Dagur - 10.12.1982, Page 9
STÆLT OG STOLIÐ
Fyrsta
barnið
11 ára!
/ mörg herrans ár hafði íri
nokkur fengið barnabæt-
ur frá írska ríkinu. Sam-
kvæmt skattframtali átti
kauði fjögur börn og eig-
inkonu. En svo gleymdi
hann fæðingardegi barn-
anna og skrifaði líklegar
tölur á framtalið. Starfs-
maður skattstofunnar sá
að þær pössuðu ekki við
gömlu framtölin ogfórað
athuga málið nánar. íljós
kom að framteljandinn
átti ekkert barn og því
síður eiginkonu. Það var
raunar ekkert skrýtið að
starfsmaðurinn á skatt-
stofunni skyldi fara að at-
huga betur fjölskyldu
mannsins, því samkvæmt
skýrslunni hafði hann
eignast fyrsta barnið þeg-
ar hann var ellefu ára!
Það fór líka illa fyrir
konu í London sem hafði
fengið greiddar barna-
bætur með barni sem
aldrei hafði verið til.
Rannsóknarmenn frá
skattinum komust að því
að ekkert barn var í íbúð
konunnar og um tíma var
hún grunuð um morð -
takk fyrir.
★
Þessi hestur heitir Victor og hann er 11 ára. Þegar hann var yngri
vann hann fyrir sér og sínum í sirkus, en nú liggur hann bara heima og
ies blöðin með eiganda sínum.
Sönnunargagnið
var afskorinn fingur
Sönnunargagnið var í glugganum. Það var nýafskorinn Gngur af
karlmanni . . . Þetta gerðist í Ziirich. Þjófur braust inn í skart-
gripaverslun með því að brjóta glugga. I hita leiksins skar hann af
sér fíngur á glerinu og sársaukinn kom í veg fyrir skynsamlega
hugsun - þjófurinn lét fingurinn liggja í glugganum og lögreglan
tók að sjálfsögðu fíngraför af puttanum. Þjófurinn náðist ör-
skömmu seinna og það var farið með hann á sjúkrahús og fíngur-
inn saumaður á en dómarinn dæmdi hann í 2ja ára fangelsi.
- Ansi er mjólkin góð, gæti þessi ungi maður 1
verið að segja. Hann býr annars í Bretlandi og i
heitir Michael Dixon. Þar í landi eru mjólk-
urpóstar og þeir setja flöskurnar á útidyra-
tröppumar. Það var einmitt þar sem snáðinn
sá flöskuna og vildi kanna innihaldið nánar
með þeim afleiðingum sem myndin sýnir.
Vel
gefnir
krakkar
Það er ekkert skrýtið að
Lobodzinski krakkarnir í
Berlín séu með þeim
hæstu í sínum bekkjar-
deildum. Alexander, 17
ára, Jessica, 14 ára og
Yorrick, 11 ára, hafa
greindarvísitölurnar 156,
145 og 160, en meðal-
greind er um 100. Þegar
þau systkinin voru
tveggja ára voru þau farin
að lesa og hann Yorrick
var farinn að spekúlera í
eldfjöllum aðeins þriggja
ára. Sagan segir að kenn-
arar krakkanna eigi fullt í
fangi með að kenna þeim.
Nú eru jólafötin komin;
bæði á börn ogfnllorðná
Nýtt frábært frá
buxur og vesti úr
rúskinnslíki.
4 litir.
1 Stærðir
2-12.
Buxur - Stakkar - Peysur - Skyrtrn
Blússur - Hvítir sportsokkar o.tt.
Hvítu Maó-
skyrturnar komnar
aftur.
'CKí
Frá
don cano,
3nýjargerðir
af stökkum. Skipagötu 13, sími 22171.
Innilegt þakklæti sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför sona okkar og bræðra,
FRÍMANNS KONRÁÐSSONAR og
NÝVARÐS Ó. KONRÁÐSSONAR,
Burstabrekku, Ólafsfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Svava Friðþjófsdóttir,
Konráð Gottliebsson,
Jón Konráðsson,
Gottlieb Konráðsson,
Sigrún Konráðsdóttir.
10. désénftbér 1982 - DAGUR - 9