Dagur - 17.03.1983, Blaðsíða 7
Landsfundur klúbb-
anna Öruggur akstur
FuIItrúafundur Landssamtaka
klúbbanna Öruggur akstur,
hinn níundi í röðinni, var hald-
inn í Reykjavík 24. og 25.
febrúar. Fundurinn hófst með
sameiginlegum hádegisverði
þar sem Hallgrímur Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri sam-
vinnutryggingafélaganna, flutti
ávarp.
Baldvin Ottósson, lögreglu-
varðstjóri, formaður samtak-
anna, setti síðan fundinn en að
Rættum
stjórn
hluta-
félaga
Stefán Már Stefánsson, próf-
essor við Iagadeild Háskóla
Islands, heldur almennan fyrír-
lestur í litla salnum í SjaUanum
fimmtudagskvöldið 17. mars
klukkan 19.30.
Á þessum kvöldverðarfundi
mun Stefán Már ræða almennt um
stjórn hlutafélaga og þau lög og
þær reglugerðir sem þar að lúta.
Allt áhugafólk um þetta efni er
velkomið á fundinn.
því loknu voru flutt nokkur ávörp
og ræður. Steingrímur Her-
mannsson, samgönguráðherra,
ávarpaði fundinn og ræddi þar
m.a. um langtímaáætlun í vega-
gerð og um vegamál í landinu
almennt. Davíð Á. Gunnarsson,
framkvæmdastjóri, flutti fróðlegt
erindi sem nefndist Hvað kosta
umferðarslysin? Hann rakti með
skýrum dæmum þann gífurlega
kostnað sem dauðsföll og örkuml
af völdum umferðarsh'sa valda
þjóðarbúinu. Þá flutti Oskar Óla-
son, yfirlögregluþjónn, erindi um
umferðina í dag og Ómar Ragn-
arsson, fréttamaður, flutti erindi
sem fjallaði um þjóðvegaakstur.
Á eftir erindum þessum voru
fyrirspurnir og allmiklar um-
ræður.
Á fundinum var skýrt frá því að
Baldvin Þ. Kristjánsson, erind-
reki, hefði verið kosinn fyrsti
heiðursfélagi landssamtaka
klúbbanna. Eins og kunngt er var
Baldvin aðalhvatamaðurinn að
stofnun þeirra á sínum tíma og
leysti af hendi mikið og fórnfúst
starf við uppbyggingu þeirra og
mótun á öllu starfi þeirra.
í skýrslu formanns, Baldvins
Ottóssonar, kom m.a. fram að á
síðasta ári gengust klúbbarnir
rir 21 fundi víðs vegar um land.
þeirra vegum voru einnig
heimsóttir nokkrir grunnskólar
og veitt þar umferðarfræðsla. Þá
var dreift um 11 þúsund endur-
skinsmerkjum til barna og ung-
linga á vegum klúbbanna og um-
boðsmanna Samvinnutrygginga.
Á árinu hófst einnig samstarf
klúbbanna við JC-hreyfinguna
hér á landi um eflingu umferðar-
öryggis sem miklar vonir eru
bundnar við í framtíðinni.
I ályktun um umferðar- og
vegamál var m.a. lögð áhersla á
nauðsyn þess að tryggja umferð-
aröryggi barna í nágrenni við
skóla. Einnig taldi fundurinn
mjög brýnt að löglegur hámarks-
hraði verði ávallt miðaður við að-
stæður hverju sinni og að lög-
gæsluyfirvöld nýti heimildir til að
lækka hámarksökuhraða fyrir-
varalaust eftir því hvernig aðstæð-
ur breytast hverju sinni.
Stjórn landssamtakanna var
endurkjörin en hana skipa þessir
menn: Baldvin Ottósson, lög-
regluvarðstjóri, Reykjavík, for-
maður, Gfsli Björnsson, lögreglu-
fulltrúi, Seltjarnarnesi, varafor-
maður, Jónína Jónsdóttir, frá
Gemlufelli, Reykjavík, Daníel
Oddsson, fulltrúi, Borgarnesi og
Guðjón Einarsson, lögreglu-
þjónn, Hvolsvelli. Varamenn
eru Hermann Biörnsson, póstaf-
greiðslumaður, Isafirði og Magn-
ús Steinarsson, forstöðumaður,
Akureyri. Framkvæmdastjóri
klúbbanna er Bruno Hjaltested,
aðstoðarframkvæmdastjóri Sam-
vinnutrygginga.
Bændur
Bændur
Hafið þið kynnt ykkur hagstæða verðið okkar á
og stígvélum? vy Eyfjörð
Hjatteyrargötu 4,
sími25222
Páska- Stór-
tilboð lækkun
á skíðafatnaði áður nú
Dömuskíðaföt 1.489 989
Dömuskíðaföt 1a289* 889
Dömuskíðastakkar con 489
Dömuskíðabuxur »879 259
Herraskíðaföt 889
Herraskíðaföt 1.289
Herraskíðabuxur 399
Barnaskíðaföt QQQ 599
Barnaskíðaföt QyiQ 599
HAGKAUP
Norðurgötu 62 Sími 23999
Funi heldur árshátíð sína að Sól-
garði föstudaginn 25. mars kl. 9 e.h.
Hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir
dansi. Félagar, takið með ykkur gesti.
Tilkynnið þátttöku fyrir 20. mars til Bjarna
Rifkelsstöðum, sími 31212 eða Sigurðar
Torfufelli sími 23100. Nefndin.
Þniir Denixmar
menra vixoi i
Tilboðið
heldur áfram
Grillaðir kjúklingar beint
úr ofninum
aðeins kr. 115
HRISALUNDI 5
mmti^^mmmaammmmmmmmmm
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
óskar að ráða
FÉLAGSRÁÐGJAFA til starfa við sjúkrahúsið.
Umsóknum ásamt nauðsynlegum fylgiskjölum
skal komið til Valgerðar Bjarnadóttur, félags-
ráðgjafa, sem einnig veitir nánari upplýsingar í
síma 96-22100.
SÁLFRÆÐING til starfa við T-deild sjúkrahússins
sem er meðferðardeiid fyrir geðsjúka. Umsóknum
ásamt fylgiskjölum skal komiðtil Brynjólfs Ingvars-
sonar, yfirlæknis T-deildar, sem einnig veitir nán-
ari upplýsingar, sími 96-22403.
Umsóknarfrestur um ofangreindar stöður er tii 1.
maí 1983.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
17. mars 1983 - DAGUR - 7