Dagur - 20.01.1983, Qupperneq 1
8 og 14 KARÖT
GULLSMIDIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 20. janúar 1983
8. tölublað
Afhending
Verk-
mennta-
skólans
Á föstudag verður 1. áfangi
nýja Verkmenntaskólans form-
lega afhentur. Afhendingin fer
fram í skólanum sjálfum klukk-
an 16. Þá mun bygginganefnd
skólans afhenda hann bæjar-
stjóm sem síðan afhendir Iðn-
skólanum húsnæðið til
rekstrar. Skólahúsnæðið verð-
ur síðan almenningi til sýnis á
laugardag frá klukkan 10-18.
í þessum fyrsta áfanga Verk-
menntaskólans er málmiðnaðar-
deild til húsa og hefur kennsla
þegar hafist í húsnæðinu. Þessi
áfangi er um 11% af því sem
byggja á. Þeir sem til þekkja telja
að þarna sé ein allra besta aðstaða
til kennslu í málmiðnaðargrein-
um sem þekkist á landinu og talið
er að þessi skólasmiðja sé nú einn
best búni vinnustaður málmiðn-
aðarmanna á Akureyri.
Fjöldi
fólks
hættur
f■■r ■ r
i Video-
lundi
Sjá bls. 3
Hitaveita Akureyrar:
Meira út á kerfið
en greitt er fyrir
„Það er ráðgert á næstu vikum
að framkvæma mælingar á
vatnsskammti, hitastigi og
þrýstingi hitaveituvatns hjá öll-
um notendum Hitaveitu Akur-
eyrar. Samhliða þessum mæl-
ingum er fyrirhugað að yfirfara
hemilbúnað og endurstilla
vatnsskammta þar sem þess er
þörf. verða stjómlokar at-
hugaðir og stilltir. Við þessar
mælingar verður notaður nýr
og nákvæmur rafeindamæli-
búnaður og vegna umfangs
þessa verkefnis hefur nokkur
Qöldi vélskólanema frá
Reykjavík verið fenginn til
verksins sem áætlað er að taka
muni þrjár vikur,“ sgaði Wil-
helm V. Steindórsson, hita-
veitustjóri á Akureyri ■ samtali
við Dag.
Wilhelm sagði að reynslumæl-
ingar hafi verið framkvæmdar í
nokkrum húsum á Akureyri og af
þeim mætti álykta að nokkuð sé
um yfirstillingar í húsum í bænum
en undirstillingar í mjög litlum
mæli.
Við spurðum Wilhelm hvort
ekki væri samræmi í því vatns-
magni sem greitt væri fyrir í bæn-
um og þess magns sem fer út á
kerfið, og hvort það væri rétt sem
heyrst hefur að svo væri ekki og
munurinn væri 20-30 sek.Iítrar.
„Það eru hreinar ágiskanir.
Þessar reynslumælingar sem við
útfærðum benda til þess að það sé
eitthvað um yfirstillingar að ræða.
Ein af ástæðum þess er sú að það
hafa ekki verið notuð nægilega
fullkomin tæki í gegn um árin,
þau hafa hreinlega ekki verið til.
Nú eru þau hinsvegar fyrir hendi
og þau verða notuð við þessar
stillingar. Þá hafa mæliaðferðir
ekki verið fastmótaðar lengst af
en nú verður allt mælt við sömu
skilyrði og við sömu gefnu for-
sendur.“
- Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá Hitaveitu Akureyrar
og eru miðaðar við síðustu sölu-
skrá (nó.-des.) voru seldir 144,5
sek.lítrar af heitu vatni um hemla.
í desember voru seldir (sam-
kvæmt mælum) 19,6 sek.lítrar.
Þetta gera 164,1 sek.lítra.
Milli 180 og 200 sek.lítrar fara
út á kerfið. Þó gert sé ráð fyrir
neysluvatnsnotkun er nokkuð
ljóst að töluvert meira fer af heitu
vatni út á kerfið en greitt er fyrir,
jafnvel allt að 20 sek.lítrar.
'7*
Endur á Búðará á Húsavík,
Olögleg innheimta námsvistargjalda
Húseiningar hf.:
Breyttu
húsi
án þess
að hafa
leyfi
Bygginga- og skipulagsnefnd
Siglufjarðarkaupstaðar vítti á
fundi sínum í fyrra mánuði
Húseiningar hf. fyrir þau
vinnubrögð að hefja fram-
kvæmdir við breytingar á húsi
án þess að leyfi bygginga- og
skipulagsnefndar hafí komið
til.
Menntamálaráðuneytið
hyggst grípa í taumana
„Það hefur verið afstaða Akur-
eyrarbæjar og bæjarstjórnar
hingað til að við höfum ekki
ætlað okkur að taka námsvist-
argjöld af nemendum annarra
sveitarfélaga sem sækja nám
hingað á Akureyri í skólum
sem bærinn á rekstraraðild
að“, sagði Helgi Bergs bæjar-
stjóri í samtali við Dag.
Námsvistargjöld nemenda sem
stunda nám í öðru sveitarfélagi en
þeir eiga lögheimili í, hafa verið
mjög í sviðsljósinu að undan-
förnu, vegna kröfu íhaldsmeiri-
hlutans í Reykjavík um að inn-
heimta þetta gjald af nemendum
þar. Hinsvegar hefur Mennta-
málaráðuneytið upplýst að heim-
ild til lántöku námsvistargjalda sé
aðeins að finna í lögum um iðn-
fræðslu og að ráðuneytið ákveði
gjaldið.
„Við höfum greitt til annarra
sveitarfélaga vegna nemenda
héðan sem þar hafa sót nám.
Það má segja að meginreglan hafi
verið að greitt hafi verið ef ekki
hefur verið hægt að stunda við-
komandi nám hér á Akureyri. Ég
held að það séu fyrst og fremst
Reykjavík og Hafnarfjörður sem
við höfum greitt til“.
- En nú er óheimilt að inn-
heimta þessi gjöld nema ef um
iðnfræðslu er að ræða.
„Við höfum viljað að nemend-
ur héðan ættu aðgang að því námi
sem þeir vildu stunda og ef þeir
hafa ekki getað stundað það nám
á Akureyri höfum við viljað
greiða þetta jafnvel þótt það
styðjist ekki við lög, til þess að
nemendurnir gætu stundað sitt
nám í ró og friði. Ýmsar kröfur
Reykjavíkurborgar upp á síðkast-
ið hafa hinsvegar verið endur-
sendar vegna þess að það hefur
ekki komið nægilega fram á reikn-
ingunum fyrir hvaða nám er verið
að rukka.“
Látið hefur verið að því liggja
að nemendur sem ekki eru búsett-
ir í Reykjavík en hyggist stunda
þar nám fái ekki að hefja það í
haust nema viðkomandi sveitar-
félag ábyrgist greiðslu námsvist-
argjalda. I tilefni af því hefur
Menntamálaráðuneytið lýst því
yfir að það verði ekki liðið að
nemendurnir verði krafðir um
þetta gjald eða synjað um skóla-
vist vegna þess.
Þegar Húseiningar hf. fóru
fram á leyfi til að breyta þakhalla
á kvisti á austurhlið hússins að
Lækjargötu 11-13 á Siglufirði,
kom fram í umsókninni að verk-
inu væri lokið. Bygginganefnd
fjallaði aldrei um málið, en breyt-
ingarnar voru gerðar vegna leka á
þakinu og hættu á skemmdum.
Bygginganefnd hafnaði erindi
Húseininga um breytingar vegna
ófullnægjandi gagna, skriflegt
leyfi vantaði frá meðeigendum og
haldbær rök vantaði fyrir því að
ekki hafi verið hægt að þétta lek-
ann á annan hátt.
Þegar síðast fréttist hafði ekk-
ert frekar gerst í málinu. Frekari
gögn höfðu ekki borist frá Hús-
einingum. Eftir breytingarnar er
þakhalli of lítill miðað við reglu-
gerð um halla bárujárnsklæddra
þaka. Skrifstofur Húseininga eru
í umræddri byggingu.