Dagur - 09.12.1982, Qupperneq 5
jariðnaði:
áramóta
frá því
arstarfsemi verið mjög með
minna móti að undanförnu. Sér-
staklega hefur dregið mikið úr
íbúðabyggingum í bænum. Ekki
er þó um að ræða samdrátt í bygg-
ingarframkvæmdum í sama mæli
og á Akureyri.
Á móti þessumm samdrætti í
byggingarstarfsemi í kaupstöðum
Eyjafjarðarsýslu kemur, að vitað
er, að annars staðar í héraðinu
hafa víða verið talsvert miklar
byggingaframkvæmdir í gangi, en
um það fengust þó ekki nákvæm-
ar upplýsingar. Sýnt er þó að þess-
ar auknu framkvæmdir í dreifibýli
í Eyjafirði vega engan veginn upp
þann afturkipp sem orðið hefur í
kaupstöðunum.
Horfur hjá byggingaraðilum á
Akureyri og nágrenni um verk-
efni í vetur eru slæmar og var vægi
þeirra fyrirtækja sem sáu fram á
verkefnaskort í vetur, alls 88%.
Pó má segja að útlitið sé heldur
skárra en talið var í sumar, þar
sem í ljós kemur að samanlagður
fjöldi starfsmanna sem þátttak-
endur í könnuninni frá Eyjafjarð-
arsvæðinu telja fullvíst að segja
þurfi upp á komandi vetri er 70,
en áður höfðu talsvert hærri tölur
verið nefndar í þessu sambandi.
Hafa sum þeirra stóru byggingar-
fyrirtækja á Akureyri, sem sögðu
upp starfsmönnum fyrr í haust, nú
endurráðið þá en hjá nokkrum
fyrirtækjum eru starfsmenn laus-
ráðnir. Hér ber að hafa í huga það
sem áður var getið um að margir
þátttakenda í könnuninni töldu
líklegt að þeir þyrftu að segja upp
starfsmönnum, en treystu sér þó
ekki til að nefna ákveðnar tölur í
því sambandi. Auk þess er sjald-
gæft í fámennum fyrirtækjum að
um formlegar uppsagnir sé að
ræða heldur leita menn sér að
vinnu á öðrum starfsvettvangi.
Innifalið í framangreindri tölu um
ráðgerðar uppsagnir er aðeins sá
fjöldi starfsmanna sem ljóst virð-
ist að segja þyrfti upp.
Skýringin á því að atvinnu-
ástand í byggingariðnaði á Akur-
eyri er nú heldur skárra en útlit
var fyrir sl. sumar er einkum sú að
upp komu ýmis verkefni sem þá
var ekki vitað um og má að sumu
leyti rekja það til þeirrar umræðu
sem átti sér stað um atvinnumálin
fyrr á þessu hausti. Auk þess hef-
ur hagstætt veðurfar nú á þessu
hausti bætt mjög úr skák.
Úrbætur í atvinnumálum bygg-
ingamanna á Akureyri hafa þó
orðið minni en virðast kann við
fyrstu sýn. Stafar það af því að
meginhlutinn af þeim verkefnum
sem nýlega hafa komið til eru
mjög óálitleg frá sjónarhóli
byggingarfyrirtækanna. Þar er um
að ræða samninga sem sum
stærstu fyrirtækjanna hafa gert
um smíði á íbúðum fyrir stjórn
verkamannabústaða, alls 32 íbúð-
ir. Með þessum samningum eru
fyrirtækjunum settir afar þröngir
skilmálar um fjármögnun en þeir
en þeir felast í því að fyrirtækjun-
um er ætlað að skila húsunum fok-
heldum um nk. áramót en eiga á
hinn bóginn aðeins að fá greitt
sem svarar 10% af byggingar-
kostnaði húsanna fyrir áramót.
Þegar þess er gætt að kostnaður
við uppsteypu fjölbýlisbúss er
skv. vísitölu byggingarkostnaðar
fyrir fjölbýlishús 31,4% af bygg-
ingarkostnaði alls, er augljóst, að
fyrirtækjunum eru hér nánast
settir afarkostir. Hér er því aug-
ljóslega um að ræða valkost sem
íýrirtækin neyðast til að ganga að,
fremur en að vera ella að mestu
verkefnalaust.
Ekki skal fjölyrt um skýringar á
þeirri lægð sem er í byggingariðn-
aði á Akureyri en augljóst er að
hinar almennu skýringar sem get-
ið var um í upphafi þ.e. almennur
samdráttur í efnahagslífinu og
hert lánskjör eiga ekki síður við á
Akureyri en annars staðar á land-
inu. Ástæðan fyrir sérstöðu Akur-
eyrar í þessu tilliti eru þó einkum
sú að þar hefur orðið mun meiri
stöðnun í uppbyggingu atvinnu-
lífsins enn almennt gerist annars
staðar á landinu. Ennfremur er á
það að líta að á síðastliðnum ára-
tug var mjög mikið byggt á Akur-
eyri og þar byggðust upp stór
fyrirtæki með mikla afkastagetu
og vel búin tæknilega séð. Sam-
dráttur í framkvæmdum að þessu
sinni er því tilfinnanlegri af þess-
um sökum. Raunar er þessi
reynsla lýsandi dæmi um hvernig
þær sveiflur sem verið hafa land-
lægar í byggingariðnaðinum
standa í vegi fyrir tæknilegri upp-
byggingu hans.
Húsavík og
S-Þingeyjarsýsla
Umsvif við byggingarfram-
kvæmdir á Húsavík og nágrenni
hafa dregist saman frá því sem
verið hefur á sama árstíma undan-
farin ár en þó hefur þar að undan-
förnu verið næg atvinna við bygg-
ingarstarfsemi og starfsmönnum
byggingarfyrirtækja yfirleitt ekki
fækkað. Gagnstætt því sem er í
Skagafirði og Eyjafirði, hafa
byggingarframkvæmdir í S-Þing-
eyjarsýslu dregist mun meir
saman í dreifbýli heldur en í
kaupstaðnum, þ.e. á Húsavík.
Enda þótt næg atvinna hafi ver-
ið fram til þessa meðal byggingar-
manna í héraðinu eru fjölmörg
verkefni á lokastigi og verulegrar
svartsýni gætti um atvinnuhorfur
á komandi vetri. Þannig töldu
82% þátttakenda í könnuninni af
þessu svæði að þá skorti verkefni
á komandi vetri og ráðgerðar
voru uppsagnir 24 starfsmanna.
Þá kom fram að nokkur stór
atvinnufyrirtæki á Húsavík hefðu
verið með áform um nýbyggingar
og hefðu þegar fengið byggingar-
leyfi fyrir þeim. Sökum þess hve
dregist hafði að þessar fram-
kvæmdir hæfust var óttast að
þeim yrði slegið á frest til næsta
vors. Var álitið að atvinnuástand-
ið í vetur myndi að talsverðu leyti
ráðast af þvf hvort í þessar fram-
kvæmdir yrði ráðist.
Sömu ástæður voru tilgreindar
fyrir verkefnaskortinum og á Ak-
ureyri, þ.e. samdráttur í fjárfest-
ingu atvinnufyrirtækja og fjár-
skortur húsbyggjenda. Auk þess
álitu nokkrir þátttakendur litla
byggingarþörf fyrir hendi en eins
og á Akureyri hefur mikið verið
byggt af íbúðarhúsnæði á Húsa-
vík undanfarin ár.
Jólagjöf veiðimannsins
fæst hjá okkur:
Stórkostlegur afsláttur á vöðlum
og bússum ásamt öllum öðrum
__■ «. ■- -» - VÖÐLUR, stærðir 40-46, verð kr. 750
VGIOIVOrUm. BÚSSUR, stærðir 40-47, verð kr. 400
Eitthvað nýtt bætist við
á útsöluna á hverjum degi.
Jakkafötin færðu hjá okkur
Leðurjakkar herra • Mikið úrval af blússum • herra-
skyrtum • vettlingum • legghlífum o.fl. o.fl.
CESAR
fatadeild
SÍMI 24106
9. desember 1982 - DAGUR - 5