Dagur - 10.12.1982, Síða 7

Dagur - 10.12.1982, Síða 7
 EG HEF ALDREI M OÐLAST POLITISKA TRU u - Eg er fæddur „Þorpari“, sagði Olafur Birgir Arnason, lögfræðingur og fasteignasali, er við tókum tal saman fyrir skömmu. Það runnu á mig tvær grímur en Ólafur brosti Ijúfmannlega og bætti því við að hann væri fæddur og uppalinn í Birgi í Glerárþorpi síðla árs 1940. Foreldr- ar hans eru þau Árni Jónsson og Snjólaug Ólafsdóttir. Hér á eftir verður rætt um Glerárþorp en ekki Glerárhverfi eins og sumir vilja nefna það, enda er orðið Glerárþorp mun hljómmeira og fallegra. Við Ólafur hittumst á föstudags- eftirmiðdegi þegar umferðin er hvað hröðust og fólk að flýta sér. Rauða kaffikannan var nálega hálf af ilm- andi Bragakaffi, það voru sykur- molar innan seilingar og glas af nýmjólk. - Biddu fyrir þér, sagði viðmælandi minn þegar hann hafði rennt augunum yfir lista með spum- ingum. Þú hefur rætt við einhvern sem þekkir mig, hvernig vissir þú að ég bætti síldarnætur fyrír austan? Ha? Og hvernig vissir þú að ég var á sænsku flutningaskipi að ná í síld norður í haf? Jæja, ég held að ég verði að fara að rifja upp hitt og þetta sem annars var gleymt og grafið. Ég veit ekki hvcrnig á að lýsa Ólafi á annan hátt en þann að maðurinn er afskaplega þægilegur í viðmóti - sú mynd sem fólk gerír sér oft af lög- fræðingum á hvergi við Ólaf Birgi. Og ég er viss um að karlarnir í Bót- inni forðum daga hafi gefið honum beitu við og við - vegna þess að strákurinn kunni að biðja um hana. Beituskúrar - Lífið í Þorpinu var stórkostlegt á þeim tíma sem ég var að alast upp. Við strákarnir héldum til í fjörunni enda voru viðfangsefnin þar alveg óþrjótandi. Eftir þá reynslu á ég svolítið erfitt með að skilja í dagþeg- ar krakkarnir vita ekki hvað þeireiga að gera. Við strákarnir höfðum aldrei nægan tíma, þrátt fyrir það að við ættum ekki nein sérstök leikföng, en við höfðum bátana, sjóinn og fjöruna. Flestir vorum við rennandi blautir í fæturna alla daga og reynd- um að leyna því heima. Stundum reyndi maður að komast í olíuofn hjá einhverjum nágrannanum til að þurrka sokkana. Á þessum áruni réru margir karlar á trillum úr Bótinni. Það var tiltölu- lega lítið um atvinnu á veturna á þessum árum. Menn fóru út á trillun- um og skutu svartfugl. Fólk gerði ekki eins miklar kröfur á þessum árum og það gerir í dag, sem betur fer. Satt best að segja man ég ekki eftir neinum sem getur talist sérstak- ur í háttum, ég held að okkur hafi fundist fólkið ósköp eðlilegt. Það má vel vera að karlarnir hafi flestir verið skrýtnir og þess vegna hafi þeir verið svona skemmtilegir. - Hafdi fólk meiri tíma til að sinna börnum þegarþú varst að alast upp í Þorpinu? - Svo sannarlega og andrúmsloft- ið í beituskúrunum á kvöldin var al- veg einstakt. Það var svo að segja aldrei amast við okkur, Við máttum vera í skúrunum eins og við vildum. Þarna töluðu menn um stjórnmál og sjóinn og yfirleitt það sem var efst á baugi. En það er ekki hægt að skilj- ast svo við Bótina að ekki sé munað eftir Stjána í Bót. Kristján hét maðurinn og bjó í Eyri, sem er lítið hús í Bótinni. Eftir að ég gerðist fasteignasali hef ég selt þetta hús tvisvar og mér er með öllu óskiljan- legt hvernig allt þetta fólk hefur komist fyrir í húsinu. Anna kona Kristján tók alltaf vel á móti okkur krökkunum og það var alltaf til kaffi á könnunni. Ólafur prófessor - Ef mér skjátlast ekki þeim mun meir þá útskrifaðist þú sem stúdent frá MA árið 1960 . . . - Já, og það voru margir stórsnill- ingar í þeim hópi. Ég man t.d. eftir Gunnari Sólnes, Svavari Eiríkssyni, Þresti Ólafssyni en auðvitað voru þeir mun fleiri. Það gerðist margt í skólanum en sumt er þess eðlis að maður rifjar það aðeins upp í góðra vina hópi. í því sambandi má t.d. geta þess að árið sem við urðum stú- dentar voru tveir bekkjarbræður mínir skikkaðir í nauðungarvinnu af Þórarni Björnssyni, skólameistara. Ég held að það sé eina nauðungar- vinnan sem menn hafa verið skikk- aðir í á þessari öld. Tilefni látum við liggja milli hluta en það átti að reka þá úr skóla en þeim var gefinn kostur á að vinna af sér „straffið“ með því að skafa borð í vistinni. Annar neit- aði og tók próf utan skóla en hinn skóf. Okkur fannst kennararnir vera hálfgerðir karlar, gamlir karlar, en þeir eru annað hvort í dag sömu karl- arnir eða sömu strákarnir. Það vill svo til að ég sit nú í jafnréttisnefnd með einum þeirra, Gísla Jónssyni. Mér finnst hann ekki vera neitt eldri en ég - það er svolítið erfitt að skilja þetta því mér fannst hann gamall þegar hann kenndi mér. - Hvað kom til að þú ákvaðst að fara í lögfræði? - Ég held að ég hafi verið ákveð- inn í lögfræðinni síðan ég var í gagn- fræðaskóla. - Einhver sérstök ástæða? - Ég hlýt að hafa verið hrifinn af lögræðinni sem fræðigrein, en auk þess taldi ég að lögfræðingar vissu svo mikið, þeir væru öruggir á því hvað væri rétt og hvað væri rangt. Hinsvegar var ég örlítið tvístígandi um hvert halda skyldi þegar ég lauk stúdentsprófi - fyrsta árið í háskóla fékk ég t.d. löngun til að fara í lækn- isfræðinám - sem betur fer læknaðist ég af þeirri löngun og hélt við mig lögfræðina. - Var Ólafur Jóhannesson, nú- verandi utanríkisráðherra, prófessor í deildinni þegar þú varst þar? - Jú, það er rétt. Og ég get sagt þér að Ólafur stjórnmálamaður er allt annar en Ólafur prófessor. Ólaf- ur var - og er - ákaflega traustur. Stundum fannst okkur hann vera heldur traustur. Sem dæmi get ég nefnt að hann mætti í tíma klukkan átta daginn eftir fimmtugsafmælið sitt, þegar allir reiknuðu með fríi. í annað skipti vissum við um að hann ætti að koma heim til íslands af fundi Norðurlandaráðs klukkan tvö um nótt og hann mætti líka klukkan átta næsta morgun. Ólafur var þá þing- maður og ég man aldrei eftir því að það félli niður kennsla hjá honum vegna þingstarfa, það kann þó að vera en það hefur þá verið afskap- lega sjaldan. Ólafur hafði skrifað flestar bækurnar sjálfur sem hann notaði í kennslunni. Sumir sögðu að hann skrifaði þær milli sex og átta á morgnana. Sankti Pétur og Kölski - Oft hefur það verið haft á orði að lögfræðin sé góður skóli fyrir verð- andi stjórnmálamenn. Fóru margir þinna deildarfélaga í stjórnmála- vafstur? - Ellert Schram, Friðrik Sófusson og Ragnar Arnalds fóru beint í póli- tík. Þegar Ólafur Jóhannesson kenndi Ragnari var sá hinn síðar- nefndi í framboði í kjördæmi Ólafs. Þeir rifust á framboðsfundum í kosn- ingabaráttunni á vorin en Ragnar nam af Ólafi á veturna. Menn voru tiltölulega ánægðir með þetta og sjálfsagt hafa margir óskað sér að vera í framboði á móti sem flestum prófessorum til að geta náð sér svo- lítið niður á þeim. - Datt þér aldrei í hug að gerast stjórnmálamaður? - Nei,égeróhæfurípólitík,éger óhæfur til að vera í stjórnmálaflokki enda ég hef aldrei öðlast pólitíska trú. Ef eitthvað mál stríðir gegn minni sannfæringu þá tek ég afstöðu í samræmi við það og því verður ekki breytt. Það má vel vera að ég sé alltof heiðarlegur til þess að standa í stjórnmáluml! - Einhverntíma heyrði égþá sögu að það væri ekki nokkur lögfræðing- Haraldur Blöndal, lögmaður, sagði líka að „sjokkin“ væru ekki metin í taxta lögmannafélagsins. - Er það ekki tilfellið að frum- skógur laganna verður sífelt flóknari og flóknari? - Jú og ekki er lögfræðingum gert léttara fyrir með stopulli útkomu lagasafns. Núna notum við lagasafn frá árinu 1973, sem verður til þess að við erum með í gagni níu bindi af stjórnartíðindum, eða frá og með þeim tíma að lagasafninu lýkur. Ef lagasafnið væri t.d. í lausblaðabók væri þetta allt annað líf. Þá væri t.d. hægt að taka í burt þau lög sem eru fallin úr gildi og bæta inn nýjum lögum, en þá væri lagasafnið alltaf rétt. - Svo við vöðum úreinu íannað- þá langaði mig til að ræða um sumar- störfþín á meðan þú varst í skóla, en uppi húmomum þegar þreytan gerði vart við sig. Þar voru fremstir í flokki Óttar og Angantýr Einarssynir. Þeir gátu haldið uppi heilli síldarverk- smiðju andlega. - Dæmi um vinnutíma? - Einu sinni hóf ég vinnu eftir há- degi á föstudegi og hætti á sunnu- dagskvöldi. Það var gert hlé frá klukkan 10 á laugardagskvöldið til sex á sunnudagsmorgun. Þennan tíma notaði ég vel. Ég brá mér á ball á meðan og fór beint í vinnuna eftir það. Margir geta sagt miklu stór- brotnari sögur en þetta. Stjórnborði og bakborði - Þú komst líka nálægt síldarævin- týrínu þegar það fluttist til Jan Mayen. / r/ o Spjallað við Ólaf Birgi Ámason, lögfræðing og fasteignasala, um daginn og veginn ur í himnaríki. Sama heimild gat þess að þar væru ekki heldur knatt- spyrnudómarar . . . - Ég hef heyrt þetta. Hvað lög- fræðingana varðar þá gekk sú saga að eitt sinn hefðu menn heyrt hávært rifrildi á landamærum himnaríkis og helvítis. Þegar betur var að gáð voru þetta Sankti Pétur og Kölski sem deildu um landamerki. Þegar deil- urnar mögnuðust hótaði Sankti Pét- ur að fara í mál við Kölska. Allt í lagi sagði Kölski, en hvar ætlar þú að fá lögfræðing? Ég veit ekki hvoru meg- in lögfræðingar eru, en ég veit það að þar sem þeir eru er miklu skemmti- legra. Tólf í bragga - Þegar þú laukst embættisprófi fórstu að starfa í Borgardómi. Hverniglíkaðiþérað vera kominn út í atvinnulífið? - Mjög vel, en ég uppgötvaði fljótlega, og vissi það raunar áður, að starf Iögfræðings er mjög krefj- andi. Eftir að hafa staðið í réttar- haldi í fjóra eða fimm tíma á dag eru menn útkeyrðir en þá getur tekið við mikil vinna við að lesa málsskjöl og afla gagna. Og menn verða fyrir „sjokki" í þessari grein-e.t.v. oftar en í mörgum öðrum. Það getur kom- ið fyrir í miðju réttarhaldi að mál sem búið var að byggja upp hrynur. mér var sagt að þú hefðirkynnst síld- arævintýrinu mjög vel svo ekki sé meira sagt. - Ég byrjaði í síldinni 1956 þá 15 ára gamall og afskiptum mínum af síld lauk ekki fyrr en 1966-eða árið áður en ég lauk embættisprófi. Öll sumur þarna á milli var ég viðloða síld, á sjó, í verksmiðjum, á plönum, við nótaviðgerðir, vörubílaakstur og á síldarflutningaskipi. Ég man að ég laug til um aldur er ég kom fyrst til Raufarhafnar vegna þess að það máttu ekki yngri en 16 ára vinna í verksmiðjunni. Það var ekki mikið logið, ég byrjaði í júní en átti afmæli í september. Menn voru reknir áfram af gangi vélanna og þetta var erfið vinna fyrir unga krakka, sjálfsagt alltof erfið. Ég mæli ekki með því t.d. að mín börn geri þetta. En þessi mikla vinna sem ég lagði að baki gerði það að verkum að ég gat verið í skóla. Námslán þekktust ekki á þessum árum nema hvað ég fékk gamlar hundrað þúsund krónur samtals öll árin sem ég var í lagadeildinni. Þeir sem áttu ekki efnaða foreldra gátu ekki verið í námi nema að vinna mikið. Auðvitað var þetta oft skemmti- legt. Ég man eftir því eitt árið að við vorum 12 stúdentar í einum braggan- um á Raufarhöfn. Það voru ómiss- andi menn í hópnum, sem héldu - Já, það var árið 1966 sem fs- lendingar leigðu flutningaskip og sóttu síldina til Jan Mayen. Mér hlotnaðist sú virðingarstaða að vera um borð í einu þeirra og semja við bátana um að við dældum síldinni um borð til okkar og flyttum hana til lands. Ég var umboðsmaður síldar- kaupenda á sænsku skipi, Polana og fylgdist með flotanum í talstöðinni og var í stöðugu sambandi við skipin. Það voru fleiri flutningaskip í þessu og það var keppni á milli þeirra að vera fyrstir að flotanum og ná sem flestum skipum í löndun. Skipið sem ég var á var sænskt, eins og ég sagði áðan, og það eina af því þjóðemi. Ég var afskaplega heppinn með mannskap. Svíarnir voru kappsfullir og vildu láta hlutina ganga vel. Þetta var ákaflega gaman - sérstaklega eftirá. - Þegar þú lítur til baka telur þú þá ekki að það hafi verið þér mikils virði að fá að taka jafn mikinn þátt í þessu merka tímabili - sem síldar- ævintýrið óneitanlega er? - Jú, þetta var mikill og oft erfið- ur skóli. Þegar öllu er á botninn hvolft hlýtur það að vera miklu verra að vera atvinnulaus unglingur í dag en að standa tímunum saman í hreistri á Raufarhöfn eða einhvers- staðar fyrir austan. Það kemur sér mjög vel í lögfræðinni að hafa kynnst 6 - DAGUR -10. desember 1982 mörgum atvinnugreinum en þá á maður mun auðveldara með að setja sig inn í það sem er að gerast. Hugs- aðu þér bara mann í sjóprófi sem varla þekkir mun á stjórnborða og bakborða. - Þú komst norður og fórst að vinna hjá bæjarfógeta árið 1969 og hefur því samanburð á því að starfa sem lögfræðingur á þessum tveimur stöðum. Ererfiðara að vera lögfræð- ingur á Akureyri en íReykjavík? - Já, það er staðreynd. Fyrir sunnan eru menn að fjalla um ein- hver nöfn en hér kannast þú gjarnan við þá sem eiga hlut að máli. Þar að auki er oft hringt heim til lögfræð- inga á minni stöðum á öllum tímum og þeir beðnir að leysa málin í hvelli. hvelli. - Síðar kom að því að þú stofn- settir sjálfur stofu á Akureyrí. Þú hefur ekki verið hræddur um að lenda í sömu stöðu og Tómas forðum ? - Ekki get ég sagt það en menn eru oft ragir við að fara úr fastri vinnu og byrja sjálfstætt, enda liggur það ekki alltaf ljóst fyrir hvað menn munu hafa mikið að gera. Auk þess kann ég ekki að yrkja. Tekjulausir í tvö ár! - Koma tekjurnar ekkisamdægurs? - Síður en svo. Það er talað um að lögmenn sem fara út í praxís í dag megi búast við að vera tekjulausir í tvö ár, þurfi að vera á framfæri bankastjóra. En ég var heppinn þeg- ar ég byrjaði. Fékk nóg að gera í upphafi. - Lögfræðingar hjá hinu opinbera hafa stundum haldið því fram að þið sem eruð með eigin stofur hafið feikna tekjur. - Já, ég hef heyrt þetta en það er misjafnt, þetta er spurningin um vinnu, eins og annað, og þegar grannt er skoðað kostar allt vinnu ef menn vilja hafa eitthvað upp. - Nú er það algengt að lögfræð- ingar setji á stofn fasteignasölu. Eru slík fyrirtæki þær gullnámur sem sumir vilja vera láta ? - Ég vildi fyrst taka það fram að fasteignasalan sem slík er töluvert annars eðlis en önnur lögfræðistörf og greiðslur fyrir þá vinnu sem innt er af hendi koma fyrr, en menn hafa ekki dugað lengi í þessari atvinnu- grein. Þetta má m.a. sjá af því að það eru örfáar fasteignasölur í Reykja- vík sem hafa starfað í 10 ár. Margir hafa farið út í fasteignasölu og ætlað að verða ríkir á svipstundu en áttað sig eftir nokkur ár á því að þeir eru mun blankari en þegar þeir byrjuðu. - Sumir virðast halda að fast- eignasala sé lítið annað en að auglýsa fasteign í blaði, taka á móti kaup- anda og seljanda, fá þá til að skrífa undir nokkur plögg og hirða greiðslu - erþetta svona einfalt? - Þaðernnúsíðurensvo.Þettaer annað en að afgreiða franskbrauð í KEA. Það má segja að hver sala sem fasteignasali kemur á getur loðað við hann næstu tvö árin eða lengur. f sumum tilfellum telur kaupandi sig eitthvað hafa við eignina að athuga og vill bætur frá seljanda og þá verð- ur fasteignasalinn að vera í hlutverki sáttasemjara, sem er eðlilegt, því hann er umboðsmaður beggja aðila. í þetta getur farið gríðarleg vinna sem er ólaunuð. Það má líka geta þess að fasteignasalar á Akureyri gera mun meira fyrir sína viðskipta- vini en fasteignasalar í Reykjavík. Ástæðan er m.a. kunningsskapur. - Er hagstæðara í dag að kaupa tilbúið húsnæði en að hefja byggingu nýs húsnæðis? - Sé um að ræða notað húsnæði er það á ákveðnu verði en nýbyggingin er meira og minna verðtryggð og hún stækkar stöðugt. Það má segja að byrja að byggja sé það vitlausasta sem menn geta gert í dag. Hver er með svuntuna - Þar sem þú situr í jafnréttisnefnd Akureyrar er rétt að koma að þeim málaflokki. . . - Já, það er víða pottur brotinn á því sviði og þá sérstaklega vinnu- markaðurinn. En jafnrétti kynjanna stefnir í rétta átt. Með aukinni menntun kvenna mun það misrétti sem ríkir víða ofarlega í launastigan- um líða undir lok. Hinsvegar er það óleyst vandamál hvernig fara á með málefni þeirra sem eru neðar. Hvað varðar jafnrétti á heimilum þá tel ég að fólk verði sjálft að fá að ráða því hver er með svuntuna hverju sinni. Ég er ekki sannfærður um að allar konurséu eins kúgaðarogt.d. sumar kynsystur þeirra vilja láta. Það má líka vel vera að sumar konur vilji í raun visst misrétti - sem er e. t. v. for- réttindi þegar öllu er á botninn hvolft. - Ef við vendum okkar kvæði í kross og fjöllum um Akureyri þá langaði mig til að heyra álit þitt sem bæjarbúa á atvinnumálunum sem óneitanlega hafa verið mikið í sviðs- Ijósinu undanfarna mánuði. - Ég held að það sé „dulbúið“ atvinnuleysi á Akureyri. Við vitum að ísland er láglaunasvæði í V-Evr- ópu, Norðurlandskjördæmieystraer láglaunasvæði á íslandi og að Akur- eyri er láglaunasvæði í kjördæminu. Yfirborganir tíðkast ekki mikið á Akureyri og þegar yfirvinna minnk- ar kemur upp þetta dulbúna atvinnu- leysi, en þá er sömu störfunum skipt á milli fleiri manna. Ef ekkert verður að gert -1. d. á sviði stóriðj u eða sam- bærilegs iðnaðar þá sé ég ekki hvern- ig Akureyri á að stækka eðlilega. Það vantar atvinnutækifæri, það geta ekki allir farið út á Heklu og prjónað. Það hefur mikið verið rætt um þá hættu sem getur stafað af stóriðju, en. ég treysti vísindamönnum til þess að halda mengun innan þeirra marka sem eru hættulaus. - Það hefur einnig verið rætt um félagslega þáttinn . . . - Já, vissulega en ég hefði haldið að mesta hættan væri fólgin í atvinnuleysi. Við skulum líka gæta að því að atvinnuleysi er ekki ein- ungis fólgið í því að fólk hafi enga vinnu heldur líka of litla vinnu. Það lifir enginn á dagvinnunni einni saman. Það er kominn tími til fyrir bæjar- stjórn og atvinnumálanefnd að rumska. Þetta ástand lagast ekki af sjálfu sér. Akureyri hefur allt til þess að taka á móti stóriðju og auðvitað eigum við að gera það. Smáiðnaður og tímaskekkja - Hafa yfirvöld e. t. v. lagt of mikla áherslu á tímabundna atvinnu-þ.e. uppbyggingu sem krafist hefur mikils mannafla í skamman tíma ? - Já, og ég vil í því sambandi nefna hitaveituframkvæmdir, Lax- árvirkjun, uppbyggingu Slippstöðv- arinnar, byggingaframkvæmdir og Kröfuvirkjun. Á þessum tíma þand- ist bærinn út, en gallinn er bara sá að ekkert af þessu er grunnatvinnuveg- ur. Nú er þessum framkvæmdum lokið og það kemur allt í einu í ljós að það er sáralítil atvinna í bænum. Við getum ekki boðið fólki upp á smáiðnað eða heimilisiðnað eins og sumir bæjarfulltrúar eru að gæla við, slfkt er tímaskekkja. Það skiptir ekki máli hvort þeir bera fyrir sig félags- legar ástæður eða eitthvað annað. Bæjarfélagið þarf stóra vítamín- sprautu ef vel á að fara. Akureyringar ættu að læra af Norðfirðingum. Þegar síldin hvarf voru þeir búnir að búa svo um hnút- ana að bæjarfélagið þoldi áfallið. Þeir áttu sín eigin skip, þeir ráku frystihúsið áfram þrátt fyrir að síldin hvarf og vissu sem var að þessi sælu- tími hlyti að taka enda fyrr eða síðar. Hjá þeim kom ekki þetta tómarúm eins og hér á Akureyri, þeir byggðu upp á meðan þeir græddu. - í öllum lengri viðtölum segir spyrillinn: eitthvað að lokum? Ég ætla ekki að fara þessa leið, miklu fremur langar mig að lokum til að vita hvaða eiginleikum góður lög- fræðingur þarf að vera búinn. - Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör. Ég held að það þurfi að vera hægt að treysta honum, hann verður að vera sæmilega góður maður og kunna að umgangast fólk. Þetta er ekki flóknara og það er sama f hvaða stétt maðurinn er, það eru þessir eiginleikar sem hver og einn þarf að hafa til að farnast vel. VIÐ GEFUM ÚT GÓÐAR (SLENSKAR BARNABÆKUR Athugið! Ðáðir höfundarnir eru frá Akureyri. ÁFRAM FJÖRULALLI eftir Jón Viöar Guðlaugsson Ný sprenqhlægileg bók um Fjörulalla. I þessari bók heldur hann áfram hvers kyns ærsl- um og uppátækjum meö dyggri aðstoö bróöur síns og félaga þeirra. lyf ÁFRAM FJÖRULALLI er saga " v um saklaust grín og gaman sem öll fjölskyldan skemmtir sér yfir. Teikn: Búi Kristjánsson Kr. 197,60 TRÖLLIN í TILVERUNNI eftir Hreiöar Stefánsson Jennu og Hreiöar Stefánsson þarf ekki aö kynna. TRÖLLIN í TILVERUNNI er ný bók eftir Hreiðar. Hér segir hann börn- unum sögur sem honum ein- um er lagið. Frásögnin er svo lifandi og skemmtileg aö börn- in veröa sjálf þátttakendur í atburðunum. Bók fyrir unga sem aldna. Teikn: Ragnar Lár Kr. 197,60 bALZ Freyjugötu 27, Reykjavík, sími 18188. GEFIÐ BÖRNUNUM GOÐAR ISLENSKAR BÆKUR veitir ylinn OFNASMIÐJA NORÐURLANDS KALDBAKSGÖTU S, SÍMI (961-21860 AKUREYRI O.N.A. Ofn, rennslismynd • RUNTAL-ofnar eru fram- leiddir úr þykkasta stéli og með lokum, sem tryggja jafna hitagjöf og langa endingu. • Vinna og efniskaup við lagningu RUNTAL-ofna er hagkvæmari. • RUNTAL-ofna er hægt að staðsetja hvar sem er. • Viðurkennd gæðafram- leiðsla • Fljót og góð afgreiðsla. 10. desember 1982 - DAGUR - 7

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.