Dagur - 09.01.1985, Side 2
2 - DAGUR - 9. janúar 1985
„Ég hef fengið mjög góðar við-
tökur hér hjá samstarfsfólki
mínu og það er vissuiega upp-
örvandi þegar menn taka við
nýju starfi, að finna slíkt
viðmót. Auk þess bíða mín hér
mörg og skemmtileg viðfangs-
efni, þannig að ég uni mínum
hag hið besta.“
Þannig komst Markús Örn
Antonsson að orði í samtali við
Dag, en hann tók við starfi út-
varpsstjóra af Andrési Björns-
syni um áramótin. Markús var
spurður um hugsanlegt „Eyja-
fjarðarútvarp" á vegum Akureyr-
ardeildar Ríkisútvarpsins. Má
búast við að slíkar útsendingar
geti hafist á næstu vikum eða
mánuðum?
„Það er erfitt að spá um það
strax," svaraði Markús, „en
menn þekkja þá glæsilegu að-
stöðu sem byggð hefur verið upp
fyrir Ríkisútvarpið á Akureyri og
það hefur alltaf verið ætlunin að
nota hana fyrir staðbundnar út-
sendingar að einhverju leyti. Það
sem er næst á dagskrá er að gera
athuganir á því, hvernig útsend-
inga- og móttökuskilyrði eru á
Akureyri og í nágrenni, fyrir út-
sendingar sem hægt væri að hefja
með tiltölulega lítilli fyrirhöfn og
þá fyrst í tilraunaskyni. Akvörð-
un um framhaldið verður síðan
tekin með hliðsjón af þeirri
reynslu. En fyrst þarf sem sé að
kanna aðstæður og fá sendi sem
hentar þeim.“
- Hvernig yrði þessari starf-
semi háttað?
„Ég á von á greinargerð fljót-
lega frá Pósti og síma, sem ann-
ast dreifikerfi Ríkisútvarpsins og
annast rekstur þess, um hvaða
möguleikar eru fólgnir í dreifi-
kerfinu fyrii Rás 2, til að þjóna
ákveðnum landshlutum og
byggðarlögum, þannig að þau
gcti útvarpað staðbundnu efni
ákveðinn tíma á dag. Landsdag-
skrá rásarinnar yrði þá hætt á
meðan, a.m.k. útsendingum í
viðkomandi byggðarlagi, en stað-
bundið útvarp kæmi þess í stað..
Ég vænti þess að það komi ná-
kvæmlega fram í þessari greinar-
gerð hvað þetta kerfi býður upp
á í þcim efnum.
í fyrstu, á meðan tilraun fer
fram, má reikna með að útsend-
inar frá RÚVAK nái til Akureyr-
ar og nágrennis. Síðar rná gera
ráð fyrir að þessar útsendingar
geti náð til mun stærra svæðis um
dreifikerfi Rásar 2, jafnvel um
meginhluta Noröurlands."
- Hvernig efni á að koma frá
slíkum stöðvum?
„Það verður að mínu mati
verkefni þeirra manna sem vinna
að dagskrármálum Ríkisútvarps-
ins fyrir norðan að gera um það
tillögur. Ég geri fastlega ráð fyrir
að þar verði fyrst og fremst um
að ræða staðbundna upplýsinga-
miðlun og fréttir og fréttatengt
efni. Auk þess yrði annaö dag-
skrárefni. sem á einhvern hátt
tengist l'rekar ykkur fyrir norðan,
en á ekki eins mikið erindi til
allra landsmanna."
- Hvenær eigum við von á að
heyra í Rás tvö?
„Ég vona að það sé frekar
spurning um vikur en mánuði.
Það hafa orðið ansi miklar tafir á
afhendingu á sendum sem ætlaðir
eru fyrir dreifikerfið norður. En
við höfum fengið skýringar á
þeim drætti og ég vænti þess að
þeir komi mjög fljótlega til lands-
ins og ef veður og færð hamla
ekki aðgerðum verður strax ráð-
ist í að koma þeim upp,“ sagði
Markús Örn Antonsson.
Markús Orn hætti sem fastur
starfsmaður hjá fréttastofu sjón-
varpsins árið 1970 og sneri sér að
pólitík með því að bjóða sig fram
til borgarstjórnar Reykjavíkur á
vegum Sjálfstæðisflokksips. En
„ Það er erfitt
að losna við
þessa bakteríu
segir Markús Orn Antonsson
í Viðtali Dags-ins
hann sagði ekki alveg skilið við
stofnunina, því 1978 var hann
kosinn í útvarpsráð og þar hefur
hann verið formaður í rúmt ár.
Nú hefur Markús söðlað um
aftur; sagt skilið við bein afskipti
af pólitík og tekið að sér yfir-
stjórn Ríkisútvarpsins. Var það
erfið ákvörðun?
„Jú, að sjálfsögðu var erfitt að
skilja við borgarstjórn, þar sem
ég var að vinna við mörg
skemmtileg verkefni og mér
hafði verið treyst þar til margvís-
legra ábyrgðarstarfa. Hins vegar
held ég að það sé samdóma álit
þeirra sem eitthvað hafa fengist
við blaðamennsku, frétta-
mennsku eöa fjölmiðlun al-
mennt, að þegar menn hafa
einu sinni tekið þá bakteríu þá er
mjög erfitt að losna við hana - og
fæstum tekist það. Það gildir um
mig, því ég hef alla tíð haft mjög
mikinn áhuga á þessum málum.
Þess vegna fannst mér ákaflega
áhugavert að reyna við útvarps-
stjórastarfið, þegar ljóst var að
hér yrðu mannaskipti.“
- Fjölmiðlamaðurinn hefur
þá verið sterkari í þér heldur en
pólitíkusinn?
„Það er nú viss skyldleiki með
þessum tveim greinum; bæði fyrr
og síðar hafa blaðamenn verið
ráðandi í stjórnmálum. En ég
viðurkenni fúslega að fjölmiðla-
maðurinn í mér hafði vinninginn
að þessu sinni og ég geri ekki ráð
fyrir því á þessu stigi að ég eigi
afturkvæmt í stjórnmál. En ég
hef óhikað tekið stórar ákvarðan-
ir áður, t.d. þegar ég ákvað að
kasta frá mér tryggu og ágætu
starfi hjá sjónvarpinu, fyrir sæti í
borgarstjórn, sem engan veginn
var tryggt fyrirfram. Enda þótti
mönnum það fífldirfska a sinum
tíma.“
- Hafa orðið mikiar breyting-
ar hjá ríkisfjölmiðlunum frá því
þú varst þar fastur starfsmaður í
frumbernsku sjónvarpsins?
„Já, vissulega. Þegar við vor-
um að kveðja Andrés Björnsson
var það rifjað upp, að miklar
framfarir hafa orðið í hans tíð.
Dreifikerfi sjónvarpsins hefur
verið eflt, það var farið yfir í lita-
sjónvarp, hafnar útsendingar í
stereo hjá útvarpi, Akureyrar-
deildin stofnuð og Rás 2 komið á
fót og nú er unnið að dreifingu
útvarpsstjóri,
hennar um landið. Auk alls þessa
var hafin bygging nýs útvarps-
húss. Það hafa þvf verið mikil
umsvif hjá stofnuninni á þessum
tíma.“
- Er fjölmiðlun orðin opnari
en hún var á þeim árum sem þú
varst hjá sjónvarpinu?
„Já, almennt hygg ég að svo sé.
Ég held að þeir sem til þessara
mála þekkja og fylgst hafa með
þróuninni á undanförnum árum,
séu nokkuð sammála um það að
tilkoma sjónvarpsins hafi breytt
verulega allri fjölmiðlun um
þjóðmál. Þannig held ég að sjón-
varpið hafi fært stjórnmálin og
stjórnmálamennina miklu nær
fólkinu en var, sem m.a. varð til
þess að landsmenn sáu þá í allt
öðru ljósi en þeirra fyrri hug-
myndir sögðu til um.“
- Nú tekur þú við stjórnun
stofnunar, sem á að vera hafin
yfir alla pólitík. Áttu ekki von á
því að þín beinu afskipti af pólit-
ík geti orðið þér fjötur um fót?
„Nei, ég á alls ekki von á því.
Ég geri mér jú fullkomlega grein
fyrir því, að fólk veit hvaðan ég
kem og úr hvaða jarðvegi, þannig
að það efast ekkert um mínar
grundvallarskoðanir á stjórnmál-
um. Hins vegar tel ég mig kunna
þá list að láta það ekki hafa áhrif
á gang mála hér innan stofnunar-
innar, þannig að ég geti rækt mín
störf eins og til er ætlast."
- Þú óttast ekki óvægari gagn-
rýni vegna þessa?
„Ég geri allt eins ráð fyrir því,
að einhverjir eigi eftir að tengja
gerðir mínar hér hjá útvarpinu
forsögu minni í pólitík, en þá
verð ég bara að taka því. Hins
vegar er það bjargföst sannfæring
mín, að ég geti rækt þetta starf
eins og til er ætlast, þannig að all-
ir geti vel við unað, hvar sem þeir
standa í stjórnmálaflokkum."
- Markús Örn Antonsson er
Reykvíkingur í húð og hár, aust-
urbæingur, en býr nú í Breiðholt-
inu ásamt eiginkonu sinni, Stein-
unni Ármannsdóttur og tveimur
börnum. Að lokum var hann
spurður um verkefni útvarps-
stjóra í frístundum.
„Utvarpsstjórinn verður eðli-
lega að gera sér far um það að
fylgjast nokkuð grannt með
dagskrá ríkisfjölmiðlanna, efni
blaða og tímarita og annarri
þjóðmálaumræðu. En þar fyrir
utan hef ég fyrst og fremst
ánægju af því að fara í göngu-
ferðir, ekki síst í nágrenni borg-
arinnar.“
- Einhver uppáhaldsleið?
„Já, af því að ég bý í Breiðholti
þá liggur afskaplega skemmtileg
gönguleið um Élliðaárdalinn vel
við, upp hjá Elliðavatni, Vatns-
enda og Rjúpnahæð. Eftir atvik-
um fer ég allt suður að Vífils-
stöðum og Garðabæ og heim
aftur, ellegar þá í kring um
Elliðavatn og upp í Rauðhóla og
þaðan jafnvel niður í Mosfells-
sveit. Það er úr mörgu að velja og
maður getur haft gönguferðina
klukkustundarlanga, eða allt upp
í 4—5 tíma, allt eftir því hvað tím-
inn leyfir," sagði Markús Örn
Antonsson í lok samtalsins. GS
Fjallshlíðar á
ekki að nota
undir auglýsingar
Eiríkur Pétursson hringdi:
Ég vil koma á framfæri mótmæl-
um vegna þeirrar auglýsingastarf-
semi sem KFUM og K voru með
á nýársnótt og Dagur greindi frá
undir fyrirsögninni „Jesús lifir“.
Mér finnst það smekkleysa af
versta tagi að nota fjallshlíðar
undir auglýsingar og þá er sama
frá hverjum þær eru. Megum við
kannski eiga von á því að sjá í
framtíðinni: „Það hressir, Braga-
kaffið" í flennistórri auglýsingu í
Vaðlaheiðinni. Varðandi slag-
orðið Jesús lifir, þá er þetta stað-
hæfing sem ekki fær staðist að
mínu mati. Mér finnst allt í lagi
með ártalið sem skátarnir sjá um,
enda skilst mér að þetta sé gamall
siður.
Góðar bíómyndir
á Siglufirði
borgarsvæðisins til þess að geta
séð þær. Þetta hafa verið frábær-
ar nýjar myndir. Toppurinn var
svo auðvitað á dögunum er ein
mynd var frumsýnd hér í bæ um
leið og frumsýnt var í Reykjavík.
Vegna þessa erum við kvik-
myndaáhugamenn hér á Siglu-
firði mjög hressir þessa dagana,
og finnst gott að vera hér. Okkur
verður oft hugsað til þeirra sem
áhuga hafa á kvikmyndum og eru
svo ólánssamir að búa á Akur-
eyri, það er víst ekkert hægt að
gera annað en að vorkenna þeim.
Ánægður Siglfirðingur hringdi:
Það er svo sannarlega gaman að
vera Siglfirðingur þessa dagana
og ekki síst ef maður er um leið
áhugamaður um kvikmyndir eins
og ég.
Steingrímur Kristinsson sem
rekur kvikmyndahúsið hér hefur
verið með frábærar myndir að
undanförnu. Hver myndin af
annarri hefur komið hingað um
leið og sýningum á henni hefur
lokið í Reykjavík, og Siglfirðing-
ar því orðið fyrstir utan höfuð-