Dagur - 10.12.1982, Síða 11

Dagur - 10.12.1982, Síða 11
HVAÐ ER AÐ GERAST? Leikrit um íslensku tófuna Sunnudaginn 5. desember frumsýndi Leikfélag Akur- eyrar nýtt leikrit fyrir böm og ungiinga eftir Signýju Pálsdóttur ieikhússtjóra, sem jafnframt er leikstjóri. Það heitir „Siggi var úti“ og rauði þráðurinn í verkinu er íslenski refurinn fyrr og nú. Ásgeir Jónsson söngvari BARAflokksins samdi tón- listina og flytur hana ásamt Jóni Amari Freyssyni, hljómborðsleikara og Sig- fúsi Emi Óttarssyni trommuleikara. í ónefndu íslensku hrauni hefur líffræðingurinn Siggi búið um sig í helli, sem hann notar fyrir rannsóknarstöð fyrir rannsóknir sínar á at- ferli íslenska refsins - alop- ex lagopus. Þetta er gaman- samur náungi, sem gengur gjarnan um gaggandi í tófu- búningi til að komast nær tófunum. í rauninu tjaldar fjöl- skylda í útilegu, mamman, pabbinn, börnin Villi og Tóta og afinn Leiknir, sem varfræg grenjaskytta. Aðal- áhugamál barnanna, stjörnuskoðun og frum- menn eiga sinn þátt í því, hvernig þau skynja í byrjun þær óvæntu uppákomur, sem þau lenda í í útilegunni. Fleiri eiga leið um hraun- ið. í fyrsta lagi lítil tófa, sem líffræðingurinn hefur hænt að sér og er elskulegasta dýr, en svolítið þjófótt. Og í öðru lagi maður að nafni Úlfur, sem leikur tveimur skjöldum - hann læst vinna fyrir líffræðinginn en er í rauninni að vinna fyrir tískudrottningunna Stellu, sem ætlar sér að hagnast á loðfeldasölu og misnota sér grenjaskrár Sigga til að láta útrýma íslenska refnum með nýjum aðferðum og smygla skinnunum úr landi. Leikurinn er æsispennandi með mannraunum og mannránum og er einkum við hæfi barna, sem komin eru á skólaldur, unglinga og jafnvel fullorðna. Þrír með- limir Baraflokksins flytja mjög fjölbreytta tónlist og margir söngvar eru í leikrit- inu. Næstu sý ningar á Siggi var úti verða laugardaginn 11. desember kl. 17 og sunnudaginn 12. desember kl. 15. Miðasala leikhússins er opin alla daga frá kl. 13. Ekki verða fleiri sýningar fyrren eftir jól. Ortölvusýning í G Gagnfræðaskólinn á Akur- eyri hefur ákveðið að hafa sýningu á örtölvum og tölvubúnaði um helgina. Sýningin verður milli kl. 13.30 og 16.00 á laugardag og sunnudag. Þar gefst bæjarbúum tækifæri til að A. skoða þau tæki sem eru að verða algeng heimilis- og leiktæki. Einnig er vert að minna á fyrirhugað nám- skeið í tölvufræðum, en auglýsing um það birtist í fimmtudagsblaði Dags. Akureyrarkirkja. Aðventukvöld í kirkjunni Basar í Krist- nesi Á sunnudaginn klukkan tvö verður basar í Kristnesi. Á basarnum verða munir sem eru unnir af vistfólki. Einnig verður selt laufabrauð. Bas- armunirnir hafa verið unnir undir leiðsögn kennara og andvirði seldra muna verð- ur látið renna til kaupa á ýmsum hjálpartækjum svo að hreyfihamlað fólk eigi auðveldara með handa- vinnu. Fólk er hvatt til að renna fram í Kristnes á sunnudaginn. Aðventu- kvöld í Ljós- vetninga- búð Næstkomandi sunnudags- kvöld verður aðventukvöld í Ljósvetningabúð á vegum Þóroddsstaðasafnaðar. Það hefst kl. 21. Séra Haukur Ágústsson, skólastjóri á Laugum, held- ur ræðu. John Robert Redford, tónlistarkennari, leikur á píanó. Kirkjukór Þóroddsstaðaskólar syngur undir stjórn Sigurðar Jóns- sonar og John R. Redford. Einsöng syngja bræðurnir Baldur og Baldvin Kristinn Baldvinssynir. Margrét Sig- tryggsdóttir les ljóð. Á eftir verður selt kaffi til ágóða fyrir býggingasjóð Þórodds- staðakirkju. JAB Aðventukvöld verður í Ak- ureyrarkirkju nk. sunnu- dag, 12. des., kl. 20.30. Ný- ráðinn æskulýðsfulltrúi, Sigrún Sigfúsdóttir, flytur ávarp en séra Kristján Ró- bertsson, sóknarprei stur á Hálsi í Fnjóskadal, mun flytja hugleiðingu. Kirkju- kór Akureyrarkirkju syngur nokkur lög undir stjórn Jak- obs Tryggvasonar, organ- ista, og leiðir almennan söng og blokkflautusveit úr Tónlistarskólanum mun leika jólalög undir stjórn Lilju Hallgrímsdóttur. Enn- fremur mun fyrrverandi æskulýðsfulltrúi, Stína Gísladóttir, stjórna helgi- stund og félagar úr æsku- lýðsfélagi kirkjunnar sýna helgileik og hafa „ljósa- messu". Allir eru boðnir velkomnir á þetta aðventu- kvöld, sem hefur þann til- gang að gera helga stund í kirkjunni að föstum lið í undirbúningi jólanna. Þ.H. Karlakór Akureyrar ásamt aðstoðarliði á æfingu. Karlakór Akureyrar með Lúsíuhátíð Karlakór Akureyrar færir upp sína 11. Lúciuhátíð í Akureyrarkirkju þann 10. desember kl. 20.00 og 11. desember kl. 18.00. Að þessu sinni er venju fremur vandað til hátíðar- innarm.a. aðstoða konurúr kirkjukór Lögmannshlíðar og „Hörpu“, kvenfélagi Karlakórsins ásamt ungum stúlkum úr Menntaskóla Akureyrar. Einsöngvarar að þessu sinni eru þau Helga Alfreðs- dóttir sópransöngkona og Óskar Pétursson tenór- söngvari. í sönghléi syngur þekkt sópransöngkona úr Hafnarfirði, Inga María Eyjólfsdóttir, verk eftir Schober, Hándel, Stradella og Adolphe Adam. Einnig syngur hún hlutverk „Gló- dísar“ í raddsetningu Willi- am Rees með texta Konráðs Vilhjálmssonar. Söngstjóri er Guðmund- ur Jóhannsson og undirleik annast Ingimar Eydal. Þessi siður kom hingað til lands frá Svíþjóð, ogerfyrst tekinn upp af Karlakór Ak- ureyrar 15. des. 1946 með samsöng í Nýja bíó að áeggjan Jónasar Jónssonar frá Brekknakoti og sænsks söngkennara, sem hér starf- aði, Myrgárd að nafni. Hefur kórinn fært upp þessa samsöngva alls 10 sinnum og nú hin síðari ár hefur þetta verið árlegur viðburður. Ef færi og veður leyfa verður einnig sungið á sunnudag 12 des. í Skjól- brekku kl. 13.00 og í Húsa- víkurkirkju kl. 18.00. Væntir kórinn þess að sem flestir sjái sér fært að sækja þessa samsöngva og býður hlustendur vel- komna. Trimm í Kjarna á sunnudaginn Á sunnudaginn kemur, 12. desember, verður haldin Trimmganga fyrir almenn- ing í Kjarnaskógi. Gangan hefst kl. 15.00 og eins og nafn göngunnar ber með sér er hér aðeins um heilsubótargöngu að ræða og er ætlast til að sem flestir verði með. Genginn verður 5 km hringur í skóginum og fá all- ir sem komast í mark sér- stakan viðurkenningar- borða. Kl. 14.00 sama dag verð- ur tímataka fyrir þá sem vilja á sama stað en þar verður þátttakendum skipt í fjóra hópa. Karlar 17 ára og eldri ganga 10 km, konur ganga 5 km, 13-16 ára drengir ganga einnig 5 km og 12 ára og yngri ganga 2.5 km. Borgarbíó: Kafbáturinn Borgarbíó sýnir í kvöld og næstu kvöld kl. 9 myndina (U-Boat 96), Kafbáturinn, er skeður í síðari heims- styrjöldinni og fjallar um lifnaðarhætti þýskra kaf- bátsmanna. Þetta er fyrsta myndin sem sýnd er í Dolby steríó í Borgarbíói. Haustið 1941 er mikið fjör í Bar Royale í La Roc- helle í Frakklandi, einni helstu kafbátastöð Þjóð- verja í síðari heimsstyrjöld- inni. Menn skemmta sér eins og nóttin verði þeirra síðasta, enda getur svo farið að kalla, því að af 40.000 manns, sem Þjóðverjar tefldu fram á kafbátum sínum, áttu aðeins 10.000 afturkvæmt. Ragnar Lár. sýnir í Örkinni f dag mun Ragnar Lár hengja um 15 „collage" (klippimyndir) í Örkinni hans Nóa. Eins og flestum er kunnugt sýndi Ragnar fyrir skömmu í Gallerý Lækjartorgi í Reykjavík og hlaut þar góðar undirtektir. Myndirnar sem Ragnar sýnir að þessu sinni voru unnar um svipað leyti, en voru ekki sýnar í Reykjavík vegna plássleysis í sýningar- húsnæðinu. Nú gefst Akur- eyringum kostur á að sjá þessar klippimyndir Ragn- ars á venjulegum verslun- artfma. Æft í Hlíðar- fjalli Þrátt fyrir það að stór hópur skíðamanna sé nú erlendis við æfingar, halda hinir sem heima eru ótrauðir áfram æfingum sínum. Framvegis verða æfingar á þriðjudögum og fimmtu- dögum kl. 17.30 til 20.00 í Hlíðarfjalli, og í tengslum við þessar æfingar fer rútan úr bænum kl. 17.00. Um næstu helgi, 11. og 12. des. verða einnig sér- stakar æfingar. Á laugardag og sunnudag hefst æfing hjá 13 ára og eldri kl. 10.30 og kl. 12.00 hjá 12áraogyngri. Allir sem æfa á vegum ráðsins eru hvattir til að mæta á þessar æfingar. 10. desember 1982 - DAGUR -11 B-V ! iadtTIÖ2.0>> -• • f •• Ú (M

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.