Dagur - 13.04.1984, Side 3
BLAÐ 2
13. apríl 1984 - DAGUR - 15
/
gœtur og afar
ódýr kostur“
- til ferðalaga frá staðnum A til staðarins B
Bílar frá Austur-Evrópu hafa átt
allnokkru fylgi að fagna hér á
Iandi og hafa líklega ekki reynst
illa ef tekið er tillit til verðs.
Aðallega hefur verið um að ræða
sovéska (Lada, Volga, Gaz og
Moskvich) og tékkneska bíla
(Skoda, Tatra), en austur-þýskir
bílar eiga einig nokkra sögu á ís-
landi. Má þar nefna P-70 bílinn,
arftaka hans Trabant og
Wartburg, bílinn sem hér verður
fjallað um. Þessir austur-þýsku
bílar eiga það allir sameiginlegt
að vera knúnir tvígengisvélum
sem þekkja má á háværum gangi
(a.m.k. undir álagi) og bláleitum
útblæstri þar sem smurolíu er
blandað saman við bensínið.
Yfirbygging og
innrétting
Wartburg 353 W er 5 manna
fólksbíll (fáanlegur sem station)
með fernar dyr. Innréttingin er
framur fátækleg á vesturlanda-
mælikvarða en þjónar þó tilgangi
sínum á sinn hátt. Framsætin eru
stór og alls ekki óþægileg en virð-
ast á einhvern hátt hálf „laus-
lopaleg“. Aftursætið er í mýkra
lagi fyrir minn smekk og rými fyr-
ir fætur meðalstórra aftursætis-
farþega mætti vera meira. Stýris-
hjólið er klætt plastkvoðu og fer
vel í höndum. Mælarnir eru með
ljósum í stað vísa að undantekn-
um hraðamælinum og aflestur
verður ekki sérlega nákvæmur.
Staðsetning stjórntækja er annars
einstök í sinni röð. Stýrið. ljósa-
rofinn og stefnuljósarofinn sem
jafnframt er flauturofi nánast það
eina sem er svona hér um bil á
„heiðarlegum“ stað. Þurrkurof-
inn sem er alveg eins og ljósarof-
inn,er t.d. á miðju mælaborðinu
og virtist vera að detta af alveg
eins og stefnuljósarofinn. Mið-
stöðvarstillar eru faldir undir
mælaborðinu hægra meginn og
því vissara að aka gætilega eða
stoppa á meðan fálmað er undir
mælaborðið. Enn betur falinn er
þó takki sem stjórnar því hvort
bíllinn fríhjólar eða ekki. Gír-
stöngin er staðsett svo framarlega
og er svo stutt að hún fer ekki vel
í hendi þeirra sem komnir eru
meira en tvo ættliði frá öpunum.
Þar að auki er líkara því að
stöngin sé tengd kassa fullum af
gúmmíteygjum en ekki gírkassa
og þar af leiðandi ekki auðvelt
fyrir byrjendur að hitta rétta
gíra. Frágangur er annars ekki
slæmur og til að mynda betri en
oft sést í sovéskum bílum. Gólfið
í Wartburg er slétt þar sem bíll-
inn er framdrifinn (ekkert drif-
skaft að afturhjólum) og að auki
byggður á grind og því þarf gólfið
ekki að vera jafn sterkt og í
grindarlausum bílum. Farangurs-
rýmið er gríðarstórt, einkum
djúpt, en hár kantur að aftan
veldur því að ekki er sérlega létt
að ganga um það en þeim mun
betra að troða í það.
Vél og undirvagn
Wartburg 353 W er með þriggja
strokka tvígengisvél, framhjóla-
drif og sjálfstæða gormafjöðrun
á öllum hjólum. Vélin er hávaða-
söm og kraftlaus á litlum snún-
ingshraða og auðvitað eru 50 hö.
í það minnsta fyrir 920 kg þungan
bílinn. Gírkassinn er 4 gíra með
gólfskiptingu sem ekki er sérlega
lipur eins og áður sagði. Fjöðrun-
in er hins vegar alveg prýðileg,
mjúk og þægileg. Einkum er
þessi bíll í essinu sínu á vondum
malarvegum þar sem fjöðrunin
„étur“ upp til agna flestar
ójöfnur. Wartburg er nokkuð
stöðugur á vegi a.m.k. ef ekið er
sæmilega beint en ekki gildir al-
veg það sama ef um krókóttan
veg er að ræða. Stýrið er heldur
ónákvæmt og þungt og átök frá
drifnum framhjólunum eru mjög
áberandi. Stýrieiginleikarnir eru
líka sérstæðir fyrir það hve bíln-
um er afls vant. Bíllinn er há-
vaðasamur og gildir það bæði um
vélarhljóð og veghljóð. Bremsur
eru nokkuð góðar þó ástigið sé
e.t.v. í þyngra lagi. Einhverjum
kann að finnast ég ósanngjarn og
hótfyndinn um bílinn, en ég hef
heldur ekki minnst einu orði á
verð hans. Það er augljóst mál að
ekki er hægt að fá alla hluti fyrir
145.000 kr. Ef þarfir manna eru
fyrst og fremst þær að ferðast frá
staðnum A á staðinn B verður að
telja Wartburg ágætan og afar
ódýran kost og býsna þægilegan
ef frá er talinn hávaðinn, en ég
verð persónulega að játa að sem
ökumaður myndi ég tæplega hafa
mikla ánægju af ferðinni.
Gerð: Wartburg 353 W, 4 dyra, 5 manna.
Vél: 3 strokka tvígengis vatnskæld bensínvél.
Borvídd 73,5 mm, Slagl. 78 mm. Slagrými 992 cm3 4 höfuð-
legur, 1 blöndungur, þjöppun 7,5:1
50 hö. (37 kW) (DIN) við 4250 sn/mín.
Snúningsjafnvægi 98 nm við 3000 sn/mín.
Undirvagn: Bcinskiptur, 4 gíra, framhjóladrif, sjálfstæð
fjöðrun á öllum hjólum, að framan með 2 þríhyrndum
þverörmum, gormum, gúmmíhjálparfjöðrum og demp-
urum, að aftan skáarmar, gormar gúmmihjálparaljaðrir
og demparar, jafnvægisstöng. Diskabremsur að framan,
skálar að aftan, handbremsa á afturhjólum, tann-
stangarsýri. Eldsneytisgeymir 44 lítra, driflilutfall 4.22:1
Hjólbarðar 165SR 13.
Mál: Lengd 422 cm, breidd 164 cm, hæð 149.5 cm, fríhæð
13.5 cm, hjólahaf 245 cm, þyngd 920 kg.
Hámarkshraði 130 km/klst. (Uppgefið af framleiðanda)
Eyðsla: Má áætla 10-12 lítra á hundraðið.
Verð: Kr. 139.000 (án ryðvarnar og skráningar).
Framleiðandi: Veb Automobilwerk Eisenach,
Austur-Þýskalandi.
Innflytjandi: Ingvar Helgason h.f.
Umboð: Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar,
Óseyri 5 a, Akureyri.
Sóló-húsgögn
Sterk og stílhrein
Eldhúsgögn, borð, stólar, kollar
Einnig tilvalið í kaffistofur, veitinga- og samkomuhús
Borð og stólar í öllum stærðum og gerðum
Alls kyns litir
og áferð
Allt eftir eigin vali
Hrísalundi 5
Kardemommu-
bærinn
eftir Thorbjörn Egner
Fjórða sýning laugardaginn 14. apríl kl. 17.00.
Fimmta sýning sunnudaginn 15. apríl kl. 15.00.
Miðasala opin alla virka daga frá kl. 15-18.
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 13 og fram að sýningu.
Leikfelag Akureyrar.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
Opið alla virka daga frá kl. 15.30-18.30.
Starfsmenn skrifstofunnar verða Tryggvi Svein-
björnsson á mánudögum og miðvikudögum og
Bragi V. Bergmann á þriðjudögum, fimmtudögum
og föstudögum.
Síminn er 21180.
Heimasímar: Tryggvi Sveinbjörnsson, 26678.
Bragi V. Bergmann, 26668.
kemur út þrisvar í viku,
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga