Dagur - 09.01.1985, Side 4

Dagur - 09.01.1985, Side 4
4 - DAGUR - 9. janúar 1985 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 180 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 25 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GÍSLI SIGURGEIRSSON BLAÐAMENN: EIRÍKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Endurmat á kjörum Endurflutt hefur verið á Alþingi frumvarp til laga um endurmat á störfum láglaunahópa. Þar er gert ráð fyrir að skipuð verði 5 manna nefnd til að fá fram hlutlausa rannsókn og endurmat á störfum og kjörum láglaunahópa og að gerð verði úttekt á hlut þeirra í tekju- skiptingu og launakjöruim í þjóðfélaginu. Að þessu frumvarpi standa þingmenn allra flokka. Þetta mál varð ekki útrætt á síðasta þingi. Nú hafa slíkar aðstæður hins vegar skapast í þjóðfélaginu að það er ekki vansalaust fyrir Alþingi að láta þetta þinghald líða án þess að því verði komið í gegn. Þróunin undanfarið hefur að margra mati orðið til þess að tekju- misrétti í þjóðfélaginu hefur stórlega aukist. Tvær þjóðir eru í landinu sem búa við gjörólík kjör. Lagt er til að lögfest verði tímabundið skipan láglaunanefndar sem hafi það verk- efni að framkvæma hlutlausa rannsókn og endurmat á störfum og kjörum láglaunahóp- anna og skilgreina þá. í greinargerð segir: „Hlutlaus úttekt og endurmat er nauðsynlegt fyrir aðila vinnu- markaðarins til að geta lagt sanngjarnt mat á vinnuframlag láglaunahópa og eðlilega hlut- deild þeirra í tekjuskiptingunni. Auk þess er sú rannsókn, sem hér er gerð tillaga um, for- senda þess að á raunhæfan hátt sé hægt að auka tekjur láglaunahópanna í þjóðfélaginu. Einnig myndi slík rannsókn leiða í ljós hvern- ig launamisrétti kynjanna er háttað í ein- stökum starfsgreinum." Auk þess að fá fram mat sérfróðra manna á því hvort störf láglaunahópanna séu óeðli- lega lágt metin er einnig talið nauðsynlegt að fá fram samanburð og mat á því hvort ekki hafi þróast hér óeðlilegt tekjubil milli starfs- stétta í þjóðfélaginu. Það er ljóst að slíkt mat, sem hér er lagt til, er langt frá því að vera auðvelt í framkvæmd. Það er skoðun flutningsmanna að hér sé þó um að ræða svo brýnt og knýjandi verkefni, að stjórnvöldum beri skylda til að sjá svo um að þessi tilraun sé gerð. Flutningsmenn taka fram að á engan hátt sé verið að ganga fram hjá aðilum vinnumarkaðarins, enda til þess ætlast að þeir verði kallaðir til ráðuneytis um slíka rannsókn. Þeir benda einnig á að ára- tugum saman hafi verið um það deilt hvaða hópar í þjóðfélaginu séu láglaunahópar. Ein ástæða þess að slík skilgreining hafi ekki fengist sé sú að ekki hafi verið kannað ítar- lega í öllum starfsgreinum hvaða yfirborganir og aðrir kaupaukar og kjaraþættir utan við hina eiginlegu kauptaxta séu ákvarðandi hluti dagvinnutekna eða heildarlaunatekna. Ef vel tekst til gætu niðurstöður nefndar- innar orðið grundvöllur þess að láglaunahóp- arnir fengju réttlátt mat og sanngjörn laun fyrir störf sín og því er hér um gagnlegt mál að ræða sem þarf að fá afgreiðslu hið fyrsta. Yfirlit Veðurstofu íslands um veðráttuna 1984: rr llýt ra l 1 bj ij lara Þi nrr, i - á Akureyri miðað við Reykjavík í janúar var rysjótt tíð og kalt um allt land, hiti 2,7° undir meðaltali áranna 1931-60. Vestan til á landinu var óvenju snjóþungt. Með febrúarmánuði tók að skipta mjög í tvö horn um veðrið á landinu. Vestan til var áfram hretviðrasamt og óvenju snjó- þungt allan veturinn, en frá Norðurlandi til Suðausturlands var góð tíð og óvenju snjólétt. Mánuðina febrúar til apríl var meðalhiti á öllu landinu um 1° yfir meðallagi, norðan lands og austan um 2° yfir því, en víðast suðvestan og vestan lands var hit- inn lítið eitt undir meðallagi. Vindar milli suðurs og vesturs voru tíðari en venja er til og hélst svo fram undir haust. Maí var fremur kaldur en alls staðar var þó kominn góður gróður í mánaðarlok og var hann talinn um mánuði fyrr á ferðinni en árið áður. í Reykjavík var úrkoman 40% umfram meðallag en á Akureyri og.á Höfn var hún minni en í meðalári. í Reykjavík var úrkoman meiri en í meðalári alla mánuði frá febrúar til ágúst og mest að tiltölu í júlí og ágúst. Á Akureyri var úrkoman breyti- legri. Hún var meiri en í meðalári í febrúar, apríl og júní en minni í mars, maí, júlí og ágúst. í júní og júlí var hitinn um meðallag í Reykjavík, en í ágúst 0,9° undir því. Á Akureyri var hlýtt alla þessa mánuði, einkum þó í júlí og ágúst, en þá var hitinn tæplega 2° yfir meðallagi. Mjög hlýtt var um allt land fyrstu viku júní og einnig fyrstu 9 dagana í júlí. I september var vindur norðlægari en áður og rösklega 1° kaldara en í meðalári í Reykja- vík og á Akureyri en á Höfn var mun mildara. Haustmánuðina október og nóvember var lengst af stillt veður og svalt. í Reykjavík og á Akureyri var 1,5-2,0° kaldara en í meðalári, en á Höfn var hitinn um meðallag. Urkoma var minni en í meðalári nema á Akureyri í nóvember. Desember hefur verið umhleypingasamur og úrkoman verður meiri en í meðalári bæði í Reykjavík og á Akureyri. Hitinn verður rétt yfir frostmarki á báð- um stöðunum, en það er V20 kaldara en í meðalári í Reykja- vík og hlýrra en í meðalári á Akureyri. Meðalhiti ársins verður aðeins hærri á Akureyri en í Reykjavík, 4,2° á Akureyri en 4,0° í Reykja- vík. Á Akureyri er þetta 0,3° yfir meðalhitanum 1931-60 og 1° hlýrra en á árunum 1961-80. Er þetta í fyrsta skipti sem meðalhit- inn er hærri á Ákureyri, frá því að mælingar hófust. Ársúrkoman verður um 1.000 mm í Reykjavík en 500 mm á Akureyri og er það meira en í meðalári á báðum stöðunum hvort sem miðað er við 1931-60 eða 1961-80. Sólskinsstundir verða sem næst 980 í Reykjavík en 1.040 á Akur- eyri. í Reykjavík vantar þá um 270 klst. upp á meðaltalið fyrir 1931-60 og 325 sé borið saman við árin 1961-80. Á Akureyri verða sólskinsstundirnar um það bil 80 fleiri en á árunum 1931-60 en 25 færri en þær reyndust að meðaltali 1961-80. . . . en sumario var afburðagott. Snjór var ekki sjaldséður á Norðurlandi . . . Meðalhiti Úrkoma Sólskin Akureyri 4,2° 500 mm 1.040 klst. Reykjavík 4,0° 1.000 mm 980 klst. " -

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.