Dagur - 09.01.1985, Síða 11
9. janúar 1985 - DAGUR - 11
Tveir
heiðurs-
félagar
KA
Knattspyrnufélag Akureyrar,
KA, varð 57 ára í gær og var af
því tilefni haldinn stjórnar-
fundur í aðalstjórn félagsins.
Þar var ákveðið að gera tvo af
félögum KA að heiðursfélögum,
en báðir þessir menn hafa unnið
mjög mikið starf fyrir félagið,
verið formenn og sinnt fjölda
annarra starfa.
Þetta eru þeir Haraldur M.
Sigurðsson íþróttakennari, en
hann var m.a. formaður KA
1953-1955 og aftur 1974-1975, og
Haráldur Sigurðsson bankafull-
trúi, en hann var formaður KA
1976-1978.
Ómar í
Borgarbíói
Á stórstúkuþingi sem haldið var
á Akureyri síðastliðið vor var
ákveðið að 10. janúar skyldi vera
bindindisdagur ár hvert.
Af þessu tilefni gangast Góð-
templarar á Akureyri fyrir sam-
komu í Borgarbíói næstkomandi
fimmtudagskvöld kl. 8.30. Þar
kemur fram hinn landskunni
skemmtikraftur og bindindis-
maður Ómar Ragnarsson, en
hann verður ennfremur aðal-
ræðumaður kvöldsins. Öllum
verður heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir.
Þakkirfrá
sóknamefndum
Sóknarnefndir Akureyrar- og
Lögmannshlíðarsóknar gengust
fyrir því að bíll sem Bílaleiga Ak-
ureyrar lánaði endurgjaldslaust,
var staðsettur í göngugötunni í
miðbæ Akureyrar laugardaginn
22. des. sl. milli kl. 16 og 23, tii að
taka við söfnunarbaukum og
peningaframlögum í söfnun
Hjálparstofnunar kirkjunnar,
„Brauð handa hungruðum
heimi“. Einnig stóðu sömu aðilar
að móttöku framlaga til þessarar
söfnunar í Akureyrarkirkju kl.
13-18 á Þorláksmessu. Á þessum
tveim dögum söfnuðust þannig
samtals kr. 112.904,40.
Hjálparstofnun kirkjunnar og
sóknarnefndir Akureyrar- og
Lögmannshlíðarsóknar flytja
bæjarbúum og öðrum gefendum
fjár hugheilar þakkir fyrir þann
ágæta skilning og undirtektir,
sem söfnunin „Brauð handai
hungruðum heimi" liefur mætt
hér í bæ.
Hjálparstofnunin tekur áfram
á móti framlögum til hjálpar fólki
í sveltandi heimi. Framlög er
hægt að leggja inn á gíróreikn-
ing stofnunarinnar nr. 20005-0
hjá bönkum, sparisjóðum og
pósthúsum.
Borgarbíó
Miðvikudag kl. 9:
MAÐUR, KONA, BARN.
Fimmtudag kl. 11:
SEVEN.
Á laugardag hefjast sýningar
á myndinni
KÚREKAR NORÐURSINS.
Laugardag kl. 15:
LEYNIFÉLAGIÐ.
Barna- og unglingamynd.
—....... ■ I !■■■■■ II
lambamerki
ELTEX lambamerkin eru gerð úr þunnri álplötu, með
bognum járnpinna, sem stungið er í eyrað og lokaö.
ELTEX merkin fást áletruö (2X4 stafir) með tölustöfum
og/eða bókstöfum.
Við höfum selt þessi merki við góðan orðstýr í mörg
undanfarin ár, og verðum meö á lager merkjaraðir
1—1000. FÁST f LIT
Ef óskað er eftir sérstimpluðum merkjum, vinsamlega
leggið inn pantanir á varahlutalager okkar sem fyrst, og
ekki seinna en 15. janúar n.k.
DNG hf.
óskar eftir að ráða iðnaðarmenn eða laghenta
verkamenn í eftirtalin störf:
1. Rennismíði og vélvirkjun.
2. Samsetningu og frágang á rafeindastýrðum
handfaeravindum.
Upplýsingar um áðurgreind störf ekki veittar í
síma.
Umsóknir sendist til:
DNG Box 157, 602 Akureyri.
Bankastörf
Við leitum að ungum starfsmönnum
til bankastarfa.
• Um heilsdagsstarf er að ræða.
• Verslunarmenntun æskileg.
• Einnig lífleg framkoma og góður sam-
skiptahæfileiki.
• Örugg og góð atvinna handa ungu og
áhugasömu fólki.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofunni.
FELLhf. Kaupvangsstræti 4 -Akureyri - simi 25455
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
KRISTRÚNAR MARGRÉTAR HÁLFDÁNARDÓTTUR,
Bjarkarstíg 5, Akureyri,
fer fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 12. janúarkl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast
hennar, er bent á líkarstofnanir.
Bernharð Jósefsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Öllum þeim mörgu nær og fjær sem auðsýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför
TRYGGVA HARALDSSONAR
færum við innlegar þakkir.
Sérstakar þakkir starfsfólki bæjarfógetaskrifstofu Akureyrar
fyrir veitta aðstoð.
Fjóla Jónsdóttir,
synir, tengdadætur og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
JÓNS TRYGGVASONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimilinu Hlíö fyrir
umönnun síðustu ára.
Kristín Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
^ Tölvuskóli M A
Námskeið hefjast að nýju 14. janúar
Öll námskeiðin standa yfir í þrjár vikur, tvisvar í viku, samtals
18 tímar auk opinna æfingatíma.
Kennsla fer fram í tölvuveri Menntaskólans á Akureyri klukk-
an 20.00-22.00. Hámarksfjöldi nemenda á hverju námskeiði
er 12 en lágmarksfjöldi 8. Hver þátttakandi hefur tölvu fyrir
sig. í lok námskeiðs fá nemendur viðurkenningarskjal.
Skráning og allar upplýsingar á skrifstofu Menntaskólans
á Akureyri, sími 25660.
1. Einkatölvur (PC) og notkun stýrikerfis
(14. janúar - 1. febrúar.)
Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynnast möguleikum
einkatölvunnar. Megináhersla verður lögð á stjórnun tölv-
unnar og umgengni við tölvur og tölvugögn. Kynnt verða
ýmis notendaforrit svo sem ritvinnsla, áætlanagerð,
gagnagrunnur o.fl.
2. Ritvinnsla II (Easywriter II)
(14. janúar - 1. febrúar.)
Ritvinnsla II frá ATLANTIS hf. er nú mest notaða rit-
vinnslan á PC tölvum á íslandi. Engin tölvuþekking nauð-
synleg. Farið verður í eftirfarandi atriði:
Stutt kynning á vélbúnaði og stýrikerfi.
Valmyndir og kerfisaðgerðir.
Ritvinnsluskipanir.
3. Tölvubókhald (4. -22. febrúar.)
Námskeiðið hentar öllum sem vilja fá þekkingu á notkun
PC tölva við bókhald fyrirtækja. Nokkur bókhaldsþekking
nauðsynleg. Farið verður í:
Bókhaldslykla og uppsetningu fyrirtækjabókhalds.
Fjárhagsbókhald.
Skuldunautabókhald.
Pantana- og sölunótukerfi.
4. Turbo-PASCAL (4 -22. febrúar.)
Turbo-Pascal er eitt vinsælasta forritunarmálið í dag.
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja kynnast þessu öfluga
forritunarmáli og hafa nokkra þekkingu á tölvum og for-
ritun.
5. Áætlanagerð/töflureiknir (Easyplanner)
(4.-22. febrúar.)
Easyplanner er forrit gert af sama fyrirtæki og Ritvinnsla
II. Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja kynna sér mögu-
leika PC tölva til áætlanagerða og arðsemisútreikninga.
Engin tölvuþekking nauðsynleg.
6. Gagnasafnskerfi (dBase II o.fl.)
(25. febrúar - 15. mars.)
Námskeiðið hentar öllum sem þurfa að vinna við uppsetn-
ingu skráa og meðferð gagna svo sem áskrifendaskrár,
félagaskrár, nemendaskrár, einkunnaskrár, rannsókna-
skrár o.fl. o.fl.
Ef næg aðsókn fæst verður boðið upp á framhaldsnámskeið í
tölvubókhaldi og gagnavinnslu síðar í vetur.
Bent skal á að margir endurmenntunarsjóðir stéttarfélaga
veita styrki til þátttöku á þessum námskeiðum.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.