Dagur - 03.12.1984, Síða 4
16 - DAGUR - 3. desember 1984
Ur skýrslu knattspyrnudeildar KA
Á aðalfundi í október 1983 var
kjörin stjórn fyrir næsta starfsár
og skipti hún með sér verkum.
Formaður: Stefán Gunnlaugs-
son, varaformaður: Hermann
Árnason, gjaldkeri: Indriði Jó-
hannsson, ritari: Gestur Jónsson,
meðstjórnendur: Regína Sigur-
óladóttir, Sigbjörn Gunnarsson,
unglingaráð: Gunnar Kárason,
Eiður Eiðsson, Siguróli Sigurðs-
son.
Um miðjan maí baðst Siguróli
undan setu í stjórn, en vann eftir
sem áður giftudrjúgt starf fyrir
félagið þó hann sæti ekki lengur
í stjórn. Fulltrúar K.A. í stjórn
K.R.A. voru Marinó Viborg,
Karl Haraldsson og Árni Árna-
son, varafulltrúar voru Davíð
Jóhannesson og Haukur Ásgeirs-
son. Davíð kom inn sem aðal-
maður fyrir Marinó í lok tíma-
bilsins.
Á starfsárinu voru haldnir 57
bókaðir stjórnarfundir auk ann-
arra funda með þjálfurum og
leikmönnum. Fljótlega var geng-
ið frá ráðningu þjálfara. Gústaf
Baldvinsson áður þjálfari og leik-
maður með Einherja á Vopna-
firði var ráðinn þjálfari meistara-
flokks. Þar sem Gústaf var einnig
leikmaður með meistaraflokki,
var Steinþór Þórarinsson ráðinn
aðstoðarþjálfari en auk þess
þjálfaði Steinþór 2. flokk karla.
Þjálfarar annarra flokka voru: 3.
flokkur Tómas Lárus Vilbergs-
son - 4. flokkur Gunnar Gunn-
arsson - 5. flokkur Njáll Eiðsson
- 6. og 7. fl. Hinrik Þórhalls-
son, sem einnig þjálfaði meist-
araflokk kvenna en yngri flokk
kvenna þjálfaði Ásdís Sigurvins-
dóttir.
Leikja- og íþróttanámskeið
önnuðust Margrét Baldvinsdóttir
og Bjarni Jóhannsson. Þátttaka
var mjög góð eða um 80 krakkar
sem sóttu námskeiðin sem urðu 3
og tókst framkvæmd þeirra mjög
vel í alla staði.
LíITt og undanfarin ár hafa
æfingar á vegum félagsins að
miklu jeyti farið fram á gras-
völlum, Menntaskólavellinum
K.A.-svæðinu við Lundarskóla.
Þökkum við öllum þeim sem
unnið hafa að áframhaldandi
uppbyggingu á svæði félagsins,
því góð æfingaraðstaða er undir-
staða góðs árangurs. Þá þökkum
við Tryggva Gíslasyni fyrir vel-
vild hans varðandi afnot af
i Menntaskólavellinum.
Eins og á liðnum sumrum tókst
með góðri samvinnu við Hörð
Ólafsson skólastjóra og Sigurvin
Jónsson húsvörð að fá búnings-
og baðaðstöðu í Lundarskólan-
um og skólastofu fyrir starfsmenn
þar sem hægt var að koma saman
fyrir og eftir æfingar og leiki.
Gunnar Níelsson var starfsmaður
þar í sumar og þökkum við
honum, Herði og Sigurvini fyrir
gott samstarf.
Stjón knattspyrnudeildar KA.
Árangur meistaraflokks í 1.
deild olli vonbrigðum, þeir urðu
neðstir í deildinni með 16 stig og
féllu í 2. deild. Margar samverk-
andi ástæður voru fyrir þessum
laka árangri, mikið var um
meiðsli leikmanna, bönn lykil-
manna í þýðingarmiklum leikjum
og reynsluleysi ungs liðs, en með-
alaldur leikmanna var 21 ár, sem
var það lægsta í 1. deild þetta
árið.
Allir lögðu þó hart að sér við
æfingar og æfingasókn var ágæt.
Leiknir höfðu verið 15 æfinga-
leikir áður en íslandsmótið hófst.
Æfingaferð var farin til Englands
um páskana og þótti hún takast
mjög vel. Meistaraflokkur karla
varð Akureyrar- og K.R.A.-
meistarar á árinu.
Um árangur annarra flokka á
árinu er það að segja að meist-
araflokkur kvenna varð í 2. sæti
í sínum riðli í 1. deild kvenna. 2.
flokkur karla hélt sæti sínu í A-
riðli. 3. flokk gekk frekar illa, en
þar réði mest um að flestir leik-
menn voru á fyrra ári. 4. flokkur
vann sinn riðil glæsilega, þeir
léku í úrslitum á Selfossi og urðu
í 5. sæti. 5. flokkur vann sinn riðil
og keppti til úrslita á Akureyri og
varð í 7. sæti. 6. flokkur, 7
manna lið, bæði A og B lið unnu
sér rétt til að leika í úrslitakeppn-
inni í Reykjavík og varð A liðið
í 4. sæti og B liðið í 2. sæti B liða.
Einnig má geta þess að A og B lið
6. flokks tóku þátt í glæsilegu
móti Týs og Tommaborgara í
Vestmannaeyjum og hrepptu
bæði liðin 3. sæti í sínum flokki.
Um úrslit í leikjum á vegum
K.R.A. vísast til skýrslu K.R.A.
en geta má þess að K.A. átti Ak-
ureyrarmeistara í 4. flokki, 1.
flokki og meistaraflokki karla og
kvenna.
í lokahófi yngri flokka þar sem
mættir voru hátt á annað hundr-
að krakkar voru að tanda út-
nefndir leikmenn hvers flökks og
markakóngur félagsins og var
hverjum þeirra afhentur bikar og
verðlaunapeningur. Eftirtaldir
leikmenn urðu fyrir valinu:
7. flokkur Þórhallur Örn Hinr-
iksson. 6. flokkur ívar Sigurðs-
son Bjarklind. 5. flokkur Jón
Hrannar Einarsson. 4. flokkur
Gísli Símonarson. 3. flokkur
Svanur Valgeirsson. Markakóng-
ur Björn Pálmason.
Þessu unga og efnilega fólki
óskum við til hamingju og
þökkum þeim og öllum öðrum
þátttakendum yngri flokka fyrir
góða ástundun og dugnað á liðnu
ári.
í skýrslu sem þessari er ekki
hægt að nefna nöfn allra sem
stutt hafa okkur og hjálpað við
rekstur deildarinnar, en geta ber
sérstaklega Bílaleigu Akureyrar,
Iðnaðardeildar S.Í.S., Hljóm-
bæjar og Flugleiða. En mjög hag-
kvæmir samningar náðust við
Ferðaskrifstofu Akureyrar og
Flugleiðir um flutninga í keppnis-
ferðum. Án öflugs stuðnings of-
angreindra aðila hefði rekstur
deildarinnar orðið illviðráðan-
legur. Færum við þeim bestu
þakkir fyrir samstarf og stuðning
á liðnu ári.
Að lokum þökkum við dómur-
um fyrir þeirra ómetanlega starf,
knattspyrnuráðsmönnum, for-
eldrafélaginu, starfsmönnum
íþróttavalla, K.A.-klúbbnum í
Reykjavík svo og öllum öðrum
sem lagt hafa hönd á plóginn fyrir
þeirra framlag til að gera starfið
mögulegt.
Full búð af nýjum vörum
/ 1
I
C 1 -J
I “ ► * * I [ ♦ I
m , ut m , «» «,
II I I II i
*r *ó *> •«, *>í »>;'
n n i i i
........
tgfcöMBOk ,
myndbönd
VC-481 m þráöfjarstyringu kr. 45.000 (42.750 st.gr.)
VC-384 stereo m/þráðfjarstýringu kr. 51.720 (49.200 st.gr.)
8 gerðir af ferðatækjum, vasadisko, vasareiknivélar, heimilistölvur
4 gerðir
Luxoi
22” sjónvarp
með ótal framtíðarmöguleikum
Kr. 41.500.- (39.425 stgr.)
TOLVUNAMSKEIÐ
Fyrirhugað er að halda námskeið í byrjun desember.
Kennt verður á BBC tölvur.
Verð fyrlr unglinga kr. 900,- Verð fyrir fullorðna kr. 1.800,-
Nánari upplýsingar hjá Skrifstofuvali hf. í síma 96-25004.
• Sjón er sögu ríkari •
flJ) PIONCER'
og
hljómtæki
Opið til kl. 16
á laugardag.
cix
>%**»
4
.....■ ■ ■ ■••
Laser spilari á frábæru verði
kr. 28.300(26.900 st.gr.)
SKBIFSTOFUVAL HF. SUNNUHLÍÐ ■ SÍMI 96-25004