Dagur - 09.01.1985, Blaðsíða 9
9. janúar 1985 - DAGUR - 9
Guðmundur
kjörinn
Nýlega kusu Ólafsfirðingar
sinn „Knattspyrnumann árs-
ins“ fyrir árið 1984 og voru það
leikmenn m.fl. Leifturs sem
kusu.
Niðurstaðan varð sú að þeir
völdu fyrirliða sinn Guðmund
Garðarsson sem „Knattspyrnu-
mann ársins“ en Guðmundur
sem er miðvörður og mikill harð-
jaxl átti gott sumar á sl. ári eins
og reyndar liðið allt sem vann
frækilegan sigur í 3. deild og
tryggði sér í fyrsta skipti rétt til
að leika í 2. deild.
Einn landsleikur í hand-
knattleik hefur verið háður
á Akureyri. Það var fyrir 10
mánuðum er Rússar mættu í
Höllina, og áhorfendur
settu þá aðsóknarmet.
1H Immal
„JUKKd nnr nunid!
Allt bendir til þess að júgó-
slavneskir handknattleiks-
menn muni heimsækja Akur-
eyri á næstunni. Akveðið er að
júgóslavneska liðið Crevenka
sem leikur gegn Víkingi í
Evrópukeppni bikarhafa muni
leika gegn KA á Akureyri 29.
janúar og svo er von á sjálfum
Olympíumeisturum Júgóslava
í febrúar.
Handknattleiksdeild KA er í
samningum við stjórn HSÍ um að
einn landsleikur íslendinga og
Júgóslava verði háður á Akur-
eyri, og er talað um 13. febrúar
sem leikdag. Þegar þessar línur
voru skrifaðar benti allt til þess
að samningar tækjust um að fá
þennan leik hingað.
Júgóslavar eru sem fyrr sagði
Olympíumeistarar og segir það
allt sem segja þarf um styrkleika
þeirra. Mönnum er sjálfsagt enn
Jón Kristjánsson.
í fersku minni leikur íslands og
Júgóslavíu á Olympíuleikunum í
Los Angeles í ágúst er ísland var
komið með nánast unninn leik en
Júgóslövum tókst á ótrúlegan
hátt að sleppa með jafntefli. Stig-
ið sem liðið tapaði gegn íslandi
var eina stigið sem Júgóslavarnir
töpuðu í Los Angeles.
Landsleikur í handknattleik
hefur einu sinni áður farið fram
á Akureyri, en það var er Sovét-
menn komu hingað fyrir um ári.
Þá mættu um 1.500 manns í
íþróttahöllina sem er aðsóknar-
met og má fastlega búast við því
að það met verði slegið 13.
febrúar ef „júkkarnir" koma. Ár-
angur íslenska landsliðsins að
undanförnu hefur verið góður ef
leikirnir við Svía eru undanskild-
ir, og ekki annað vitað en að ís-
land muni tefla fram sínu sterk-
asta liði í þessum leikjum við Ol-
ympíumeistarana.
Feögarnir fara
til Olafsfjarðar
„Við ætlum að byggja þetta
upp á þeim kjarna sem við
höfum hér á staðnum,“ sagði
Jóhann Helgason stjórnar-
maður í knattspyrnudeild
Leifturs í Ólafsfirði er við
ræddum við hann, en Leiftur
mun í fyrsta skipti leika í 2.
deild knattspyrnunnar næsta
keppnistímabil.
Leiftursmenn hafa gengið frá
sínum þjálfaramálum fyrir
sumarið og sá sem tekur við af
Kristni Björnssyni er ekki með
öllu ókunnugur í Ólafsfirði. Það
er Einar Helgason sá gamli mark-
vörður en hann þjálfaði Leiftur
1983 og kom þá liðinu upp úr 4.
deild.
Logi sonur Einars mun ætla að
verja mark Leifturs í sumar en
hann lék vel með Magna sl.
keppnistímabil. Þá hefur Sölvi
Ingólfsson, ungur piltur úr Þór
ákveðið að spreyta sig í Ólafs-
firði, en ekki er vitað um aðrar
breytingar á liðinu sem vann
sigur í 3. deildinni.
Jóhann Helgason sagði að erf-
itt væri að eiga við æfingamálin
hjá þeim Leiftursmönnum.
Meirihluti liðsins væri í Reykja-
vík við nám og myndi þeir sem
þar eru reyna að fá inni hjá
reykvískum félögum til þess að
koma sér í gang áður en þeir
koma norður í vor.
NM unglinga í handknattleik:
Jón verður
fyrirliði
Einn Akureyringur hefur verið
valinn í landslið unglinga 18
ára og yngri í handknattleik
sem tekur þátt í Norðurlanda-
meistaramóti unglinga sem
fram fer í vor.
Þetta er Jón Kristjánsson úr
KA, og hefur Jón verið tilnefnd-.
ur sem fyrirliði liðsins. Heyrst
hefur að Geir Hallsteinsson sem
hefur veg og vanda að undirbún-
ingi liðsins fyrir þetta mót hyggist
byggja liðið að verulegu leyti upp
í kringum Jón, og að áhersla
verði lögð á að notfæra sér styrk-
leika Jóns sem sóknarleikmanns.
1—X—2
Ámi Jónsson.
„Nafnið
fallegt"
,fMér fannst nafnið fallegt, já
alveg mjög fallegt,“ sagði
Árni Jónsson QPR-aðdáandi
sem er spámaöur vikunnar að
þessu sinni, er við spurðum
hann hvað hefði valdið því að
hann hóf að halda með þessu
1 liði. „Það spilaði líka inn í að
ég vildi ckki halda með liði
sem margir héldu með, og
þegar QPR sem var í 3. eða 4.
dcild komst einu sinni í úrslitin
í bikarkeppninni tók ég að
lialda með liöinu.“
- Þú ert sennilega ekki
ánægður með gengi liðsins
þessa dagana, og sérstaklcga
ekki árangurinn í bikarkeppn-
inni um helgina?
„Það eru erfiðir tímar núna
og liðið er að ná sér upp eftir
að hafa sparkað framkvæmda-
stjóranum. Það var allt í lagi
að tapa í bikarkeppninni.“
- Hverjir verða Englands-
meistarar?
„Varla við. Ég hef trú á að
það verði Manchester United.
Tottenham tapar stigum gegn
okkur núna um hclgina og ég
held að United standi uppi
sem sigurvegari í vor.
Og þá er það spá Árna:
A.Villa-Watford 1
Luton-N.Forest 2
Nonvich-Southampton 2
QPR-Tottenham 1
Sheff.Wed.-WBA 1
Sunderland-Liverpool 2
West Ham-Chelsea x
Cardiff-Barnsley x
Carlisle-Birmingham 1
C.Palace-Bríghton x
Fulham-Oxford 2
Huddersf.-Man.City 1
Beggi með
4 rétta
Baldvin „Beggi“ Ólafsson
spámaður í síðustu viku náði
ekki að komast á toppinn og
reyndar er Ijóst að hann kemst
ekki einu sinni í úrslitin.
Baldvin var með 4 rétta en
cfstur er sem fyrr Sigurður
Pálsson með 6 rétta. 6 spá-
menn eru síðan með 5 leiki
rétta hver.
1—X—2