvörudeild. Upplýsingar veittar milli kl. 10-12, dagana 11. og 12. október. Ekki í síma. HAGKAUP Norðurgötu 62, Akureyri. Niðursuða Óskum eftir aö ráöa konur til starfa í verksmiðjunni í lengri eða skemmri tíma, hálfan eöa allan daginn. Bónusvinna. Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 21466. K. Jónsson & Co. hf. Stúlkur helst vanar mötuneytisvinnu óskast til starfa í eld- húsi Kristneshælis. Upplýsingar gefur matráðs- kona í síma 31100 eða 31107. Forstöðumaður. SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA lónaðardeild ■ Akureyri Viljum ráða í afleysinga- starf í mötuneyti verk- smiðjanna. Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri. Glerárgata 28 Pósthólf 606 Sími (96)21900 7. október 1982 - DAGUR - 7

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.