Dagur - 16.05.1984, Page 2
4. flokkur KA ásamt Gunnari Gunnarssyni þjálfara.
„Þessi hópur
lofar góðu“
- segir Gunnar Gunnarsson þjálfari 4. flokks
„Ég get ekki sagt annað en að
það býr margt í þessum hópi
og hann lofar góóu fyrir
sumarið,“ sagði Gunnar
Gunnarsson, en hann þjálfar
4. Ilokk KA í sumar.
Gunnar sagði að flestir pill-
anna í 4. flokki væru a fyrra ári,
og vissulega væri það ckki það
allra besta. Hann sagði hins vcg-
ar að strákarnir væru mjög
áhugasamir og lcgðu sig alla fram
við það scm þcir væru að gcra og
því væri cngin ástæða til svart-
sym.
Betri
kaup
Nýjar
sumarvörur
Nýjar innréttingar
í fatadeild
fullar af nýjum sumarvörum.
Tískusýningar
fimmtudag og föstudag
kl. 4.30 í búðinni.
Leikhorn
og fleira fyrir börnin
HAGKAUP
Akureyri
Englandi
KAí
Það var síðastliðið haust sem
Gústaf Baldvinsson, þá nýráð-
inn þjálfari m.fl. K.A., nefndi
það á fundi með leikmönnum
og stjórn að mikilvægt væri að
komast erlendis í æfingabúðir
að vori komandi. Ástæðan var
þríþætt. í fyrsta lagi að komast
á gott æfingasvæði langt frá
öllu stressi hér heima og geta
æft stíft þann tíma sem dvalið
yrði. í öðru lagi, að reyna að
fá 2-3 æfingaleiki, og í þriðja
lagi var það mikilvægasta hlið-
in þ.e. „mórallinn“. K.A. tefl-
ir fram nokkrum nýjum leik-
mönnum í sumar og var þetta
besta leiðin fyrir strákana að
kynnast.
Ákveðið var aö fara í æfinga-
búöir sem heita Eurosport Will-
age og eru staðsettar rétt fyrir
utan Ipswich. Þetta er gamalt æf-
ingasvæði breska hersins og er
verið að taka allt svæðið í gegn.
Þarna eru 6 æfingasalir, sund-
laug, einir 10 æfingavellir og
mjög þokkalegar vistarverur.
Sá sem skipulagði ferðina fyrir
okkur heitir Peter Reeves og er
hann stjórnarmaður í Cambridge
City. Hann tjáði okkur strax að
það væri ekki alveg á hreinu með
æfingaleiki því hann sagðist vera
búinn að hafa samband við ein 30
félög sem flest höfðu áhuga á æf-
ingaleik en sáu sér það ekki fært
vegna stífra leikjaprógramma,
þó var þaö á hreinu að við mynd-
um leika við Cambridge City og
Roystone Town. Cambridge er
hálfatvinnumannalið og spilar
utan deildar. Liðið hefur náð
þokkalegum árangri í vetur og
komst t.d. í undanúrslit í bikar-
keppni þessara liða. Leikið var á
mánudagskvöldi í flóðljósum á
aðalleikvangi félagsins. Leikurinn
var mjög hraður og skemmtilegur
á að horfa. Endaði hann með
sigri Cambridge 4:2 og skoraði
Ásbjörn Björnsson bæði mörkin.
Eftir leikinn var okkur boðið í
mat og voru móttökurnar mjög
góðar. Á þriðjudaginn var
haldið til Roystone, sem er lítill
bær rétt fyrir utan London. Roy-
stone Town er áhugamannalið og
spilar það í 2. deild áhugamanna
í Suður-Englandi. Liðið hefur
ekki náð góðum árangri í vetur
enda var leikurinn algjör ein-
stefna á mark þeirra, þó svo að
hann hafi endað með jafntefli
2:2. Þegar 7 mín. voru eftir var
staðan 2:0 fyrir okkur og höfðum
við þá klúðrað vítaspyrnu og
mörgum dauðafærum, þá fengu
þeir tvær sóknir og skoruðu úr
þeim báðum. Þó Roystone Town
sé ekki stór klúbbur eiga þeir
mjög gott klúbbhús. Þetta er lok-
aður klúbbur fyrir félagsmenn og
gaf hann félaginu litlar 2.5 millj.
kr. á síðasta ári, gott Umhugsun-
arefni fyrir íþróttafélögin hér.
Þriðji og síðasti leikurinn var
síðan við Southend United.
Framkvæmdastjóri þar er gamla
kempan Bobby Moore. South-
end United er í botnbaráttu 3.
deildar og er iíklegt að þeir haidi
sæti sínu þar. Leikinn unnum við
2:0 og skoruðu Ásbjörn og Hin-
rik mörkin. Eftir leikinn bauð
Bobby Moore okkur í mat á veit-
ingastað félagsins en hann er
staðsettur á aðalleikvangi félags-
ins. Þar fengum við enn einu
sinni frábærar móttökur og væri
synd að segja að Bretinn kynni
ekki að taka á móti hópum, slík-
ar voru móttökurnar alls staðar
er við komum. Á milli leikja var
síðan æft tvisvar á dag á mjög
góðum æfingavelli er okkur var
úthlutað.
Það var þreyttur en ánægður
hópur K.A. manna sem kom til
London á föstudagskvöld eftir
erfiða en lærdómsríka dvöl í
Eurosport Willage. í London
dvöldum við í tvo daga og sáum
m.a. leik Arsenal og Tottenham
Hotspur á Higbury, og var stór-
kostlegt að vera þarna innan um
48.000 áhorfendur og sjá frábær-
an leik með tveim frábærum
liðum. Þetta var annar leikurinn
sem við sáum því við sáum Ips-
wich og Nottingham Forest laug-
ardaginn áður.
Ég er alveg klár á því að allir
sem fóru í þessa ferð höfðu mjög
gott af henni og lærðu mikið af
henni. Svona ferð tengir liðið
mjög vel saman og hefur mikið
að segja fyrir móralinn í liðinu.
Mér finnst menn vilja leggja allt
í sölurnar til að ná góðum árangri
í sumar og með góðum liðsanda
og mikilli baráttu þá tekst okkur
það.
Afram K.A.
Veit ekki Þorvaldur „Þorri“ Jónsson að hann á að vera í markinu.
Það var gaman i solinm.
Lífíð er ekki bara púl og knattspyrna - Þarf að slappa af líka.