Dagur - 06.02.1985, Síða 3
6. febrúar 1985 - DAGUR - 3
Fíkniefni á Akureyri:
- segir Daníel Snorrason rannsóknarlögreglumaður
„Það er mitt álit að tíkniefna-
neysla hafí aukist talsvert hér í
bænum. Ég hef hins vegar ekki
möguleika á að rökstyðja það,
málum hefur ekki fjölgað hjá
okkur né heldur höfum við
tekið meira af þessum efnum
en áður, en þetta er samt sem
áður mín tilfínning,“ segir
Daníel Snorrason rannsóknar-
lögreglumaður á Akureyri.
að um að það sé mikið um fíkni-
efnaneyslu í hinum smærri út-
gerðarstöðum víða um landið."
- Á hvaða aldri eru þeir fíkni-
efnaneytendur sem þið hafið haft
afskipti af?
„Langflestir þeirra sem hafa
komið við sögu hjá okkur varð-
andi þessi mál eru í kringum
tvítugt. Það eru dæmi um bæði
eldra fólk og yngra en langflestir
eru um tvítugt."
„Ég held að það sé ekkert
vafamál að þessi þróun er að eiga
sér stað hér eins og gerst hefur
víða um landið,“ sagði Daníel.
„Nú er að verða meira og meira
um sterkari efni í Reykjavík eins
og t.d. amfetamín og kókaín og
það er viðbúið að þetta komi
hingað líka. Annars held ég að
Akureyringar séu enn eftirbátar
margra smærri staða hvað fíkni-
efnaneyslu varðar. Ég kann ekki
skýringu á því nema þá að hér er
stöðugt vinnuafl. F>að er t.d. tal-
- Er það eingöngu hass sem
þetta fólk hefur haft undir
höndum?
„Já, það er eingöngu hass sem
við höfum tekið af fólki hér.“
gk--
„Erfitt að tjá
sig um stöðuna“
- segir Geir Friðgeirsson læknir á Akureyri
„Ég er ekki í aöstöðu til þess
að dæma um það hvort fíkni-
efnaneysla hefur aukist hér í
bænum,“ segir Geir Friðgeirs-
son læknir á Akureyri, en Geir
á sæti í starfshópi um fyrir-
byggjandi aðgerðir vegna
notkunar fíkniefna meðal
unglinga.
„Ég held að það sé varasamt
að úttala sig um þetta mál án þess
að hafa vissar staðreyndir á borð-
inu og þær hef ég ekki,“ sagði
Geir. „Við höfum tekið þá af-
stöðu í þessum samstarfshópi að
úttala okkur ekki um þetta eða
dæma stöðuna en þess í stað
höfum við einbeitt okkur að því
að kynna okkur fyrirbyggjandi
starf."
- Hvernig er ykkar fyrirbyggj-
andi aðgerðum háttað?
„Við fórum til Noregs sl. vor til
þess að kynna okkur hvernig
staðið er að þessum málum þar.
Við höfum sent Heilsuverndar-
stöð Akureyrar og fleiri aðilum
greinargerð um þessa ferð og það
er væntanleg grein í Sveitar-
stjórnartíðindum þar sem við
gerum grein fyrir þessu máli, og
okkar hugmyndum um fyrir-
byggjandi aðgerðir.
Þar kemur margt til greina,
fræðslustarfsemi, leitarstarfsemi
og eftirlitsstarfsemi, m.a. toll-
gæsla og löggæsla. Menn virðast
sammála um að það sé nauðsyn-
leg sem víðtækust samvinna
heimila og skóla, hins opinbera
og fleiri aðila til að vinna að þess-
um málum. En ég held að það sé
mjög erfitt að tjá sig um stöðuna
eins og hún er á Akureyri í dag.
Þetta er til hér í bænum, en við
höfum ekki sannanir í höndunum
til þess að slá neinu fram þar um
nánar,“ sagði Geir.
gk'-
Ferðafélag Akureyrar
Aðalfundur
í Skátaheimilinu Hvammi kl. 20.00 föstudaginn
15. febrúar.
Félagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
^HITACHI
22“ skermur, þráðlaus fjarstýring.
Kr. 41.850,00.
VT 34E kr. 44.800,00.
Staðgreiðsluafsláttur eða afborganir.
■ONNUHUD
S 22111
ÍUiWiBUÐIN
Frá Kjörbúð KEA
Byggðavegi 98
Tilboð
Tilboð í búðinni
fimmtudaginn 7. febrúar.
Sænsk pylsa
frá Kjötiðnaðarstöð KEA.
15% afsláttur.
•¥■ ¥■
Ath. Fleiri tilboð í gangi.
Það borgar sig að líta inn.