Dagur - 10.12.1982, Blaðsíða 12

Dagur - 10.12.1982, Blaðsíða 12
Akureyri, föstudagur 10. desember 1982 Verslunarfólk - verslunareigendur: Erum farin að taka frá borð frá kl. 18-20.30 laugardaginn 18. og fimmtudaginn 23. des. Bjóðum ódýra heita og kalda rétti á hlaðborðið. Pantið borð tímanlega. Kyrrlát jól 2. janúar. Kyrrlátt var hér um jólin og á nýársnótt að venju. Um jólin bar ekkert til tíðinda sem i frásögur er fært. Engir eldsvoðar urðu. Á nýársnótt voru allmargir dans- leikir í bænumn, en ölvun mun ekki hafa verið áberandi mikil. Aðeiris einn maður gisti í fangahúsinu þá nótt. Ung- lingar gerðu lítilsháttar tilraun til þess að setja umferða- tálmanir á göturnar, en því var afstýrt og varð engum að tjóni. í Reykjavík var allt kyrrlátara um áramótin en verið hefir undanfarin ár og eru það góð tíðindi. Listamaður opnar vinnustofu 5. janúar. Nú um jólin hefir Jónas Jakobsson opnað vinnustofu í Strandgötu 23 hér í bæ - þar sem áður var verslun Steingríms Seyðfjörð. Mun Jónas taka að sér teikningar og myndmótun og ennfremur skreytingu bóka, svo sem textateikningar og teikningar á hlífðarkápum. Tíu menn fórust 11. janúar. Um hálf þrjú leytið á laugardaginn fórst vél- báturinn Helgi frá Vetsmannaeyjum, 115 smálestir, á Faxaskeri við Eyjar og með honum 10 menn, 7 manna áhöfn og 3 farþegar. Þetta hörmulega sjóslys varð í af- takaveðri, er vélskipið sem var að koma frá Reykjavík ætl- aði að sigla inn í höfnina í Vestmannaeyjum. Stórsjór reið yfir skipið er það átti eftir tíu til fimmtán mínútna siglingu í öruggt var, færði það á kaf, og stöðvaðist þá vélin. Þrjár íkviknanir 11. janúar. Nú eftir nýárið hafa orðið þrjár íkviknanir hér í bænum og tókst slökkviliðinu hvarvetna að slökkva eldinn, en verulegt tjón var þó af eldinum á einum stað. Aðfararnótt 4. jan. var slökkviliðið hvatt að Hótel Akur- eyri. Hafði þá eídur komið upp í snyrtiherbergi á miðhæð- inni, en þar er jafnframt miðstöðvarketill. Kviknaði í kola- kassa. Herbergi þetta eyðilagðist, en aðrar skemmdir urðu ekki teljandi. Síðar í fréttinni segir að það hafi kvikn- að í gömlum kolaskúr á hafnarbakkanum þann 6. janúar og sama dag kviknaði í húsinu Lækjargata 22. Húsið brann lítið en töluverðar skemmdir urðu á íbúðinni af vatni og reyk. Uppboð 11. janúar. Eftir kröfu Ármanns Jakobssonar hdl., og að undangengnu fjárnami, fer fram opinbert uppboð á 504 kryddsíldardósum frá Niðursuðuverksmiðjunni Síld hf. miðvikudaginn 18. þm. kl. 13.30 í bæjarþingsstofunni, Hafnarstræti 102. Greiðsla við hamarshögg. Bæjarfóget- inn á Akureyri, 6. janúar 1950. Friðjón Skarphéðinsson. Eldsvoði á Silfrastöðum 11. janúar. Á mánudaginn kviknaði í fjóshlöðu á Silfrast- öðum í Skagafirði. Hlaðan var áföst fjósi. Er að var komið voru 7 nautgripir kafnaði af reyk. Hlaðan, ásamt öllum töðuforða, svo og fjósið, brann til kaldra kola, en heima- mönnum og hjálparmönnum af næstu bæjum tókst að verja íbúðarhúsið. Hvasst var af austri og slökkvistarf erfitt. Ókunnugt er um eldsupptök. Á Silfrastöðum býr Jóhannes Steingrímsson, hreppstjóri í Akrahreppi. Seinagangur á viðgerð 14. janúar. Hneykslanlegur seinagangur á viðgerð Torfunefsbryggjunnar, segir í fyrirsögn Dags þann 14. janúar. Síðan segir: Nú er senn miður janúar og bryggjan í ónothæfu ástandi enn, enda þótt auðvelt hefði verið að ljúka viðgerð hennar fyrir alllöngu og koma henni í notkun. En fyrir sleyfarlagið verða skip, sem hingað eigá erindi, að bíða út á höfn vegna bryggjuskorts og þannig er þeim sem berjast gegn auknum og bættum siglingum hingað fengið vopn í hendur að óþörfu. Viðgerð Torfun- efsbryggjunnar hefur orðið ein löng hrakfallasaga í hönd- um bæjarstjóra, bæjarverkfræðings og vitamálastjórnar. Allir ættu að iæra skyndihjálp Nýlega er lokið námskeiðum í skyndihjálp í 8. bekkjum grunnskóla á Akureyri, en þetta var fimmta árið í röð sem Rauða kross deildin á Akureyri annast slík nám- skeið. Umsjónarmaður nám- skeiðanna var Sigurður Ólafs- son, verkcfnisstjóri hjá deild- inni. „Á Stór-Reykjavíkursvæðinu eru þessi námskeið inni á áætlun hjá skólunum. Gert er ráð fyrir þessu í stundaskrám eða sem námskeið á kvöldin. Skólarnir fyrir sunnan greiða síðan allan kennslukostnað svo og kostnað við bækur og annað sem til kennslunnar þarf. Sú breyting hefur reyndar verið á að Rauði krossinn gefur nú bækur um skyndihjálp öllum nemendum 8. bekkjar sem sækja þessi nám- skeið. Hér á Akureyri hefur þetta hins vegar algjörlega verið kost- að af Akureyrardeild Rauða krossins, nema í Oddeyrar- skóla, en sá skóli hefur greitt kostnað af þessu og þar hafa þessi námskeið verið inni á kennsluáætlun. Við höfum reynt að fá þessu breytt til sama eða svipaðs horfs og er á Reykjavík- ursvæðinu og skólanefnd Akur- eyrar er nú með þetta til athug- unar. Það þarf i sjálfu sér ekki að rökstyðja nauðsyn þess að börnin læri skyndihjálpina, sem reyndar hver einasti þjóðfélags- þegn ætti að kunna skil á og geta notað þegar lífið getur legið við. Árið 1981 var kennslukostn- aður vegna þessa um 11 þúsund krónur og kennslutækjakostn- aður var um 13 þúsund krónur. : Styrkur frá Akureyrarbæ til allr- ar starfsemi deildarinnar nam á j síðasta ári 10 þúsund krónum, ' þannig að hver maður getur séð að það dugar skammt. Raunar f má segja að deildin skili þessum styrk strax í formi skyndihjálp- arkennslunnar og er þó langt frá því að hann dugi til að standa straum af þeim kostnaði. Við förum fram á að bærinn greiði beinan kennslukostnað, en ekki t.d. viðhald á kennslutækjum og annað þvíumlíkt," sagði Sigurð- ur Ólafsson. Hann sagði að eftir áramótin yrði farið af stað með námskeið fyrir bæjarbúa almannt þar sem kennd verður skyndihjálp. Þátt- tökugjald í slíku námskeiði gæti orðið 200-250 krónur á mann, miðað við að þátttakendur yrðu 15-18 talsins. Meðal annarrar starfsemi Rauða kross deildarinnar á Ak- ureyri má nefna sjúkravinastarf- ið, sem felst í heimsóknum og aðstoð við sjúka og aldraða, en auk þess er deildin með sérstaka öldrunarþjónustu og leigir með- al annars út sjúkrarúm til notk- unar í heimahúsum. Rauði krossinn er aðili að almanna- vörnum í landinu og hefur innan sinna vébanda sérstaka neyðar- varnanefnd og loks má geta rekstur sjúklrabifreiða. Sigurður Ólafsson. Verið velkomin. Jólamarkaðurinn er á 2. hæð. Leikföng í miklu úrvali. Jólatré, jólatrésseríur. Snjóþotur og sleðar. ★ Sjón er sögu ríkari.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.